Morgunblaðið - 03.02.2001, Síða 33
líklegri til að fá slíkan
krabba en þeir sem
ekki notuðu hárlit.
Jafnvel hársnyrti-
fræðingar og rakarar
reyndust 50% líklegri
til að fá þvagblöðru-
krabba en þeir sem
ekki komust í snert-
ingu við hárlit vegna
starfs síns.
Litur sagður
skipta máli
En dr. John Corbett,
ráðgjafi Snyrti- og
ilmvörusamtakanna,
segir að Gago-Dom-
inguez kunni að hafa
hagað rannsókninni á
rangan veg. Miðað sé
við hversu oft fólk
komist í snertingu við
lit en mestu skipti í
raun hvaða litur sé
notaður.
„Það eru notuð að
mestu sömu efnin í
alla liti en það er töluvert meira
af (efnunum) í dökkbrúnu og
svörtu en í ljósu,“ segir hann.
Ennfremur bendir hann á að
ekki virðist hafa verið tekið til-
lit til fyrri rannsókna Banda-
rísku krabbameinsstofnunar-
innar og Bandaríska krabba-
meinsfélagsins, sem hafi ekki
leitt í ljós nein svona tengsl á
milli hárlitar og krabbameins.
KONUR sem nota hárlit reglu-
lega kunna að auka með því
hættuna á að fá krabbamein í
þvagblöðruna, að því er nið-
urstöður nýrrar rannsóknar
benda til.
„Þessar nýju athuganir okkar
eru ögrandi og gífurlega mik-
ilvægar vísbendingar varðandi
heilbrigðismál,“ sagði dr. Manu-
ela Gago-Dominguez. „Samt er
fullsnemmt að fara að gera
nokkrar tillögur um að hætt
verði að nota hárlit,“ bætti hún
við. „En þetta er ein stærsta og
umfangsmesta rannsókn á þessu
máli og við teljum að það ætti
ekki að virða niðurstöðurnar að
vettugi.“
Þetta er enn fremur fyrsta
rannsóknin sem sýnir fram á að
hversu oft hárlitur er notaður
hafi áhrif á hættuna á þvag-
blöðrukrabba, sagði dr. Gago-
Dominguez sem starfar við
læknadeild Háskólans í Kali-
forníu í Los Angeles.
Stóraukin
hætta
Ásamt samstarfsfólki sínu
kannaði hún 897 tilfelli
þvagblöðrukrabbameins þar sem
upplýsingar um hárlitsnotkun
voru fyrirliggjandi og bar sam-
an við álíka fjölda fólks sem
ekki notaði hárlit. Niðurstöð-
urnar birtast í febrúarhefti
International Journal of Cancer.
Í ljós kom, að konur sem not-
uðu hárlit að minnsta kosti einu
sinni í mánuði voru tvöfalt lík-
legri en konur, sem ekki notuðu
hárlit, til að fá krabbamein í
þvagblöðru. Tekið var tillit til
sígarettureykinga sem eru
þekktur áhættuþáttur varðandi
þessa tegund krabbameins. Þær
sem höfðu notað hárlit í að
minnsta kosti 15 ár voru þrefalt
New York. Reuters.
Smart en virðist geta verið varasamt.
Hárlitun kann að auka
hættu á þvagblöðrukrabba
Associated Press
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2001 33
SVO virðist sem erfðafræðilegir
áhættuþættir og umhverfi eigi þátt í
því að koma af stað breytingum í
heila sem tengjast geðklofa. Þetta er
niðurstaða rannsókna hollenskra
vísindamanna sem gerðar voru á tví-
burum þar í landi. Vísindamennirnir
segja hana skapa möguleika á því að
unnt verði að greina sjúkdóminn
fyrr og bregðast við honum.
Um það bil einn af hverjum 100
þjáist af geðklofa. Vísindasamfélag-
ið hefur lengi litið svo á að tiltekin
fráhvörf í heila, þ. á m. minni heila-
stærð, komi oftar fyrir hjá geðklofa-
sjúklingum en í þeim sem engin
sýna merki um sjúkdóminn. Böndin
hafa borist að erfðafræðilegum frá-
vikum þó svo ekki sé vitað nákvæm-
lega hvernig þessir líffræðilegu
þættir hafa áhrif.
Nú hafa vísindamenn í Hollandi
birt skýrslu þar sem fjallað er um
rannsókn á 29 pörum tvíbura.
Skýrslan er birt í janúarhefti Arch-
ives of General Psychiatry. Mæld
var stærð höfuðkúpu og heila í þeim
sem þátt tóku en um tvíburapör
þessi gilti að annar þeirra þjáist af
geðklofa en hinn ekki. Pörin 29 voru
síðan borin saman við 29 pör til við-
bótar þar sem engin merki geðklofa
höfðu verið greind.
„Traustar vísbendingar“
Að jafnaði reyndust höfuðkúpur
beggja tvíbura þar sem annar sýndi
merki geðklofa vera minni en hjá
þeim sem enga slíka sjúkrasögu
áttu. Tengsl eru á milli stærðar höf-
uðkúpu og heilastærðar fram að
tveggja ára aldri þannig að „traust-
ar vísbendingar“ hafa fengist fyrir
því að tiltekið erfðafræðilegt ferli
sem hefur áhrif á vöxt heilans og á
sér stað fyrir tveggja ára aldur auki
hættuna á því að tiltekinn ein-
staklingur veikist af geðklofa.
Dr. Rene Kahn, sem starfar við
Heilbrigðismiðstöð háskólans í Utr-
echt, segir að jafnframt hafi komið
fram að tvíburar þar sem geðklofa
hafði orðið vart hefðu að meðaltali
minni heila en þeir sem engin merki
sjúkdómsins sýndu. Þetta gæfi til
kynna að auk erfðafræðilegra þátta
sem hefðu áhrif innan tveggja ára
aldurs væru að verki umhverfis-
þættir eftir tveggja ára aldur sem
stuðluðu frekar að því að draga úr
vexti heilans.
„Saman gefa þessar niðurstöður
til kynna að geðklofa megi rekja til
erfðaþátta í bernsku og umhverfis-
þátta síðar á ævinni,“ segir dr.
Kahn. Hann kveðst telja hugsanlegt
að geðklofi leggist eingöngu á þá
sem bera tiltekin gen er hafa aukna
hættu í för með sér og verða jafn-
framt fyrir þeim umhverfisáhrifum
sem nauðsynleg eru til að sjúkdóm-
urinn þróist áfram.
Kahn segir að með því að bera
kennsl á gen þau sem hafa áhrif á
vöxt heilans kunni að vinnast
áfangasigur í baráttunni við geð-
klofa.
Genaleit
Næsta skrefið í rannsóknum holl-
ensku vísindamannanna muni felast
í því að leita uppi tiltekin gen sem
koma fram hjá geðklofasjúklingum
og hafi áhrif á vöxt heilans. Með
þessu móti verði ef til vill unnt að
greina sjúkdóminn mun fyrr og jafn-
vel að hefja skipulagða leit að hon-
um með genaprófum hjá þeim sem
taldir séu í hættu. Jafnframt væri
nú unnt að hefja leit að þeim um-
hverfisþáttum sem hér væru að
verki í því augnamiði að þannig yrði
unnt að koma í veg fyrir framþróun
sjúkdómsins.
Hollensk rannsókn á orsökum geðklofa
Erfðaþættir í bernsku
og umhverfi að verki?
Associated Press
Tvíburar veita einstakt tækifæri til rannsókna á ýmsum sjúkdómum.
TENGLAR
.....................................................
Archives of General Psychi-
atry:http://archpsyc.ama-assn.org.
New York. Reuters.
LÍFRÆN RÆKTUN
Í NÚTÍÐ OG FRAMTÍÐ
Í tilefni komu Inger Kallander, form. Samtaka líf-
rænna bænda í Svíþjóð, verður haldinn opinn
fundur fyrir allt áhugafólk, í dag, laugardaginn 3.
febrúar kl. 13.30 í B-sal á Hótel Sögu.
Inger mun fjalla um stöðu lífræns landbúnaðar á
hinum Norðurlöndunum auk þess sem hún fjallar
um mikilvægi lífræns landbúnaðar.
Erindið verður flutt á ensku.
Fundarstjóri verður Þórður Halldórsson form.
VORS samtaka lífrænna bænda á Íslandi og flytur
hann erindi um stöðuna á Íslandi.
Kaffiveitingar verða í boði.
Allt áhugafólk um lífræna ræktun er boðið
velkomið á meðan húsrúm leyfir.
VOR
Samtök lífrænna bænda.
ÁFORM
átaksverkefni.