Morgunblaðið - 17.01.2001, Blaðsíða 40
HESTAR
40 MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FREMSTIR FYRIR GÆÐI
Milli manns og hests...
... er
arhnakkur
ÞAÐ var hestamannafélagiðHörður sem stóð fyrirnámskeiðinu en tilkennslu var fenginn þýsk-
ur hestamaður, Gerd Mildenberger,
sem um árabil hefur unnið með
þessa aðferð. Hann lærði hjá
bandarískum manni, Georg James
að nafni, sem aftur lærði hjá Pat
Brennan sem er eitt af stóru nöfn-
unum í Ameríku. Georg James er
af blönduðum kynstofni negra og
indíána og hefur skapað sér gott
nafn vestanhafs sem alhliða hesta-
fræðingur.
Úr steinslípun
í hestana
Mildenberger er lærður gim-
steinaslípari og starfar sem slíkur
skammt frá hinum samliggjandi
borgum Idar-Oberstein í Þýska-
landi. Vinna með vandamálahross
ýmiss konar hefur tekið stóran
hluta af tíma hans undanfarin ár.
Til að komast að hrossinu og í
framhaldinu sjálfu vandamálinu
notar hann þessa áhugaverðu
hringgerðisaðferð þar sem hann
laðar hrossin að sér.
Þótt Mildenberger hafi talsverða
reynslu af íslenskum hestum bæði
hér á Íslandi og eins í Þýskalandi
sagðist hann ekki hafa kynnst svo
mörgum ótömdum hrossum og nú.
Sagði hann að nokkur munur væri
á þeim og öðrum ótömdum hross-
um sem hann hefði komist í tæri
við. Hrossin hér væru greinilega
viðkvæmari og næmari, það vantaði
þetta villta í hrossin ytra. Þetta
taldi Mildenberger gera íslensku
hrossin áhugaverðari en ella og
vissulega væri skemmtilegt að fá
tækifæri til að kynnast þeim á
þennan máta.
Ingimar
með yfir 900 hross
Mikið hefur verið rætt og ritað
um þessa aðferð allt frá því að Ingi-
mar Sveinsson, þáverandi kennari á
Hvanneyri, kynnti sér útfærslu
Monty Roberts og lagaði að ís-
lenskum aðstæðum og er þá sér-
staklega verið að tala um hrossin
sjálf. Á engan er hallað þótt fullyrt
sé að Ingimar hafi mesta reynslu af
þessari aðferð sem hann kallar „Af
frjálsum vilja“.
Ingimar sagðist í samtali við
hestaþáttinn ekki hafa neinn einka-
rétt á þessu nafni en sér fyndist
eðlilegt að þeir sem þróuðu sínar
aðferðir fyndu sér gott nafn hver á
sína aðferð. Sjálfur hefði hann upp-
haflega farið í smiðju til Monty Ro-
berts og síðan aðlagað og þróað það
eftir þeirri reynslu sem hann hefur
aflað sér þessi sjö eða átta ár sem
hann er búin að vera að kenna
þetta.
Sagðist hann enn, eftir að hafa
farið höndum um fleiri en 900
hross, vera að bæta inn í nýjum
hlutum, þetta væri í stöðugri þróun.
Sextíu ár væru síðan hann hóf að
temja hross og allan þann tíma hafi
hann verið læra nýja hluti í hesta-
mennskunni.
Ingimar segir að í fyrstu hafi
menn nú hlegið að þegar hann fór
að kenna þessa aðferð en í dag sé
því öðruvísi farið og eru það orð að
sönnu því mikil ásókn er í námskeið
af þessu tagi bæði hjá honum og
öðrum.
Á námskeiðinu í Hindisvík í byrj-
un janúar var boðið upp á það sem
kallað var áhorfsþátttaka og á nám-
skeiði sem haldið verður á sama
stað seinni hluta janúar þar sem
Ingimar mun kenna verður einnig
boðið upp á slíkt.
Féll þetta fyrirkomulag í mjög
góðan jarðveg á fyrrnefnda nám-
skeiðinu en með þessu móti skap-
aðist meðal annars möguleiki fyrir
fólk sem af ýmsum ástæðum treysti
sér ekki til að mæta með hest til að
kynna sér áhugaverða hluti. Hvað
varðar námskeiðið hjá Ingimari má
ætla að ýmsir sem áður hafa sótt
námskeið hjá honum með hest hafi
áhuga á að fylgjast með til upprifj-
unar. Má því ætla að hér sé komið
áhugavert fyrirkomulag sem reynd-
ar er vel þekkt víða erlendis.
Rassreipaaðferðin
reynst best á Gauksmýri
Magnús Lárusson og Svanhildur
Hall hestafræðingar á Gauksmýri
hafa einnig þróað sína aðferð en
þau numu sín fræði í Bandaríkj-
unum. Svanhildur sagði að þau
Magnús væru mjög samstíga í að-
ferðum og hefðu prófað margt í
þessum efnum.
Á Gauksmýri er mikið tamið og
alltaf eitthvað um að menn sendi
þangað hross sem þurfa sérmeðferð
af ýmsum ástæðum. Það sem best
hafi gefist hingað til sé svokölluð
rassreipaaðferð og eins telji þau
fljótlegast og árangursríkast að
fara á bak hrossunum inni í stíu og
taka þar fyrstu skrefin í hinni eig-
inlegu frumtamningu. Þá noti þau
mikið ganga í hesthúsinu áður en
þau fara með trippin í stærra rými.
Sagði Svanhildur að sér þætti best
að auka smátt og smátt við það
rými sem hrossin séu tamin í en
með því móti verða viðbrigðin lítil
og minni hætta á óvæntum uppá-
komum.
Um næstu helgi verður haldið
námskeið um þetta efni á Hesta-
miðstöðinni að Gauksmýri þar sem
þau Svanhildur og Magnús munu
kenna. Einnig verða þau með nám-
skeið víða um land á komandi mán-
uðum.
Fjórði aðilinn sem nefna mætti í
þessu sambandi er svo tamninga-
maðurinn kunni, Benedikt Líndal,
sem nýlega gaf út áhugaverða
myndbandsspólu um frumtamn-
ingu. Benedikt hefur aðlagað að-
ferðir hestamannsins kunna, Pats
Parelly, að sínum aðferðum og sýn-
ir útkomuna á þessari ágætu spólu.
Það sama má segja um Benedikt að
hann er ásetinn næstu vikur og
mánuði í námskeiðshaldi.
Vísir
að orðabók
Allir sem kynnt hafa sér þessa
nýju bylgju ef svo má að orði kom-
ast eru sammála um að nú loksins
sé kominn hinn rétti samskiptamáti
við hestinn. Kominn sé vísir að
orðabók yfir tungumál eða tjáning-
armáta hestsins sem gerir hesta-
mönnum kleift að skilja viðbrögð
hestanna og bregðast þá við á
skynsamlegri og eðlilegri hátt
þannig að meira verði um gagn-
kvæman skilning.
Þótt aðferðir þessara hestafræð-
inga séu mismunandi í mörgu,
byggja þær allar á sama grunni,
þ.e. er að tamningamaðurinn fái
viðurkenningu hestsins sem leiðtogi
og geti laðað hestinn að sér til sam-
starfs.
Magnús Lárusson komst
skemmtilega að orði í grein sem
hann skrifaði í Eiðfaxa fyrir um
einu eða tveimur árum þar sem
hann sagði að þessi grunnaðferð
væri í sjálfu sér ekki hin eiginlega
tamning heldur samningaumleitanir
sem enduðu með undirritun sam-
starfsssamnings. Undirritun hests-
ins birtist í formi þess að hann við-
urkennir tamningamanninn sem
leiðtoga og eltir hann eins og
Að laða að ljúfan hest
Fjölmörg námskeið verða haldin um hin nýju fræði í vetur. Námskeiðið í Hindisvík var vel sótt og gera má ráð fyrir að önnur verði það einnig.
Morgunblaðið/Valdimar
Að komast í leiðtogahlutverkið er grundvallaratriði í allri hrossatamn-
ingu og til þess að svo verði þarf að reka hrossin þar til þau sýna merki
um samstarfsvilja.
Benedikt Líndal hitti Gerd Mildenberger
þegar hann var hér á landi og færði honum
þýska útgáfu af mynd sinni, Frumtamning.
Eitt hið mikilvægasta er að nema merki hestsins um sam-
starfsvilja. Ef þau fara framhjá tamningamanninum verður
ekki um samstarf að ræða á þeim nótum sem leitað er eftir.
Sigrúnu Þórarinsdóttur gekk vel á námskeiðinu, með sinn fallega fola
sem er undan Þorra frá Þúfu, og hugði hún gott til glóðarinnar með
áframhaldandi tamningu að námskeiði loknu.
Hið svokallaða hestahvísl, sem mörgum finnst reyndar hið mesta ónefni, fer nú mikinn í hestamennskunni, ekki
bara á Íslandi, heldur um víða veröld. Snjallir hestamenn hafa tileinkað sér aðferðina og þróað og kennt öðrum á
námskeiðum. Eitt slíkt var haldið í Hestamiðstöðinni Hindisvík í byrjun árs og Valdimar Kristinsson fylgdist með í
hæfilegri fjarlægð og undraðist enn og gladdist yfir þessum frábæra samskiptamáta við hestinn sem nú er völ á.