Morgunblaðið - 03.02.2001, Page 27

Morgunblaðið - 03.02.2001, Page 27
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2001 27 DÓMSTÓLL í Berlín úrskurðaði á miðvikudag, að hin 41 milljóna marka sekt, sem forseti þýzka þings- ins gerði í febrúar í fyrra Kristileg- um demókrötum (CDU), flokki Hel- muts Kohls fv. kanzlara, að greiða samkvæmt refsiákvæðum gildandi laga um fjárreiður stjórnmálaflokka, væri ólögleg og þyrfti ekki að greið- ast. Sektin samsvarar um 1.640 milljónum króna. CDU skaut úrskurði þingforset- ans, jafnaðarmannsins Wolfgangs Thierse, til þýzka stjórnsýsludóm- stólsins í marz 2000. Komst réttur- inn að þeirri niðurstöðu, að CDU hefði skilað inn bókhaldi sínu innan tilskilins frests sem kveðið er á um í lögunum um starfsemi stjórnmála- flokka, þótt síðar hafi komið í ljós að bókhaldið hafi ekki verið í lagi. Sagði dómurinn ákvæði laganna um fjárreiður flokkanna ekki nógu skýr hvað varðar smáatriði í bók- haldi þeirra, og því væri sektin sem þingforsetinn ákvað bæði of há og ekki byggð á nógu sterkum laga- grunni. Thierse boðaði strax að hann myndi áfrýja þessum dómsúrskurði. Sektin var ákveðin á grundvelli bók- halds CDU frá árinu 1998, en í því komu ekki fram milljónir marka sem fóru í gegn um leynireikninga flokksins og munaði þar mestu um fé sem flokksdeild CDU í sambands- landinu Hessen geymdi í Sviss. Dómurinn náði ekki til 6,3 milljóna marka sektar sem Thierse ákvað vegna 2,1 milljóna marka óframtal- inna framlaga í kosningasjóði CDU sem Kohl tók sjálfur við á tímabilinu 1993– 1998. Sam- kvæmt ákvæð- um téðra laga um fjárreiður þýzkra stjórn- málaflokka má sekta þá um þre- falda þá upp- hæð, sem sannast að þeir hafi tekið við án þess að geta þess í bókhaldi. Öll framlög yfir 20.000 mörk skal telja fram með nafni gefanda fjárins. Kohl safnaði um átta milljónum marka til að bæta CDU upp þessa sekt, og í þetta sinn lét hann þess getið hverjir lagt hefðu til fé í púkk- ið. Samkvæmt gildandi reglum um stuðning úr opinberum sjóðum við starfsemi stjórnmálaflokka hefði CDU ekki þurft að greiða sektirnar beint, heldur hefði upphæðin verið dregin frá þeim opinberu styrkjum sem flokkurinn hefði annars átt rétt á að fá á næstu árum. CDU-sekt dæmd ógild Berlín. Reuters, AFP. Wolfgang Thierse FYRIR einni öld velti Anatole France því fyrir sér hvað framtíðin kynni að bera í skauti sínu og sagði: „Það er draumur minn að lesa bæk- ur skóladrengja eins og þær munu verða árið 2000.“ Nú, þegar þús- öldin er horfin á vit sögunnar, ætt- um við kannski að velta því fyrir okkur hvort skólabörnin okkar njóti þeirrar hvatningar sem Anatole France vonaði. Á 20. öldinni urðu margar, stór- kostlegar byltingar í tækni, eins og til dæmis sjónvarp, loftflutningar og eldflaugar. Undir niðri urðu einnig tvenns konar hugarfarsbyltingar. Frá atómum til stjarnanna eigum við nú nákvæma, virka mynd af næstum öllum efnislegum fyrirbær- um. Eina stóra gatið í þekkingu okkar varðar uppruna alheimsins. Hin hugarfarsbyltingin hófst með sameindalíffræði. Einnig þar höfum við nú nákvæma, virka mynd af öll- um lífsferlum, frá bakteríum til manna. Og eina stóra gatið er aftur varðandi uppruna. Hugmyndin um „frumlöginn“ í úthöfunum, þar sem núklíður og peptíður skipuðu sér einhvern veginn í lifandi veru, er ekki alveg sannfærandi. Nútíma skólabækur greina mynd- uglega frá þessum afrekum. En það vantar, í tilveru barna okkar, dálítið sem er mikilvægt fyrir vísindalegar framfarir. Það skortir vangaveltur um komandi framfarir; aukið menn- ingarlegt áhugaleysi á vísindum er að skjóta rótum. Auk þess eru sífellt fleiri lagalegar hindranir teknar að bæla niður hugvit hvarvetna. Anatole France var uppi á tímum mikilla uppfinningamanna á borð við Gustave Eiffel og Thomas Edi- son. Hann greindi hina komandi iðn- aðarsprengingu tuttugustu aldar- innar, þegar fáein stór fyrirtæki knúðu áfram tækniuppfinningar og gerðu rafmagn, efnafræði, sam- göngur, samskiptatækni og tölvur að lykilþáttum í daglegu lífi. En þessi sömu fyrirtæki, sem mótuðu megnið af 20. öldinni, eru nú undir þrýstingi þröngsýnna hluthafa sem vilja að langtímarannsóknir verði af- lagðar og í staðinn hugsað um skammtímahagnað. Tökum olíufyr- irtækin sem dæmi: Þótt óvissa sé að aukast í heiminum um nýjar orku- lindir hafa þessi fyrirtæki, sem hafa bæði vitsmunaleg og efnisleg tæki- færi til að búa í haginn fyrir næstu öld, meira og minna hætt að gegna hlutverki hins framsýna. Á sama tíma og minnkandi áhugi á grundvallarvísindum, sem ein- kennir stóru iðnfyrirtækjasam- steypur nútímans, er allsráðandi í Evrópu, hafa stórsnjallar gagnráð- stafanir hafist í Ameríku, þar sem er uppgangur lítilla hátæknifyrir- tækja sem sinna grundvallarrann- sóknum og íhugun á framtíðinni. Af þessu leiðir að Ameríka býður vís- indamönnum upp á betri aðstæður en Evrópa, og þetta hefur reynst Evrópu dýrkeypt. Á undanförnum fimm árum hefur til að mynda Frakkland misst marga af hæfustu tölvuvísindamönnum sínum til Bandaríkjanna. En það er ekki allt í sóma í Bandaríkjunum heldur. Tómlæti – jafnvel stundum hreinan fjandskap – í garð vísindalegra framfara er einnig þar að finna. Ein þeirra stofnana sem dregur úr atorku Sílí- kondalsins og hátæknifyrirtækj- anna er réttarkerfið. Við fengum að kynnast bandarískum dómstólum á minni litlu stofnun í Ecole de Physi- que et Chimie í París þegar einn hópurinn hjá okkur fann snjalla leið til að fylgjast með hjartslætti ný- fæddra barna. Með sérstöku laki er fylgst með lífsmerkjunum, án þess að nokkurt tæki sé fest við líkam- ann. Tækið gat orðið til gífurlegra hagsbóta fyrir börn sem fæðast inn í fjölskyldur þar sem dæmi eru um ungbarnadauða. En af framleiðslu í Bandaríkjunum gat þó ekki orðið vegna hættu á skaðabótaskyldu. Ef aðeins eitt barn myndi deyja á þessu laki, hverjar sem orsakirnar væru, myndi fyrirtækið sem fram- leiddi lakið að öllum líkindum verða gert skaðabótaskylt. Því var lakið ekki framleitt og þúsundir fjöl- skyldna neyðast til að halda áfram að nota gamlar, sársaukafullar að- ferðir við að fylgjast með börnun- um. Lagalegar hindranir eru að breið- ast út til annarra landa, en þær eru ekki það eina sem stendur vísind- unum fyrir þrifum. Önnur banda- rísk uppfinning – sem berst sífellt hraðar til Evrópu – er boðun svo- nefndrar „pólitískrar rétthugsunar“ sem lítur á stóran hluta vísindanna sem „nauðgun á náttúrunni“. Þessar hugmyndir eru oft lítið annað en áróður gegn vísindum og eiga upp- tök sín í háskóladeildum sem ekki fást við vísindi og berast til nem- enda, framhaldsskólakennara og að lokum til ungra barna. Hvar sem borið er niður hefur óupplýstur ótti og fyrstu skref ritskoðunar á vís- indalegri hugsun leyst af hólmi þann spenning sem Anatole France fann fyrir vegna vísindalegra fram- fara. Þeir sem eru ungir að árum geta síst varið sig fyrir þessu. Í hugum almennings er vísindunum kennt um banvæn vopn og umhverfis- mengun, jafnvel þótt ákvarðanir um að framleiða vopn séu í eðli sínu pólitískar, en ekki vísindalegar, og meginástæður mengunar séu hagn- aðarvonin en ekki vísindalegar framfarir. Pólitískt réttþenkjandi gagnrýnendur gleyma því reyndar, að flest framfaraskref í baráttunni við mengun eiga upptök sín hjá vís- indamönnum, og það var fyrir til- stilli vísindanna sem unnt varð að fylgjast með framkvæmd sáttmála um eyðingu vopna. Það er því ekki að undra, að ungt skólafólk í Banda- ríkjunum, og að miklu leyti í Evrópu líka, sé farið að forðast vísindadeild- ir háskólanna, og nýir námsmenn komi flestir úr röðum þeirra sem nýlega hafa gerst innflytjendur. Hvað eiga vísindin til bragðs að taka á 21. öldinni, frammi fyrir laga- legum hindrunum, fyrirlitningu og tómlæti? Von mín er sú, að á kom- andi árum verðum við meðal annars vitni að sprengingu í lífefnaverk- fræði, nýjum aðferðum við lyfjagjaf- ir, gervilíffæri og svo framvegis. Þessar framfarir geta þó ekki orðið nema viðhorfið breytist. Í stað þess tómlætis, og stundum beinlínis fjandskapar, sem nú ríkir, verðum við að skapa aðstæður sem eru hall- kvæmar vísindarannsóknum, og gera vísindin aftur að meginstoð vestrænnar menningar. En brottnám lagalegra hindrana og breyting á viðhorfi munu ekki gerast á einni nóttu. Ítalski efna- fræðingurinn Primo Levi, sem slapp lifandi úr höndum nasista og gerðist rithöfundur, skrifaði á áhrifamikinn hátt um líf sitt sem efnafræðingur og um „sterkan og bitran keiminn af þessari iðn okkar, sem er ekki ann- að en eitt tilfelli, öllu frakkari út- gáfa, af lífsiðninni“. Ef takast á að endurvekja anda vísindalegra rann- sókna og sköpunargáfu á okkar tíð verðum við að búa til menntakerfi og skólabækur á grundvelli hug- mynda Primos Levis. Pierre-Gilles de Gennes hlaut Nób- elsverðlaunin í eðlisfræði 1991 og er prófessor við Collége de France. Hvar sem borið er nið- ur hefur óupplýstur ótti og fyrstu skref rit- skoðunar á vísinda- legri hugsun leyst af hólmi þann spenning sem Anatole France fann fyrir vegna vís- indalegra framfara. eftir Pierre Gilles de Gennes Vísindunum ógnað ReutersHugarfarsbylting hófst með sameindalíffræði, skrifar höfundur. © Project Syndicate.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.