Morgunblaðið - 30.01.2001, Side 49
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2001 49
skóla Íslands haustið 1966. Þar
kenndi hún ensku og frönsku til
starfsloka árið 1991. Hún bar hag
nemenda sinna mjög fyrir brjósti, var
metnaðargjörn fyrir þeirra hönd sem
og annarra sem henni þótti vænt um.
Hún gladdist innilega þegar nemend-
um hennar gekk vel bæði í og utan
skóla. Á sumrin sótti hún iðulega
framhaldsmenntun í sínum fögum á
erlendri grund. Kennslan var hennar
líf og yndi.
Gengin er merk kona og mætur
kennari. Minningin um hana mun ylja
okkur um ókomna tíð.
Við vottum Jónasi, Óla, Rósu
Hrönn, Jónasi Helga og fjölskyldum
þeirra innilegustu samúð.
Sigríður Jónsdóttir og
Sigríður S. Júlíusdóttir (Lotta).
Elsku Rósa mín, nú hefur þú kvatt
þennan heim og ert komin á betri
stað, þar sem ég veit að þér líður vel.
Þegar ég kynntist þér fyrir 27 árum
tókst þú mér opnum örmum og það
má segja að upp frá þeim degi hafir
þú verið mín besta vinkona. Þú varst
alltaf boðin og búin að hjálpa ef eitt-
hvað bjátaði á, já þú varst alltaf til
staðar svo traust og ljúf. Þinn eig-
inleiki var að þú varst alltaf svo hress
og kát og það geislaði af þér, ég
heyrði marga stelpuna segja að svona
vildu þær verða þegar þær næðu þín-
um aldri.
Elsku Rósa, minningin um þig lifir,
allar þær góðu stundir sem við áttum
saman, þær gleymast ekki, það var
svo gaman að sitja hjá þér og hlusta á
þig segja frá. Þú varst svo fróð og svo
var ættfræðin þér svo hugleikin, þú
miðlaðir til mín svo miklum fróðleik
og að honum bý ég alla ævi. Ég bið al-
góðan Guð um að blessa og styrkja
Jónas og Óla sem og aðra ástvini,
þeirra söknuður er mikill.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta,
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um huga minn fer.
Þó þú sért horfin úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Guð geymi þig, elsku Rósa.
Gunnfríður Harðardóttir.
Þá er hún Rósa föðursystir mín lát-
in. Þó svo að fréttin af andláti hennar
kæmi í sjálfu sér ekki á óvart, þá er
sorgin alltaf hin sama og söknuðurinn
jafn sterkur.
Rósa var alveg leiftrandi greind og
átti sérlega glæstan námsferil. Hún
lauk stúdentsprófi frá MR yngst allra
í bekknum, einungis 17 ára gömul. Að
loknu stúdentsprófi vann hún nokkur
ár í Reykjavíkurapóteki. Á stríðsár-
unum hélt hún til Bandaríkjanna
ásamt Jónasi manni sínum. Þau fóru
til Iowa, þar sem hún stundaði fram-
haldsnám í ensku og frönsku. Hún
var afburða málamanneskja. Engum
hef ég kynnst sem átti jafn auðvelt
með erlend tungumál. Hvort sem það
var enska, franska, þýska eða eitt-
hvert allt annað mál, þá var hún á
heimavelli. Meira að segja eftir viku
námskeið í Tékkóslóvakíu gat hún
bjargað sér á því ágæta máli tékk-
nesku. En henni var ekki nóg að geta
bjargað sér á erlendum málum, henn-
ar metnaður lá í að kunna hlutina til
hlítar og geta talað málin eins og inn-
fæddur. Það er skemmtileg saga höfð
eftir Alberti heitnum Guðmundssyni
sem þá var sendiherra í París, að
Rósa kom þar að sem breskur ferða-
maður var í vandræðum og gat ekki
gert sig skiljanlegan við franskan lög-
reglumann. Rósa var auðvitað ekki í
miklum vandræðum með að túlka á
milli og gerði það með svo miklum
bravör að báðir aðilar héldu hana
vera samlanda sinn, Bretinn hélt
hana breska og Frakkinn franska.
Eftir heimkomu úr námi starfaði
Rósa við kennslu, lengst af við Versl-
unarskóla Íslands. Hún var sérleg vel
metinn kennari bæði af nemendum
sínum sem og samkennurum.
Sjálfur bjó ég á Kvisthaganum, hjá
þeim hjónunum, Rósu og Jónasi, á
menntaskólaárum mínum. Það var
fínn tími, maður skrapp í gufubaðið til
Jónasar og fékk þar fyrirlestra í hag-
fræði hjá dr. Benjamín Eiríkssyni,
heimspeki og pólitík hjá Gulla Berg-
mann og öllum hinum. Svo fór maður
upp og naut frábærrar aðstoðar Rósu
við heimaverkefni í ensku, frönsku og
dönsku.
Þrátt fyrir að eiga ágætan kunn-
ingsskap við flest fögin í menntaskól-
anum þá var enginn vinátta með mér
og dönskunni. Frómt frá sagt var ég
hálfgerður skussi í því annars ágæta
máli. Það kom sér því illa þegar ein
mankynssögubókin var á dönsku, og
ég skildi hvorki upp né niður. Rósa
bjargaði því, eins og svo mörgu öðru,
við settumst niður við eldhúsborðið,
hún þýddi kaflana jafnóðum af munni
fram, og ég náði kúrsinum. Já við er-
um býsna mörg frændsystkinin sem
höfum notið leiðsagnar hennar og
hjálpar í gegnum árin.
Það er með miklum söknuði og
trega að við kveðjum hana Rósu í
dag, en víst er að minningin um þessa
leiftrandi og skemmtilegu frænku
mun ekki dofna.
Við sendum Jónasi, Óla Loga og
barnabörnunum tveimur innilegustu
samúðarkveðjur.
Bjarni og Dísa Klara.
Rósa Gestsdóttir kom til Verzlun-
arskóla Íslands árið 1966 og kenndi
þar frönsku og ensku um langt skeið
eða alveg fram til þess tíma þegar
hún lét af störfum 71 árs að aldri.
Rósa bar þess merki að hafa
kynnst franskri menningu og tileink-
að sér ýmsa þætti hennar sem Íslend-
ingum eru ekki jafn nærtækir. Hún
var opinská og glaðlynd, talaði fjör-
lega og af geislandi áhuga með
frönsku látbragði sem heillaði alla
sem við hana ræddu. Því til viðbótar
bjó mál hennar jafnan yfir svo mikilli
hlýju og væntumþykju að hún átti
auðvelt með að komast inn að innstu
hjartarótum þeirra sem hún átti sam-
skipti við. Hún var miðpunktur um-
ræðna á kennarastofunni og kennar-
inn sem fékk nemendur til þess að
leggja sig alla fram við námið svo þeir
gætu talað frönsku jafn sjarmerandi
og hún.
Engum datt í hug að Rósa væri að
verða sjötug svo ungleg og full af fjöri
sem hún var og það sem verra var,
hún mundi ekki eftir því sjálf og
stundum með óþægilegum afleiðing-
um eins og þegar hún hoppaði niður
af sviði hátíðarsalar skólans til þess
að stytta sér leið en með býsna
óþægilegum afleiðingum.
Við í V.Í. þökkum fyrir að hafa
mátt njóta starfskrafta Rósu og ná-
vistar á meðan aldur og heilsa leyfðu.
Við minnumst hennar með hlýhug og
þakklæti í hjarta og við minnumst
hennar sem mikils kennara, mikillar
heimsdömu og ekki síst sem mikils
félaga sem gaf mikið af sér jafnt
kennurum sem nemendum.
Við hjónin þökkum sérstaklega
fyrir þann velvilja og hlýju sem hún
jafnan sýndi okkur og minnumst
ánægjulegra samverustunda bæði í
leik og starfi.
Blessuð sé minning hennar.
Inga Rósa og Þorvarður
Elíasson.
Fátækleg kveðja frá vini og starfs-
félaga.
Nú þegar þú ert endanlega horfin
yfir móðuna miklu langar mig til að
þakka þér fyrir hlýjuna, vinsemdina
og öll fögru brosin sem ávallt mættu
okkur í starfi og leik. Það var gott að
vera starfsfélagi þinn og líka gott að
vera nágranni, þótt ekki væri nema
vegna þeirra forréttinda að fá að hafa
þig með á morgnana á leiðinni í vinn-
una. Um leið og þú settist inn í bílinn
gleymdist drungi hversdagsins,
myrkur skammdegisins og áhyggjur
af starfi eða vinnuálagi. Þú varst líka
heimsborgari sem hægt var að ræða
við um hin ólíkustu efni þótt þau
tengdust ekki endilega starfi okkar í
Verzlunarskólanum. Engu að síður
smitaðir þú okkur hin af óþrjótandi
eldmóði þínum og áhuga á kennslu-
starfinu. Þú byggðir frönskukennsl-
una á þeim grunni sem dr. Jón Gísla-
son hafði lagt, en síðan þróaðir þú
hana og beindir henni inn á nútíma-
legri brautir í samræmi við kröfur
tímans. Grunar mig að þar hafir þú
reyndar að ýmsu leyti verið leiðandi á
meðal frönskukennara á mennta-
skólastiginu. Þótt frönsk tunga og
frönsk menning væri þitt sérsvið og
tendruðu hugsjónaeldinn hvað mest
var það mikið happ fyrir mína deild
og sérsvið að þú hafðir numið þín
fræði við amerískan háskóla og gast
því tekið að þér kennslu í enskri
tungu líka. Átti ég því láni að fagna að
sjá þig þar sem á heimavelli værir
þegar við nokkrir kennarar sóttum
saman sumarnámskeið í New York-
ríki seint á áttunda áratugnum. Er ég
hræddur um að enskudeildin hefði
verið dauflegri ef þín hefði ekki notið
við þrátt fyrir gott mannval þar. Ég
held samt að öllu samstarfsfólki þínu
við skólann hafi þótt jafnvænt um þig.
Allir kunnu að meta hógværðina, létt-
leikann og kímnina. Ekki spillti fyrir
kvenlegur glæsileiki sem minnti frek-
ar á suðræn svið en frerann hér
nyrðra.
Ég votta Jónasi og fjölskyldunni
samúð okkar hjóna þegar Rósa er nú
öll. Síðustu árin voru erfið. Þegar
löngu dagsverki og baráttu við erf-
iðan sjúkdóm var lokið var hvíldin
vafalaust vel þegin. Hitt er víst að
veröldin verður nokkuð litlausari við
fráfall slíkrar glæsikonu.
Sölvi Eysteinsson.
Við hittum Jónas vin okkar í
Reykjavík nokkrum dögum fyrir
andlát Rósu og fréttum þá hversu
heilsu hennar hafði hrakað og því
kom andlátsfregnin okkur ekki á
óvart. Þessi glæsilega kona hafði háð
hetjulega baráttu við erfiðan sjúk-
dóm en nú var þrekið búið.
Við hjónin kynntumst Rósu hvort á
sinn máta. Guðlaugur í gegnum Gufu-
baðstofu Jónasar sem var svo lengi í
kjallaranum á Kvisthaga 29, en á
hæðinni fyrir ofan var heimili þeirra
Jónasar og Rósu. Þar réð þessi glað-
væra og brosmilda kona ríkjum og af-
greiddi símtöl til gufubaðstofunnar
sem ærið oft voru til Gulla. Guðrún
kynntist henni aftur á móti fyrst í
Verslunarskólanum þar sem Rósa
kenndi henni ensku og naut þar til-
sagnar frábærs kennara og hefur bú-
ið vel að æ síðan. Ávallt skyldi hún
mæta brosandi og áhugasöm í
kennslutíma, óaðfinnanlega klædd,
deila út verkefnum af skörungsskap
og ákveðni, koma með hnyttin tilsvör
ef snúa átti út úr fyrir henni og halda
virðingu okkar krakkanna, sem gerð-
um stundum tilraun til að vera uppi-
vöðslusöm, ekkert ólík öðrum ung-
lingum.
Saman áttum við svo oft eftir að
eiga góðar stundir með þeim hjónum.
Á gönguferðum um Vesturbæinn
mættum við þeim Jónasi og Rósu oft
eða heilsuðum upp á þau um leið og
við gengum framhjá Kvisthaganum.
Við sóttum hjá þeim glæsileg heim-
boð á tyllidögum og hittumst á dans-
leikjum og skemmtunum í tengslum
við veiðifélagið Fjaðrafok sem við
vorum félagar í.
Bæði erum við þakklát fyrir að
hafa átt þess kost að kynnast Rósu og
fyrir þau áhrif sem hún hafði á líf okk-
ar. Vini okkar Jónasi vottum við sam-
úð okkar, svo og Ólafi Loga syni
þeirra, fullviss um að minningin um
frábæra konu mun lifa áfram í huga
okkar allra.
Guðrún og Guðlaugur
Bergmann.
Mér er ljúft að minnast með nokkr-
um orðum skólasystur minnar úr
Menntaskólanum í Reykjavík, Rósu
Gestsdóttur.
Við vorum saman í bekk öll sex
menntaskólaár okkar og var þá nokk-
uð jöfn skipting kynjanna í bekknum.
Þetta breyttist svo við gagnfræða-
próf þannig að í máladeild fjórða
bekkjar varð til fyrsti stóri kvenna-
bekkur skólans, tuttugu stúlkur og
sex karlar.
Á þessum tíma voru aðeins tvær
deildir, máladeild og stærðfræði-
deild, en í þeirri síðarnefndu voru ein-
ungis karlar. Þá var líka Menntaskól-
inn í Reykjavík tiltölulega lítill skóli
og allir þekktust meira eða minna.
Rósa var strax áberandi góður
námsmaður, gædd góðum gáfum, full
áhuga á öllu sem hún tók sér fyrir
hendur. Hún var sérstaklega góð
málamanneskja, hafði þetta sérstaka
næmi sem nauðsynlegt er til þess að
ná góðu valdi á erlendum tungumál-
um. Þessara sérstöku hæfileika átti
Rósa líka eftir að njóta í ríkum mæli
þar sem lífsstarf hennar varð kennsla
í erlendum málum.
Rósa lauk BA-prófi í ensku og
frönsku frá Háskóla Íslands, fór síðar
til framhaldsnáms í Iowa í Bandaríkj-
unum í ensku, frönsku og sálarfræði
þar sem hún lauk masterprófi.
Lá síðan leiðin til Los Angeles þar
sem Rósa lagði fyrir sig nám í sjúkra-
þjálfun í LA School of Physiotherapy,
sem hún lauk á sex mánuðum. Eftir
heimkomuna réðst Rósa til Verzlun-
arskóla Íslands, þar sem hún kenndi
frönsku og ensku um tuttugu og fimm
ára skeið. Þótti hún afburða kennari
og mikils metin af sínum nemendum.
Auk kennslunnar í skólanum í mál-
um fékkst hún töluvert við einka-
kennslu. Einnig var hún fararstjóri
um margra ára skeið á sumrin fyrir
enska og franska ferðamenn.
Rósa var sérstaklega glæsileg
kona alla tíð, hafði mjög aðlaðandi
framkomu, hrein og bein og gekk
hnarreist í gegnum lífið. Hún var
mikil leikfimis- og keppniskona á sín-
um ungu dögum og leyndi það sér
heldur ekki í allri hennar framkomu
og fasi.
Ég vil að lokum kveðja góða bekkj-
arsystur og skemmtilegan félaga fyr-
ir hönd okkar bekkjarsystkina í ár-
gangi 1938 í Menntaskólanum í
Reykjavík.
Með dýpstu samúðarkveðjum til
eiginmanns Rósu, Jónasar Halldórs-
sonar, sonar hennar og allra annarra
aðstandenda.
Ástríður H. Andersen.
'
#
!
3A';8B
.-
, 5 5"=D
-
#
&
$+ &&
8
(
%
(
(
1
.! 0 !*)),!
/ ),!
!#&+ #.!)*
" .!)),! !!"#
# #" )*
-)*).!)* , "5 ) ),!
+00 &+ !,# !#+00 &+ !$
)
9
( 9
(
#
!
.3/
/
.+ 5 & >E
"6 $
"#! '$B" 25
/* B" 25. !!)*
"!!$B )4!)),!
5
"!)*
. !!
"!)),! B ) ! ! )*
/* 0 # . !!)),!$
!
A;3$3$
/ 2 !*D
"6
7
!
$ %
$ &
2!)
# !)*
F !
)"& ! 3 +!!3 )*
3" 0 !!
)"& ! 5 B$.!)*
!#
)"& !
# #- ! *
"!! $
)"& !
!#&+ #' #!2)*
3 !))
)"& ! B ! 0 !*)*
# "# !
!#5)* ,B !)),!
& ! &+ !,#& ! & ! &+ !$
:
9
( 9
(
%9
# .
.
.
" # !* =
"6 $
1
8 ( ;
4
3 * +
!#&" #)*
3 !! ' .!)*
#
!# #)* 3 B )!)),!
B "!'+ #)*
/"G !*" $