Morgunblaðið - 30.01.2001, Blaðsíða 15
Grundarfirði - Foreldramorgnar eru í
safnaðarheimili Grundarfjarðarkirkju á
miðvikudagsmorgnum. Í Grundarfiði eru
mörg börn, en í Eyrarsveit, sem Grund-
arfjörður er hluti af, er eitt hæsta hlut-
fall barna í sveitarfélagi á landinu. Þessi
mynd var tekin á miðvikudaginn var,
þegar nokkrar mæður komu saman í
kirkjunni til að bera saman bækur sínar
og leyfa börnum sínum að kynnast og
leika sér. Á næstunni er fyrirhugað að
föndra eitthvað á þessum stundum til
gagns og ánægju.Morgunblaðið/KVM
Foreldra-
morgnar í
Grundarfirði
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2001 15
DÆGURLAGAKEPPNI Kven-
félags Sauðárkróks 2001 er nú hafin.
Þegar hefur verið auglýst eftir lög-
um í keppnina en henni mun ljúka
með úrslitakvöldi í Sæluviku Skag-
firðinga föstudaginn 4. maí nk.
Öllum laga- og textahöfundum
landsins er heimil þátttaka. Aðeins
verða tekin til greina verk sem ekki
hafa verið flutt opinberlega eða gefin
út áður. Verkin skulu vera á hljóð-
snældum/diskum og textar á ís-
lensku. Þátttakendur skili verkum
sínum inn undir dulnefni ásamt þátt-
tökugjaldi, kr. 1.000 pr. lag. Rétt
nafn og heimilisfang skal fylgja með
í vel merktu og lokuðu umslagi.
Síðasti skilafrestur er 9. febrúar
2001. Miðað er við að þátttökugögn
séu póstlögð í síðasta lagi þann dag.
Póstfang er „Dægurlagakeppni
Kvenfélags Sauðárkróks“, Pósthólf
93, 550 Sauðárkrókur.
Dómnefnd mun velja tíu lög til að
keppa á úrslitakvöldi sem verður 4.
maí og mun þá sérstofnuð hljómsveit
flytja lögin ásamt söngvurum sem
höfundar velja. Sérskipuð dómnefnd
ásamt áheyrendum munu velja sig-
urlag. Vegleg verðlaun verða veitt.
Kvenfélagið áskilur sér allan rétt til
hvers kyns útgáfu á þeim tíu lögum
sem komast í úrslit.
Framkvæmdastjóri keppninnar
er Þóra Björk Þórhallsdóttir og
hljómsveitarstjórn er í höndum Ei-
ríks Hilmissonar.
Dægurlagakeppni Kvenfélags
Sauðárkróks er árlegur viðburður í
Sæluviku Skagfirðinga. Keppnin
hefur áunnið sér fastan sess í þjóðlíf-
inu sem helsti vettvangur fyrir fjöl-
marga tón- og textahöfunda sem
vilja koma verkum sínum á fram-
færi.
Dægurlagakeppni
Kvenfélags
Sauðárkróks
Auglýst
eftir
lögum í
keppnina
www.leir.is