Morgunblaðið - 30.01.2001, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 30.01.2001, Blaðsíða 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK. Morgunblaðið/RAX SALA fasteigna er á uppleið að nýju en frekar rólegt hefur verið á markaðnum um nokkurra mánaða skeið. Guðrún Árnadóttir, formaður Félags fasteignasala, sagði söluna hafa aukist síðustu tvær vikur þótt ekki væri um eins mikla sölu- sprengingu að ræða og tvö síðast- liðin ár. Ástæðu aukningarinnar sagði Guðrún vera að afföll húsbréfa hefðu lækkað nokkuð en á móti kæmi að fasteignaverð væri nú í sögulegu hámarki og þar sem lána- reglur Íbúðalánasjóðs miðuðust við brunabótamat lentu margir kaup- endur í því að lán þeirra væru skert. Spurð um framboð fasteigna sagði Guðrún að það mætti vissu- lega vera meira á höfuðborgar- svæðinu og ætti það sérstaklega við um nýbyggingar þar sem framboð þeirra væri ekki í samræmi við eft- irspurn. Einnig væri mikil vöntun á minni og ódýrari eignum fyrir efna- minni kaupendur, s.s. ungt fólk og þá sem eru að kaupa sína fyrstu fasteign. „Það er seljendamarkaður núna þar sem hátt fasteignaverð er selj- endum hagstætt en að sama skapi verða kaupendur að sætta sig við þetta háa markaðsverð,“ sagði Guð- rún. Aðspurð sagði Guðrún ómögu- legt að svara því hvaða hverfi væru eftirsóttust þar sem framboðið væri það lítið að alls staðar vantaði eign- ir. Kópavogur væri þó enn ofarlega á lista og Grafarholtið væri farið að vekja eftirtekt væntanlegra kaup- enda. Guðrún kvaðst ekki vilja spá um framtíð fasteignamarkaðarins en sagði menn almennt mjög bjartsýna enda væri engin ástæða til annars. Sem fyrr segir hafa afföll hús- bréfa farið lækkandi undanfarið og eru nú rúmlega 10% en fóru um tíma í 13–14%. Fasteignasala tek- ur kipp að nýju ÞAÐ hefur verið lítill friður hjá fuglunum í Grindavíkurhöfn und- anfarin misseri. Ekki er langt síðan að þar voru í gangi um- fangsmiklar framkvæmdir sem miðuðu að því að dýpka höfnina og bæta þannig innsiglinguna. Svo miklar sprengingar voru í höfninni að þær komu fram á jarðskjálftamælum Veðurstofu Ís- lands. Í gær var hvasst við Grindavík- urhöfn og þessum fuglum gekk illa að finna skjól fyrir vindinum. Ófriður hjá fuglum ÍSLENSK erfðagreining, ÍE, hefur óskað eftir því við Læknafélag Ís- lands að viðræður þeirra verði teknar upp að nýju um meðferð upplýsinga úr sjúkraskrám fyrir miðlægan gagnagrunn á heilbrigð- issviði. Læknafélagið sendi í gær út bréf til félagsmanna sinna þar sem fram kemur að viðræðunum við ÍE hafi verið slitið. Stjórn félagsins telur grundvöll til frekari viðræðna mjög veikan og trúnað milli aðila lítinn ef ekki brostinn. Sigurbjörn Sveinsson, formaður Læknafélagsins, vill ekki tjá sig um innihald bréfsins fyrr en læknar hafi fengið það í hendur. Bréfið, sem dagsett er 23. janúar síðastlið- inn, var boðsent í gær þeim þremur læknum hjá ÍE sem eru í félaginu. Þeirra á meðal eru Kristján Er- lendsson, framkvæmdastjóri sam- starfsverkefna ÍE, og Einar Stef- ánsson, framkvæmdastjóri gagna- grunnsverkefnis ÍE, sem tóku þátt í viðræðunum við Læknafélagið fyrir hönd fyrirtækisins. Íslensk erfðagreining telur efnis- legar forsendur fyrir viðræðuslit- unum ekki koma fram í umræddu bréfi. Lítið hafi borið á milli aðila og lausn verið í sjónmáli. Voru for- ráðamenn fyrirtækisins reiðubúnir að samþykkja að skriflegs sam- þykkis sjúklinga yrði aflað og ekki aðeins stuðst við ætlað samþykki. Viðræður milli ÍE og Lækna- félagsins höfðu staðið yfir í tæpt ár með nokkrum hléum. Á tveimur fundum í desember sl. lágu fyrir samningsdrög milli þessara aðila og á fundi 8. janúar sl. stóð til að ÍE svaraði framkomnum athugasemd- um Læknafélagsins við drögin. Af þeim fundi varð ekki þar sem félag- ið frestaði honum. Mikilvægt að ná sátt Einar Stefánsson segir við Morg- unblaðið að viðræðuslitin hafi valdið sér vonbrigðum. Vonast hann til þess að viðræður geti hafist að nýju. Mikilvægt sé að vinna málið í sátt við lækna og félag þeirra. „Hin áralanga hefð er þannig að læknisfræðirannsóknir eru unnar samkvæmt ætluðu samþykki þegar um er að ræða rannsóknir með fyr- irliggjandi heilsufarsgögn. Uppkast að yfirlýsingu alþjóðalæknafélaga hefur ákvæði sem samræmist ís- lensku lögunum um gagnagrunninn. Það er erfið staða, bæði fyrir Læknafélagið og okkur, að reyna að ná fram öðrum staðli hér. Þetta kann að eiga þátt í viðræðuslitun- um,“ segir Einar. Læknafélagið slítur viðræðum við Íslenska erfðagreiningu ÍE vill halda viðræðun- um áfram  Telur trúnað/6 AFLABRÖGÐ hjá ísfisktogur- um Útgerðarfélags Akureyringa hafa verið mjög góð að und- anförnu. Harðbakur EA landaði um 55 tonnum á Eskifirði í gær- kvöld, aðallega ýsu en einhverju af karfa. Harðbakur hélt svo aft- ur til veiða á Austfjarðamið þar sem átti að reyna við þann gula. Kaldbakur EA var væntanleg- ur til hafnar á Akureyri í morg- un, þriðjudag, með 150-160 tonn, þar af rúmlega 100 tonn af þorski en eitthvað af ýsu og karfa. Þá hefur Árbakur EA einnig fengið góðan afla en ráð- gert er að togarinn komi inn til löndunar á fimmtudag. Sléttbakur EA, frystitogari ÚA, var á Hampiðjutorginu á grálúðuveiðum og gekk vel en hefur nú snúið sér að þorsk- veiðum með þokkalegum árangri. Ráðgert er að Slétt- bakur komi til hafnar 5. febrúar nk. Ágæt aflabrögð hjá ÚA-togurum VEÐURSTOFA Íslands spáir suð- lægum áttum og hlýnandi veðri næstu daga svo janúarmánuður kveður með mildu veðri. Þóranna Pálsdóttir veðurfræðing- ur sagði að þrátt fyrir hlýindi síðustu daga yrði janúarmánuður þó aðeins í meðallagi hlýr vegna mikils frosta- kafla í ársbyrjun. Þóranna sagði frostið þá hafa verið svo mikið að jafnvel hefði heyrst minnst á sam- anburð við frostaveturinn mikla 1918, en svo hefði ræst úr veðrinu. Veðurstofan spáir austan- og suð- austanátt, 10–15 m/s., og rigningu um sunnan- og vestanvert landið, en heldur hægari og úrkomulausu að mestu á Norðausturlandi. Snýst til suðvestanáttar, 8–13 m/s., með skúr- um vestanlands síðdegis. Rigning eða slydda verður einkum um sunnan- og vestanvert landið. Janúar kveður með hlýindum ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.