Morgunblaðið - 30.01.2001, Page 64
FÓLK Í FRÉTTUM
64 ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FYRIRSÖGN þessa dóms er vand-
lega úthugsuð leið til að vekja athygli
þeirra sem dómurinn á að höfða til.
Eftir talsverða umhugsun hef ég
nefnilega komist að því að In The
Flesh á einkum erindi til tveggja hópa:
Þeirra gallhörðu aðdáenda sem eiga
allar plötur Pink Floyd og svo hinna
sem þekkja sveitina nánast ekki neitt.
Þeir síðarnefndu hafa engan áhuga á
Roger Waters og vita ekki hver hann
er. Og þótt ekki sé víst að hann yrði
sjálfur alls kostar sáttur við þetta má á
hinn bóginn segja að með þessari plötu
sé hann loksins að endurheimta rétt-
mætt tilkall til arfleifðarinnar sem fyr-
irsögnin vísar til.
Waters er ekki slík þjóðsagnaper-
sóna í tónlistarsögunni að um hann séu
til margar sögur, en ein frásögn um
hann er býsna lífseig og hún er sönn.
Það var líklega árið 1977 að hann stóð
á sviði fyrir framan tugi þúsunda aðdá-
enda sem létu sig tónlistina svo litlu
skipta að hann tók sig til og hrækti
framan í einn þeirra. Um þetta leyti
fékk hann þá hugdettu að það mætti
allt eins reisa vegg á milli hljómsveit-
arinnar og áhorfenda; slík væri gjáin
orðin á milli þeirra.
En reiðin út í hljómleikagesti, sem
þarna varð kveikjan að plötu Pink Flo-
yd, The Wall, er nú runnin af hinum
fimmtíu og sex ára Waters. Hann seg-
ist hafa notið sambandsins við áhorf-
endur innilega í hljómleikaferðunum
tveimur sem hann lagði í árin 1999 og
2000 við góðan orðstír, hálfum öðrum
áratug eftir að hann kvaddi kunningja
sína í Pink Floyd með látum og lög-
sóknum. Þetta nýtilkomna, vinalega
andrúmsloft á tónleikunum helgast
kannski sumpart af því að salirnir sem
Waters standa til boða eru talsvert
minni en áður (varla pláss fyrir vegg á
sviðinu). En aðdáendur hafa sjálfsagt
margir áhuga á að verða sér úti um
upptökur af Waters í góðu skapi, enda
um byltingarkennda nýjung að ræða.
Mælum samt gegn því til að byrja
með.
Í fyrsta lagi eru nú meira en átta ár
liðin frá því að Waters gaf síðast út
plötu (Amused To Death, 1992). Nýju
tónleikarnir bera vitni um aldur og
fyrri störf en á þeim er ekki að finna
nema eitt nýtt lag – og það er lélegt
(þ.e. lagið). Í öðru lagi hafa Pink
Floyd-aðdáendur enga þörf fyrir
fimmtu tónleikaútgáfuna af vinsæl-
ustu lögunum af The Wall. (Kunningj-
arnir hafa gefið þau út tvisvar, upp-
runalegu tónleikarnir frá 1980 voru
nýverið gefnir út og Waters gaf út
Berlínartónleikana fyrir áratug.) Í
þriðja lagi syngur einhver óþekktur
leiguliði nokkur þekktustu lögin. Þótt
röddin sé furðulík gamla Gilmour, sem
söng þau upphaflega, eru þetta hrein
og klár helgispjöll – og það er sáralítil
huggun harmi gegn að vita af Waters
á bassanum (þegar DVD-útgáfan
kemur út í vor getum við að minnsta
kosti séð hann!). Eitt og annað smá-
legt mætti svo tína til; á einum stað
(„Pros And Cons …“, 2:35 til 3:35)
gefst Waters til dæmis upp fyrir tón-
stiganum og spilar upptöku af gömlu
plötunni í stað þess að syngja sjálfur!
En ég ætla samt að mæla með þessum
ósköpum.
Í fyrsta lagi hefur Waters aldrei
gefið út eiginlega hljómleikaplötu,
hvorki í félagi við kunningjana né ein-
samall. Hér ganga því aftur margar
gamlar gersemar. Waters segist hafa
liðið miklar kvalir við að sjá kunn-
ingjana selja börnin hans (lögin) í
þrældóm með tónleikabrölti sínu, en
hérna færir hann okkur þau sjálfur,
flest í fyrsta sinn, og það er eitthvað
rómantískt, ánægjulegt og sögulegt
við það. Í öðru lagi eru þetta allt frá-
bær lög; allt það besta frá einni bestu
hljómsveit allra tíma og úrval af sóló-
ferli helsta laga- og textahöfundar
hennar. Í þriðja lagi er efnisskráin, að
Veggnum frátöldum, sérstakt fagnað-
arefni einlægum aðdáendum sem
þekkja lög á borð við „Dogs“, „Wel-
come to the Machine“ og „Set the
Controls …“ (frá 1968 og því hið elsta
sem flutt er). Lagavalinu eru ekki sett-
ar neinar tímaskorður á þessari tvö-
földu geislaplötu þannig að við missum
ekki af neinu. Í fjórða lagi eru öll lögin
flutt og framreidd með sóma, miklum
krafti þar sem við á og jafnan hófleg-
um en hæfilegum skammti af nýjunga-
girni. Gott dæmi um það síðastnefnda
er að angurværar stálgítarstrokur,
sem rétt vottar fyrir í „Wish You Were
Here“ í upprunalegu útgáfunni, fá hér
aukið vægi.
Þótt gömlu góðu lögin njóti sín af-
skaplega vel rís frammistaðan að mínu
mati hæst í syrpu laga af hinni átta ára
nýju (og góðu) Amused To Death.
Lagið „It’s a Miracle“ er rúmlega
ágætt í upprunalegri mynd en frábært
á þessum tónleikum. Textinn minnir
okkur á að þótt Waters hafi tekið tón-
leikagesti í sátt er hann jafn ósáttur
við heiminn og fyrr: „Nú selja þeir
Pepsí í Andesfjöllum og opna McDo-
nalds í Tíbet. Og ruslið hans Loyd-
Webbers gengur ár eftir ár eftir ár.“
Nýja lagið, „Each Small Candle“, er
síðast á efnisskránni; heldur slappt
eins og fyrr segir og langt í þokkabót.
Það er samið út frá ljóði sem ítalskur
blaðamaður færði Waters fyrir mörg-
um árum og er eftir fórnarlamb pynt-
inga í Suður-Ameríku (ágóði af laginu
rennur til Amnesty International
þangað til Waters tekst að finna höf-
undinn). Hann tók það aftur upp úr
skúffunni þegar hann sá í fréttum ser-
bneskan hermann koma albanskri
konu til hjálpar í Kosovo; „Hver lítill
bjarmi lýsir upp hluta af myrkrinu.“
Myrkrið hefur verið Waters yrkisefni í
áratugi en ljósið blandar sér æ oftar í
málið hin seinni ár. Nú hillir víst loks-
ins undir nýja plötu og verður fróðlegt
að sjá hvort þar takast sættir með
Waters og veröldinni. Ég spái því
reyndar að hann sé ennþá frekar pirr-
aður.
ERLENDAR
P L Ö T U R
Ólafur Teitur Guðnason hefur
verið að hlusta á nýjustu tón-
leikaplötu Rogers Waters,
fyrrverandi meðlims Pink
Floyd; In The Flesh.
Pink Floyd
Jimmy Ienner Jr.
Roger Waters, fyrrverandi Pink Floyd-meðlimur. In The Flesh er,
merkilegt nokk, hans fyrsta hljómleikaskífa.
Flísar
og
parketBorgartúni 33, Reykjavík • Laufásgötu 9, Akureyri
$6 % &
$0 % $2
9 % &
A 9 + % $2
/
(
44
<
(
2
B
. $+!$2!
9 9
1#
$&
!!"#$$
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Stóra sviðið kl. 20.00:
%&'(&)*'(&(+,-./
%
/ C
00
$&C
001 $$C"$ 1
22
3
45674882 $$ 9
C$ 9 >C
9.:* 4,55(&*443+
1 AC $A
00 $0
00 $$C $A
00 $>C
$A 3
$0 3
1 +C 3
$A
$0
22
3
1 AC $A
00 $0 3
1$$C $A
22
3
Smíðaverkstæðið kl. 20.00:
+)'(..;&/75*+/
B
$C$
00 $C
00
C
001 AC
00
0C
001 >C
00 2C
00
$AC
001
$0C
00<
$>C
001 C
00
AC
00 +C
00<
1
>C 3
:5=%4(&*>%?9+ @ / C
22
3
1 2C
$&C
Litla sviðið kl. 20.30:
/:1 +*4/4=A B8
/ C
001
C 3
CCC 2
D2
1#
.
$&
+
0 <E 2 !F<!G1 <
2 !F<#$
552 3000
Á SAMA TÍMA SÍÐAR KL. 20
sun 4/2 örfá sæti laus
fös 9/2 laus sæti
lau 17/2 laus sæti
SJEIKSPÍR EING OG
HANN LEGGUR SIG
lau 3/2 kl. 20 örfá sæti laus
lau 10/2 kl. 20 örfá sæti laus
fös 16/2 kl. 20 örfá sæti laus
530 3030
SÝND VEIÐI
lau 3/2 kl. 21 laus sæti
fös 9/2 kl. 20 laus sæti
TRÚÐLEIKUR
fös 2/2 kl. 20 laust sæti
Miðasalan er opin kl. 12-18 virka daga, kl. 14-18
um helgar og fram sýningu alla sýningardaga.
Hópasala fyrir leikhús og/eða veitingahús er
í síma 530 3042, opið kl. 10-16 virka daga.
Ekki er hleypt inn í salinn eftir að sýning hefst.
midasala@leik.is — www.leik.is
5+)$=$5"&$+ 54)C
$9$5"&$+ 54)C
5+)$?$5"&$!, )C
$>L$5"&$+ 54)C
5+)$>E$5"&$+ 54)C
!
Anddyri
LINKIND EÐA HARKA?
Mið 31. jan kl. 20
Umræðufundur um stöðu leiklistargagnrýni
á Íslandi í dag.
Fyrir hvern og til hvers er leiklistargagnrýni?
Hverju getur hún komið til leiðar? Hvert er
hlutverk leiklistargagnrýni, skyldur hennar
og staða?.
Þátttakendur í umræðunum eru: Gunnar
Smári Egilsson, blaðamaður, Halldóra
Friðjónsdóttir, leiklistargagnrýnandi DV, Páll
Baldvin Baldvinsson, formaður Leikfélags
Reykjavíkur og Soffía Auður Birgisdóttir,
leiklistargagnrýnandi Morgunblaðsins.
Fundarstjóri er Magnús Þór Þorbergsson.
Litla svið - VALSÝNING
ÖNDVEGISKONUR e. Werner Schwab
Fim 1. feb kl. 20 – ÖRFÁ SÆTI LAUS
Fös 2. feb kl. 20 – ÖRFÁ SÆTI LAUS
Litla svið
ABIGAIL HELDUR PARTÍ e. Mike Leigh
Fös 16. feb kl. 20
Fös 23. feb kl. 20
Stóra svið
SKÁLDANÓTT e. Hallgrím Helgason
Lau 3. feb kl. 19 – ÖRFÁ SÆTI LAUS
Lau 10. feb kl. 19
Fös 16. feb kl. 20 - UPPSELT
Stóra svið
MÓGLÍ e. Rudyard Kipling
Sun 4. feb kl. 14 - UPPSELT
Sun 4. feb kl. 17 - AUKASÝNING
Sun 11. feb kl. 14 – UPPSELT
Sun 11. feb kl. 17 - AUKASÝNING
Sun 18. feb kl. 14– ÖRFÁ SÆTI LAUS
Stóra svið
FJANDMAÐUR FÓLKSINS e. Henrik Ibsen
Fös 9. feb kl. 20 FRUMSÝNING
Ertu í saumaklúbbi? Skráðu klúbbinn á
póstlistann á www.borgarleikhus.is og
fáðu glæsileg leikhústilboð fyrir hópinn
vikulega. Mánaðarlega er einn sauma-
klúbbur dreginn út og öllum meðlimum
boðið á leiksýningu í Borgarleikhúsinu.
# 2 #$
9
%
&
9 A %
&
+
0@2
2 !F?!H
"I#!"$$
CCC 2
Í HLAÐVARPANUM
Háaloft
geðveikur
svartur gamanleikur
22. sýn. í kvöld 30. jan. kl. 21.00
23. sýn. fim. 8. feb. kl. 21.00
„Áleitið efni, vel skrifaður texti,
góður leikur og vönduð umgjörð.“ (SAB Mbl)
„... undirtónninn sár og tregafullur.“ (HF DV)
Eva - bersögull sjálfsvarnareinleikur
10. sýn. lau. 3. feb. kl. 21.00
11. sýn. þri. 6. feb. kl. 21
- uppselt
12. sýn. þri. 13. feb. kl. 21
13. sýn. fim. 15. feb kl. 21
„...textinn er bæði skemmtilegur og sannur í allri
sinni tragi-kómik...ég skora á [konur]að fjölmenna
og taka karlana með...“ (SAB Mbl.)
Tónleikar Zef clop
fim. 1. feb. kl. 21
7803
+*'.66+ !J$