Morgunblaðið - 17.01.2001, Síða 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2001 29
Auglýsing um fasteignagjöld í
Reykjavík árið 2001.
Álagningarseðlar fasteignagjalda í Reykjavík árið 2001 verða sendir út næstu daga, ásamt
gíróseðlum vegna fyrstu greiðslu gjalda, og umsóknareyðublaði vegna greiðslu gjalda
með boðgreiðslum á greiðslukortum. Gjöldin eru innheimt af Tollstjóranum í Reykjavík, en
einnig er hægt að greiða gíróseðlana í sparisjóðum, bönkum eða á pósthúsum.
Fasteignagjöldin skiptast í fasteignaskatt, lóðarleigu, holræsagjald, vatnsgjald og
sorphirðugjald.
Tekjulágir elli- og örorkulífeyrisþegar sem fengu lækkun á fasteignaskatti og holræsagjaldi
á liðnu ári, fá einnig að óbreyttu lækkun árið 2001, að teknu tilliti til tekju- og
eignaviðmiðunar.
Framtalsnefnd mun yfirfara framtöl lífeyrisþega eftir framlagningu skattskrár Reykjavíkur.
Úrskurðar hún endanlega um breytingar á fasteignaskatti og holræsagjaldi hjá þeim er
eiga rétt á þeim samkvæmt þeim reglum er borgarstjórn setur, sbr. 4. mgr. 5. gr. laga nr.
4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga, ásamt 87. gr. vatnalaga nr. 15/1923, sbr. einnig lög
nr. 137/1995. Verður viðkomandi tilkynnt um breytingar ef þær verða.
Á fundi borgarráðs þann 19. desember s.l. var samþykkt að tekjumörk vegna lækkunar
fasteignaskatts og holræsagjalds á árinu 2001 hækki um 8% á milli ára og verði sem hér
segir: (Miðað er við tekjur liðins árs).
100% lækkun:
Einstaklingar með tekjur allt að kr. 1.005.000-
Hjón með tekjur allt að kr. 1.405.000-
80% lækkun:
Einstaklingar með tekjur á bilinu kr. 1.005.000- til kr. 1.110.000-
Hjón með tekjur á bilinu kr. 1.405.000- til kr. 1.530.000-
50% lækkun:
Einstaklingar með tekjur á bilinu kr. 1.110.000- til kr. 1.220.000-
Hjón með tekjur á bilinu kr. 1.530.000- til kr. 1.730.000-
Til að flýta fyrir afgreiðslu geta þeir sem ekki fengu lækkun á sl. ári sent framtalsnefnd
umsókn um lækkun, ásamt afriti af skattframtali 2001.
Fulltrúar framtalsnefndar eru til viðtals alla miðvikudaga milli kl. 16.00 og 17.00 í Ráðhúsi
Reykjavíkur, frá 7. febrúar til 25. apríl n.k. Á sama tímabili verða upplýsingar veittar í síma
552-8050, alla þriðjudaga kl. 10.00 til 12.00.
Gatnamálastjóri, Skúlatúni 2, veitir allar upplýsingar varðandi álagningu og breytingar á
sorphirðugjaldi í síma 567-9600, og í bréfasíma 567-9605.
Orkuveita Reykjavíkur, Suðurlandsbraut 34, veitir þær upplýsingar sem snerta álagningu
og breytingar á vatnsgjaldi í síma 585-6000, og bréfasíma 567-2119.
Fjármáladeild, Ráðhúsi Reykjavíkur, gefur upplýsingar um álagningu annarra
fasteignagjalda og breytingar á þeim í síma 563-2062, og bréfasíma 563-2033.
Gjalddagar ofangreindra gjalda umfram kr. 10.000- fyrir árið 2001 eru: 1. febrúar, 1. mars,
1. apríl, 1. maí, 1. júní og 1. ágúst. Gjalddagi gjalda undir kr. 10.000-, og gjalda þeirra
gjaldenda er völdu eingreiðslu fasteignagjaldanna í maí, er 1. maí.
Reykjavík, 16. janúar 2001
Borgarstjórinn í Reykjavík
Tilboð
Smellurammar
40x50 cm á 300
50x60 cm á 400
Afsláttur 15%
Innrömmun
Speglar
Tilb. rammar
Afsláttur30%
Plaggöt
innrömmuð
Síðumúla 34 • 108 Reykjavík
Sími 533 3331• Fax 533 1633
Opið virka daga frá kl. 8-18
laugardaga frá kl. 10-16.
Tilboð
Álrammar
Gull/silfur
24x30 cm á 700
30x40 cm á 900
40x50 cm á 1100
59x66 cm á 1600
24x30 svart á 400
Tilboð
Trérammar
Margar stærðir
kr. 200-400
ÚTSALA
18.-27. janúar
Í LISTAMIÐSTÖÐINNI Straumi
við Reykjanesbraut verður haldinn
fyrirlestur um ljósmyndun, kveð-
skap og landafræði, í kvöld, miðviku-
dagskvöld, kl. 20. Fyrirlesarar eru
ljósmyndarinn Wayne Barrar og
ljóðskáldið Kerry Hines. Þau eru
gestalistamenn í Straumi og koma
frá Nýja-Sjálandi í boði Hafnarfjarð-
arbæjar.
Í erindum sínum leggja þau
áherslu á samanburð eyjanna
tveggja, Íslands og Nýja-Sjálands,
og nefnist fyrirlesturinn Samhliða
sýnir (Parallel Views).
Wayne Barrar (f. 1957), hefur
haldið fjölda einka- og samsýninga
frá árinu 1984 og á verk á mörgum
söfnum, aðallega í heimalandi sínu
og margar mynda hans hafa birst í
tímaritum. Hann leggur áherslu á
náttúru og gróðurfar og mun sýna
myndir bæði héðan og að heiman og
veltir því fyrir sér hvort löndin eigi
eitthvað sameiginlegt.
Kerry Hines (f. 1957) fæst aðal-
lega við ferðalög í ýmsum myndum í
kveðskap sínum. Hún mun flytja eig-
in ljóð og ljóð annarra nýsjálenskra
ljóðskálda.
Aðgangur að fyrirlestrinum er
ókeypis.
Hvað eiga Ísland og Nýja-
Sjáland sameiginlegt?
VESALINGS Greg (Ben Stiller)
gerir allt sem hann getur til að
ganga í augun á Pam Byrnes (Teri
Polo) og ennþá æsist leikurinn þeg-
ar hann hyggst vinna sig í álit hjá
Jack, föður hennar (Robert De
Niro) og hann tekur þá að ljúga
andskotann ráðalausan. Sést ekki
fyrir.
Lygar og aftur lygar, sem fæða af
sér enn aðrar og stórkostlegri lyg-
ar, eru uppistaðan í gamanmyndinni
Meet the Parents, ásamt snaggara-
legum leik Bens Stiller og voveifleg-
um tengdapabba Roberts De Niro.
Stiller leikur hjúkrunarfræðinginn
Greg, sem er ekki aðeins í óvenju-
legu starfi fyrir karla, heldur ber
hann hið vafasama eftirnafn Foc-
ker. Hann er yfir sig ástfanginn af
Pam og hugsar sér gott til glóð-
arinnar er honum er boðið til for-
eldra hennar þegar yngri dóttir
þeirra hyggst ganga í það heilaga.
Allt gengur á afturfótunum hjá
Greg, sem byrjar á að tapa töskunni
sinni í fluginu til tengdaforeldranna
tilvonandi á Long Island. Mætir
útbíaður í barnsælu á fund tengda-
pabba, sem reynist snyrtimenni og
tortrygginn harðjaxl, fyrrum
spæjari CIA. Greg er hinn stima-
mýksti við heimilisfólkið og ekki síst
heimilisköttinn, sem á eftir að gera
hjúkrunarmanni ærnar skráveifur.
Þá kemur til sögunnar fyrrum kær-
asti Pam, sá veður í peningum, öf-
ugt við Greg.
Seinheppni og glappaskot Gregs
eru með ólíkindum og meðferðin
sem hann fær hjá harðjaxlinum er
tæpast mönnum bjóðandi. Karlinn
setur hann í lygapróf, hvað þá ann-
að. Greg yfirfyllir rotþróna, kveikir
í húsinu, gefur kærustunni glóðar-
auga, er grunaður um ergi og próf-
svindl og þá er aðeins fátt eitt talið.
Handritshöfundar og leikstjórinn
eru bráðlagnir við að gera eina alls-
herjaróreiðu úr öllum smáslysum og
klaufaskap Gregs svo úr verður fyr-
irtaks dægrastytting. De Niro hefur
sýnt það uppá síðkastið að hann á í
engum vandræðum með að spreyta
sig í gamanmyndum, þessi fjölhæfi
leikari er fær í flestan sjó. Blythe
Danner er þolanleg sem móðir Pam
og Owen Wilson (sem alls staðar
skýtur upp kollinum þessa dagana)
hressir uppá miðbikið í hlutverki
gamla kærastans hennar Pam, sem
nýliðinn Teri Polo fer laglega með.
Stiller er að komast í fremstu röð
gamanleikara kvikmyndanna og á
ríkan þátt í að gera Meet the Par-
ents að skemmtilegri, og þegar best
lætur, meinfyndinni afþreyingu sem
skilur við mann í ljómandi skapi.
Tannhvass
tengdapabbi
KVIKMYNDIR
L a u g a r á s b í ó ,
H á s k ó l a b í ó ,
B o r g a r b í ó ( A k . ) ,
N ý j a b í ó ( K e f . )
Leikstjóri Jay Roach. Handritshöf-
undar Jim Herzfeld og John Ham-
burg. Tónskáld Randy Newman.
Kvikmyndatökustjóri Peter James.
Aðalleikendur Robert De Niro, Ben
Stiller, Teri Polo, Blythe Danner,
Nicole DeHuff, Owen Wilson. Sýn-
ingartími 105 mín. Bandarísk.
DreamWorks/Universal.
Árgerð 2000.
„MEET THE PARENTS“
Sæbjörn Valdimarsson
Ókeypis lögfræðiaðstoð
öll fimmtudagskvöld milli kl. 19.30 og 22.00 í síma 551 1012
Orator, félag laganema