Morgunblaðið - 30.01.2001, Qupperneq 35
ir nemendur skólans eru með far-
tölvur og geta notað þær
hvarvetna í skólanum og með
stofnun nýrrar deildar og með því
að undirbúa þennan dag, 25. janú-
ar, þar sem skrifað var undir fram-
tíð skólans.
Hverju getur svo lítil
háskólastofnun áorkað?
Stjórnandinn leyfði nú fyrir-
spurnir úr sal og var spurt um
reglur um fjárveitu til skólans,
gildi einkaskóla í skólakerfinu og
sagði menntamálaráðherra að þeir
væru jákvætt gildi innan um rík-
isskólana og góð áhrif. Nemandi
spurði rektor hvernig staðan yrði
ef allir skólar helltu sér út í fjar-
nám og upplýsingatæknina í sama
mæli og Bifröst. „Við erum vel
synd,“ svaraði Runólfur og Ólafur
M. Einarsson benti á að þessi há-
skóli væri lítil eining sem gæti
þ.a.l. verið snögg að bregðast við.
Nemandi spurði um löggildingu
starfsheitisins viðskiptafræðingur,
vegna þess að svo virðist sem við-
skiptafræðingar geti ekki komið
sér saman um hverjir megi nota
það og hverjir ekki, og svaraði
menntamálaráðherra að það mál
ætti sennilega best heima í við-
skiptaráðuneytinu. Spyrja mætti
einnig hvort réttarvernd starfs-
heitisins væri nauðsynleg, eða
hvort ef til vill ætti að afnema
þessi lög.
Magnús Árni Magnússon kenn-
ari við skólann spurði um forsend-
ur þess að auka skiptinám við er-
lenda háskóla. Guðjón Auðunsson
sagði að þau samskipti ætti að efla
og koma á formlegum tengslum.
Runólfur tók undir það og lagði
áhersluna á alþjóðleg samskipti
skólans og alþjóðlega hugsun nem-
enda og kennara. „Staðsetning
skólans getur virst sem galli en
hann getum við yfirunnið með upp-
lýsingatækninni. En við þurfum
líka að senda nemendur út til að
þjálfa þá að vinna á erlendum
tungumálum. Staðsetningin er svo
kostur í augum erlendra gesta,“
sagði Runólfur, enda flokkast stað-
urinn með náttúruperlum.
Fjóla Margrét gaf svo þátttak-
endum við pallorðið færi á að mæla
nokkur lokaorð og minntust þeir á
hvernig nýta mætti sérstöðu þessa
litla háskóla sem stæði úti í ís-
lensku hrauni. Galdurinn virðist ef
til vill felast í því að ákvarðanir
væru sjálfstæðar en ekki eftiröpun
og að þær væru einnig farsælar.
Hlúð væri að sérstöðu skólans og
eiginverki.
Viðskiptaháskólinn á Bifröst
stæðist ef hann væri metinn af eig-
in nemendum.
MENNTUN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2001 35
skólar/námskeið
tungumál
Enskunám í Englandi
Bjóðum enskunám við einn virtasta
málaskóla Englands. Skólinn sér þér
fyrir fæði og húsnæði hjá enskri fjöl-
skyldu. Um er að ræða alhliða ensku 18
ára og eldri, viðskiptaensku og ungl
ingaskóla í júlí og ágúst.
Upplýsingar gefur Jóna María Júlíusdóttir
sími 862 6825 eftir kl. 18:00
UNDIRRITAÐUR var nýr
samningur á milli Viðskiptahá-
skólans á Bifröst og ríkisins 25.
janúar. Hann er til þriggja ára og
kveður á um fjárveitingar til
reksturs vegna kennslu, einnig er
gert ráð fyrir að nemendum skól-
ans fjölgi úr um 200 í 300 á tíma-
bilinu eða um helming og að íbúar
svæðisins verði um 450 í lok ársins
2003 en í dag eru þeir um 300. Þá
var einnig undirrituð yfirlýsing
um rannsóknar-, þróunar- og ný-
sköpunarverkefni við skólann og
nýtt deiliskipulag svæðisins kynnt
en samkvæmt því verða íbúar
þess um 600 árið 2005. (Mbl. 26/1).
Framlag ríkisins er áætlað um
53 milljónir króna árið 2001, sam-
kvæmt reglum um nemendafram-
lag. Ríkissjóður leggur einnig til
10 milljónir króna vegna nemenda
í frumgreinadeild skólans og 7
milljónir á ári á samningstíman-
um vegna þess að skólinn er utan
höfuðborgarsvæðisins.
Einnig var kynnt nýtt nýsam-
þykkt deiliskipulag fyrir háskóla-
svæðið, sem gerir ráð fyrir að um
600 manna háskólaþorp verði ris-
ið á svæðinu árið 2005.
Fréttir af Bifröst
Morgunblaðið/Rax
Guðrún Ingvarsdóttir undirbýr sig fyrir kynningu á framtíðarskipulagi háskólasvæðisins á Bifröst sem hún
hefur unnið fyrir ARK-ÍS og með Þráni Haukssyni hjá Landslagi ehf.
Morgunblaðið/Rax
Fartölvur eru vinnutæki nemenda. Menntamálaráðherra ræðir eitt-
hvert efni við nemendur á Bifröst.