Morgunblaðið - 17.01.2001, Side 21
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2001 21
Skeifan 11 b · Sími 568 5010 · Fax 581 2420
skoli@raf.is · www.raf.is
Nánari upplýsingar
í síma 568 5010
Námið er 120 kennslustundir.
Boðið er upp á kennslu á morgnana, eftir
hádegi eða á kvöldin tvisvar sinnum í viku.
Námið tekur 12 vikur.
Kennsla hefst mánudaginn 22. janúar.
N Á M S A M H L I ‹ A S T A R F I
Hnitmiðað nám fyrir byrjendur þar sem farið er vandlega í
grunnatriði tölvunotkunar. Lögð er áhersla á að kynna
möguleika forritanna og kenna rétt vinnubrögð. Námið hentar
þeim vel sem vilja styrkja stöðu sína á vinnumarkaðinum og
öðlast hagnýta tölvuþekkingu.
• Tölvuvinnsla
• Fingrasetning
• Windows umhverfið
• Word ritvinnslan
• Excel töflureiknirinn
• Internetið
• Tölvupóstur
• Raunhæf verkefni
- tölvunám fyrir byrjendur
Tölvur og
vinnuumhverfi
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Fagur-
grænn
völlur
Neskaupstað - Í hinni miklu hláku
sem verið hefur undanfarna daga
hefur snjórinn horfið eins og dögg
fyrir sólu. Knattspyrnuvöllur Norð-
firðinga kom undan snjó eins og
annað og reyndist hann vera fag-
urgrænn. Segja má að oft í byrjun
júní sé völlurinn ekki búinn að ná
þessum græna lit sem hann skartar
nú. Var ekki laust við að knatt-
spyrnumenn fengju fiðring í tærnar
þegar þeir sáu völlinn.
Eyja- og Miklaholtshreppi - Í
óveðrinu sem gekk yfir fyrir
helgi urðu dálitlar skemmdir á
hlöðu í Hallkelsstaðahlíð í Kol-
beinsstaðahreppi. Þakplötur
fuku af svo aðrar byggingar
voru í hættu um tíma. Ekki
urðu þó meiri skemmdir og
engin slys hlutust af.
Tveir bílar sem voru á leið
um Heydalsveg fuku út af í veð-
urofsanum, annar við Ölvis-
kross og hinn skammt frá bæn-
um Hraunholti. Ekki urðu slys
á mönnum en bílarnir eru eitt-
hvað skemmdir.
Skemmdir
urðu í
óveðrinu
Morgunblaðið/Dónald
Ung hjón, Guðrún Sigfúsdóttir og Brynjólfur Árnason, hafa tekið við
rekstri verslunar í Grímsey. Þar hefur KEA rekið verslun um árabil en
hætti rekstrinum fyrir skömmu.
Ung hjón
taka við
rekstr-
inum
Grímsey - Eftir áratuga langa og
góða þjónustu verslunar KEA í
Grímsey hafa KEA-menn nú kvatt
og ung hjón, Guðrún Sigfúsdóttir
og Brynjólfur Árnason, hafa keypt
reksturinn. Verslun þeirra ber nú
heitið Grímskjör. Grímseyingar
eru núna um 100 talsins og að auki
starfar nokkur fjöldi aðkomu-
manna við útgerð og fiskvinnslu.
Guðrún er borinn og barnfæddur
Grímseyingur með langa reynslu af
verslunarstörfum, þar sem hún
hefur starfað með fjórum kaup-
félagsstjórum og leyst að minnsta
kosti tvo þeirra af í fríum.
Vöruúrval í matvöru
verður aukið í versluninni
Guðrún var spurð hvort versl-
unin myndi breytast eitthvað að
ráði. „Já, ég held að það verði
meira vöruúrval í matvörunni en
trúlega minna af gjafavöru og
slíku, þó munum við reyna að mæta
þörfum Grímseyinga.
Við erum þegar komin með fullt
af nýjum fyrirtækjum sem við
skiptum við.“
B. Jensen mun sjá að mestu um
kjötúrvalið að sögn Guðrúnar og
Axið brauðgerð á Dalvík um brauð
og kökur. Svo verðum verslunin
með vörur frá SS og allt grænmeti
mun hún fá frá Valgarði Stefáns-
syni á Akureyri.
„Afgreiðslutíminn mun lengjast
um eina klukkustund á dag. Við
höfum opið mánudaga – föstudaga
frá kl. 10.30 – 12.30 og 14 – 18 og á
laugardögum frá 10-12.“
Guðrún Sigfúsdóttir var að lok-
um spurð hvort þau hjónin væru
bjartsýn á framtíðar möguleika
verslunar í Grímsey.
„Já, það gefur auga leið að við
erum bjartsýn. Grímseyingar
standa vel við bakið á okkur og eru
góðir kúnnar.“
Einkaframtak í verslun í Grímsey