Morgunblaðið - 30.01.2001, Blaðsíða 54
HESTAR
54 ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FREMSTIR FYRIR GÆÐI
Milli manns og hests...
... er
arhnakkur
ÞAU mót sem hæst bera á árinu er að
sjálfsögðu heimsmeistaramótið sem
að þessu sinni verður haldið í Aust-
urríki 12. til 19. ágúst. Úrtökumótið
þar sem íslenska liðið verður valið
mun fara fram 12. til 16. júní en ekki
hefur verið valinn staður fyrir þann
mikla viðburð.
Fyrsta mót ársins var haldið um
helgina á Ingólfshvoli en þar er um
að ræða fyrsta mótið í mótaröð sem
kallast meistaradeildin sem saman-
stendur af fjórum stigasöfnunarmót-
um. Ljúfur í Hveragerði er skráð fyr-
ir þessum mótum í samstarfi við
Tölthesta á Ingólfshvoli. Í febrúar
byrjar svo ballið með ellefu mótum
en þessum vetrarmótum virðist
fjölga með hverju árinu og stöðugt
styttist sá tími sem á að heita hvíld-
artími hesta og hestamanna á haustin
og fyrri part vetrar. Snæfellingur
verður einnig með svipað mót en
samkvæmt skránni verður aðeins um
tvö mót að ræða, hið fyrra haldið í
Grundarfirði en hið síðara á Hellis-
sandi. Þytur í Vestur-Húnavatns-
sýslu verður einnig með þrjú mót á
Gauksmýri en ekki kemur þar fram
hvort um er að ræða mótaröð.
Sjö mót hjá Gusti
á tveimur mánuðum
Alls verða nítján mót í mars og
vekur þar athygli að nú er Hörður í
Kjósarsýslu skráður fyrir hinu stór-
vinsæla Ístölti í Skautahöllinni en
fram til þessa hafa Reiðsport og síðar
Töltheimar haldið þessi mót. Ístöltið
verður að þessu sinni haldið 31. mars.
Þá verður framhaldsskólamótið í
hestaíþróttum haldið um mánaða-
mótin mars/apríl en þessi mót hafa
oft verið haldin með mikilli reisn.
Mikil gróska verður í mótahaldi hjá
Gusti í mars og apríl en alls verða þar
haldin sjö mót í nafni félagsins á
þessum tíma. Af öðru áhugaverðu í
apríl má nefna að Sörli í Hafnarfirði
býður upp á opna skeiðkeppni sem
gæti orðið spennandi samkoma. Af
ýmsu er að taka þegar skeið er ann-
ars vegar og má nefna að hægt er að
keppa í hefðbundnu 150 og 250 metra
kappreiðaskeiði en auk þess 100
metra flugskeiði og svo að sjálfsögðu
gæðingaskeiði. Í apríl verða mótin
tuttugu og eitt og einu fleira í maí. En
vísast á eitthvað eftir að bætast við í
mótadagskrá maímánaðar og má þar
nefna að ekki kemur fram neitt um
sýningar í Reiðhöllinni í Víðidal en
gera má fastlega ráð fyrir að þær
verði á sínum stað, það er sýning
Fáks um miðbik aprílmánaðar og
sýning Norð- og Sunnlendinga fyrstu
helgina í maí. Þó gæti svo farið að síð-
arnefndu sýningunni yrði seinkað.
Verið er að skoða aðra möguleika fyr-
ir dagsetningu stóðhestasýningar-
innar en reiðhallarsýningin hefur
alltaf verið um sömu helgi. Málið
snýst aðallega um stóðhestasýn-
inguna.
Áhugaverð tilraun
Í maí og fyrri hluta júní ber mest á
íþrótta- og gæðingamótum félaganna
en 22. til 24. júní verður í fyrsta skipti
haldið Íslandsmót barna og unglinga
á Sörlavöllum og er þar um að ræða
mjög áhugaverða tilraun sem vert
verður að gefa gaum. Raddir um að
skipta beri Íslandsmótinu í tvö mót
hafa undanfarin ár gerst stöðugt há-
værari og nú loksins hafðist í gegn að
prófa þetta fyrirkomulag til eins árs.
Framhaldið mun væntanlega ráðast
af því hvernig til tekst.
Mótum í júlímánuði hefur verið að
fækka undanfarin ár og verða nú að-
eins haldin sex mót. Á móti vegur að
stærsta mót ársins hverju sinni er
haldið í þessum mánuði, á síðasta ári
landsmót en nú verður það fjórð-
ungsmót á Kaldármelum 5. til 8. júlí.
Stórmót á Vestur-
landi mikilvæg
Það eru hestamannafélögin á Vest-
urlandi sem standa að venju að móti á
þessum stað. Mótahald á Kaldármel-
um var til skamms tíma í uppnámi en
nú hafa félögin tekið af skarið þrátt
fyrir slæma útkomu á síðasta fjórð-
ungsmóti. Þótt deilt sé um réttmæti
þess að vera að gera út mótssvæði
fjarri þéttbýli virðast flestir sammála
um að stórmótahald á Vesturlandi sé
afar mikilvægt hestamennskunni í
fjórðungnum. Ekki má gleyma því að
á Kaldármelum er mikil náttúrufeg-
urð og staðurinn vel til þess fallinn að
viðhalda gömlum hefðum í stórmóta-
haldi og er þá verið höfða til tjald-
búðalífs og þess að menn komi ríð-
andi til mótsins.
Af öðrum viðburðum í júlí má
nefna að æskulýðsmót FEIF verður
haldið í Kanada sömu helgi og Ís-
landsmót ungmenna og fullorðinna
verður haldið, væntanlega á Ingólfs-
hvoli og Kvíarhóli. Ekki er þó allt tal-
ið upp þá helgina því æskulýðsdagar
verða haldnir á hinum forna lands-
mótsstað Skógarhólum.
Endaslepp haustdagskrá
Áður var minnst á heimsmeistara-
mótið í Austurríki í ágúst en af öðrum
mótum í þeim mánuði má nefna að
sömu helgi og heimsmeistaramótið
verður haldið munu Norðlendingar
halda sitt árlega bikarmót. Keppnis-
tímabilinu lýkur samkvæmt skránni
með þremur opnum mótum. Er þar
fyrst að nefna Suðurlandsmótið á
Gaddstaðaflötum sem dagsett er 22.
til 27. ágúst. Á sama tíma er Loka-
sprettur Harðarmanna dagsettur 25.
ágúst. Um mánaðarmótin er svo
Meistaramót Andvara sem byrjar
föstudaginn 30. ágúst og lýkur 1.
september. Samkvæmt þessu mun
keppnistímabili hestamanna ljúka
um mánaðamótin ágúst/september.
Verður það að teljast harla ólíklegt
miðað við það sem verið hefur und-
anfarin tvö ár þegar hestamenn hafa
verið að keppa lungann af september
og jafnvel lengur á kappreiðum. Til
dæmis má telja líklegt að Loka-
sprettur á Varmárbökkum verði
færður aftur fyrir mótið hjá Andvara
og síðan er að sjá hvort ekki verði
brugðið á einhverjum smærri mótum
eftir það. Það mun væntanlega ráðast
af stemmningunni á þessum tíma og
eins af tíðarfarinu. Tíðarfarið undan-
farin tvö haust hefur verið einstak-
lega gott og viðrað vel fyrir útisam-
komur.
Fimm afrekslistamót
Fimm af mótum ársins eru skráð
sem afrekslistamót (World ranking)
en árangur sem menn ná á slíkum
mótum er skráður á afrekslista
FEIF (alþjóðasamband eigenda ís-
lenskra hesta). Þau mót sem þar um
ræðir eru Suðurlandsmótið í ágúst,
Töltheimamót á Varmárbökkum 29.
júní, töltkeppni hjá Fáki 24. maí,
Reykjavíkurmeistaramótið á Víði-
völlum 10. maí og að síðustu opið
íþróttamót Geysis á Gaddstaðaflöt-
um.
Ekki er að efa að keppnistímabil
hestamanna mun að venju bjóða upp
á skemmtilega keppni. Opin mót eru
að sækja á en ekki er þó hægt að
merkja á þessari mótaskrá að lögð sé
mikil áhersla lögð á að laða að hesta-
menn í lægri getuflokkum enda býð-
ur núverandi kerfi ekki upp á mikla
möguleika til slíks.
Röskleiki í gerð mótaskrár
En hvað varðar útgáfu mótaskrár
LH virðist erfitt að breyta útkomu-
tíma hennar. Skrifstofa LH hefur
borið við í gegnum tíðina að hesta-
mannafélögin komi upplýsingum
seint frá sér og þar liggi hundurinn
grafinn. Spurningin er sú hvort ekki
sé hægt að byrja skipulagningu fyrr,
helst strax á haustmánuðum. Önnur
hugmynd hefur komið fram um að
félögin mæti til þings með upplýsing-
ar um fyrirhugaða mótsdaga og skili
þeim í síðasta lagi í upphafi þings,
öðrum kosti fái þau ekki rétt til þing-
setu á sama hátt og gildir með ár-
gjöld til sambandsins. Á mótaskránni
sem getur að líta á heimasíðu LH
(lhhestar.is) er greinilegt að sum
félög hafa ekki enn skilað inn móta-
dögum. Til dæmis virðist af skránni
að sjá að mótahald í Skagafirði verði
mjög fátæklegt á árinu ekkert mót
um verslunarmannahelgina svo
dæmi sé tekið. Dagsetning á Murn-
eyrarmótinu var að berast fyrst í gær
og þannig mætti áfram telja. Eru
þetta vinnubrögð sem hestamenn
sætta sig við?
Mótaskrá LH fjölskrúðug
og síðbúin að venju
Mótaskrá Landsambands hestamanna-
félaga hefur nú loksins litið dagsins ljós,
alltof seint að margra mati. Bent er á að sú
ákvarðanataka sem er undanfari skráar-
innar geti farið fram mun fyrr. En hvað sem
því líður skoðaði Valdimar Kristinsson
þessa áhugaverðu skrá sem hefur að geyma
mikinn fjölda móta.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Hestamenn munu láta margan gamminn geysa á þeim fjölmörgu hestamótum sem framundan eru á árinu.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Íslendingar hafa sjö HM-titla að verja á árinu. Þeirra á meðal er Jóhann
R. Skúlason sem sigraði í tölti á Feng frá Íbíshóli og nú er að sjá hvort
þeir mæta til leiks á ný og freista þess að sigra aftur í Austurríki.