Morgunblaðið - 17.01.2001, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 17.01.2001, Blaðsíða 14
FRÉTTIR 14 MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ HÖRÐ gagnrýni á ríkisskattstjóra, skattstjórann í Reykjavík og Yf- irskattanefnd kemur fram í grein Guðmundar Jóelssonar endurskoð- anda í nýjasta fréttabréfi löggiltra endurskoðenda. Þar rekur Guð- mundur mál umbjóðenda sinna, sem Yfirskattanefnd úrskurðaði um fyrir nokkru í óhag umbjóðend- anna. Í úrskurðinum telur Guð- mundur hins vegar koma fram at- hyglisverða túlkun á tímamörkum sem skattyfirvöldum eru sett til að afgreiða mál. Þar átelur Yfir- skattanefnd skattstjórann í Reykjavík fyrir að hafa farið „frek- lega“ fram úr þeim fresti sem hon- um er settur samkvæmt skatta- og stjórnsýslulögum en drátturinn er samt ekki talinn nægja til að ómerkja þær breytingar skatt- stjórans sem umbjóðendur endur- skoðandans sættu sig ekki við. Studdist Yfirskattanefnd þar m.a. við nokkra hæstaréttardóma. Telur endurskoðandinn að skatt- yfirvöld séu á villigötum í þessum efnum og miklu skipti að í sam- skiptum þeirra við endurskoðendur séu leikreglurnar skýrar og þær virtar. Ríkisskattstjóri og formað- ur Yfirskattanefndar segja það miður þegar afgreiðsla mála tefjist en mikið hafi áunnist í þessum efn- um undanfarin ár. „Þögn“ í 28 mánuði Málsatvik eru þau að 25. mars árið 1996 óskaði Skattstjórinn í Reykjavík eftir að fá bókhaldsgögn umbjóðenda Guðmundar, sem voru einstaklingur og tengt einkahluta- félag, og voru þau afhent skömmu síðar, eða 11. apríl. Þann 6. janúar árið 1997 tilkynnti skattstjóri áform um endurákvörðun opin- berra gjalda. Umbjóðendur Guð- mundar mótmæltu áformum skatt- stjóra með bréfi þann 21. janúar 1997. Um það sem næst gerðist segir Guðmundur í grein sinni: „Síðan tók við algjör þögn um málið og töldum við því að fallið hefði verið frá fyrri áformum en svo var aldeilis ekki því eins og ekkert væri sjálfsagðara birtist úr- skurður frá skattstjóra dags. 11. maí 1999 (þ.e. 28 mán. seinna) þar sem öllum kröfum umbjóðanda míns er hafnað...“ Umbjóðendur Guðmundar vís- uðu þá málinu til Yfirskattanefnd- ar með bréfi þann 31. maí 1999, sem fimm dögum síðar sendi rík- isskattstjóraembættinu málið til umsagnar eins og vera ber. Fimm mánuðum síðar, eða 5. nóvember 1999, lagði ríkisskattstjóri fram kröfugerð sína, en samkvæmt lög- um ber honum að gera slíkt innan 45 daga. Í kröfugerðinni var sagt að úrskurð skattstjóra ætti að staðfesta en jafnframt tekið undir með kæranda að afgreiðsla málsins hefði dregist nokkuð. Yfirskattanefnd kvað síðan upp úrskurð sinn tæpu ári síðar, eða 27. september árið 2000, þar sem öll- um kröfum umbjóðenda Guðmund- ar var hafnað að því undanskildu að áður álögð viðurlög á einstak- linginn voru felld niður. Í millitíð- inni hafði Guðmundur vakið athygli nefndarinnar á ákvæðum stjórn- sýslulaga þar sem m.a. kemur fram að stjórnvöld skuli ákvarða í mál- um svo fljótt sem unnt er og skýra aðilum máls frá því ef dráttur verð- ur á afgreiðslu og umfjöllun. Í greininni segir Guðmundur ennfremur: „Öll meðferð og nið- urstaða skattyfirvalda á máli þessu er að mati undirritaðs með hrein- um ólíkindum og ef niðurstöður þess eiga að gefa tóninn um, hvað skuli teljast eðlileg vinnubrögð í slíkum málum og hvað ekki, þá séu skattyfirvöld á miklum villigötum. Það er nærtækt að álykta sem svo, að skattyfirvöld megi taka gögn til skoðunar, „gleyma“ þeim síðan niðri í skúffu í 2-3 ár, rekast þá á þau að nýju og halda áfram þar sem frá var horfið, eins og ekkert hafi í skorist. Það versta sem hent gæti væri að þurfa að þola allt að því góðlátlegar skammir frá Yfir- skattanefnd fyrir vinnubrögð. Réttur þolandans er enginn, hvað sem öllum stjórnsýslu- og skatta- lögum líður. Hann skal bara bíða í sinni „spennitreyju“, sem í þessu tilviki náði yfir fjögur og hálft ár. Hann hefur vissulega velt því fyrir sér að fara með málið á æðra dómsstig með tilheyrandi viðbót- arkostnaði en lái honum hver sem vill að hika við slíkt eftir það sem á undan er gengið.“ Mikið áunnist í að bæta afgreiðslutímann Indriði H. Þorláksson ríkisskatt- stjóri sagðist í samtali við Morg- unblaðið ekki tjá sig um mál ein- stakra einstaklinga eða lögaðila. Almennt séð væri það miður að ekki væri hægt að standa við sett tímamörk. Það ætti við um báða aðila, skattyfirvöld og skattgreið- endur. Hann sagði afgreiðslu mála oft ráðast af því hversu greiðlega gengi að fá umbeðnar upplýsingar. „Almennt hefur verið reynt að bæta afgreiðslutíma mála hjá okk- ur. Heilmikið hefur áunnist á síð- ustu árum, einkum er varðar um- sagnir okkar til Yfirskattanefndar. Það heyrir til undantekninga ef löng bið verður á umsögn til nefnd- arinnar. Ég get ekkert sagt um einstök mál. Þótt það dragist hjá okkur að skila inn umsögn þá er ekki þar með sagt að það þýði seinkun málsins hjá Yfirskatta- nefnd. Margt annað getur ráðið málshraðanum,“ sagði Indriði og nefndi m.a. skort á mannafla hjá embætti ríkisskattstjóra. Atgangur væri mikill á skömmum tíma og vinnan dreifðist ójafnt yfir árið. Um 90 manns starfa hjá embætti ríkisskattstjóra sem á ári hverju afgreiða nærri því 1.000 mál til Yf- irskattanefndar og önnur skatta- mál nema nokkrum þúsundum. Indriði sagði nokkur brögð að því hjá lögaðilum að þeir skiluðu framtölum seint og illa. Þannig skilaði um þriðjungur lögaðila framtölum eftir lögboðinn skila- frest. Þetta ylli auknu álagi á starfsmenn skattstjóra sem þyrftu að áætla álagningu á viðkomandi aðila, sem oft kallaði á eftirmál og kærur. Ólafur Ólafsson, formaður Yfir- skattanefndar, sagði við Morgun- blaðið að afgreiðslutími mála hefði að meðaltali styst á síðustu árum. Meðaltalið hefði á árunum 1992- 1998 verið frá 8 til 14 mánuðir, en 4-6 mánuðir á árunum 1998 og 1999. Taldi Ólafur að meðaltalið fyrir árið 2000 væri svipað, eða upp undir 6 mánuðir. Málsmeðferðar- tími má að hámarki vera 7½ mán- uður, þar af 1½ mánuður hjá rík- isskattstjóra og 6 hjá Yfirskatta- nefnd. „Það er ekki hægt að neita því að sum mál taka lengri tíma en lög kveða á um. Meðaltalið segir okkur að sum mál taka langan tíma og önnur eru afgreidd mun hraðar,“ sagði Ólafur. Endurskoðandi gagnrýnir skattyfirvöld harðlega fyrir að virða ekki tímamörk í afgreiðslu mála Mikilvægt að leik- reglur séu virtar SLÖKKVILIÐ höfuðborgarsvæðis- ins var kallað að Tryggvagötu í Reykjavík í fyrrinótt vegna elds í úti- kamri. Mikill eldur var í kamrinum, sem var gerður úr plastefni, og gjör- eyðilagðist hann í eldinum. Ekki urðu aðrar skemmdir. Talið er víst að kveikt hafi verið í kamrinum og er málið í rannsókn hjá lögreglu. Kveikt í útikamri UNNIÐ er að fjárhagslegri end- urskipulagningu á fyrirtækinu Ís- lenskum harðviði á Húsavík og vænta menn þess að síðar í þessum mánuði muni liggja fyrir hvort og þá hvernig fyrirtækið verður reist við. Forsvarsmenn félagsins hafa m.a. leitað til Byggðastofnunar og Húsavíkurbæjar um aðstoð í þeirri vinnu. Hjalti Halldórsson formaður stjórnar Íslensks harðviðar sagði að í rúman mánuð hefði staðið yfir vinna við það að endurfjármagna fyrirtækið. Erindi hefur verið lagt fyrir stjórn Byggðastofnunar og fyrir hana lögð gögn og áætlanir varðandi reksturinn, en að sögn Hjalta liggur enn ekki fyrir hverj- ar lyktir málsins verða. Verið er að fara yfir gögnin og þess vænst að þeirri vinnu ljúki þegar líður á mánuðinn. Starfsemi fyrirtækisins mikilvæg fyrir Húsavík Tap varð af rekstrinum á síðast- liðnu ári en að sögn Hjalta liggur ekki fyrir hversu mikið það var, þar sem endanlegt uppgjör liggur ekki fyrir. Hjalti sagði að næg eft- irspurn væri eftir framleiðsluvör- um fyrirtækisins. Það væru aðrar ástæður sem lægju að baki þeim erfiðleikum sem fyrirtækið glímdi við um þessar mundir. Ríflega tutt- ugu manns starfa hjá fyrirtækinu nú. Fyrirtækið Íslenskur harðviður var stofnað á Húsavík árið 1999 eftir gjaldþrot harðviðarvinnslunn- ar Aldins hf. Félagið er í eigu Ís- lendinga og Svía. Fyrirtækið er hið eina á markaðnum sem notar há- hita við þurrkun á hráefni til park- etframleiðslu, en verksmiðja þess skiptist upp í sögunarmyllu, þurrk- klefa, kubbasmiðju, borðafram- leiðslu og stafaparketframleiðslu. Reynhard Reynisson bæjarstjóri á Húsavík sagði að erindi Íslensks harðviðar væri til skoðunar hjá bæjaryfirvöldum, þar væri verið að fara yfir málið með öðrum þeim sem hefðu það til skoðunar. Reynhard sagði afar mikilvægt að það tækist að endurreisa fjár- hag félagsins, það væri Húsavík og nágrenni mikils virði að hafa starf- semi þess í gangi, en um og yfir 20 manns hefðu þar atvinnu. Sagði bæjarstjóri að þýðing þess fyrir bæjarfélagið væri álíka miklvæg og starfsemi um 150 manna fyrirtækis á Akureyri. „Þetta fyrirtæki skipt- ir Húsavík mjög miklu máli. Menn hafa haft miklar væntingar um að hægt væri að nýta ákveðnar auð- lindir hér með þessum hætti og þau tækifæri sem felast í því að millivinna bandarískan harðvið inn á Evrópumarkað,“ sagði Reyn- hard. Hann sagði að það yrði mikið högg fyrir svæðið tækist ekki að endurskipuleggja fjárhag fyrirtæk- isins, starfsemin hefði margs konar áhrif önnur en þau beinu og aug- ljósu, til að mynda á rekstur hafn- arinnar og eins á flutningafyrir- tæki, en miklir flutningar fylgdu starfsemi Íslensks harðviðar. „Við eigum því verulega mikið undir því að vel takist til,“ sagði bæjarstjóri. Unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu Íslensks harðviðar á Húsavík Byggðastofnun hefur erindi um aðstoð til umfjöllunar Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson GREINT var frá því í Víkverja- pistli í Morgunblaðinu sl. sunnu- dag að fyrirtækið Lyfja tölvuskrái persónuupplýsingar um viðskipta- vini sína í venjulegum búðarkassa um leið og greitt sé fyrir lyf. Ingi Guðjónsson, framkvæmdastjóri Lyfju, segir að búðarkassinn sé nú orðinn hluti af tölvukerfi verslun- arinnar. Samkvæmt reglugerð beri lyfsölum að tölvuskrá allar upplýs- ingar á lyfseðlum og landlæknir geti krafist þessara upplýsinga allt að eitt ár aftur í tímann. Áður en búðarkassi varð hluti af tölvukerfi verslunarinnar hafi lyf- seðlar verið afgreiddir án þess að þessar upplýsingar færðust sjálf- krafa inn. Í lok vinnudags hafi síð- an allir lyfseðlar verið handfærðir inn í tölvukerfi. Ingi segir að það eina sem hafi breyst sé að nú færist upplýsingarnar sjálfkrafa inn um leið og greitt sé fyrir lyfin og nafn viðskiptavinar birtist á skjá í búðarkassanum. Þarna sé ekki síst um öryggissjónarmið að ræða og með því sé reynt að tryggja að verið sé að afgreiða réttan lyfseðil til viðkomandi við- skiptavinar. Búðar- kassinn hluti af tölvu- skráningu ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.