Morgunblaðið - 17.01.2001, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2001 9
Spáirðu í útlitið?
Loforð um töfravirkni krema
standast illa og dýrustu kremin
sjaldnast þau bestu. Það er stans-
laus vinna að hugsa vel um húð-
ina og því borgar sig að spá í
verð og innihald krema. N°7 er
alltaf með það nýjasta sem bætir
útlit og stendur alltaf við þau lof-
orð sem upp eru gefin. Yngingu á
stundinni eða varanlegri ynging-
ar/næringarmeðferðir. Í förðunar-
línunni færðu allt til að fela húð-
lýti og farða þig skv. nýjustu
tísku. Það eru aðallega apótek
sem selja N°7 þar sem framleið-
andi N°7 er lyfjafyrirtæki og
bjóða þau uppá afslátt á lúxus-
kremum til 1. febrúar.
A
ug
lý
si
ng
1928, á horni Laugavegs og Klapparstígs, sími 552 2515.
Sprengitilboð á
Funki leðurstólum
Áður 67.000
nú 53.600
RADISSON SAS, HÓTEL ÍSLANDI
Veffang: www.broadway.is • E-mail: broadway@broadway.is
Forsala miða og borðapantanir
alla virka daga kl. 11-19.
Sími 533 1100 • Fax 533 1110
ROKKSÝNING
ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI !
NÆSTA SÝNING LAUGARDAG - 3. FEBRÚAR
Einhver magnaðasta
sýning sem sett hefur
verið á svið á Broadway.
Eiríkur Hauksson kemur
frá Osló í hverja sýningu
og syngur Freddie Mercury.
Landslið Íslenskra hljóðfæraleikara kemur
við sögu og flytur allra vinsælustu lög
hljómsveitarinnar frá upphafi til vorra daga.
Hljómsveitarstjóri: Gunnar Þórðarson.
Dansstjórn: Jóhann Örn. - Leikstjórn: Egill Eðvarðsson.
26. jan. Sólarkaffi Ísfirðinga, Hljómsveit Stefáns P. leikur fyrir dansi
2. feb. Skemmtikvöld Austfirðinga, Hin alþjóðlega hljómsveit
Ágústar Ármanns leikur fyrir dansi
3. feb. Queen-sýning, diskótek ásamt hljómsv. Dans á rósum í Ásbyrgi
9. feb. Queen-sýning, diskótek ásamt Lúdó sextett og Stefán í Ásbyrgi
24. feb. Queen-sýning, diskótek ásamt hljómsv. Dans á rósum í Ásbyrgi
4. mars Hár&Fegurð, Íslandsmeistaramót
10. mars BEE-GEES-sýning, diskótek, Lúdó sextett og Stefán í Ásbyrgi
23. mars Queen-sýning, diskótek, Lúdó sextett og Stefán í Ásbyrgi
24. mars Karlakórinn HEIMIR, Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar
30. mars Queen-sýning, diskótek, Lúdó sextett og Stefán í Ásbyrgi
14. apríl Nights on Broadway, Geir Ólafsson og Big Band
Framundan á Broadway:EINKASAMKVÆMI
MEÐ GLÆSIBRAG
Árshátíðir, ráðstefnur, fundir,
vörukynningar og starfsmannapartý
Fjölbreytt úrval matseðla.
Stórir og litlir veislusalir.
Borðbúnaður-
og dúkaleiga.
Veitum persónulega ráðgjöf við undirbúning.
Hafið samband við Guðrúnu, Jönu eða Ingólf.
Sýning laugardaginn 10. mars
Sýning í heimsklassa!
Hljómsveitarstjóri: Gunnar Þórðarson.
Sviðssetning: Egill Eðvarðsson.
Danshöfundur: Jóhann Örn.
Lýsing: Aðalsteinn Jónatansson.
Hljóð: Gunnar Smári.
Söngvarar:
Kristinn Jónsson, Davíð Olgeirsson,
Kristján Gíslason, Kristbjörn Helgason,
Svavar Knútur Kristinsson, Guðrún Árný
Karlsdóttir, Hjördís Elín Lárusdóttur.
Loks er upp runnin sú langþráða stund að Blús,
Rokk og Djassklúbburinn á Nesi (BRJÁN) skundar
á stað suður fyrir heiðar til að setja upp tónlistar-
veislu á Broadway. BRJÁN á uppruna sinn að rekja
til Neskaupstaðar og hefur staðið fyrir tónlistar-
veislum sem þessari frá 1989 og haft mismunandi
þemur ár hvert.
Þema þessarar veislu nú eru frægir smellir úr
bíómyndum, jafnt erlendum sem íslenskum.
Þetta er í þriðja sinn sem BRJÁN heldur til höfuð-
borgarinnar til að skemmta menningarþyrstum
íbúum suðvesturhornsins og hefur aðsóknin aukist
ár frá ári svo rétt er fyrir þig að hafa hraðann á að
panta miða á þessa skemmtun.
Sem dæmi um lög sem flutt verða eru til dæmis,
A Hard Days Night, Sönn ást, Eye of the Tiger,
Pretty Woman, Footloose, Skyttan - Allur lurkum
laminn og mörg mörg fleiri.
Hér er á ferðinni stórsýning þar sem um 30 manns
koma fram, söngvarar, hljóðfæraleikarar og
dansarar. 1400 manns sáu sýninguna í Egilsbúð, í
Neskaupstað í haust.
Hin alþjóðlega hljómsveit Ágústar Ármanns leikur
fyrir dansi.
SKEMMTIKVÖLD AUSTFIRÐINGA
Föstudaginn 2. febrúar
Bíósmellir
Söngvarar eru: Smári Geirsson, Helgi Magnússon, Stella Steinþórs-
dóttir, Halldór Friðrik Ágústsson, Guðmundur R. Gíslason, Karl
Jóhann Birgisson, Ágúst Ármann Þorláksson, Sigurður Sigurðsson,
Ingibjörg Þórðardóttir, Rósa Dögg Þórsdóttir, Sigurjón Egilsson, Bjarni
Freyr Ágústsson, Heiðrún Helga Snæbjörnsdóttir, Helgi Georgsson,
Laufey Sigurðardóttir og Vilhelm Harðarson. Í bakröddum eru: Elín
Jónsdóttir, Kristjana Guðmundsdóttir og Heiðrún Helga Snæbjörns-
dóttir.
Dansarar eru: Stella Steinþórsdóttir, Rósa Dögg Þórsdóttir, Joanne
Wojtowits, Laufey Sigurðardóttir.
Í hljómsveit eru: Píanó: Ágúst Ármann Þorláksson. Hljómborð: Helgi
Georgsson. Gítar og trompet: Bjarni Freyr Ágústsson. Gítar: Jón
Hilmar Kárason. Gítar: Þorlákur Ægir Ágústsson. Bassi: Viðar
Guðmundsson Saxófónn: Einar Bragi Bragason. Trommur: Pjetur
Sævar Hallgrímsson Ásláttur: Smári Geirsson.
Kynnir: Jón Björn Hákonarson. Tónlistarstjórn: Bjarni Freyr Ágústsson
Danshöfundur: Guðrún Smáradóttir.
Mikið úrval af
brjóstahöldurum
verð frá kr. 700
Mömmubrjósta-
haldarar kr. 1900
Úrval af náttfatnaði
fyrir börn og fullorðna
Nýbýlavegi 12, sími 554 4433www.leir.is
NEFND sjávarútvegsráðherra um
endurskoðun laga um stjórn fisk-
veiða lauk ekki störfum um ára-
mót, eins og að hafði verið stefnt
og óvíst er hvenær það verður, að
sögn Friðrik Más Baldurssonar,
formanns nefndarinnar.
Friðrik sagði að starfi nefndar-
innar miðaði ágætlega og búið væri
að fara yfir flesta þætti málsins.
Skýrsla auðlindanefndar, sem
komið hefði síðastliðið haust, hefði
verið gott innlegg í umræðuna í
nefndinni um marga þætti málsins.
Ólík sjónarmið ríkja
innan nefndarinnar
Hins vegar væri ennþá engin
niðurstaða af starfi nefndarinnar
og erfitt að segja um hvenær henn-
ar væri að vænta, þó svo nefndin
hafi átt að skila af sér um síðast-
liðin áramót. Hann vonaðist hins
vegar til þess að það yrði sem
fyrst.
Aðspurður hvort mikill ágrein-
ingur væri innan nefndarinnar
sagði Friðrik ljóst að uppi væru
mismunandi sjónarmið í nefndinni,
eins og vænta mætti í jafn mik-
ilvægu máli fyrir íslenskt samfélag
og stjórn fiskveiða væri. Hins veg-
ar væri unnið að því að ná sameig-
inlegri niðurstöðu um málið og
mikið á sig leggjandi til þess að það
gæti orðið.
„Auðvitað er mikilvægt að starf-
inu ljúki eins fljótt og kostur er.
Því lengur sem óvissa ríkir í þess-
um efnum því verra er það fyrir
sjávarútveginn í heild,“ sagði Frið-
rik Már.
Hann bætti því við að nefndin
hefði á starfstíma sínum, en hún
var skipuð haustið 1999, rætt við
fulltrúa hagsmunasamtaka í sjáv-
arútvegi, sveitarfélaga og fleiri að-
ila. Mikill tími hefði farið í þetta,
en nauðsynlegt hefði verið að fara í
slíka yfirferð til að nefndin gæti við
vinnu sína haft hliðsjón af sem
flestum sjónarmiðum.
Auk Friðriks Más sitja í nefnd-
inni Kristján Skarphéðinsson,
skrifstofustjóri í iðnaðar- og við-
skiptaráðuneytinu, og alþingis-
mennirnir Árni Steinar Jóhanns-
son, Kristinn H. Gunnarsson,
Sighvatur Björgvinsson, Tómas
Ingi Olrich og Vilhjálmur Egilsson.
Nefnd um endurskoðun fiskveiðistjórnunarlaganna
Óvíst hvenær nefnd-
in lýkur störfum
TOLLGÆSLAN á Keflavíkur-
flugvelli stöðvaði íslenska konu
á fertugsaldri þegar hún kom
til landsins frá Danmörku á
fimmtudag vegna gruns um
fíkniefnasmygl.
Konan var handtekin af lög-
reglunni á Keflavíkurflugvelli
og send í röntgenmyndatöku.
Þá kom í ljós að hún var með
um 200 g af hassi innvortis.
Málið er enn í rannsókn.
200 g af
hassi
innvortis