Morgunblaðið - 03.02.2001, Síða 32

Morgunblaðið - 03.02.2001, Síða 32
32 LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Nýjungar Sagt frá álagi og hreyfigreiningu. Læknisfræði Læknirinn fjallar um líkamshitann. Konur Hárlitun tengd við blöðrukrabbamein. Lífshættir Streitan er verri en margur heldur. HEILSA Spurning: Getur þú sagt mér hvað veldur því að sumir eru með líkamshita undir 37 gráðu hita (allt undir 36 gráður)? Er þetta algengt, líka hjá börnum? Hver er þá hiti hjá svona fólki og börnum ef það veikist? Er þá 37 gráðu hiti það sama og t.d. 38–39 gráðu hiti hjá öðrum? Svar: Eðlilegur líkamshiti, og þar af leiðandi sótthiti, er nokkuð ein- staklingsbundinn hjá börnum og fullorðnum. Fyrir rúmum 120 ár- um gerði vísindamaður að nafni Wunderlich rannsókn á líkams- hita manna og komst að þeirri niðurstöðu að eðlilegur líkamshiti væri 37ºC. Þetta er þó ekki alveg svona einfalt því ekki er sama hvar hitinn er mældur, hvenær sólarhrings, hvenær í tíðahring kvenna og þar að auki er hann einstaklingsbundinn. Við nánari athugun hefur komið í ljós að hiti í munnholi heilbrigðra einstaklinga á aldrinum 18–40 ára er 36,8 ± 0,4ºC (meðaltal ± staðalfrávik) sem þýðir að rúmlega 95% þess- ara einstaklinga eru með hita á bilinu 36,0–37,6ºC. Þessi hiti breytist þannig yfir sólarhringinn að hann er í lágmarki um kl. 6 að morgni og í hámarki um kl. 16–18. Hæsti hiti sem mælist í munnholi er 37,2ºC kl. 6 og 37,7ºC kl. 16 og hærri hiti en þetta er venjulega skilgreint sem óeðlilega hár lík- amshiti eða sótthiti. Hiti mældur djúpt í endaþarmi er venjulega 0,6º C hærri en hiti í munnholi. Sólarhringssveiflan í líkams- hita, milli morgunhita og síðdeg- ishita, er almennt talin vera um 0,5ºC en getur hjá sumum verið allt að 1ºC. Þessi munur á líkams- hita að morgni og síðdegi (kvöldi) helst oftast þó að um sótthita sé að ræða. Hjá konum er líkamshit- inn lágur frá byrjun blæðinga og fram að egglosi en þá hækkar hann nokkuð hratt (á 1–2 dögum) um u.þ.b. 0,5ºC og helst hár fram að næstu blæðingum. Mestar lík- ur eru á getnaði um það leyti sem líkamshitinn er að hækka. Ýmis- legt fleira getur haft áhrif á lík- amshitann og má nefna sem dæmi stórar máltíðir, þungun, horm- ónajafnvægi og aldur. Líkamshitanum er stjórnað af undirstúku heilans (hypothalam- us). Varmi myndast einkum í lifur, beinagrindarvöðvum og hjarta- vöðva og hann tapast út í gegnum húðina. Við ofkælingu geta vöðv- arnir aukið varmamyndun með stöðugri virkni sem lýsir sér með hrolli og skjálfta og við ofhitnun eykst varmatap í húð með auknu blóðflæði (roði) og aukinni svita- myndun. Þetta er býsna öflugt kerfi sem getur haldið líkamshit- anum réttum við erfiðar að- stæður, mikinn kulda og hita. Við vissar aðstæður, eins og t.d. sýk- ingar, verður óeðlileg hækkun á líkamshita yfir þau gildi sem eru eðlileg fyrir viðkomandi ein- stakling og nefnist það ástand sótthiti. Sótthiti er talinn vera hluti af varnarkerfi líkamans gegn sýklum og getur drepið eða hamið vöxt sumra sýkla. Þetta kann að virðast flókið svar við einfaldri spurningu bréf- ritara en málið er nokkuð snúið ef vel er að gáð. Hvað er eðlilegur líkamshiti? MAGNÚS JÓHANNSSON LÆKNIR SVARAR SPURNINGUM LESENDA Frávik  Lesendur Morgunblaðsins geta spurt lækn- inn um það sem þeim liggur á hjarta. Tekið er á móti spurningum á virkum dögum milli klukkan 10 og 17 í síma 5691100 og bréfum eða símbréfum merkt: Vikulok. Fax 5691222. Einnig geta lesendur sent fyrir- spurnir sínar með tölvupósti á netfang Magnúsar Jóhannssonar: elmag@hot- mail.com. SJÓN mannsins er tekin að daprast og því gerir hann sér ekki grein fyrir hvort þetta er maga- eða blóð- þrýstingslyfið. Hann tekur því upp tæki á stærð við spilastokk og beinir því að lyfjaglasinu. Tölvurödd tek- ur að lesa það sem stendur á miðanum. Þessa nýjung má ef til vill kalla „talandi lyfjaglös“. Ef tilraunir með þessa nýju tækni, sem nú fara fram á tveimur sjúkrahúsum í Chi- cago, ganga vel geta hinir sjón- döpru og öldruðu brátt keypt lyf með „töluvæddum“ miðum sem draga verulega úr líkum á því að röng lyf séu tekin. Við blasir að gífurlegur fjöldi fólks um heim allan á í erfiðleikum með að lesa á lyfja- glös sökum þverrandi eða engrar sjónar. Þetta eykur vit- anlega hættuna á að viðkom- andi taki röng lyf sem við viss- ar aðstæður getur verið stórhættulegt auk þess sem sá hinn sami kann að hafa gleymt ráðleggingum þeim um skammtastærð sem er að finna á miðanum. Hið sama gildir vitanlega um viðvaranir á borð við þá að ekki eigi að neyta áfengis með lyfinu o.s.frv. Og sýnt þykir að þetta vandamál eigi eftir að ágerast þar sem sífellt stærri hluti vestrænna þjóða nær háum aldri. Nú er komið til sögunnar tækið ScripTalk. Smágerðum hljóðgervli er beint að lyfja- glasinu en í miðanum á því er að finna örsmáa tölvuflögu. Tækið sem er þráðlaust breytir upplýsingunum á miðanum í talað form og þannig „les“ verkfærið þær upplýsingar sem þar er að finna. Tækið er hannað af En-Vision America Inc. sem hefur höfuðstöðvar í Normal í Illinois-ríki þar vestra. Vonir standa til að þessi nýja tækni komi á markað jafnvel í sumar en nú standa yfir tilraunir í því augnamiði að leiða í ljós hversu gagnlegur þessi bún- aður er í raun. Ódýr verður hann á hinn bóginn ekki. Gert er ráð fyrir að þær lyfjabúðir sem taka að bjóða þessa nýju þjónustu fái senda sérstaka lyfjamiða með tölvuflögu. Búðirnar þurfa síð- an að festa kaup á sérstökum prentara sem skráir upplýs- ingar þær sem lyfinu fylgja á örflöguna um leið og miðinn er prentaður. Sá búnaður mun kosta um 1.000 Bandaríkjadali (um 80.000 krónur). Notendur þurfa síðan kaupa „lestölvuna“ sem gengur fyrir rafhlöðum en gert er ráð fyrir að hún kosti 250 dali (um 20.000 krónur). Til að byrja með er gert ráð fyrir að einn dalur (86 kr.) leggist við verð lyfsins en sú upphæð ætti að lækka eftir því sem tæknin verður meira not- uð og samkeppni eykst. Washington. AP. TENGLAR ................................................. Heimasíða En-Vision America Inc:http://www.envisionam- erica.com. „Talandi“ lyfjaglös Ýmsar aðferðir hafa verið reyndar til að gera lyfjamiða auðlæsilegri fyrir sjóndapra. EIGI maður náinn ættingja með hjartasjúkdóma er maður í meiri hættu á að fá slíka sjúkdóma sjálfur en hingað til hefur verið talið, sam- kvæmt niðurstöðum nýrrar rann- sóknar. Nákvæm skoðun á slagæðum í fólki sem á foreldri, bróður eða syst- ur með hjartasjúkdóma leiddi í ljós að helmingur þess hafði fyrstu ein- kenni æðastíflunar, svonefnda slag- æðafituhrörnun, jafnvel þótt það sýndi engin einkenni, segja vísinda- menn við læknadeild Háskólans í Texas í Houston í Bandaríkjunum. „Þetta er meira en við bjuggumst við. Þetta fólk hafði ekki áberandi aðra áhættuþætti. Það bendir til þess að þegar aðrir áhættuþættir eru meðhöndlaðir geti fjölskyldu- saga farið að hafa meiri áhrif,“ segir dr. K. Lance Gould læknisfræðipró- fessor er stjórnaði rannsókninni. Niðurstöðurnar birtast í nýjasta hefti Circulation, tímarits Banda- rísku hjartaverndarsamtakanna. Ættlægir hjartasjúkdómar hafa löngum verið taldir tengjast aukinni áhættu hjá nánum ættingjum en sú aukning hefur verið talin rekjanleg til annarra áhættuþátta á borð við mikla blóðfitu og háan blóðþrýsting. Nú virðist aftur á móti sem ætt- gengi sé í sjálfu sér mikilvægur áhættuþáttur, að sögn Goulds. „Það sem hann á við er að ætt- gengi er í sama flokki stórra áhættuþátta og reykingar, mikil blóðfita og hár blóðþrýstingur,“ seg- ir dr. Richard A. Stein, prófessor í læknisfræði við Ríkisháskólann í New York og talsmaður Bandarísku hjartaverndarsamtakanna. Við rannsóknina skoðaði Gould slagæðar í 18 manns sem höfðu fitu- hrörnun og 32 foreldra þeirra, bræðra og systra sem höfðu engin einkenni hjartasjúkdóma. Einnig voru skoðaðar slagæðar í 30 manns með áhættuþætti á borð við mikla blóðfitu og háan blóðþrýsting en ekkert ættgengi, og einnig voru rannsakaðir 10 manns sem hvorki höfðu ættgengi né aðra áhættu- þætti. Við rannsóknina var notuð sneið- myndatækni (PET) sem er „að öll- um líkindum nákvæmasta aðferðin til að greina afbrigðileika í blóðrás- inni,“ segir Stein. Var þetta gert eft- ir að þátttakendurnir höfðu fengið lyf sem líkja eftir streitu sem eykur blóðflæði í hjartavöðvanum. Gould segir að niðurstöðurnar ættu að vera hughreystandi, fremur en óttavekjandi, fyrir þá sem eiga nána ættingja með hjartasjúkdóma, því að þegar eru fyrir hendi fyr- irbyggjandi aðferðir. „Nútíma lyfjafræði og þekking okkar varðandi mataræði og líkaml- ega hreyfingu eykur stórlega mögu- leikana á að koma í veg fyrir hjarta- sjúkdóma,“ segir hann, og bætir við að hvað varði hvern og einn ein- stakling bendi niðurstöðurnar til þess að maður eigi ekki að vera með hálfvelgju er komi að því að bæta mataræðið, léttast og hætta að reykja. „Forvarnir eru ekki lengur eitthvert óljóst og almennt markmið heldur mjög persónulegt. Það væri stórhættulegt að virða að vettugi ættgenga hjartasjúkdóma.“ Sérfræðingar segja að allir sem eiga náinn ættingja sem þjáist af hjartasjúkdómum, til dæmis karl- mann sem hefur fengið hjartaáfall innan 55 ára aldurs eða konu sem fengið hefur hjartaáfall innan 65 ára, ættu að gera ráðstafanir til að draga úr eigin áhættu. Rannsóknir í Bandaríkjunum á hjartasjúkdómum Associated Press Fyrirbyggjandi aðferðir eru vel þekktar og fyrir hendi. Ættgengi stærri áhættu- þáttur en áður var talið The New York Times Syndicate. TENGLAR ..................................................... Bandarísku hjartaverndarsamtökin: www.americanheart.org/Patient- Information/hhrt-dis.html.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.