Morgunblaðið - 17.01.2001, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 17.01.2001, Qupperneq 19
AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2001 19 ALLS bárust Héraðsdómi Norður- lands eystra á Akureyri 100 nýjar beiðnir um gjaldþrotaskipti á ný- liðnu ári og eru það töluvert fleiri beiðnir en borist hafa dómnum á síðustu árum. Árið á undan bárust til að mynda 74 gjaldþrotamál og árið þar á undan voru þau 56. Auk hinna nýju mála hafði dóm- urinn til umfjöllunar 11 óafgreidd mál frá fyrra ári, eða samtals 111 mál. Þau skiptust þannig að 58 málanna vörðuðu einstaklinga og 53 lögaðila. Fleiri mál til umfjöllunar Málunum lauk á þann veg að 20 einstaklingar voru úrskurðaðir gjaldþrota á nýliðnu ári og 24 lög- aðilar. Beiðni um gjaldþrot var afturkölluð í 47 tilvikum alls. Alls voru afgreidd 94 gjaldþrotamál, en 17 voru óafgreidd um nýliðin ára- mót. Héraðsdómur Norðurlands eystra hafði til umfjöllunar á síð- asta ári 1.373 mál og er það tölu- verð fjölgun frá árinu á undan þegar 1.045 mál komu til kasta dómstólsins, en til samanburðar má nefna að árið 1998 voru málin 804. Meirihluti þeirra mála sem fjallað var um á liðnu ári voru einkamál, samtals 707, og jókst fjöldi þeirra mála um nær 200 milli ára eða úr 523 árið 1999. Þá má nefna að opinber mál voru alls 465 og þar var einnig aukning milli ára en árið 1999 voru opinberu málin 382 og 204 ár- ið þar á undan. Nokkur fjölgun gjaldþrotamála Skýrsla Héraðsdóms Norður- lands eystra fyrir árið 2000 „ÞAÐ er alveg upplagt að nota þessa góðu tíð, sagði Hreinn Grétarsson hjá Norðurorku, þar sem hann stóð á skurðbarmi og fylgdist með þeim Kristjáni Hálfdánarsyni og Jóni Grétarssyni við vinnu sína í gær. Þeir félagar lágu hins vegar á hliðinni í skurði og voru að logsjóða saman hitaveiturör við heldur erfiðar aðstæður. Veðrið hefur hins vegar leikið við Akureyringa að undanförnu og það kemur sér vel fyrir alla þá sem vinna utanhúss. Á gatnamótum Austursíðu og Fjölnisgötu hafa staðið yfir framkvæmdir að undanförnu á vegum Norðurorku og hafa vegfarendur sem þar eiga leið um ekki farið varhluta af því. Að sögn Hreins er ver- ið að taka hitaveitubrunn við gatnamótin úr notkun og verður hann brotinn niður. Áður en það verður hægt þarf að koma fyrir nýj- um rörum með sérstökum krönum utan við brunninn og þeir Kristján og Jón voru einmitt að sjóða þessi rör saman er ljósmyndari Morgunblaðsins var þarna á ferð í gær. Morgunblaðið/Kristján Upplagt að nota þessa góðu tíð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.