Morgunblaðið - 03.02.2001, Síða 30
LISTIR
30 LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
EIN snjallasta blekking kvik-
myndanna síðari árin er forveri
þessarar framhaldsmyndar. The
Blair Witch Project var auglýst á
útsmogin hátt á Netinu, þannig að
notendur héldu að þessi viðvanings-
lega B-mynd væri heimildarmynd
en ekki fölsun. Afleiðingin sú að
hrollurinn tók inn morð fjár og eftir
sátu hnípnir gestir og töldu á sér
tær og fingur.
Hvað sem má segja um BW1
byggði hún alla vega á snjallri hug-
mynd – þótt óvönu kvikmyndagerð-
arfólki tækist ekki að skila henni af
nokkru viti. Sama verður ekki sagt
um framhaldið (sem hlaut að
koma). Maður hefði ætlað að reynt
yrði að botna fyrri myndina, áhorf-
endum gefið (sjálfsagt óhugnanlegt)
svar við því hvað varð af þremenn-
ingunum sem héldu á vit nornarinn-
ar. Ekki er það svo vel, heldur okk-
ur tjáð að forverinn hafi aðeins
verið það sem hún var; bíómynd og
hún fáfengileg. Fjögur ungmenni
halda á söguslóðirnar, einn þeirra
vinnur að bókinni Blair Witch:
Hysteria or History. Íbúar á svæð-
inu eru orðnir langþreyttir á blá-
eygum aðdáendum myndarinnar og
verðandi nornum. Fjórmenningarn-
ir, ásamt leiðsögumanni af heima-
slóðum, komast út í skóg, drekka
þar og dópa sig og vakna eftir sex
tíma ógleymi.
Framhaldið er glórulaus della.
Annar hópur hefur verið myrtur í
skóginum og fjórmenningarnir sak-
aðir um glæpinn. Áður en fógeti
blandar sér í málin verður BW2
gjörsamlega óskiljanleg þvæla,
grautargerð myndskeiða fram og
aftur í tímann, þar sem m.a. er ver-
ið er að pynta einn úr hópnum á
geðsjúkrahúsi, rustalegum yfir-
heyrslum, eða þá atburðarásin er
sýn í öðru ljósi sem eiga að vera of-
sjónir, eða hvað? Ekki spyrja mig.
Mér sýnist þessi ómerkilegi frá-
sagnarmáti stafa fyrst og síðast af
andlegri vanhæfni framhaldsmynd-
arsmiðanna.
Því miður er fáu hægt að hæla.
Myndin, er hún loks fer í gang,
byrjar á kraftmiklu rokki (Marilyn
Manson?), tónlist á köflum bærileg
og gjarnan gert grín að efninu en
það skilar sér illa þar sem fram-
vindan er svo ómerkileg og rugl-
ingsleg og óútskýrð. Leikurinn er
ekki til að hjálpa þessum aulahrolli,
að undanskilinni Kim Director sem
heldur furðuvel sínum hvítmaskaða
haus og Erica er ekki sem verst.
Annað er einfaldlega langdregin og
fávísleg, illa gerð leiðindi. Krydduð
blóði, ofbeldi, nekt og rokki.
Ofsjónir og
afturhvörf
KVIKMYNDIR
B í ó h ö l l i n ,
K r i n g l u b í ó
Leikstjóri Joe Berlinger. Handrits-
höfundur Daniel Myrick, o.fl. Tón-
skáld Carter Burwell. Kvikmynda-
tökustjóri Nancy Scriber.
Aðalleikendur Stephen Barjer
Turner, Tristen Skyler, Erica
Leershen, Kim Director, Jeffrey
Donovan, Kurt Loder, Lanny
Flaherty. Sýningartími 90 mín.
Bandarísk. Artisan. Árgerð 2000.
BLAIR WITCH 2
Sæbjörn Valdimarsson
ÆFINGAR hófust á fimmtudag í
Þjóðleikhúsinum á söngleiknum
Syngjandi í rigningunni eftir Betty
Comden, Adolph Green, Nacio
Herb Brown og Arthur Freed.
Söngleikurinn byggist á hinni
þekktu kvikmynd Singin’ in the
Rain sem Gene Kelly gerði fræga á
sínum tíma. Leikstjóri og dansa-
höfundur sýningarinnar er Kenn
Oldfield. Í stærstu hlutverkum eru
Rúnar Freyr Gíslason, Selma
Björnsdóttir, Stefán Karl Stefáns-
son og Þórunn Lárusdóttir. Þýð-
andi er Karl Ágúst Úlfsson.Tón-
listar- og hljómsveitarstjóri er
Jóhann G. Jóhannsson ásamt 8
hljóðfæraleikurum. Aðstoðarleik-
stjóri er Þórhallur Sigurðsson.
Leikmynd gerir Sigurjón Jóhanns-
son og búninga Elín Edda Árna-
dóttir. Lýsingu hannar Páll Ragn-
arsson og um hljóðstjórn sér
Sveinn Kjartansson.
Aðrir leikarar eru Bjartmar
Þórðarson, Guðmundur Ingi Þor-
valdsson, Inga María Valdimars-
dóttir, Jóhann Freyr Björgvins-
son, Jóhann Örn Ólafsson, Jón Páll
Eyjólfsson, Júlía Gold, Kjartan
Guðjónsson, Linda Ásgeirsdóttir,
Marta Nordal, Pálmi Árni Gests-
son, Sigríður Þorvaldsdóttir, Sig-
rún Waage, Sveinbjörg Þórhalls-
dóttir, Valur Freyr Einarsson,
Vigdís Gunnarsdóttir, Þórunn
Clausen og fleiri. Sýningarstjóri er
Kristín Hauksdóttir. Frumsýning
á Stóra sviðinu í apríl nk.
Sungið í rigningunni
Morgunblaðið/Jim Smart
Það er stór hópur leikhúsfólks sem mun syngja og dansa í rigningunni í Þjóðleikhúsinu.
Á SKRIÐUKLAUSTRI í Fljótsdal
verður opnuð myndlistarsýning á
morgun, sunnudag, með
fjölbreyttum myndverkum. Sýn-
ingin er samvinnuverkefni Gunn-
arsstofnunar og Önnu Guðjóns-
dóttur, myndlistarkonu í
Hamborg sem var í gestaíbúðinni
að Skriðuklaustri í desember.
Hún er um þessar mundir gesta-
kennari við Listaháskóla Íslands
og fékk nokkra nemendur sína til
að vinna og setja upp samsýn-
ingu.
Á sýningunni eru verk eftir
Önnu Guðjónsdóttur, Guðmund
Þór Kárason, Helga Má Krist-
insson, Hermann Karlsson, Kar-
enu Ósk Sigurðardóttur, Margr-
éti M. Norðdahl, Söndru Maríu
Sigurðardóttur og Þórunni Ingu
Gísladóttur. Titill sýningarinnar
og lýsing er: bækur í skáp, óhlut-
bundnar litaorgíur, herbergi, foss
í upplausn, píanó, labbakútar, 23.
janúar, berskjöldun og skýpödd-
ur.
Sýningin stendur til 28. febrú-
ar, og er opin um helgar kl. 14-
17, en einnig á öðrum tímum eft-
ir samkomulagi við forstöðumann
Gunnarsstofnunar. Aðgangseyrir
er kr. 200 en frítt fyrir skóla-
hópa.
Nemendur í Listaháskóla Íslands ásamt Önnu Guðjónsdóttur.
Litaorgíur
og skýpöddur
LEIKFÉLAG Félags eldri borgara
í Reykjavík, Snúður og Snælda,
frumsýnir á sunnudag kl. 17, leik-
ritið Gamlar perlur. Sýningar
fara fram í Ásgarði í Glæsibæ.
Um er að ræða fimm þætti úr
gömlum verkum. Þ.e. Maður og
kona, Dúfnaveislan, Hart í bak,
Tíðindalaust í kirkjugarðinum og
Loksins ein sem er erlendur gam-
anþáttur.
Um 20 manns koma að þessari
sýningu, allt fólk með mikla
reynslu, þ.e.a.s. lífsreynslu – enda
er meðalaldur 70 ár. Leikarar eru
Gunnar Helgason, Aðalheiður Sig-
urjónsdóttir, Jón Jónsson, Guð-
laug Hróbjartsdóttir, Sigurborg
Hjaltadóttir, María H. Guðmunds-
dóttir, Sigmar Hróbjartsson, Vil-
helmína Magnúsdóttir, Hafsteinn
Hansson, Sigrún Pétursdóttir, Að-
alheiður Guðmundsdóttir og
Helga Guðbrandsdóttir. Leikstjóri
er Bjarni Ingvarsson, tæknimaður
er Kári Gíslason.
Sýningar verða á sunnudögum
kl. 17 og miðvikudögum kl. 14.
Ljósmynd/Bergþór Sigurðsson
Leikarar og aðstandendur leikritsins Gamlar perlur.
Gamlar perlur hjá
Snúði og Snældu
MYNDBANDSUPPTAKA af sýn-
ingu Hollendingsins fljúgandi frá
Bayreuth í Þýskalandi eftir Rich-
ard Wagner verður sýnd í Þing-
holti, Hótel Holti, á morgun,
sunnudag, kl. 14.
Richard Wagner samdi Hollend-
inginn fljúgandi er hann dvaldi í
París á árunum 1840–1842 og
verkið frumsýnt árið 1843 í Dres-
den, þar sem Wagner hafði tekið
við stöðu óperuhljómsveitarstjóra
ári áður. Sýning þessi á Hollend-
ingnum fljúgandi var frumsýnd í
Bayreuth 1978 en myndbandsupp-
takan er frá árinu 1984. Leikstjóri
þessarar sýningar er þýski leik-
stjórinn Harry Kupfer. Hljóm-
sveitarstjóri er Woldemar Nels-
son, Peter Sykora sér um
sviðsmynd en búninga annast
Reinhard Heinrich. Hollendingur-
inn er sunginn af Simon Estes, í
öðrum hlutverkum eru Matti
Salminen, Lisbeth Balslev, Robert
Schunk, Anny Schlemm og Gra-
ham Clark.
Áður hefur Richard Wagner-
félagið bæði sýnt uppfærslu hans
af Niflungahringnum í Bayreuth
og uppfærslu á Parsifal frá Berlín.
Aðgangur er ókeypis.
Wagner á myndbandi
LISTASAFN Einars Jónssonar
verður opnað aftur í dag eftir vetr-
arlokun. Safnið er opið laugardaga
og sunnudaga frá kl. 14-17 til loka
maímánaðar, en þá tekur sumartími
við. Inngangur í safnið er frá Eiríks-
götu og Freyjugötu.
Höggmyndagarður safnsins er
alltaf opinn og gengið í hann frá
Freyjugötu. Tekið er á móti skóla-
hópum virka daga.
Listasafn
Einars
Jónssonar
opnað á ný
BÖRN og bækur og SÍUNG
standa fyrir bókakaffi á Súfistan-
um í húsi Máls og menningar á
þriðjudagskvöld kl. 20.
Katrín Jakobsdóttir, bókarýnir
og Bryndís Loftsdóttir, verslunar-
stjóri í Penninn/Eymundsson, líta
yfir barnabókaútgáfuna með eft-
irfarandi í huga: Hvernig er fram-
boðið?, Straumar og stefnur í
barnabókaflóðinu og Fara íslensk-
ar barnabækur batnandi? Aðal-
steinn Ásberg Sigurðsson, rithöf-
undur og formaður RSÍ, flytur
pistil höfundar og hefur frjálsar
hendur.
Bókakaffi
á Súfistanum
KALDALÓNSTÓNLEIKAR verða
haldnir í Safnaðarheimili Selfoss-
kirkju á sunnudag, kl. 17. Árni Sig-
hvatsson baríton og Jón Sigurðsson
píanóleikari kynna og flytja lög af
hinum nýútkomna geisladiski Úr
söngvasafni Kaldalóns.
Aðgangseyrir er 500 kr.
Kaldalónstón-
leikar á Selfossi
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
Á FYRSTU háskólatónleikum árs-
ins, sem verða í Norræna húsinu á
miðvikudag kl. 12.30, syngur Svana
Berglind Karlsdóttir sópran við
undirleik Hólmfríðar Sigurðardótt-
ur.
Á efnisskránni verða sönglög eft-
ir Edvard Grieg.
Tónleikarnir taka um það bil
hálfa klukkustund. Aðgangseyrir er
kr. 500.
Ókeypis er fyrir handhafa stúd-
entaskírteinis.
Sönglög eftir
Grieg á Háskóla-
tónleikum
♦ ♦ ♦