Morgunblaðið - 30.01.2001, Blaðsíða 21
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2001 21
Í FYRRA voru skráð 2.075 ný hluta-
félög og einkahlutafélög hjá fyrir-
tækjaskrá Hagstofu Íslands. Það
jafngildir um 11% aukningu frá árinu
1999 en þá voru skráð 1.865 ný félög. Í
tilkynningu frá Hagstofunni kemur
fram að á árunum 1996–2000 hafi ný-
skráningum hlutafélaga og einka-
hlutafélaga fjölgað um 77%. Flestar
nýskráningar voru í fasteignavið-
skiptum, leigustarfsemi og ýmiss
konar þjónustu. Undir þessa flokka
falla meðal annars atvinnugreinar
eins og rekstur eignarhaldsfélaga,
leiga atvinnuhúsnæðis, hugbúnaðar-
gerð, rekstrarráðgjöf og tækniráð-
gjöf arkitekta og verkfræðinga. Árið
2000 voru nýskráningar í þessum yf-
irflokki atvinnugreina alls 625 eða
30% af heildarnýskráningum á árinu.
Yfirflokkar sem næstir komu á eftir
voru verslun og ýmis viðgerðarþjón-
usta 321 (15%), byggingarstarfsemi
og mannvirkjagerð 234 (11%) og iðn-
aður 167 (8%). Ef einstakar atvinnu-
greinar eru skoðaðar eftir fjölda ný-
skráninga í fyrra sést að flestar voru
á sviði rekstrar eignarhaldsfélaga
(176) en þar á eftir komu húsbygg-
ingar og önnur mannvirkjagerð (134),
ótilgreind starfsemi (133), leiga at-
vinnuhúsnæðis (94), hugbúnaðargerð
og ráðgjöf varðandi hugbúnað (86),
matsölustaðir (67) og smábátaútgerð
(62). Nýskráningar árið 2000 voru
langflestar á höfuðborgarsvæðinu,
alls 1.457 eða 70% allra nýskráninga á
landinu. Suðurland var með næst-
flestar nýskráningar eða 132 (6,4%),
fæstar voru þær, eins og undanfarin
ár, á Norðurlandi vestra (47 eða
2,3%). Þrátt fyrir óverulegar hlut-
fallsbreytingar í þessari svæðaskipt-
ingu árin 1996–2000 má samt greina
nokkra aukningu á höfuðborgarsvæð-
inu árin 1997 og 2000 miðað við fyrri
ár.
Mikil fjölgun hlutafélaga
og einkahlutafélaga
HÆTT hefur verið við samruna
Korta hf., Smartkorta ehf. og Raf-
rænnar miðlunar hf. en tilkynntur
var samrunasamningur félaganna í
apríl síðastliðnum. Viðræðum var
slitið á haustmánuðum og starf-
semi Korta liggur nú niðri.
Félögin þrjú átti að sameina í
fyrirtæki undir nafninu Median hf.
og hefði það orðið stærsta fyr-
irtæki landsins á sviði rafrænna
viðskipta. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins áttu Rafræn miðl-
un og Smartkort að leggja tækni-
þekkingu, vörur og starfsmenn til
hins nýja fyrirtækis. Kortum var
hins vegar ætlað að leggja til fjár-
magn en félagið er í eigu 20 stórra
fyrirtækja, m.a. Baugs, Símans og
olíufélaganna þriggja. Skiptahlut-
föll voru, samkvæmt heimildum
blaðsins, þannig að Kort fengju
rúman 20% hlut, Smartkort um
26% og Rafræn miðlun um 54%.
Flutt saman og
aftur í sundur
Á haustmánuðum var orðið ljóst
að ekki næðist samkomulag, m.a.
um þessa skiptingu, og ákveðið var
að bíða með samrunann. Í kjölfarið
mun stjórn Korta hafa tekið
ákvörðun um að slíta endanlega
samningaviðræðum þar sem ekki
náðist samstaða um sameininguna
í hluthafahópi þeirra. Stjórn Raf-
rænnar miðlunar mun þá í ljósi
þess einnig hafa hafnað samrun-
anum.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins varð töluverður kostnaður
af þessari samrunaáætlun. Eink-
um vegna þess að Smartkort og
Rafræn miðlun fluttu saman um
tíma, tölvukerfi voru sameinuð,
svo og símkerfi, tekið var upp nýtt
skipurit og útbúið kynningarefni
fyrir nýja fyrirtækið. Eftir að
slitnaði upp úr samningaviðræðum
fluttu fyrirtækin tvö hins vegar
aftur í sundur.
Síðan þá hefur orðið hlutafjár-
aukning í Smartkortum og þar
hafa verið gerðar nokkrar skipu-
lagsbreytingar. Eigendur Smart-
korta eru m.a. Síminn, Íslands-
banki-FBA, Opin kerfi og Skýrr.
Rafræn miðlun tók upp Median-
nafnið vegna aukinnar sölu á er-
lendum markaði og heitir nú Med-
ian-Rafræn miðlun hf. Helstu hlut-
hafar eru Flugleiðir, Europay,
Opin kerfi, Baugur, Íslandsbanki-
FBA, Spron, Skýrr og Síminn.
175 milljóna króna stofnfé
nær óhreyft
Kort hf. var stofnað sumarið
1999 til að starfa á sviði rafrænnar
greiðslumiðlunar og fjármálaþjón-
ustu með áherslu á snjallkorta-
tækni en markmiðið með félaginu
var að lækka kostnað seljenda við
rekstur kortakerfa. Félagið var,
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins, í samstarfi við breska
bankann NatWest, um snjallkort,
þ.e. greiðslukort með örgjörva,
fyrir íslenskan markað en snemma
á síðasta ári keypti Royal Bank of
Scotland NatWest. Áhugi nýrra
eigenda á samstarfi við Kort hf.
reyndist ekki vera fyrir hendi og
bankinn dró sig út úr samstarfinu.
Þá var athugað hvort grundvöll-
ur væri fyrir samstarfi við aðra og
í framhaldi af því fór samruna-
tilraunin við Rafræna miðlun og
Smartkort af stað. Eftir að upp úr
þeim viðræðum slitnaði hefur eng-
in starfsemi verið hjá Kortum hf.
og bróðurpartur stofnfjár félags-
ins, sem var 175 milljónir króna,
liggur enn óhreyfður.
Fyrirtækin 20 sem eiga Kort hf.
eru: Baugur hf., Blómaval hf.,
Fjarðarkaup hf., Húsasmiðjan hf.,
Kaupás hf., Kaupfélag Eyfirðinga
Akureyri (KEA), Kaupmannasam-
tök Íslands, Landssími Íslands hf.,
NTC hf., Olíufélagið hf., Olíuversl-
un Íslands hf., Opin kerfi hf.,
Rafha hf., Samkaup hf., Sjóvá-Al-
mennar tryggingar hf., Skeljungur
hf., Skýrr hf., Smartkort ehf.,
Tékk-kristall hf. og Vátrygginga-
félag Íslands hf.
Samruni Korta hf., Smartkorta ehf.
og Rafrænnar miðlunar hf.
Slitnaði upp
úr viðræðum
um samruna
Engin starfsemi hjá Kortum í dag
ORKUVEITA Reykjavíkur og Hf.
Eimskipafélag Íslands hafa gert
með sér þjónustusamning um
birgðahald og dreifingu og er þetta
stærsti samningur sinnar tegundar
hér á landi. Í tilkynningu frá Eim-
skip segir að í nóvember síðastliðn-
um hafi verið opnuð tilboð í opnu út-
boði á evrópska efnahagssvæðinu í
birgðahald Orkuveitunnar. Reyndist
Eimskipafélagið vera með lægsta til-
boðið upp á 435,4 milljónir króna
sem er 64,4% af kostnaðaráætlun.
Þjónustusamningur milli fyrirtækj-
anna, sem er til fimm ára, hefur nú
verið undirritaður. Þetta er fyrsti
samningurinn sem opinbert fyrir-
tæki gerir um heildarbirgðahald sitt
og tekur hann til vörumóttöku, inn-
skráningar, birgðavörslu, móttöku
pantana, tollafgreiðslu, almennrar
afgreiðslu og dreifingar.
„Ávinningur Orkuveitunnar af
vöruhótelþjónustu er margvíslegur
og má þar nefna að einungis er greitt
fyrir það húsnæði sem er í notkun
hverju sinni vegna samnýtingar við
önnur fyrirtæki sem nota vöruhót-
elið. Þá minnkar fjármagnsbinding
Orkuveitunnar vegna birgðahalds og
dreifingar og samnýting á starfs-
mönnum og tækjum með öðrum not-
endum leiðir einnig til lækkunar
kostnaðar. Unnt er að geyma vörur á
frísvæði þar til á að nota þær og
fresta þar með greiðslu opinberra
gjalda. Ávinningur Eimskips af
þessum samningi felst í aukinni nýt-
ingu og arðsemi á starfsemi félags-
ins í birgðahaldi og dreifingu en
starfsemi félagsins á þessu sviði hef-
ur verið að aukast ár frá ári.“
Eimskipafélagið og
Orkuveita Reykjavíkur
Stærsti samningur
um birgðahald
og dreifingu