Morgunblaðið - 03.02.2001, Page 31
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2001 31
ALGENGUSTU slysin í Austurríki
í tengslum við innkaupakerrur,
eða 93% tilvika, verða þegar börn
detta úr þeim. Alls urðu 137 slys á
9 árum í tengslum við innkaupa-
kerrur og fórnarlömbin voru 138.
Um 43% barnanna voru 2 ára og
yngri og 18% voru eldri en 4 ára.
Þetta kemur fram í nýlegri
grein sem gefin var út í Austur-
ríki og byggist á 9 ára rannsókn
barnaskurðdeildar háskólaspítal-
ans í Graz um innkaupakerrur og
slys sem urðu á börnum í
tengslum við notkun þeirra. Sam-
bærilegar rannsóknir er að finna
víða í heiminum. Til eru tölulegar
upplýsingar um slík slys á Íslandi
en þær upplýsingar eru ekki nógu
aðgengilegar að sögn Herdísar
Storgaard, framkvæmdastjóra
Árvekni, barna- og unglingaslysa-
verkefnis á vegum heilbrigðis-
ráðuneytisins.
„Umrædd grein er skólabókar-
dæmi um það hvernig nota má
skráningu slysa eins og í þessu til-
viki til þess að koma í veg fyrir
slys, hvort sem um er að ræða við
fræðslu eða við hönnun til að auka
öryggi,“ segir Fjóla Guðjónsdóttir
hjá markaðsgæsludeild Löggild-
ingarstofu. „Hérlendis hafa sam-
bærilegar upplýsingar ekki verið
teknar saman en slíkt væri mjög
æskilegt. Til er staðall um inn-
kaupakerrur og er það m.a. niður-
staða könnunarinnar að nauðsyn-
legt sé að endurskoða þær kröfur
sem þar eru settar fram til að
auka öryggi til dæmis hvað varð-
ar sérstök barnasæti með örygg-
isbeltum og aukinn stöðugleika
kerranna. Meginástæða slysanna
samkvæmt greininni er sú að börn
standa upp í kerrunum og detta
þannig út úr þeim og síðan vegna
þess að kerrurnar velta yfir börn-
in. Einnig vekur athygli að yngri
börnin, sem sitja í þar til gerðri
grind, voru í sérstakri hættu, ekki
hvað síst þegar komið er út á bíla-
stæði þar sem undirlagið er
ójafnt. Þrátt fyrir að fall úr kerru
sé orsök meirihluta slysanna þá er
einnig nokkuð um að börn festi
fingur milli rimla í kerrunni.“
Fjólu og Herdísi ber saman um
að aðgát foreldra skipti miklu
máli. Börn eiga ekki að vera eft-
irlitslaus í kerrunum. „Þau eiga
ekki að standa upp í innkaupa-
kerrum eða hanga á hliðum
þeirra, til þess eru þær ekki hann-
aðar eða gerðar. Mikilvægt er að
forráðamenn verslana yfirfari
kerrur reglulega og þá aðallega
öryggisbelti og festingar.“
Mekka slysavarna
í heiminum er í Ástralíu
„Í Monash-háskólanum í Mel-
bourne í Ástralíu, sem segja má að
sé Mekka slysavarna í heiminum,
er að finna stóra rannsóknardeild
sem meðal annars hefur rannsak-
að slys vegna búnaðar í tengslum
við innkaupakerrur,“ segir Herdís
Storgaard, framkvæmdastjóri Ár-
vekni. „Slíkar rannsóknir eru
gerðar víða í heiminum og þær
eru yfirleitt mjög áþekkar enda er
hér um alþjóðlegt vandamál að
ræða.
Niðurstöður könnunarinnar eru
þær að talsvert mikið er um þessi
slys og að flestir áverkar að völd-
um þeirra eru höfuðáverkar og þá
oft mjög slæmir. Slæma áverka
má einnig rekja til þess að gólf í
verslunum eru oftast úr einhvers
konar marmara eða steini.“
Herdís hefur verið að skoða
hvernig þessi mál standa hér á
landi en segist þó ekki hafa ná-
kvæmar upplýsingar heldur bygg-
ist skoðun hennar meira á þeim
upplýsingum sem foreldrar koma
með til hennar. „Ég hef safnað
upplýsingum saman í nærri 10 ár,
það er að segja þeim tilkynn-
ingum um slys sem komið er með
til mín. Ég veit að hér er bara um
toppinn á ísjakanum að ræða en
þegar þessar upplýsingar eru
skoðaðar kemur í ljós að slys í
tengslum við innkaupakerrur
skiptast í tvo aðalflokka, annars
vegar detta börnin úr kerrunum
og hins vegar veltur kerran í heilu
lagi. Þá kemur einnig í ljós að slys
á bílastæðum fyrir utan verslanir
eru algeng og eitt alvarlegasta
slysið hér á landi sem mér er
kunnugt um gerðist einmitt af því
að það var hola og slæm lýsing
fyrir utan búðina sem varð til þess
innkaupakerran valt.“
Vilja meira samstarf
Helstu ástæður fyrir því að
börn detta eru tvenns konar, að
sögn Herdísar. Börnin eru skilin
ein eftir og skríða upp úr sætinu
og detta. Þar sem líkamsbygging
barna undir 7 ára er þannig að
höfuðið er hlutfallslega mjög
þungt falla þau því yfirleitt á það.
Herdís vill þó koma því á framfæri
að hér er ekki um ungbarnasætis-
stóla að ræða enda veit hún ekki
um að slys hafi átt sér stað vegna
þeirra.
Hin ástæðan er sú að börn, oft í
kringum 3 til 5 ára, eru sitjandi í
sjálfri kerrunni þar sem matvælin
eiga að vera, þau standa upp og
þannig geta þau dottið. „Fall
barna úr kerru er langalgengast
hér á landi sem og víðar í heim-
inum.
Betri hönnun er nauðsynleg á
innkaupakerrum en fyrst og
fremst er nauðynlegt að fara var-
lega. Þegar strákurinn minn var á
þessum aldri tók ég hann úr
barnavagninum, hafði hann samt í
beislinu, fékk mér framlengingu á
beislið þannig að ég gat krækt því
í innkaupakerruna. Þetta reyndist
vel.“
Aðspurð segir Herdís að upp-
lýsingar, eins og þessar frá
Austurríki og víðar, þyrftu að
vera aðgengilegri hér á landi.
„Við hjá Árvekni erum að undir-
búa ráðstefnu í lok ágúst og þar
ætlum við að reyna að fá því fram-
gengt að fá nýjar tölur með reglu-
legu millibili meðal annars af slys-
um að völdum innkaupakerra.
Slysadeildin á Landspítalum í
Fossvogi er með ítarlegasta
skráningarkerfið hér á landi en
þær upplýsingar eru prentaðar út
og birtar endrum og eins. Við sem
störfum að slysavörnum og fleiri
sem þurfum á þessum upplýs-
ingum að halda erum að vona að
við getum verið í áskrift að þess-
um upplýsingum eins og tíðkast
víða erlendis. Við viljum meira
samstarf og að upplýsingarnar
séu unnar á þeim forsendum að
við getum nýtt þær.“
Algengt að börn detti
úr innkaupakerrum
Morgunblaðið/Ásdís
Börn eiga ekki að vera eftirlitslaus í innkaupakerrum og aðgát for-
eldra og forráðamanna skiptir því miklu máli.
Í gær lækkaði verð á eggjum um
30% í Bónusi og mun sú lækkun
standa að minnsta kosti út árið.
Venjulegt kílóverð á eggjum hefur
fram til þessa verið 339 krónur í
Bónusi en er nú selt á 237 krónur.
„Við kaupum öll egg af Stjörnu-
eggjum á Kjalarnesi og er þetta
viðleitni Bónuss og Stjörnueggja í
viðnámi gegn verðbólgu sem nú
stendur yfir,“ segir Guðmundur
Marteinsson, framkvæmdastjóri
Bónuss. Hann segir að 30% verð-
lækkun sé mikil lækkun á þessari
vörutegund í heimiliskörfunni en
Bónus seldi á síðasta ári um 300
tonn af eggjum.
„Við hjá Bónusi teljum að þessi
verðlækkun muni leiða til aukinnar
sölu hjá okkur á eggjum en þannig
næst sú hagræðing sem þarf til að
ná fram þessari lækkun.“
Morgunblaðið/Þorkell
Verðlækkun á eggjum stendur út þetta ár a.m.k..
30% verðlækkun á
eggjum í Bónusi
HALLDÓR Jónsson ehf. hefur hafið
innflutning á Nature fljótandi hand-
sápum. Fimm tegundir eru af Nat-
ure-sápunni; rose, abrikos, gardenia,
syren og aloe vera. Hver handsápa
er í 500 ml umbúðum með pumpu. Í
fréttatilkynningu kemur fram að
sápurnar lentu í öðru sæti í gæða-
prófi sem dönsku neytendasamtökin
stóðu fyrir á síðasta ári. Nature- sáp-
urnar fást í stórmörkuðum.
Nýtt
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sápur
INNFLUTNINGUR & dreifing ehf.
hefur hafið innflutning á varalitafesti
frá Bretlandi. Lipcote-varalitafestir-
inn er borinn yfir
varalit og á að gera
það að verkum að
varaliturinn helst
lengur. Í fréttatil-
kynningu segir
að Lipcote-vara-
litafestirinn sé
glær og harðni
hvorki né stífni
við notkun. Þá segir enn fremur að
með reglulegri notkun sé hægt að
verjast varaþurrki.
Lipcote-varalitafestir er til í flest-
um apótekum og lyfja- og snyrti-
vöruverslunum.
Varalita-
festir
Morgunblaðið/Þorkell