Morgunblaðið - 30.01.2001, Side 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2001 11
Á TÍUNDU ráðstefnu um rannsókn-
ir í læknadeild HÍ, sem haldin var
4.-5. janúar, fékk Håvard Jakobsen,
28 ára Norðmaður, sem búið hefur
hérlendis síðastliðin sjö ár, viður-
kenningu menntamálaráðherra fyrir
athyglisverðustu rannsóknina sem
kynnt var af ungum og efnilegum
vísindamanni.
Á ráðstefnunni kynnti Håvard
tvær rannsóknir, sem styrktar voru
af Rannsóknarnámssjóði og Rann-
sóknasjóði Háskólans. Hann kynnti
aðra rannsóknina með erindinu
„Slímhúðarbólusetning með prótein-
tengdum pneumókokka-fjölsykrum
verndar mýs gegn pneumókokka-
sýkingum“ og hina á veggspjaldi
sem ber harla flókinn titil í augum
leikmanna: „Stökkbrigði af Escher-
icia coli gatatoxínum (LT) örvar að-
allega myndun IgG2a og IgG3 mót-
efni eftir slímhúðarbólusetningu
með próteintengdum pneumókokka
fjölsykrum í músum.“
Mýsnar mynduðu
mótefni
Helstu niðurstöður voru þær, að
bólusetning músa með tilraunabólu-
efnum gegn pneumókokkum, sem
voru gefin með nefdropum, varð til
þess að mýsnar mynduðu mótefni
sem verndaði þær gegn lungnabólgu
og blóðsýkingu, þegar reynt var að
sýkja þær með pneumókokkum.
Bólusetning með dropum í nefið
reyndist því jafngóð eða betri en
venjuleg bólusetning með sprautu.
Bólusetning um nefið er líkleg til að
koma í veg fyrir að pneumókokkarn-
ir taki sér bólfestu í nefkokinu. Hún
getur þannig komið í veg fyrir að
þeir geti borist inn í líkamann og
valdið sýkingum, og líka hindrað að
þeir berist milli einstaklinga. Niður-
stöður Håvards benda því til þess að
slímhúðarbólusetning sé fýsilegur
kostur við bólusetningu í mönnum.
„Ástæðan fyrir því að það er betra
að bólusetja í gegnum slímhúð, að-
allega með dropum í gegnum nefið,
er sú að í upphafi sýkingar festast
pneumókokkarnir í nefkokinu og
dreifa sér þaðan í eyru, lungu, blóð
og jafnvel til heila,“ segir Håvard.
„Ef við getum komið í veg fyrir að
pneumókokkarnir taki sér yfirhöfuð
bólfestu í nefkokinu, þá er það mjög
góður árangur. Vandinn er hins veg-
ar sá að það er nauðsynlegt að hafa
ákveðið hjálparefni til að koma bólu-
efninu á réttan stað í ónæmiskerfinu
og um það snerist önnur rannsókn
mín, þ.e. hvort unnt væri að örva
ónæmiskerfið á þann hátt að það
verndaði tilraunamýsnar gegn sýk-
ingum. Upprunalega hjálparefnið
olli ertingu, en stökkbreytt afbrigði
þess, sem við höfum verið að prófa,
var hins vegar laust við allar auka-
verkanir.“
Að baki þessu liggur rúmlega
tveggja ára vinna Håvards á Rann-
sóknarstofu Háskólans í ónæmis-
fræði. Vinna hans er hluti rannsókna
á tilraunabóluefnum gegn pneumó-
kokkum sem valda alvarlegum sýk-
ingum, s.s. blóðsýkingum, heila-
himnubólgu og lungnabólgu og eru
líka ein algengasta orsök eyrna-
bólgu. Að sögn dr. Ingileifar Jóns-
dóttur dósents við læknadeild HÍ,
leiðbeinanda Håvards, hefur verið
unnið að þessum rannsóknum í um 8
ár á Rannsóknastofu Háskólans í
ónæmisfræði. „Við höfum, í sam-
starfi við ágætan hóp vísindamanna,
sýnt fram á að þau tilraunabóluefni
sem við höfum verið að rannsaka,
vekja ónæmi í litlum börnum sem
eru bólusett frá þriggja mánaða
aldri, en eldri bóluefni gegn pneumó-
kokkum eru gagnslaus börnum und-
ir 2-3ja ára aldri,“ segir Ingileif.
„Undanfarin 4 ár höfum við unnið
með dýralíkön til að geta skoðað
ónæmiskerfið og til að geta fundið
bestu bólusetningarleiðina og þar
skiptir vinna Håvards með tilrauna-
mýsnar miklu máli. Þetta verkefni
tengist síðan stórri Evrópurannsókn
á bólusetningum nýbura, sem hófst
fyrir einu ári.“ Evrópuverkefnið,
sem Ingileif og hennar samstarfsfólk
eru þátttakendur í, er samstarfs-
verkefni 15 rannsóknarstofnana,
lyfja- og líf-tæknifyrirtækja í Evr-
ópu, styrkt af Lífvísindaáætlun
ESB, auk þess sem Tæknisjóður
Rannís styrkir rannsóknir íslenska
hópsins.
Kosturinn við slímhúðar-
bólusetningu ótvíræður
En hvaða gagn er að þeirri upp-
götvun, að jafngott eða jafnvel betra
sé að bólusetja gegn pneumókokkum
í gegnum slímhúð, þ.e. nef, en með
sprautu?
„Kosturinn við að úða bóluefninu í
nefið á litlum börnum frekar en að
sprauta þau er ótvíræður,“ segir
Ingileif. „Með því er verið að minnka
óþægindi og sársauka. Til að byggja
upp nægilega sterkt ónæmi þarf að
bólusetja ungbörn þrisvar sinnum og
það er til mikils unnið ef hægt er að
sleppa þeim við sprautur, ekki síst
þegar hin aðferðin gagnast jafnvel
betur. Það verður líka að athuga að
slímhúðarbólusetning er einfaldari
og ódýrari kostur en stungubólu-
setning, þar sem ekki þarf að nota
sprautur og nálar. Þetta gætu orðið
góðar fréttir fyrir fátækari þjóðir
þar sem einnota sprautur eru mun-
aðarvara,“ segir hún.
„Með því að draga þannig úr
sprautunotkun er einnig komið í veg
fyrir ákveðna sýkingahættu,“ bætir
Håvard við. „Nýlegar rannsóknir
benda líka til að ónæmiskerfi slím-
húðar þroskist fyrr á ævinni en aðrir
hlutar ónæmiskerfisins. Þess vegna
er ekki ólíklegt að hægt verði að ná
betri árangri við bólusetningar ný-
bura með því að gefa bóluefni í nefið.
En þetta er ein af þeim spurningum
sem við ætlum okkur að svara í Evr-
ópurannsókninni á bólusetningum
nýbura,“ segir hann.
Rannsóknavinna með tilraunamýs lofar góðu með bólusetningar gegn alvarlegum sýkingum í mönnum
Bólusetning með
dropum jafngóð eða
betri en með sprautu
Morgunblaðið/Ásdís
Rannsóknarhópur sem tekur þátt í rannsókn á bólusetningum nýbura.
Frá vinstri: Brenda C. Adarna líffræðingur, Ingileif Jónsdóttir, dósent í
ónæmisfræði, Håvard Jakobsen, líffræðingur og doktorsnemi, og
Stefanía P. Bjarnason líffræðingur.
Håvard bólusetur tilraunamús
með því að setja dropa í nef.
Mýsnar sem fengu bóluefnið
voru bráðhressar þótt þær væru
sýktar með pneumókokkum.
MIKIL óánægja er meðal tón-
menntakennara við grunnskóla vegna
nýgerðs kjarasamnings Félags
grunnskólakennara og launanefndar
sveitarfélaga. Stafar óánægjan af því
að samningurinn felur í sér að
kennsluafsláttur þeirra er felldur nið-
ur.
Í ályktun stjórnar Tónmennta-
kennarafélags Íslands fyrir skömmu
var því haldið fram að með þessu sé
gerð atlaga að tónmenntanámi
grunnskólabarna og í grein sem birt-
ist í Morgunblaðinu fullyrðir Þórunn
Björnsdóttir tónmenntakennari að
þetta verði til þess að tónmennta-
kennsla í grunnskólum landsins líði
endanlega undir lok á næstu árum.
Launanefnd vill meta öll störf
í skólum á jafnræðisgrunni
Birgir Björn Sigurjónsson, formað-
ur samninganefndar launanefndar,
vísar þessu á bug. Hann bendir á að
launanefndin hafi haft að markmiði í
samningunum að meta öll störf í skól-
unum á jafnræðisgrunni. „Það var
okkar kalda mat að við yrðum að end-
urskoða röðunar- og vinnutímareglur
og annað slíkt ef við ætluðum að ná
því markmiði að veita grunnskóla-
kennurum almennt séð, þ.m.t. tón-
menntakennurum, hliðstæð kjör og
gilda um háskólamenntaðar stéttir í
þjóðfélaginu og þá yrði auðvitað að
aðlaga vinnutíma og annað að sömu
aðstæðum,“ segir hann.
Birgir Björn bendir einnig á að þó
afsláttur frá kennsluskyldu tón-
menntakennara sé felldur niður sé í
sjálfu sér ekki snert á því tímamagni
sem um ræðir í skólakerfinu. Um sé
að ræða tilfærslu á tímamagninu und-
ir ráðstöfunarrétt skólastjóra sem
verði háð mati hans á hvað kennarar
þurfi hver fyrir sig mikinn undirbún-
ingstíma fyrir verkefni.
„Við höfum líka gert aðrar ráðstaf-
anir og sett inn sérstaka launapotta
sem á að ráðstafa í samræmi við
þyngd verkefnanna, álag og persónu-
lega færni. Ég er alveg sannfærður
um að við erum að gera vel við tón-
menntakennara eins og aðra kennara,
en við erum að breyta launa- og
vinnutímakerfinu almennt í skólnum,
til samræmis við það sem annars
staðar þekkist. Ég get því ekki tekið
undir þetta. Þetta er gert að mjög vel
athuguðu máli. Ég tel t.d. ekki að tón-
menntakennarar eigi að vera rétt-
hærri að þessu leyti en umsjónar-
kennarar með mjög þunga bekki. Það
blasir við að umsjónarkennarar eru
burðarásinn í skólastarfinu enda er-
um við að gera þeim hátt undir höfði í
þessum samningi. Það væri mikið stíl-
brot ef við tækjum tónmenntakenn-
arana þar fram yfir,“ sagði hann.
FG reyndi allt til að koma í veg
fyrir niðurfellingu afsláttarins
Guðrún Ebba Ólafsdóttir, formað-
ur Félags grunnskólakennara (FG),
segir óánægju tónmenntakennara
skiljanlega. „Þeir voru með sérstakan
afslátt sem þeir eru ekki með lengur
heldur verða með sömu kennslu-
skyldu og umsjónarkennarar og aðrir
kennarar. Það er alltaf vont þegar
eitthvað er tekið af mönnum,“ segir
hún.
Guðrún Ebba segir að launanefnd-
in hafi verið ósveigjanleg hvað þetta
atriði varðar. Samninganefnd kenn-
ara hafi reynt hvað hún gat til að
koma í veg fyrir að þessi niðurfelling
kennsluafsláttarins næði fram að
ganga og að lokum hafi samninga-
nefnd kennara boðist til að lækka
launatöfluna sem næmi kostnaðinum
við að halda afslættinum inni. „Við
vorum tilbúin til að gera hvað sem er
en launanefndin var ákveðin í að þetta
skyldi fara í burtu og við náðum þessu
því ekki. Ég efast m.a.s. um að það
hefði náðst inn með verkfallsátökum,“
sagði hún.
Birgir Björn óttast ekki að þetta
verði til að úthýsa tónmennt úr
grunnskólum. „Ég veit að kennarar
koma til með að horfa á launatöfluna
og þau kjör sem þeim eru boðin. Allt
annað væri bara óraunsæi. Það er
ekki bæði hægt að éta kökuna og
halda henni. Við erum að bjóða geysi-
lega miklar kjarabætur. Það eru
ákveðnar fórnir líka og ég veit að
kennararnir sjálfir munu kynna sér
þetta og átta sig á hvað þarna er á
ferðinni,“ sagði hann.
Óánægja með afnám
kennsluafsláttar
Tónmenntakennarar gagnrýna nýgerðan kjarasamning
ÁSKELL Jónsson, framkvæmda-
stjóri markaðs- og sölusviðs hjá Ís-
landspósti, segir að unnið hafi verið
að viðamiklum breytingum á verk-
ferli og tölvukerfum hjá Íslandspósti
á haustmánuðum og að þá hafi komið
upp tilvik þar sem tafir hafi orðið á
því að hægt hefði verið að afgreiða
póstsendingar. Slíkar tafir heyri nú
að mestu sögunni til. Verði bið á því
að hægt sé að afgreiða póstsending-
ar nú stafi það fyrst og fremst af því
að það vanti einhver gögn með send-
ingunni. Til að mynda reikning eða
tollskýrslu.
Í Morgunblaðinu á föstudag er
haft eftir Félagi bókasafns- og upp-
lýsingafræðinga að allt að tveggja
mánaða bið sé eftir bókum sem
„sannanlega eru komnar í vörslu Ís-
landspósts,“ eins og það var orðað.
Einnig er eftir félaginu haft að
Íslandspóstur taki nú 1.500 krón-
ur fyrir hverja tollskýrslumeðferð.
Það sé þungur skattur, t.d. á bók
sem kostar um 1.000 kr. erlendis.
Getur gert
skýrslurnar sjálft
Um þetta síðarnefnda segir Áskell
að allur innflutningur krefjist að-
flutningsskýrslu. Taki Íslandspóstur
að sér að gera slíka skýrslu kosti það
1.500 kr. Það sé það verð sem lagt sé
á skýrslugerðina. Hins vegar geti
viðtakandi gert skýrsluna sjálfur og
þá losni viðtakandi við að greiða
fimmtán hundruð krónurnar. „Tolla-
yfirvöld hafa hins vegar samþykkt
vinnureglur fyrir bókasöfn, skóla og
opinberar stofnanir sem heimilar
þeim að gera eina tollskýrslu fyrir
það magn af bókum, blöðum og tíma-
ritum sem kemur í hverjum mánuði.
Þannig að þar er búið að liðka til í
þessum efnum,“ segir Áskell. Að-
purður segir hann að venjulega fylgi
ein tollskýrsla hverri sendingu, þ.e.
óháð stærð sendingarinnar.
Löng bið á póst-
afgreiðslu heyrir
sögunni til
MAÐUR íklæddur Súpermann-
búningi varð fyrir árás í Lækj-
argötu laust fyrir miðnætti á
sunnudagskvöld, samkvæmt upp-
lýsingum frá lögreglunni í Reykja-
vík.
Lögreglan sá átökin í eftirlits-
myndavél og fór þegar á staðinn
og skakkaði leikinn. Árásarmað-
urinn var handtekinn en hann var
mjög drukkinn og illa viðræðuhæf-
ur og fékk því að gista fanga-
geymslur lögreglunnar um nóttina.
Sá í Súpermann-búningnum var
bitinn í síðuna auk þess sem hann
fékk skurð fyrir neðan augað.
Hann mun sjálfur hafa ætlað að
koma sér á slysadeild.
Ráðist á
„Súpermann“
♦ ♦ ♦