Morgunblaðið - 17.01.2001, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 17.01.2001, Blaðsíða 23
VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2001 23 B í l d s h ö f ð a • 1 1 0 R e y k j a v í k • s í m i 5 1 0 8 0 2 0 • w w w . i n t e r s p o r t . i s Þ Í N F R Í S T U N D - O K K A R F A G 2 Jól 2000 Brettapakkar CRAZY CREEK PRIMERO snjóbretti. Mikið fyrir peningana. Mjög gott snjóbretti fyrir börn og unglinga með svokallaðri CAP uppbyggingu, sem eykur stöðugleika og styrk brettisinns. Barnabretti: Lengdir: 100-130 cm kr. 12.290,- Unglingabretti: Lengdir: 135-160 cm kr. 14.990,- CRAZY CREEK UNIVERSAL bindingar. Einfaldar og sterkar bindingar fyrir byrjendur. Barnabindingar: Kr. 5.990,-. Unglingabindingar: Kr. 6.890,- CRAZY CREEK PRIMERO snjóbrettaskór. Þægilegur og sterkur snjóbrettaskór fyrir byrjendur St.19-25,5. Kr. 6.500,- St. 26-31. Kr. 6.500,-. SALOMON DRIVER snjóbretti. Stöðugt og skemmtilegt snjóbretti fyrir þá sem vilja eitthvað aðeins meira. Monocoque uppbygging sem gefur betra flot og betri kantskurð. Trékjarni og yfirborð úr P-tex 900-Grafít. Lengdir: 140-165 cm. Kr. 26.990,- SALOMON S2 bindingar. Einfaldar, sterkar og klassískar snjóbrettabindingar. Botnplata með svokölluðum T-púðum sem auka grip fyrir skóna og er auk þess dempandi. Þægilegur bakkappi og mjúkar og fóðraðar ökklaólar. Kr. 8.990,- Brettapakki, unglinga: Bretti, bindingar og skór. 24.780,- Brettapakki, barna: Bretti, bindingar og skór. CRAZY CREEK YANK snjóbretti + CC UNIVERSAL bindingar. Léttleikandi og stöðugt snjóbretti fyrir börn og unglinga. CAP uppbygging. Lengdir: 110 – 125 – 133 cm. Bretti kr. 14.990,-. Bindingar kr. 6.890,-. CRAZY CREEK COUNTRY JR heitur og þægilegur snjóbrettaskór sem auðvelt er að fara í og úr. Laus innri skór. St. 19-24,5. Kr. 7.280,- 20.980,- 7.280,- Bretti með bindingum Bretti með bindingum 28.380,- Raðgreiðslur/léttgreiðslur . 35.980,- Tilboð Umboðs- og heildverslun Nethyl 3-3a - 110 Reykjavík Sími 53 53 600 - Fax 567 3609 Hilluplan fyrir lausar vörur og bitar fyrir vörubretti. Einfalt í uppsetningu Skrúfufrítt. Smellt saman Í allar áttir Netverslun - www.hillur.is Þunga- vörurekkar Trygg gæði - Gott verð! ● STOFNFJÁRAUKNING sú sem auka- fundur stofnfjáraðila Sparisjóðs Ön- undarfjarðar ákvað á fundi sínum í lok október síðastliðins tókst umfram björtustu vonir, að því er fram kemur í tilkynningu frá sparisjóðnum, og seld- ist upp allt það stofnfé sem í boði var. Alls er nú 131 stofnfjáraðili í Spari- sjóði Önundarfjarðar, en fyrir voru 35, þannig að aukningin nam 274%. Stærsti hluti þessara nýju stofnfjár- aðila er búsettur í Ísafjarðarbæ. Heildarstofnfé í sparisjóðnum var 6.957.510 krónur hinn 31. desem- ber síðastliðinn. Í tilkynningu Sparisjóðs Önund- arfjarðar kemur fram að margir hafa sýnt áhuga á að gerast stofnfjáraðilar í sparisjóðnum og fjölmargir þeirra ekki fengið nema hluta þess stofnfjár sem óskað var eftir. Þessi mikli áhugi er hvatning til enn frekari uppbygg- ingar öflugs sparisjóðs sem ákveðið er að verði sameinaður Sparisjóði Súðavíkur, Sparisjóði Þingeyrar- hrepps og Eyrasparisjóði á vormán- uðum þessa árs. Allt stofnfé Sparisjóðs Önundarfjarðar seldist ● GREININGARDEILD Kaupþings birti spá fyrir helgina um lækkun stýrivaxta á öðrum ársfjórðungi þessa árs, en að sögn Birgis Ísleifs Gunnarssonar seðlabankastjóra er vaxtalækkunar ekki að vænta. Birgir Ísleifur sagði í samtali við Morgunblaðið að sjónarmið Seðla- banka Íslands hefðu ekki breyst frá því sem fram kom í viðtali við hann í Morgunblaðinu föstudaginn 5. janúar. Þar sagði hann þensluna hér á landi enn svo mikla að Seðlabankinn teldi ekki tímabært að breyta um peninga- málastefnu enda væru litlar vísbend- ingar um að það væri að draga úr henni. Ennfremur kom fram að Seðla- bankinn teldi lækkun stýrivaxta í Bandaríkjunum ekki gefa ástæðu til vaxtalækkunar hér á landi. Aðstæð- urnar hér séu allt aðrar en eru þar; at- vinnuleysistölur okkar lágar, meiri verðbólga en í Bandaríkjunum, meiri útlánavöxtur hjá innlánsstofnunum og gengi íslensku krónunnar hafi sigið. Sjónarmið Seðlabank- ans óbreytt STEFNUMÓTUN bílafram- leiðslufyrirtækisins Ford byggist á því að Bretar gangi í mynt- bandalag Evrópu og fari að nota evruna sem gjaldmiðil sinn á næstu fjórum til sex árum, að því er fram kemur á fréttavef BBC. Yfirmaður Ford í Evrópu, Nick Scheele, telur að ef ekki verði af inngöngu Breta í myntbandalagið þá verði það „áhyggjuefni“ fyrir Ford, en 50.000 manns starfa hjá fyrirtækinu í Bretlandi. Hann segir verksmiðjur fyrirtækisins þó ekki í hættu. Scheele segir breska framleið- endur og þá sérstaklega bíla- framleiðendur, líða fyrir styrk breska pundsins gagnvart evr- unni og hann segist harma hversu pólítísk umræðan um evr- una hefur orðið í Bretlandi. Stór hluti útflutnings Breta, eða um 60%, fari til Evrópu og hlutfallið sé enn hærra þegar komi að út- flutningi bíla. Auk þess flytji Bretar talsvert inn frá Evrópu. Því virðist Scheele rökrétt að taka upp evruna í Bretlandi, þó ekki á núverandi gengi gagnvart evru. „Fyrir fjórum árum var Bret- land meðal ódýrustu landa Evr- ópu samkvæmt úttekt Evrópu- ráðs en nú erum við meðal þeirra dýrustu vegna þess að sterlings- pundið hefur hækkað svo mikið gagnvart evrunni og öðrum evr- ópskum gjaldmiðlum,“ segir Scheele og bætir við. „Þeir bíla- framleiðendur sem eru með öll sín viðskipti í evrum standa nú u.þ.b. 30% betur en bílaframleið- endur í Bretlandi.“ Ford vill evruna til Bretlands TALIÐ er að svissneski matvæla- framleiðandinn Nestlé standi þessa dagana í viðræðum um kaup á bandaríska fyrirtækinu Ralston Purina, sem framleiðir gæludýrafóð- ur, að því er fram kemur í Wall Street Journal. Kaupverðið er sagt vera 10 milljarðar dollara eða um 850 milljarðar íslenskra króna. Verði af þessum samningum fellur ein frægasta og mest selda tegund gæludýrafóðurs í heiminum, Purina Dog Chow, sem Ralston framleiðir, undir gæludýrafóðurframleiðslu Nestlé en fyrirtækið framleiðir fyrir nokkrar þekktar tegundir fóðurs, s.s. Friskies, Mighty Dog og Alpo. Hins vegar er hætt við að umræða um samkeppnismál verði hávær í kjölfar sameiningar því að Ralston hefur um 27% markaðshlutdeild á hundamatsmarkaði og Nestlé 12%. Í kattamat hefur Ralston 33% mark- aðshlutdeild og Nestlé 13%. Nestlé er sagt hafa boðið 33 doll- ara á hlut í Ralston, sem er 34% yf- irverð ef miðað er við lokagengi bréf- anna sl. föstudag. Hvorugt fyrir- tækjanna hefur viljað tjá sig um málið. Nestlé að kaupa fram- leiðanda gæludýrafóðurs ● FORSVARSMENN Símans og bandaríska fyrirtækisins iDigi hafa skrifað undir samning um til- raunaverkefni á sviði þráðlausra Net- tenginga fyrir einstaklinga og fyr- irtæki. Fyrirtækið iDigi hefur sérhæft sig í þróun þráðlausra örbylgjulausna og hefur rekið örbylgjukerfi í Banda- ríkjunum í nær fjögur ár. Verkefnið felur í sér prófanir á þess- ari nýju tækni og mun tilraunin hefjast fljótlega og standa yfir í rúman mán- uð. Áætlað er að um 200 valdir við- skiptavinir Símans á höfuðborg- arsvæðinu taki þátt í tilrauninni. Síminn og iDigi í samstarf NÝLEGA skrifaði Síminn undir samning við Kögun hf. um kaup á hugbúnaðarkerfi frá bandaríska hug- búnaðarfyrirtækinu TIBCO Soft- ware, sem Kögun er umboðsaðili fyrir hér á landi. Samningurinn gefur Símanum rétt á að nota allan þann hugbúnað sem TIBCO er með á boð- stólum í upplýsingakerfi sín og með innleiðingu á TIBCO-hugbúnaðinum sér Síminn möguleika á að einfalda uppbyggingu og frekari þróun upp- lýsingakerfa sinna. Í fréttatilkynningu kemur fram að Síminn þurfi að reka fjölmörg upplýs- ingakerfi sem sinna mismunandi þörfum. Það hafi verið flókið og kostnaðarsamt að láta upplýsingar flæða á milli kerfa, en ActiveEnter- prise-hugbúnaðurinn geri þessi verk- efni mun ódýrari og einfaldari. Auk sparnaðar í rekstri muni Síminn verða fljótari að koma nýjum vörum og þjónustu á markað. ActivePortal- og ActiveExchange-kerfin gefi einnig nýja möguleika til birtingar upplýs- inga á Netinu og auðveldi rafræn við- skipti milli fyrirtækja og einstaklinga. Síminn semur við Kögun um hugbúnaðarkaup STJÓRN Hf. Eimskipafélags Ís- lands ákvað í desember síðastliðnum að bjóða hluthöfum til kaups eigin bréf félagsins, og höfðu hluthafar rétt á kaupum í hlutfalli við skráða eign sína og jafnframt heimild til að skrá sig fyrir hærri fjárhæð. Í til- kynningu frá Eimskip kemur fram að allt hlutafé seldist til hluthafa og var eftirspurn meiri en framboð, eða samtals 913.344.191 króna að sölu- virði. Heildarnafnverð hlutabréf- anna sem voru í boði nam 61.158.100 krónum, en það er um 2% hlutur í félaginu, og buðust bréfin á genginu 7,1. Heildarverðmæti sölunnar var því 434.222.510 krónur. Á næstu dögum verða send bréf til hluthafa með upplýsingum um þeirra hlut. Hlutafjársala Eimskips Eftirspurn meiri en framboð DELTA hf. og NM Pharma ehf. hafa undirritað samning um kaup Delta á öllu hlutafé í NM Pharma ehf. Samn- ingurinn felur í sér að Delta yfirtekur starfsemi NM Pharma sem er sam- starfsaðili Merck Generics á Íslandi, en Merck Generics er eitt stærsta fyrirtæki í heiminum á sviði þróunar, sölu og framleiðslu samheitalyfja. Þá var jafnframt undirritaður sam- starfssamningur milli Delta og Merck Generics sem tekur yfir eldri samn- ing á milli NM Pharma og Merck Generics. Í hinum nýja samningi er einnig kveðið á um samstarf fyrir- tækjanna við þróun nýrra samheita- lyfja. NM Pharma hefur starfað á ís- lenskum lyfjamarkaði frá árinu 1990 og hefur í dag yfir 37 lyf á markaði. Um 20 ný lyf eru væntanleg á næstu árum. Lyfjaval NM Pharma og Delta verður samræmt í kjölfar undirritun- ar samningsins og verða lyf NM Pharma hluti af lyfjavali Delta. Mark- aðsstjóri NM Pharma, Jónína Guð- mundsdóttir lyfjafræðingur, mun hefja störf hjá Delta og hafa umsjón með þeim lyfjum sem NM Pharma hefur markaðsleyfi fyrir. Delta kaupir hlutafé NM Pharma STUTTFRÉTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.