Morgunblaðið - 30.01.2001, Side 61

Morgunblaðið - 30.01.2001, Side 61
BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2001 61 Nýbýlavegi 12, Kóp., s. 554 4433. Mikið af fatnaði í stórum númerum Jakkar frá kr. 4.500 Stuttir jakkar frá kr. 5.900 Síðir jakkar frá kr. 6.900 Pils frá kr. 2.900 Buxur frá kr. 1.690 Bolir frá kr. 990 Kjólar stuttir og síðir Blússur Alltaf eitthvað nýtt Suðvesturkjördæmi Leiðarþing Leiðarþing kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi verður haldið í Valhöll fimmtudaginn 1. febrúar 2001 kl. 17:30 – 21:00. Þinghaldið verður með hefðbundnum hætti og eru kjördæmisráðs- menn hvattir til að mæta vel og skiptast á skoðunum við þingmenn kjördæmisins. Í lok þingsins verður boðið upp á léttar veitingar. Þingforseti: Ágerður Halldórsdóttir, formaður kjördæmisráðs. Árni M. Mathiesen Gunnar I. Birgisson Sigríður Anna Þórðardóttir Þorgerður K. Gunnarsdóttir Kristján Pálsson Árni Ragnar Árnason SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINNStjórn kjördæmisráðs. www.xd.is Rauðarárstíg 1, sími 561 5077 ÚTSALA Viðbótarafsláttur Í MORGUNBLAÐINU 24. janúar sl. er haft eftir Halldóri Ásgríms- syni að reglur um greiðslur til ör- yrkja sem dvelja þurfa tímabundið á sjúkrastofnun hafi í tíð núverandi stjórnar verið rýmkaðar verulega, enda væri ljóst að forsendur breytt- ust mikið við að einstaklingar færu inn á sjúkrastofnun. Hann áttar sig, maðurinn, greinilega ekki á að fólk útskrifast aftur um leið og það treystir sér til svo forsendur við tímabundna dvöl breytast því miður lítið. Einungis matarkostnaður lækkar eithvað á meðan, fólk sem dvelur á Reykjalundi eða Heilsu- stofnun í Hveragerði fer oftast heim til sín um helgar, og þarf þá vænt- anlega að borða eitthvað. Mér rennur til rifja fáfræði Hall- dórs – og reyndar ríkisstjórnarinn- ar allrar – um hvernig líf öryrkjans er. Ekki er óalgengt að fólk sem býr við það mikla vanheilsu að vera óvinnufært með öllu þurfi annað veifið að dvelja tímabundið inni á sjúkrastofnun til endurhæfingar eða annarrar tímabundinnar að- hlynningar. Ríkisstjórnin hugsar dæmið þannig að öryrkinn taki þá upp heimili sitt fyrir þær fáu vikur eða mánuði, komi búslóð sinni fyrir, segi upp húsnæði – eða selji, eigi hann það sjálfur – og byrji síðan upp á nýtt að koma sér upp heimili þegar endurhæfingu lýkur. Og end- urtaki þetta í hvert sinn sem henni/ honum verður misdægurt. Full- frísku fólki væri slík ráðstöfun gjör- samlega ofviða! Öryrkinn þarf svo sannarlega ekki síður en aðrir að geta gengið að heimili sínu vísu eftir aðhlynn- ingu, leigu þarf að borga eftir sem áður eða afborganir, eftir því sem við á, bílatryggingar sem og aðra fasta útgjaldaliði. Og örorkubæturnar eru eins og þjóðin öll veit svo skammarlega lág- ar að það leggur enginn öryrki til hliðar af þeim til að mæta þeim „lúxus“ að neyðast til að dvelja á stofnun tímabundið til endurhæf- ingar. Og svo má ekki gleyma að alltaf eru langir biðlistar á Reykja- lund og ekki á færi fátæks fólks, þótt heilsulaust sé, að kaupa sig inn á Heilsustofnunina í Hveragerði. Hvenær ætlar ríkisstjórnin eigin- lega að skilja að það væri heilmikill sparnaður að gera öryrkjum jafn kleift að dvelja þar og á Reykja- lundi? Því fyrr sem fólk kemst í endurhæfingu, því styttri tíma tek- ur hún og árangur verður allur mun betri og lyfjakostnaður lækkar. Löng bið getur kostar ríkið mun meira en dvölin sjálf, sparar krón- una en ekki aurinn eins og nú er. Hvers konar guðs volaðir óvitar eru í þessari ríkisstjórn eiginlega? Hugsa þessir menn aldrei um neitt nema lúxusjeppa og annan óþarfa? Er þetta fólk svo bjartsýnt að átta sig ekki á að þeir og/eða þeirra nán- ustu gætu sem hægast í einu vet- fangi bæst í hóp öryrkja? Heldur þetta fólk kannski að fólk veikist al- varlega eða slasist alvarlega bara til að ergja stjórnvöld? Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur og á það ekki síst við um heilsuna. Ég óska Ingibjörgu Pálmadóttur skjóts og góðs bata – og vona að rík- isstjórnin taki ekki af henni launin eins og öryrkjum á meðan hún ligg- ur á sjúkrastofnun. GUÐRÚN JÓHANNSDÓTTIR 75% öryrki eftir bílslys Túngötu 20, Bessastaðahreppi. Óttalegir kjánar í ríkisstjórn Frá Guðrúnu Jóhannsdóttur: HINN 13. janúar birtist smágrein í lesendabréfi Morgunblaðsins sem bar nafnið Mývatn, undirritað af Birni Loftssyni fv. kennara og fjallar um kísil- gúrnám í Mý- vatni. Efni grein- arinnar er með þeim hætti að ég tel mér skylt að mótmæla henni eins og hún legg- ur sig. Þar segir m.a.: „Það hefur ekki sýnt sig, þrátt fyrir ára- tuga rannsóknir, að kísilgúrtakan hafi neitt slæm áhrif á lífríkið í Mý- vatni.“ Höfundur er fæddur og uppalinn við Mývatn og átti þar heimili til 1990. Víst hefur kísilgúr- takan haft slæm áhrif á lífríkið – og það svo um munar – þeir vita það vel sem fylgst hafa með þessum málum frá því að Kísiliðjan hóf starfsemina og ekki eru blindaðir af hagsmunasjónarmiðum þess fyr- irtækis. Strax á öðru ári Kísiliðj- unnar komu í ljós ýmsar áður óþekktar breytingar á lífríki vatns- ins, sem vörðuðu fisk og fugl. Í ám- innstri grein vill höfundur kenna minknum um fækkun á fugli, sem hann telur þó ekki vera stórvægi- lega, en varla verður minknum kennt um átuskort í vatninu, sem með vissu árabili veldur hruni á sil- ungs- og andastofnum. Rétt er það, að vísindamönnum hefur ekki tek- ist – ennþá – með óyggjandi hætti að sanna beint samband á milli starfsemi Kísiliðjunnar og síend- urtekins hruns lífríkisins, en það þýðir ekki það sama og að slíkt samband sé ekki fyrir hendi – lík- urnar benda allar í eina átt – og ýmislegt á vafalaust eftir að koma í ljós. Enn segir: „Þá er það stað- reynd að vatnið er að grynnast og mun þorna upp ef ekkert að gert.“ Þetta er bull, sem forsvarsmenn og fylgjendur Kísiliðjunnar héldu fram frá upphafi og fékk byr undir báða vængi þegar eldsumbrot við Kröflu orsökuðu landris við norðaustur- horn Mývatns. Náttúrufræðingar hafa sýnt fram á, með rannsóknum á borkjörnum úr botnlögum vatns- ins, hver árleg aukning er á botn- setinu, og benda þær niðurstöður til þess að einhver árþúsund muni líða áður en vatnið breytist í mýri – ef það gerist þá nokkurn tíma. Inn- rennsli í vatnið undan hrauninu á austurströndinni er mikið og end- urnýjun því mjög ör. Vindar – sem róta upp lausu seti – og straumar sem liggja niður um eyjasundin munu hjálpast að, hér eftir sem hingað til, við að flytja hluta af efsta botnlaginu niður í Laxá og auka þannig frjósemi hennar, og viðhalda jafnframt eðlilegri dýpt Mývatns. Greinarhöfundur furðar sig á, að menn skuli hafa gagnrýnt leyfisveitingu umhverfisráðherra fyrir áfrahaldandi efnistöku úr vatninu, og telur að þar hafi heil- brigð skynsemi verið látin ráða – þrátt fyrir að við þessa stjórnsýslu- aðgerð hafi öllu verið snúið á hvolf – framkvæmdaraðilinn látinn njóta vafans en náttúran ekki eins og við- tekin venja er, og eindregnar að- varanir náttúruvísindamanna ekki virtar viðlits. Ég hef um ævina van- ist því að svona aðfarir kallist ábyrgðarlaus glæframennska. Varðandi áframhaldandi efnistöku á nýju svæði, ætti hver maður að geta séð í hendi sinni, að of seint verður að taka í taumana eftir að skaðinn er orðinn sýnilegur, eina ráðið er að stöðva þessi hrikalegu umhverfisspjöll áður en enn verr fer. Og hvað varðar þann „fjölda manns“, sem við Kísiliðjuna vinnur, þá telur Árbók Þingeyinga – árið 1999 – 52 ársverk unnin þar. Ekki getur verið neitt óyfirstíganlegt vandamál að útvega þessu fólki störf, pólitískur vilji er allt sem þarf. Ef til vill geta einhverjar af þeim náttúruverndarstofnunum, sem fá lítt vinsamlegar háðsglósur í margræddri grein, tekið við nokkr- um, ef starfsemi þeirra verður auk- in á svæðinu – sem full þörf er á. ÁSMUNDUR GEIRSSON, öryggisvörður. Mývatn enn Frá Ásmundi Geirssyni: Ásmundur Geirsson HEILSUHRINGURINN VILT ÞÚ FRÆÐAST? Tímarit um holla næringu og heilbrigða lífshætti. Áskriftarsími 568 9933 Síðumúla 27 • 108 Rvík Veffang: http:www.simnet.is/heilsuhringurinn/

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.