Morgunblaðið - 30.01.2001, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
6 ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SVERRIR Ragnars,
fyrrverandi forstjóri
Sparisjóðs Akureyrar,
lést á Akureyri sunnu-
daginn 28. janúar, á 95.
aldursári.
Sverrir fæddist á
Akureyri 16. ágúst
1906 og voru foreldrar
hans þau Ragnar
Ólafsson, kunnur at-
hafnamaður, og Guð-
rún Ólafsson, fædd
Johnsen.
Sverrir lauk stúd-
entsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík
árið 1926 og ári síðar lauk hann cand.
phil.-prófi frá Háskóla Íslands. Hann
hvarf frá lögfræðinámi eftir andlát
föður síns sem lést fyrir aldur fram.
Þá tók hann við rekstri R. Ólafssonar,
fyrirtækis föður síns, sem m.a. var
umsvifamikil kolaverslun. Hann
gerðist forstjóri Sparisjóðs Akureyr-
ar árið 1957 og gegndi því starfi uns
hann hætti fyrir aldurs sakir árið
1986, þá á áttugasta aldursári.
Sverrir var bæjarfulltrúi á Akur-
eyri frá 1950 til 1954 og lét að sér
kveða í atvinnurekstri
og var m.a. stjórnarfor-
maður í Möl og sandi hf.
og umboðsmaður fyrir
Sameinaða gufuskipa-
félagið og Bergenska
gufuskipafélagið. Hann
var formaður Vinnuveit-
endafélags Akureyrar
um árabil og sat í stjórn
Sjúkrahúss Akureyrar
og Rafveitu Akureyrar.
Sverrir var umdæm-
isstjóri Rótarý á Íslandi
frá 1961 til 1962 og einn-
ig var hann lengi ræð-
ismaður fyrir Noreg og
Frakkland. Hann var sæmdur ridd-
arakrossi hinnar íslensku fálkaorðu,
norsku sánkti Ólafsorðunni og einnig
hlaut hann franska heiðursviður-
kenningu.
Árið 1932 kvæntist Sverrir Maríu
Matthíasdóttur, dóttur Matthíasar
Einarssonar, yfirlæknis í Reykjavík,
og eignuðust þau tvær dætur, Ellen
og Rögnu. María lést árið 1975.
Útför Sverris fer fram frá Akur-
eyrarkirkju föstudaginn 2. febrúar
kl. 14.
Andlát
SVERRIR RAGNARS
STJÓRN Læknafélags Íslands hefur
slitið viðræðum við Íslenska erfða-
greiningu um framkvæmd laga um
miðlægan gagnagrunn á heilbrigðis-
sviði. Þetta kemur m.a. fram í bréfi
sem stjórnin póstlagði í gær til sinna
félagsmanna en bréfið, sem dagsett
er 23. janúar sl., var boðsent sérstak-
lega til þeirra þriggja lækna hjá Ís-
lenskri erfðagreiningu sem eru í
Læknafélaginu. Í bréfinu telur
stjórnin að grundvöllur frekari við-
ræðna við Íslenska erfðagreiningu sé
„mjög veikur og trúnaður milli aðila
lítill ef ekki brostinn“.
Viðræðurnar hafa einkum snúist
um meðferð upplýsinga úr sjúkra-
skrám og hvort og hvernig eigi að afla
skriflegs samþykkis sjúklinga fyrir að
veita heilsufarsupplýsingar í gagna-
grunninn. Voru forráðamenn Ís-
lenskrar erfðagreiningar reiðubúnir
að samþykkja að skriflegs samþykkis
sjúklinga yrði aflað og ekki aðeins
stuðst við ætlað samþykki. Viðræðus-
litin koma forráðamönnum Íslenskr-
ar erfðagreiningar á óvart þar sem
þeir telja engar efnislegar forsendur
fyrir þeim. Hafa þeir farið þess á leit
við Læknafélagið að viðræðurnar
verði teknar upp aftur á þeim grunni
sem frá var horfið. Telja þeir að lítið
hafi borið á milli. Sigurbjörn Sveins-
son, formaður Læknafélags Íslands,
sagði við Morgunblaðið í gærkvöldi að
hann vildi ekki tjá sig um málið fyrr
en læknar hefðu fengið bréf stjórn-
arinnar í hendur.
Viðræður milli Íslenskrar erfða-
greiningar, ÍE, og Læknafélags Ís-
lands, LÍ, höfðu með hléum staðið yfir
í tæpt ár, framan af milli formanns
LÍ, Sigurbjörns Sveinssonar, og Kára
Stefánssonar, forstjóra ÍE. Í byrjun
desember sl. tóku læknarnir Kristján
Erlendsson, framkvæmdastjóri sam-
starfsverkefna ÍE, og Einar Stefáns-
son, framkvæmdastjóri gagna-
grunnsverkefnis ÍE, upp
viðræðurnar að nýju, eftir nokkurt
hlé, við formann og varaformann
Læknafélagsins. Fundir þessarra að-
ila urðu tveir og á þeim fyrri, þann 17.
desember, sat Sigurður Guðmunds-
son landlæknir. Þar voru lögð fram
samningsdrög þar sem ÍE lýsti sig
tilbúið til að ná sáttum, m.a. með því
að skriflegs samþykki sjúklinga yrði
leitað fyrir heilsufarsupplýsingum.
Forystumenn lækna lögðu fram at-
hugasemdir við samningsdrögin á
seinni fundinum, 28. desember, og var
ákveðið að halda þriðja fundinn hinn
8. janúar sl. þar sem ÍE myndi svara
athugasemdunum. Af þeim fundi varð
ekki þar sem Læknafélagið óskaði
eftir frestun.
Í bréfi stjórnar Læknafélagsins
kemur fram að fundinum 8. janúar
hafi verið frestað m.a. vegna „upp-
ákoma“ í samskiptum við Íslenska
erfðagreiningu og ummæla sem Kári
Stefánsson hafði látið falla í fjölmiðl-
um um viðræðurnar við Læknafélag-
ið. Uppákomurnar sem átt er við eru
m.a. samningarnir sem ÍE gerði við
nokkrar heilbrigðisstofnanir um með-
ferð heilsufarsupplýsinga.
„Það er skoðun stjórnar LÍ að
grundvöllur frekari viðræðna sé mjög
veikur og trúnaður milli aðila lítill ef
ekki brostinn. Það samkomulag, sem
stefnt var að, krefst fullkomins
trausts milli LÍ og ÍE, þar sem engir
einstaklingar eða stofnanir þjóð-
félagsins eru lagalega í þeirri stöðu að
geta haft eftirlit með því eða séð um
að það gangi eftir. Þetta traust er því
miður ekki fyrir hendi. Því er þessum
viðræðum lokið,“ segir m.a. í bréfinu.
Óheppileg afstaða
Einar Stefánsson sagði við Morg-
unblaðið að þessi afstaða Lækna-
félagsins nú væri óheppileg og viðræ-
ðuslitin hefðu valdið honum
vonbrigðum. Viðræðurnar hefðu ver-
ið langar og erfitt væri fyrir íslensk
fyrirtæki og læknafélag að semja um
siðareglur sem væru aðrar en tíðk-
uðust í alþjóðlegu vísindasamfélagi.
„Hin áralanga hefð er þannig að
læknisfræðirannsóknir eru unnar
samkvæmt ætluðu samþykki þegar
um er að ræða rannsóknir með fyr-
irliggjandi heilufarsgögn. Uppkast að
yfirlýsingu alþjóða læknafélaganna,
sem við höfum séð, hefur ákvæði sem
samræmist íslensku lögunum um
gagnagrunninn. Það er erfið staða,
bæði fyrir læknafélagið og okkur, að
reyna að ná fram öðrum staðli hér.
Þetta kann að eiga þátt í viðræðuslit-
unum,“ sagði Einar.
Stjórn Læknafélagsins tilkynnir í bréfi til lækna að viðræðum við Íslenska
erfðagreiningu um miðlægan gagnagrunn hafi verið slitið
Telur trúnað milli aðila
lítinn ef ekki brostinn
Í DAG verður undirritaður samn-
ingur um fjármögnun verslunar-
miðstöðvarinnar Smáralindar í
Kópavogi. Samningurinn hljóðar
upp á tæplega 6 milljarða króna og
lánveitendur eru fjölmörg fjár-
málafyrirtæki, bæði innlend og er-
lend. Umsjón með fjármögnuninni
höfðu Íslandsbanki–FBA og
Landsbanki Íslands, og samkvæmt
upplýsingum frá félögunum er
þetta einn stærsti lánsfjármögn-
unarsamningur sem einkaaðilar
hafa gert á Íslandi og sá stærsti
sem íslenskar fjármálastofnanir
hafa tekið að sér að skipuleggja
fyrir einkaaðila.
Auk Íslandsbanka–FBA og
Landsbanka Íslands eru lánveit-
endurnir Norræni fjárfestingar-
bankinn, Banca Monte dei Paschi
di Siena, Frjálsi fjárfestingarbank-
inn, Lífeyrissjóður starfsmanna
ríkisins, Lífeyrissjóður verslunar-
manna, Söfnunarsjóður lífeyris-
réttinda, Lífiðn, Alvíb, Lífeyris-
sjóðurinn Framsýn, Lífeyrissjóður
lækna, Lífeyrissjóður Vesturlands,
Lífeyrissjóður sjómanna, Lífeyris-
sjóðurinn Hlíf, Lífeyrissjóður arki-
tekta og tæknifræðinga, VÍB og
Vátryggingafélag Íslands.
Byggingaframkvæmdir við Smá-
ralind eru á áætlun og er loka-
áfangi þeirra hafinn. Verslanir og
þjónustufyrirtæki í Smáralind
verða allt að 100 talsins og er þeg-
ar farið að setja upp innréttingar í
verslunum Hagkaups og Deben-
hams, en aðrir hlutar hússins eru
skemmra á veg komnir.
Verslunarmiðstöðin, sem er 63
þúsund fermetrar og verður sú
stærsta hér á landi, verður opnuð
formlega 10. október.
Smáralind verður opnuð formlega 10. október
6 milljarða fjármögn-
unarsamningur gerður
ÖKUMAÐUR kastaðist út úr bíl sín-
um er hann valt á Þrengslavegi um
klukkan fimm í gærdag. Að sögn lög-
reglunnar á Selfossi virðist maðurinn
hafa sloppið nokkuð vel og ekki hlotið
alvarleg meiðsl.
Maðurinn var fluttur undir lækn-
ishendur á slysadeild Landspítalans í
Fossvogi í Reykjavík. Farþegi í bíln-
um slapp ómeiddur en hvorki hann né
bílstjórinn voru með beltin spennt.
Að sögn lögreglunnar má ætla,
miðað við útlit bílsins og aðstæður á
vettvangi, að bílstjórinn hefði stigið
ómeiddur út úr bílnum eftir veltuna
hefði hann verið með öryggisbeltin
spennt.
Kastaðist út
við bílveltu í
Þrengslunum
HÚSNÆÐIÐ á Grandagarði 8, sem
eyðilagðist í bruna síðastliðinn
laugardagsmorgun, verður end-
urbyggt. Guðjón Bjarnason, arki-
tekt og eigandi húsnæðisins, segir
að málið sé ennþá í rannsókn og
ekki unnt að segja til um hver upp-
tök eldsins hafi verið. Miklar reyk-
og vatnsskemmdir urðu í öllu hús-
næðinu, sem er á um 1.000 fermetra
gólffleti. Miklar skemmdir urðu
einnig á tölvu-, raf- og pípulögn auk
þess sem allar viðarklæðingar í
húsinu eyðilögðust í hitanum.
„Þetta var afar döpur aðkoma og
gífurlegar skemmdir. Húsnæðið
var tilbúið og stóð til að afhenda
það formlega þennan sama dag og
eldurinn kom upp,“ sagði Guðjón.
Hann sagði að hafist yrði handa
strax á morgun við að hreinsa út úr
brunarústunum og hefja end-
urbyggingu.
Til stóð að tölvufyrirtækið Stefja
hæfi þarna starfsemi. Ekki er ann-
að vitað en að fyrirtækið flytji inn
þegar endurbyggingu er lokið.
Guðjón segir að við fyrstu sýn
virðist sem endurbyggingin taki 8–
15 vikur. „Þarna starfaði ákaflega
góður og vandaður hópur iðn-
aðarmanna sem ég veit að mun
fylgja verkinu eftir til enda.“
Húsið var tryggt á hefðbundinn
máta með lögboðinni brunatrygg-
ingu. Guðjón vildi skila kæru þakk-
læti til þeirra fjölmörgu sem hefðu
sýnt sér stuðning vegna þessa máls.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Aðkoman í móttökunni þar sem til stóð að Stefja hæfi starfsemi.
Húsnæðið
verður end-
urnýjað
SAMNINGAMENN starfsmanna í
álverinu í Straumsvík og Samtaka
atvinnulífsins ákváðu á fundi í gær
að óska eftir aðstoð frá ríkissátta-
semjara. Gylfi Ingvarsson, aðaltrún-
aðarmaður starfsmanna, sagði að
ekki væri verið að vísa deilunni form-
lega til sáttasemjara.
Kjarasamningur sem þessir aðilar
gerðu um miðjan mánuðinn var felld-
ur í atkvæðagreiðslu. Gylfi sagði að á
fundi í síðustu viku hefði komið fram
vilji hjá báðum aðilum að halda
áfram viðræðum á sama grunni.
Hann sagði að samningamenn
myndu eiga fund með ríkissátta-
semjara í dag til að fara með honum
yfir efnisatriði málsins. Í framhaldi
af því yrði láta reyna á hvort menn
næðu saman.
Fundur um
samninga ISAL
Leita lið-
sinnis sátta-
semjara
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
ÖKUMAÐUR missti stjórn á bíl sín-
um í hálku í Langadal í Austur-
Húnavatnssýslu um klukkan fimm í
gærdag með þeim afleiðingum að
bíllinn valt.
Að sögn lögreglunnar á Blönduósi
slapp ökumaðurinn, sem var einn í
bílnum, ómeiddur, en bíllinn
skemmdist mikið.
Bílvelta í
Langadal