Morgunblaðið - 30.01.2001, Síða 16
AKUREYRI
16 ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
AAlfa-námskeið verður haldiðí Glerárkirkju
* Alfanámskeið hafa verið haldin á Íslandi í
nokkur ár og hefur þátttaka aukist á hverju ári.
* Alfa er ódýrt, skemmtilegt og
uppbyggjandi námskeið um
grundvallaratriði kristinnar trúar.
* Kynningarfundur um námskeiðið
verður í Glerárkirkju nk.
miðvikudag, 31. janúar kl. 20:00.
Þar verður sagt frá innihaldi
og tillögum þess.
Námskeiðið mun standa yfir í
tíu vikur, eitt kvöld í viku.
Kynntu þér alfa
námskeið á vefnum www.alfa.is
veg, S: 588-8899
1620
564-2355
869 6215
delfía, S: 552-1111
S: 567-8800
3987
1-4337
431 1745
rkjunnar
skei› hefjast í janúar
rtöldum stö›um:
MIKILL fjöldi fólks var á skíðum
í Hlíðarfjalli um helgina, bæði á
gönguskíðum og svigskíðum. Að
sögn Guðmundar Karls Jónssonar,
forstöðumanns Skíðastaða, var að-
staða til skíðaiðkunar með besta
móti enda veður og færi gott.
Hann sagði að um 400 manns
hefðu komið í fjallið hvorn dag
um helgina og mikið hefði verið
af utanbæjarfólki í þeim hópi. Þá
gistu um 80 manns í skíðahótelinu
um helgina, afreksfólk frá höf-
uðborgarsvæðinu og Ólafsfirði,
sem notfærði sér aðstöðuna í
Hlíðarfjalli til æfinga. Skíðastaðir
hafa tekið í notkun ný skíði fyrir
skíðaleiguna og því geta allir
áhugasamir farið á skíði án þess
að eiga sinn búnað.
Nokkuð snjóaði á Akureyri fyr-
ir helgina og á laugardag var
kominn töluverður snjór í bænum.
Snjórinn var blautur og því kjör-
inn til snjókarlagerðar og hafði
yngsta mannfólkið nóg að gera
við að búa til snjókarla og -kerl-
ingar víðs vegar um bæinn.
Morgunblaðið/Kristján
Fjölmargir gestir, víða að og á öllum aldri, komu á skíði í Hlíðarfjalli.
Morgunblaðið/Kristján
Það er betra að hreinsa snjóinn vel undan skíðaklossunum áður en stigið
er í skíðabindingarnar og haldið í brekkurnar og það veit þessi dama.
Fjölmennt
í Hlíðarfjalli
Morgunblaðið/Kristján
Þeir bræður Gauti Snær og Logi Þór voru bara nokkuð ánægðir með
snjókarlana tvo sem þeir gerðu með mömmu sinni og ekki er hægt að sjá
annað en að þeir séu brosandi allir fjórir.
tól sem til þarf og á kvöldin var
setið á Gistiheimili Akureyrar og
þátttakendur horfðu á myndbönd
sem tengdust efni námskeiðsins.
Erling sagði að fyrirhugað væri
að halda annað námskeið af svip-
uðu tagi þar sem áhuginn hefði
verið svo mikill. Flestir þátttak-
endanna voru frá Akureyri, en
einnig voru menn frá nágranna-
sveitarfélögum. Sá sem lengst
kom að var frá Vopnafirði.
Öllum fiski úr
Litlá verður sleppt
Þeir félagar, Erling og Pálmi,
hafa nýlega skrifað undir samn-
ing til tíu ára um leigu á Litlá í
Kelduhverfi og viðræður standa
yfir um leigu þeirra á Brunná í
Öxarfirði. Það nýmæli verður tek-
ið upp í sumar að öllum fiski sem
ÁHUGI á fluguveiði fer sívaxandi,
að sögn Erlings Ingvasonar á Ak-
ureyri, en hann stóð ásamt Pálma
Gunnarssyni fyrir námskeiði um
liðna helgi um allt sem viðkemur
fluguveiði. Fullt var á námskeiðið
þó svo það væri ekki auglýst.
Erling sagði að auk þeirra
tveggja hefðu þrír leiðbeinendur
komið úr Reykjavík, þeir Eng-
ilbert Jensen, Sigurður Pálsson og
Ingólfur Kolbeinsson. Fjallað var
almennt um fluguveiði, fluguhnýt-
ingar og fluguköst. Þá var farið
yfir nauðsynlegan búnað, tæki og
veiðist í Litlá verður sleppt og
sagði Erling að slíkt ætti sér ekki
fordæmi hér á landi en væri
þekkt víða í útlöndum og hefði
þar gefið góða raun. „Með þessu
fyrirkomulagi fá fiskarnir tæki-
færi á að verða stærri, en það
gerist ekki ef menn taka þá með
sér heim í frystikistuna. Við erum
ekki það illa haldin af hungri hér
á landi að menn þurfi endilega að
veiða fisk sér til matar. Flugu-
veiðin er sport, menn geta eftir
sem áður notið veiðinnar, hnýtt
flugurnar sínar og þreytt fiskinn,
en þegar hann er kominn á land
verður að sleppa honum,“ sagði
Erling. Hann sagði að þessi hug-
myndafræði virtist falla í kramið
því mikill áhugi væri fyrir að
komast í ána og þegar væri byrj-
að að taka niður pantanir.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Áhugamenn um fluguveiði tóku forskot á sælu sumarsins og reyndu fyr-
ir sér með stöngina á námskeiði í Hrafnagilsskóla um helgina.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Engilbert Jensen leiðbeinir Einari Inga Einarssyni með flugustöngina.
Fullskipað á nám-
skeiði um flugu-
köst og -hnýtingar
MINJASAFNIÐ á Akureyri býður
skólum og leikskólum upp á móttöku
í safninu undir leiðsögn safnkennara.
Sýningar á safninu eru nýjar af nál-
inni.
Í sýningunni Eyjafjörður frá önd-
verðu er sagt frá landnámi í hér-
aðinu, víkingum og ásatrú og fyrstu
öldum byggðar. Sýningin Akureyri
–bærinn við Pollinn rekur kafla úr
bæjarsögunni, meðal annars margt
um leiki og störf barna fyrr og nú. Í
barnaherbergi safnsins eru leikföng
til sýnis og afnota fyrir unga safn-
gesti og gamlar óhefðbundnar
barnaljósmyndir.
Í safninu er nýuppsett sýningin
Sjúkdómar og lækningar að fornu,
þar sem fjallað er um krankleika
fornmanna eins og hann birtist í lýs-
ingum fornritanna. Sýnd eru gömul
lækningaáhöld úr eigu Minjasafns-
ins og Fjórðungssjúkrahússins á Ak-
ureyri.
Næstu vikur verður hægt að
skoða í safninu litla farandsýningu
um landnámið og býðst börnum
tækifæri til að handleika „ekta“ forn-
gripi, hlusta á víkingatónlist og
klæðast fötum og skarti á vísu land-
námsmanna. Nýr safnkennari,
Margrét Björgvinsdóttir, hefur tekið
til starfa við Minjasafnið
Minjasafnið
á Akureyri
Skólabörn-
um boðið
í heimsókn
ÖLL lögregluumdæmin, frá Hólma-
vík í vestri og austur í Þingeyjarsýsl-
ur, ætla að vinna að því sameiginlega
í dag þriðjudag, að kanna ökurétt-
indi ökumanna og bílabeltanotkun.
Ólafur Ásgeirsson aðstoðaryfir-
lögregluþjónn á Akureyri sagði að
umdæmin gerðu nokkuð af því að
vinna saman að ýmsum málum og að
þessu sinni ætti að fylgjast stíft með
því að ökumenn hefðu ökuréttindi,
væru með gild ökuskírsteini með-
ferðis og einnig með bílbeltanotkun.
Hann sagði að ökumenn á ferð um
Norðurland ættu eftir að verða varir
við þetta átak, þar sem lögreglan
mundi stöðva mikinn fjölda bíla í dag
þriðjudag og kanna áðurnefnd atriði.
Lögregluumdæmin
á Norðurlandi
Ökuréttindi og
bílbeltanotkun
til skoðunar
Áhugamenn um fluguveiði fundu fyrir veiðifiðringi um helgina