Morgunblaðið - 30.01.2001, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 30.01.2001, Blaðsíða 26
ERLENT 26 ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ JARÐSKJÁLFTI sem stóð yfir í 30 sekúndur hefur þurrkað út heilar fjölskyldur, skólabekki, þorp og borgir í Gujarat-héraði Indlands. Yf- ir 90% bygginga í 150.000 manna borginni Bhuj, sem stendur í um 20 km fjarlægð frá upptökunum, eru í molum og þar hafa 6.000 manns fund- ist látnir. Í minni bæjum allt í kring hleypur tala látinna á hundruðum og í Ahmedabad, stærstu borg Gujarat, hafa um 600 manns fundist látnir. Alls er talið að allt að 15–20.000 manns hafi látist en sú tala hækkar með hverri klukkustund. Jarðskjálftinn reið yfir á 52. þjóðhátíðardegi Indverja og voru margir að gera sig tilbúna fyrir hátíð- arhöld dagsins þegar skjálftinn reið yfir klukkan 8.46 að morgni föstu- dagsins 26. janúar. Dagurinn er nú þegar kallaður svarti þjóðhátíðar- dagurinn og ber nafn með rentu. Töl- ur um fjölda látinna og skemmdir vegna skjálftans segja, eins og við þekkjum eftir þjóðhátíðarskjálftann í sumar, ekki mikið um það tilfinninga- lega tjón sem skjálftinn hefur valdið fólki á svæðinu. Það er ekki fyrr en sögur af harmleikjum og björgunar- afrekum berast sem maður gerir sér grein fyrir því hvað fórnarlömb skjálftans eru að ganga í gegnum. Hversu margar fjölskyldur eru tvístraðar, hversu mörg börn hafa misst foreldra sína og hve margir lifa þessa stundina í fullkominni óvissu um afdrif sinna nánustu. Örvæntingarfullir foreldrar bíða við rústirnar Í gærmorgun (mánudag) bárust fréttir af giftusamlegri björgun 35 ára gamals manns, Rakash Gore, sem hafði verið fastur í rústunum í fjóra daga. Björgunarlið heyrði í hon- um kalla og tókst að grafa hann upp úr grjótinu. Á meðan á björguninni stóð talaði hann allan tímann, hvatti björgunarliðið áfram, sagði því að flýta sér af því að hann væri svangur og þyrstur og hann þyrfti að drífa sig í vinnuna. Rakash var bjargað úr rústunum á lífi en níu manna fjöl- skylda hans lést í skjálftanum, þar á meðal eiginkona hans, tvær dætur og tveggja daga gamall sonur hans. Eini eftirlifandi ættingi hans er bróðir hans. Þetta er eingöngu einn af þeim þúsundum harmleikja sem íbúar svæðisins standa frammi fyrir. Tugir foreldra biðu nótt og dag í þrjá sólar- hringa við rústir Swaminarayan- grunnskólans í Maninagar. Þau héldu í vonina um að börnum þeirra yrði bjargað út á lífi og þau heyrðu veikar raddir þeirra undir rústunum. 45 börn höfðu verið að taka próf í til- raunastofu skólans. Þau reyndu að hlaupa niður stiga þegar skjálftinn hófst en eingöngu fimm komust lífs af þegar stiginn hrundi. Þrír kennarar fórust, en ein kennslukona var dregin upp úr rústunum hálfmeðvitundar- laus. Hún sagði að flest barnanna væru enn á lífi. Þremur sólarhringum eftir skjálftan voru ópin úr rústunum þögnuð og von foreldranna úti. Ann- ar hópur foreldra beið við rústir þar sem 400 börn og 50 kennarar höfðu verið í þjóðhátíðarskrúðgöngu. Hóp- urinn var að fara um þrönga götu þegar skjálftinn reið yfir og bygging- arnar báðum megin við þau hrundu yfir þau. Tölur um hve mörg þeirra voru talin af voru á reiki í gær en a.m.k. átta hafði verið bjargað. Yfirvöld gagnrýnd fyrir hæga- gang og slaka frammistöðu Ungum manni var bjargað úr rúst- um þar sem hann hafði legið í sólar- hring. Björgunarmönnum tókst að losa hann, allt nema tvo fingur sem þurfti að klippa af til að ná honum út. 30 sekúndum eftir að hann var laus hrundi afgangurinn af húsinu á stað- inn þar sem hann hafði legið. Annað kraftaverk átti sér stað síðdegis í gær þegar fjögurra ára gömlu stúlku- barni var bjargað úr rústunum. Faðir hennar hafði þá fundist látinn en ekki var vitað um móður. Stúlkan var lítið sem ekkert slösuð og bað um ís og dúkkuna sína þegar hún kom upp úr rústunum. Björgun sem þessi gefur mörgum eftirlifandi ættingjum og vinum von um að ástvinir þeirra finn- ist á lífi, en sú von verður veikari með hverri klukkustundinni sem líður. Björgunaraðgerðir gengu hægt og illa fyrstu klukkustundirnar og dag- ana eftir skjálftann. Íbúar horfðu upp á nágranna sína og fjölskyldur deyja, þar sem þau köfnuðu í rústunum, eða gáfust upp á biðinni. Mörg þorp biðu eftir utanaðkomandi aðstoð fram á sunnudag og höfðu þangað til ekkert samband við umheiminn og hvorki læknisaðstoð né vistir. Yfirvöld og almannavarnir í Guj- arat hafa verið harðlega gagnrýnd fyrir viðbrögð þeirra við skjálftanum og hægagang við björgunaraðgerðir. Margir kenna líka byggingarfyrir- tækjum um hversu illa fór og benda á þá staðreynd að skólar og sjúkrahús hafi hvað síst allra bygginga staðið skjálftann af sér. Sérhæfðar alþjóðlegar björg- unarsveitir koma á staðinn Á sunnudag komu fyrstu alþjóð- legu björgunarsveitirnar á staðinn og eru flestar þeirra sérhæfðar til þess að takast á við afleiðingar jarð- skjálfta. 60 manna sveit kom frá Sviss með níu sérþjálfaða leitar- hunda, 69 manna sveit kom frá Bret- landi, 20 manns frá Rússlandi og 75 manns frá Tyrklandi. Einn Íslend- ingur á einnig að vera kominn á stað- inn, Sólveig Þorvaldsdóttir, fram- kvæmdastjóri Almannavarna ríkisins. Hjálparsveitir, Rauði krossinn, UNICEF og mörg önnur samtök og félög standa nú í ströngu við að koma vatni, mat, teppum og lyfjum á stað- inn en hvorki er vatn né rafmagn á svæðinu. Margar þjóðir hafa einnig hafið söfnun meðal almennings rétt eins og Rauði kross Íslands stendur nú fyrir heima. Mikill skriður er kom- inn á björgunaraðgerðirnar og al- þjóðlegar sveitir leita dag og nótt að einhverju lífi í rústunum. Sömuleiðis er allt kapp lagt á að koma í veg fyrir að farsóttir breiðist út. Læknar og hjúkrunarfólk dreifa gúmmíhönsk- um til sjálfboðaliða sem bera lík úr rústunum og á líkbrennslusvæðin. Á hádegi í gær var búið að brenna 400 manns og var vonast til þess að hægt væri að brenna allt að 200 lík í gær. Mörg líkanna eru brennd áður en kennsl eru borin á þau svo ástvinir ná í mörgum tilfellum ekki að kveðja sína nánustu hinsta sinni. Nágranna- sveitarfélög og héruð hafa sent við- arbúta í stórum skömmtum til brennslunnar svo hún geti gengið hratt fyrir sig. Skilyrði byggingarreglugerða víða ekki uppfyllt Fjölmiðlar hér á vestanverðu Ind- landi velta því nú fyrir sér hvers vegna yfirvöld í Gujarat gáfu ekki út viðvaranir. Heimildir þeirra herma að íbúar Bhuj og nágrennis hafi fund- ið litla skjálfta í allt að viku fyrir stóra skjálftann. Þeir gagnrýna líka við- brögð almannavarnakerfisins og yf- irvalda og benda á allar þær ráð- stefnur og fundi sem haldin voru eftir Bhavnagar-jarðskjálftann í septem- ber 1999. Þar hafi verið lögð drög að margvíslegum úrbótum, en nú sjái allir að framfarir hafi verið engar. Fjölmiðlar beina líka athyglinni að Mumbai, langfjölmennustu borg vesturstrandarinnar og spyrja áleit- inna spurninga um hvernig bygging- ar þar séu í stakk búnar til að lenda slíkum hamförum. Manna á milli ganga sögur fjöllum hærra af yfirvof- andi skjálftum og slæmu ástandi bygginga, að stór hluti þeirra uppfylli ekki lágmarksskilyrði byggingar- reglugerða. Yfirvöld reyna að kveða niður þessar sögur en fjöldi íbúa Mumbai safnaðist saman úti á götu á sunnudagskvöldið af ótta við jarð- skjálfta. Smáskjálftar fundust á Mumbai-svæðinu í gærmorgun, mánudag. Ég var stödd á hótelher- berginu mínu og fann ekki fyrir þeim. Fjöldi eftirskjálfta hefur riðið yfir Gujarat á síðustu dögum og hefur fólk verið hvatt til að yfirgefa híbýli sín og sofa á bersvæði næstu nætur. Stríður straumur fólks liggur einnig frá Gujarat, margir ætla greinilega að yfirgefa svæðið og hefja nýtt líf annars staðar, enda er héraðið á mjög miklu jarðskjálftasvæði. Að sama skapi liggur stríður straumur fólks inn í héraðið. Það eru ættingjar og ástvinir þeirra sem kannski – kannski ekki – hafa komist lífs af úr skjálftanum. Allt að 25.000 manns taldir af á Indlandi eftir öflugasta jarðskjálfta þar í 50 ár Harmleikurinn heldur áfram í Gujarat-héraði á Indlandi. Staðfest hefur verið að 15.000 manns séu látnir og 33.000 slas- aðir. Óttast er að þessar tölur hækki með hverj- um degi og er talað um allt að 25.000 manns gætu hafa farist, segir Ragna Sara Jónsdóttir, sem stödd er á jarð- skjálftasvæðunum. Standist þessar tölur er skjálftinn í Bhuj mann- skæðasti jarðskjálfti í sögu Indlands. AP Eyðileggingin er gífurleg á því svæði sem skjálftinn reið yfir og víða hafa heilu göturnar og hverfin hrunið til grunna. Splundraðar borgir, bæir og fjölskyldur Reuters Indverskir hermenn finna konu á lífi í rústum byggingar er hrundi í skjálftanum í borginni Bhuj. Konan hafði verið grafin undir rústunum í meira en 72 klukkustundir er hún fannst í gær. Reuters Stúlka er særðist illa í jarð- skjálftanum drekkur vatn á her- spítalanum í Bhuj.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.