Morgunblaðið - 30.01.2001, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 30.01.2001, Blaðsíða 51
KIRKJUSTARF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2001 51 Áskirkja: Opið hús fyrir alla aldurs- hópa í safnaðarheimilinu kl. 10-14. Skemmtiganga kl. 10:30. Léttur há- degisverður framreiddur. Mömmu- og pabbastund í safnaðarheimilinu kl. 14-16. Grensáskirkja: Kyrrðarstund í há- degi kl. 12:10. Orgelleikur, ritning- arlestur, altarisganga, fyrirbænir. Léttur málsverður í safnaðarheim- ilinu eftir stundina. Æfing barna- kórs kl. 17-19. Hallgrímskirkja: Fyrirbænaguðs- þjónusta kl. 10:30. Beðið fyrir sjúk- um. Háteigskirkja: Fermingarfræðsla kl. 16:00. Bíóferð æskulýðsfélags kl. 17:20. Hittumst fyrir framan safnað- arheimilið. Kristin mystík kl. 20:00. Námskeið Leikmannaskóla Þjóð- kirkjunnar. Laugarneskirkja: Morgunbænir kl. 6:45-7:05. Fullorðinsfræðsla kl. 20:00. Ragnheiður Sverrisdóttur djákni fjallar um spurninguna „Hvers virði getur kirkjan verið fá- tækum?“ Þriðjudagur með Þorvaldi kl. 21:00. Lofgjörðarstund þar sem Þorvaldur Halldórsson leiðir söng við undirleik Gunnars Gunnarssonar og sr. Bjarni Karlsson flytur Guðs orð og bæn. Fyrirbænaþjónusta kl. 21:30 í umsjá bænahóps kirkjunnar. Langholtskirkja er opin til hljóðrar bænagjörðar í hádeginu. Endur- minningafundur karla er kl. 14-15.30 Neskirkja: Tíðasöngur kl. 12:00. Litli kórinn, kór eldri borgara kl. 16:30-18:00. Stjórnandi Inga J. Backman. Foreldramorgunn mið- vikudag kl. 10-12. Fræðsla: Örvun og þroski ungbarna. Hjúkrunarfræð- ingar af Seltjarnarnesi. Seltjarnarneskirkja: Foreldramorg- unn kl. 10-12. Kaffi og spjall. Verið öll hjartanlega velkomin Fríkirkjan í Reykjavík. Bænastund í kapellunni í safnaðarheimilinu 2. hæð kl. 12. Koma má bænarefnum á framfæri áður en bænastund hefst eða með því að hringja í síma 552- 7270 og fá bænarefnin skráð. Safn- aðarprestur leiðir bænastundirnar. Að bænastund lokinni gefst fólki tækifæri til að setjast niður og spjalla. Allir eru hjartanlega vel- komnir til þátttöku. Árbæjarkirkja: Foreldramorgunn í safnaðarheimilinu kl. 10-12. Fulltrúi frá Foreldrafélagi misþroska barna kemur í heimsókn. Hittumst, kynn- umst, fræðumst. Breiðholtskirkja: Bænaguðsþjón- usta með altarisgöngu kl.18.30. Bænaefnum má koma til sóknar- prests í viðtalstímum hans. Æsku- lýðsstarf á vegum K.F.U.M. & K og kirkjunnar kl. 20. Digraneskirkja: Kirkjustarf aldr- aðra. Leikfimi Í.A.K. kl. 11:20. Sam- vera, léttur málsverður og kaffi. Æskulýðsstarf KFUK og Digranes- kirkju fyrir 10-12 ára stúlkur. kl. 17:30. Fella- og Hólakirkja: Foreldra- stundir kl. 10-12. Starf fyrir 11-12 ára stúlkur kl. 17-18. Æskulýðsfélag fyrir 8. bekk kl. 20-22. Grafarvogskirkja: „Opið hús“ fyrir eldri borgara kl. 13:30. Helgistund, handavinna, spil og spjall. Alltaf eitt- hvað gott með kaffinu. „Kirkju- krakkar“ í Rimaskóla kl. 18:00-19:00 fyrir börn á aldrinum 7-9 ára. Hjallakirkja: Bæna- og kyrrðar- stund kl.18. Kópavogskirkja: Foreldramorgunn í dag kl. 10:00-12:00 í safnaðarheim- ilinu Borgum. Seljakirkja: Foreldramorgnar. Opið hús milli kl. 10-12. Kaffi og spjall. Víðistaðakirkja. Aftansöngurog fyr- irbænir kl. 18.30. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10-12 ára börn í Vonarhöfn, Strand- bergi, kl. 17-18.30. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús kl.17-18.30 fyrir 7-9 ára börn. Vídalínskirkja. Helgistund í tengslum við félagsstarf aldraðra kl. 16. Starf fyrir stúlkur 10-12 ára í samstarfi við KFUK kl. 17.30 í safn- aðarheimilinu. Lágafellskirkja. Fjölskyldumorg- unn í safnaðarheimili Þverholti 3, 3. hæð frá kl. 10-12. Fundur hjá kirkju- krökkum frá kl. 17.15-18.15. Safnað- arheimilið opnað kl. 17. Keflavíkurkirkja. Kirkjulundur op- inn kl. 13-16 með aðgengi í kirkjuna og Kapellu vonarinnar eins og virka daga vikunnar. Gengið inn frá Kirkjuteig. Starfsfólk verður á sama tíma í Kirkjulundi. Fermingarundirbúningur kl. 14:10- 16:25 í Kirkjulundi. Grindavíkurkirkja. Foreldramorg- unn kl. 10-12. Borgarneskirkja. TTT tíu - tólf ára starf alla þriðjudaga kl. 17- 18. Helgistund í kirkjunni sömu daga kl. 18.15- 19. Útskálakirkja. Safnaðarheimilið Sæborg. NTT (9-12 ára) starf er hvern þriðjudag í vetur kl. 17. Allir krakkar 9-12 ára hvattir til að mæta. Hvalsneskirkja. Safnaðarheimilið Sandgerði. NTT (9-12 ára) starf er hvern þriðjudag í vetur kl. 17 í safn- aðarheimilinu. Allir krakkar 9-12 ára hvattir til að mæta. Þorlákskirkja. Mömmumorgnar þriðjudögum kl. 10-12. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 16:30. KKK - Kirkjuklúbburinn Kirkjuprakkarar. Unglingarnir (leiðtogarnir) sprella út og suður. Boðunarkirkjan. Annað kvöld kl. 20 heldur áfram námskeið. Dr. Stein- þór Þórðarson sýnir þátttakendum hvernig er á einfaldan hátt hægt að merkja Biblíuna og leita í henni að ákveðnu efni. Eftir slíkt námskeið verður Biblían aðgengilegri. Allir hjartanlega velkomnir og aðgangur kostar ekkert. Krossinn. Almenn samkoma kl.20.30 í Hlíðasmára 5. Allir velkomnir. Frelsið, kristileg miðstöð. Biblíu- skóli í kvöld kl. 20. Hvammstangakirkja. Æskulýðs- fundur í kvöld kl. 20 í Hrakhólum KEFAS. Þriðjudagurinn 30. jan. Al- menn bænastund kl. 20:30. Ytri-Njarðvíkurkirkja TTT-starf. þriðjudaginn 30. janúar kl.17 í umsjá Ástríðar Helgu Sigurð- ardóttur og undirleikari er Tune Sol- bakke. Starfið er ætlað börnum 10 til 12 ára. Safnaðarstarf Subaru-sveitin sigraði með nokkrum yfirburðum á Reykjavíkurmótinu á dögunum. Myndin var tekin þegar sveitarmeðlimir tóku á móti Reykjavíkurhorninu sem er farandgripur. F.v.: Matthías Þorvaldsson, Þorlákur Jónsson, Sverrir Ármannsson, Aðalsteinn Jörgensen og Jón Baldursson. Það var Ólöf H. Þorsteinsdóttir gjald- keri Bridssambands Reykjavíkur sem afhenti verðlaunin. Þá er einnig ungur framtíðarspilari á myndinni en það er Eysteinn Matthíasson, sonur Matthíasar Þorvaldssonar og Ljósbrár Baldursdóttur. Sveit Ljósbrár Baldursdóttur vann parasveitakeppnina Sveit Ljósbrár Baldursdóttur sigraði í Íslandsmótinu í parasveita- keppni sem fram fór um helgina. Í sigursveitinni spiluðu ásamt Ljósbrá þau Esther Jakobsdóttir, Ásmundur Pálsson og Sverrir Ármannsson. Sveitin sigraði með nokkrum yf- irburðum, hlaut samtals 148 stig en þrjár sveitir fengu jafnmörg stig í öðru sæti eða 127 og varð að raða þeim í röð eftir því hver styrkur mót- herjanna var í mótinu. Það kom í hlut Ritara og smiða að fá annað sætið en í sveitinni spiluðu Una Sveinsdóttir, Pétur Guðjónsson, Ragnhildur Haraldsdóttir og Hróð- mar Sigurbjörnsson. Sveit Önnu Ív- arsdóttur var í þriðja sæti en með henni spiluðu Guðrún Óskarsdóttir, Sigurður B. Þorsteinsson og Sigur- björn Haraldsson. Lokastaða efstu sveita: Ljósbrá Baldursdóttir 148 Ritarar og smiðir 127 Anna Ívarsdóttir 127 Jacqui McGreal 127 Björk Jónsdóttir 118 Lifandi Vísindi 113 Fagrabrekka 111 Elín Jóhannsdóttir 109 Hamar 109 Svala Pálsdóttir 104 Harpa 104 Alls tóku 24 sveitir þátt í mótinu sem fór hið besta fram undir stjórn Antons Haraldssonar. Það má með sanni segja að bridsíþróttin brúi kynslóðabilið, því elsti keppandinn var 82 ára en sá yngsti 18 ára. Íslandsmeistararnir í parasveitakeppninni. Frá vinstri: Sverrir Ármanns- son, Esther Jakobsdóttir, Ásmundur Pálsson og Ljósbrá Baldursdóttir. Bridsfélag Reykjavíkur Þriðjudaginn 23. janúar var spil- aður einskvölds tvímenningur með þátttöku 10 para. Spilaður var Howell tvímenningur, 9 umferðir með 3 spilum á milli para. Meðalskor var 108 og efstu pör voru: Björgvin M. Kristinss. - Aron Þorfinnss. 122 Harpa F. Ingólfsd. - Vilhj. Sigurðss. 122 Helgi Jónss. - Helgi Sigurðss. 121 Böðvar Magnúss. - Ómar Óskarss. 118 Ljósbrá Baldursd. - Ásmundur Pálss. 114 Veitt var bókaúttekt hjá bóksölu BSÍ fyrir fyrsta sætið og urðu efstu pörin að draga um hvort hlyti verð- launin. Björgvin og Aron urðu þar hlutskarpari. Þriðjudaginn 30. janúar byrjar Aðalsveitakeppni BR. Hún stendur yfir 4 þriðjudagskvöld fyrir utan 20. febrúar, en það kvöld er gefið frí hjá BR vegna Bridshátíðar. Tekið er við skráningu í síma 587-9360 eða í tölvupósti, bridge@bridge.is. BR er komið með heimasíðu en þar munu birtast helstu upplýsingar um starfsemi BR svo sem dagskrá og úrslit spilakvölda, auk þess sem reynt verður að setja þar inn helstu upplýsingar sem geta nýst spila- félögum BR. Slóðin er www.is- landia.is/svenni og vonast stjórn BR til að þetta fái góðan hljómgrunn hjá félagsmönnum BR auk annarra sem hafa áhuga á að fylgjast með starf- seminni. BRIDS U m s j ó n A r n ó r G . R a g n a r s s o n Gullsmárabrids Bridsdeild FEBK, Gullsmára, spilaði tvímenning á níu borðum fimmtudaginn 25. janúar. Miðlungur 168. Efst vóru: NS Dóra Friðleifsd. – Guðjón Ottóss.205 Kristján Guðm.s. – Sigurður Jóhannss. 186 Karl Gunnarss. – Kristinn Guðmundss. 184 AV Þórdís Sólmundard. – Sigrún Sigur.ó. 194 Björn Bjarnas. – Sigurþór Halldórss. 188 Sigurpáll Árnas. – Sigurður Gunnlaugss. 177 Eldri borgarar spila brids í Gull- smára 13 alla mánudaga og miðviku- daga. Mæting kl. 12.45. Bridsfélag Kópavogs Fimmtudaginn 25. janúar átti að hefjast aðalsveitakeppni félagsins en vegna þess að aðeins mættu átta sveitir var ákveðið að fresta sveita- keppninni um eina viku og gefa þannig fleiri sveitum kost á að mæta. Spilað var einskvölda monrad- sveitakeppni með átta spilum á milli sveita. Efstu sveitir urðu þessar. 1. sv. Guðmundar Gunnlaugssonar 76 2. sv. Bernódus Kristinssonar 72 3. sv. M-United 63 Fimmtudaginn 1. febrúar hefst aðalsveitakeppni félagsins og viljum við hvetja þá sem ekki eru búnir að skrá sig nú þegar að skrá sig hjá Heimi í síma 586-1319 eða að mæta tímanlega á fimmtudaginn kemur. Stökum spilurum eða pörum verð- ur hjálpað til að mynda sveitir. Spila- mennska hefst kl. 19.45 spilað er í Þinghól við Hamraborgina og hvetj- um við alla til að mæta. SLIM-LINE dömubuxur frá tískuverslun v/Nesveg, Seltj., s. 561 1680 Mörkinni 3, sími 588 0640G læ si le ga r gj af av ör ur Opið mán.-fös. frá kl. 12-18. Lau. frá kl. 11-14 Glæsilegir stálbakkar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.