Morgunblaðið - 03.02.2001, Page 44

Morgunblaðið - 03.02.2001, Page 44
MINNINGAR 44 LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Grímur Arnórs-son fæddist á Tindum í Geiradal í A-Barðastrandar- sýslu hinn 26. apríl 1919. Hann lést í Króksfjarðarnesi 23. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Arnór Einarsson, bóndi á Tindum, f. 9. okt. 1880, d. 27. mars 1969, og Ragnheiður Grímsdóttir, hús- freyja, f. 2. des. 1893, d. 3. jan. 1971. Systk- ini Gríms eru Einar, f. 27. maí 1921; Kristín, f. 30. sept. 1923, og Bjargey Kristrún, f. 16. maí 1930. Fósturbróðir Gríms er Arnór Aðalsteinn Guðlaugsson, f. 5. ág. 1912. Grímur kvæntist árið 1943 fyrri konu sinni, Jónínu Ragnheiði Guð- jónsdóttur, f. 19. ág. 1910, d. 20. júní 1990. Þau slitu samvistir. Börn þeirra eru: 1) Arnór, f. 22. nóv. 1943, kvæntur Sóleyju G. Vil- hjálmsdóttur, f. 29. sept. 1948. Þeirra börn eru: a) Jónína Mar- grét, f. 16. júní 1969, b) Grímur, f. Síðari kona Gríms er Guðlaug Guðmundsdóttir, f. 27. ág. 1933. Synir þeirra eru: 4) Hörður Már, f. 5. mars 1962, kvæntur Fjólu Bene- diktsdóttur, f. 30. júlí 1962. Þeirra dætur eru: a) Guðlaug Harpa, f. 23. jan. 1990, b) Helena Ýr, f. 11. jan. 1992, c) Eydís Sunna, f. 17. júní 1996. Sonur Fjólu og fóstursonur Harðar er Sigurður Fannar Guð- mundsson, f. 10. maí 1984. 5) Börk- ur, f. 19. júlí 1964, kvæntur Guð- rúnu Kristínu Sigurgeirsdóttur, f. 16. júlí 1965. Þeirra dætur eru: a) Eva Brá, f. 13. okt. 1987, b) Sædís Birta, f. 16. maí 1992. Grímur ólst upp á Tindum og stundaði nám í Samvinnuskólan- um í Reykjavík. Hann hóf búskap á Tindum árið 1943 og bjó þar til 1989 er Hörður sonur hans tók við búinu. Grímur vann mikið að félagsmálum alla tíð, var m.a. odd- viti hreppsins, sat fundi Stéttar- sambands bænda og Búnaðarþing um árabil og sinnti auk þess mörg- um öðrum trúnaðarstörfum. Á 80 ára afmæli Gríms var hann gerður að heiðursborgara Reykhóla- hrepps. Síðustu árin bjuggu Grím- ur og Guðlaug á Tindum II í eigin húsi, sem þau létu reisa í landi jarðarinnar Tinda. Útför Gríms fer fram frá Reyk- hólakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Jarðsett verður í Garpsdalskirkjugarði. 18. apríl 1971, kvænt- ur Sigrúnu Esther Guðmundsdóttur. Þeirra synir eru Arn- ór Már, f. 20. okt. 1994, og Guðmundur Þór, f. 2. nóv. 1998, c) Erla, f. 19. nóv. 1976, í sambúð með Sigurði Gunnarssyni. Sonur þeirra er óskírður, f. 23. jan. 2001, sonur Erlu er Jóhannes Karvel Guðlaugsson, f. 16. feb. 1997, d) Vil- hjálmur, f. 19. júlí 1983. 2) Guðjón Grét- ar, f. 10. apríl 1945, kvæntur Ástu Garðarsdóttur, f. 14. ág. 1946. Þeirra dætur eru: a) Jónína, f. 9. des. 1972, gift Jóhanni Kjartans- syni, b) Björk, f. 19. des. 1973. 3) Ragnheiður, f. 6. maí 1946, gift Guðmundi Kristjánssyni, f. 16. apríl 1944. Þeirra börn eru: a) Kristján Þór, f. 27. nóv. 1969, í sambúð með Hildi Hjaltadóttur, b) Arndís Lilja, f. 24. okt. 1971, gift Árna B. Kvaran. Þeirra dóttir er Hildur Björk, f. 14. sept. 1995, c) Dagbjört, f. 26. jan. 1982. Elsku afi. Nú ertu svo skyndilega horfinn frá okkur. Þó að ævin þín teldi áttatíu ár var oft svo auðvelt að gleyma því þar sem þú varst alltaf svo hress. Þess vegna virðist það ennþá óraunverulegra að þú sért ekki lengur hér. Það er alltaf svo gott að koma vestur til Króksfjarðarness og það mun aldrei verða eins þegar þú ert ekki lengur þar. Ég man að þegar ég var níu ára fóru mamma og pabbi í ferðalag og ég var hjá Öddu og Jónu Möggu í Arnórshúsi á með- an. Þá sóttir þú mig á hverjum degi og leyfðir mér að fara með þér í fjós- ið á Tindum. Mér fannst það mikið sport þó ég hafi nú ekki gert mikið gagn. Þau voru líka mörg matar- og kaffiboðin sem við fórum í til ykkar Guðlaugar á meðan þið bjugguð í símstöðinni og eftir matinn var svo notalegt að setjast hjá stóru bóka- hillunni ykkar og finna sér eitthvað skemmtilegt að skoða. Þú varst alltaf svo duglegur að keyra og ekki var mikið mál fyrir þig að skreppa til Akraness ef þið Guðlaug þurftuð að erinda eitthvað. Í haust þegar Guð- laug fór í aðgerðina hér á Akranesi áttum við góðan tíma með þér. Þú last alltaf svo mikið af blöðum og bókum og hafðir frá ýmsu skemmti- legu að segja – bæði fólki og fyrir- bærum. Svo bað ég þig að lesa yfir ritgerðina mína sem ég var að gera um Pilt og stúlku og mér þótti mjög vænt um orðin sem þú sagðir um hana. Einnig er mjög dýrmætur dag- urinn í sumar þegar ég og Adda og fjölskylda komum að Tindum II til ykkar Guðlaugar og við vorum öll saman í rólegheitum. Hildur Björk fékk líka að fara með þér í fjósið og ég er þakklát fyrir að hún fékk tæki- færi til þess. Eins og alltaf kíkti ég á ljósmyndirnar þínar af kirkjunum og að sjálfsögðu hafði mikið bæst við síðan ég sá þær síðast. Það var ein- mitt sumarið 1999 sem þið komuð til Akraness og þú ákvaðst að „skreppa“ austur í Landeyjar til að taka myndir af tveimur kirkjum sem þig vantaði í safnið. Þetta lýsir því vel hvað þú varst alltaf frískur. Elsku afi, ég vona að þér líði sem allra best. Fallegu útskornu hilluna sem þú gerðir handa mér varðveiti ég alltaf í minningu um þig. Þín Dagbjört. Við eignumst sérhvern ævidag á okkar vegferð hér úr hendi guðs, sem hnattamergð og himindjúpin ber. Við líkjumst kvikum loga ef um ljóra gustur fer. Á kveðjustund með harm í hug er huggun fólgin þó svo mikil í hve mæt og ljúf er minning þess, sem dó og drottinn gefur lífi líkn en látnum frið og ró. Guðmundur Kristjánsson. Mig langar að skrifa fáein orð um hann Grím, afa minn. Hann var mjög bókhneigður og átti mikið af bókum. Hann fór fyrir nokkrum árum að skera út í tré og kom þá í ljós hversu mikill listamaður hann var og gerði hann marga fallega muni sem hann gaf vinum og ættingjum. Ekki eru mörg ár síðan hann hóf að taka myndir af kirkjum landsins og var hann kominn með mikið safn af þeim. Hann var mikil félagsvera og dug- legur að sækja fundi og samkomur. Mér er svo minnisstætt að fyrir tveimur árum fórum við Adda með afa í heimsóknir til systkina hans í Reykjavík. Þá fann maður hvað afi var verulega stoltur af börnum sín- um og barnabörnunum; hvort sem hann umgekkst þau mikið eða lítið þá voru þau greinilega mikilvægur þátt- ur í lífi hans. Nú gráta skýin eins og augu mín gera stundum. Þá kemur þú og þurrkar tárin burt. Eins mun vindurinn hugga skýin á himnum og sólin þerra tárvota jörðina. (Áslaug Sigurgestsdóttir.) Megi guð vera með og hugga Gullu, konu hans, börn hans, tengda- börn, barnabörn og barnabarnabörn. Bless, afi minn. Jónína Margrét Arnórsdóttir. Hinn 23. janúar s.l. fékk ég þá sorgarfrétt að hann afi minn og al- nafni væri dáinn. Ég trúði þessu varla. Ég var í sveit á sumrin hjá honum afa á Tindum frá því ég var smá- strákur og fram á unglingsár. Á þessum tíma naut ég nærveru afa og lærði margt. Ég fór með hon- um í fjós og í girðingarvinnu ásamt fleiri störfum tengdum sveitinni. Ég minnist þess sérstaklega hvernig afi hummaði fyrir munni sér og skrifaði heilu setningarnar á borðið með fingrunum og var alltaf jafn rólegur. Afi notaði orðið „kappi“ óspart um okkur sumarstrákana en „nafni minn“ fékk ég einn að heyra. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (V. Briem.) Takk fyrir allt, elsku afi. Þinn nafni, Grímur Arnórsson. Gestakoma í Skáleyjum 1963. Upp frá sjónum gengur vörpulegur mað- ur, fullorðinn en þó ungur, hægur og festulegur, heilsar alvarlegur há- vaðalaust, enginn viðhlæjandi hvers sem er við fyrstu kynni. Ég hafði að vísu séð hann fyrr, en sennilega ekki talað við hann. Sam- gangur og kynni voru takmörkuð milli Geiradals og eyja. Suma bæi þar kunni maður að nefna og suma menn. Einn þeirra var Grímur á Tindum, hann mun snemma hafa val- ist til forystu meðal jafningja. Ekki grunaði mann þá að innan mannsaldurs yrði þessi víðlenda byggð með nefndum endamörkum orðin að einu sveitarfélagi og kynni fólks endanna á milli áþekk því sem var innan gömlu hreppanna með minni radíus. Hann var kominn að sækja konu- efni sitt, sem þá var enn viðloðandi föðurhús og eldri sonur þeirra fædd- ur. Við nánari kynni fann ég það traust, sem hann ávann sér. Mér er í fersku minni tímabundin dvöl á Tindum snemma á búskaparárum Gríms og Guðlaugar. Marga eftir- minnilega stund hefi ég átt síðan hjá þeim. Fyrst í gamla húsinu á Tindum og síðan því nýja. Svo í Króksfjarð- arnesi og lokst í nýjum bústað á Tindum eftir að hún lét af símstöðv- arstjórn í Nesi. Grímur var orðsins maður, hafði gaman af snjöllum málflutningi og orðaskiptum. Vel orðuð kerskni í bundnu máli var honum tákn snillinnar. Án þess að halla viljandi á neinn veit ég að hann mat mikils Bólu- Hjálmar, Guðmund Inga, Guðmund Bövarsson, Þórarin Eldjárn. Flutti gjarnan á mannamótum ljóðin, sem hann hreifst af. Búskapur Gríms á Tindum spann- ar stórbreytingaskeið íslensks land- búnaðar. Hann hvarf frá þeim bland- aða búskap, sauðfjár og kúa, sem flestir ráku á æskuárum uppbygg- ingar og vélvæðingar. Byggði kúabú sitt og fjós samkvæmt kröfum tím- ans. Á Tindum er og verður sennilega enn um sinn, eina sérhæfða kúabúið í hreppnum. Staðarlegt er heim að Tindum að líta, ekki síst um gróandann, þegar túnin í grósku breiða úr sér beggja vegna vegar og á brekkubrúninni stílgóðar byggingar undir tindunum. Listasmíð náttúru og mannshandar myndar þarna geðþekkan samruna. Hann sagði mér nýverið að síðustu búskaparár hans hefðu verið nokkur biðstaða meðan skýrðist hverju fram yndi með eftirkomendur. Þegar svo sonur hans vildi halda starfinu fram var Grími ljúft að standa upp. Þetta er ljós punktur í dapurlegri þróun búsetu um sveitir. Ungur lærði Grímur eitthvað í út- varpsvirkjun og starfaði nokkuð við það fag. Að búskaparlokum fékk hann hins vegar meiri tíma til að sinna tóm- stundastarfi sínu, sem var útskurður í tré. Á heimilum fjölskyldu hans gef- ur að líta árangurinn í skrautlegum munum. Einhverntíma fór hann að taka myndir af kirkjum sem varð honum að söfnun. Ötull ferðamaður, sem átti alltaf þetta erindi. Að lokum átti hann allar kirkjur landsins í mynda- möppu. Trúlega er það einstakt safn. Svo eitthvað sé nefnt af þeim fjöl- mörgu trúnaðarstörfum, sem hann vann samfélaginu, þá eru mér eft- irminnileg þau sem ég kynntist. Er hann hætti setu á Búnaðar- þingi, sem hann hafði um árabil, sát- um við saman aðalfund Búnaðarsam- bands Vestfjarða þegar velja skyldi nýja Búnaðarþingsfulltrúa. Þá var enn það mannval á Vest- fjörðum og áhugi á búskaparmálum, að fleiri buðust til starfans en þurfti og horfði í rimmu eða kosningaslag, sem ekki kunni góðri lukku að stýra. Grími var fengið það hlutverk að sjatla mál. Hann kannaði vilja manna undir fjögur augu í fundarhléum og sinni meiningu lá hann ekkert á. Hann kom saman lista sem fundurinn sam- þykkti átakalítið. Mörgum smábógi hefði orðið slíkt miðlunarstarf skeinuhætt. En Grímur stóð keikur eftir. Árið 1987 voru allir hreppar Aust- ur-Barðastrandarsýslu sameinaðir í einn. Félagsmálaráðuneytið fól Grími að stýra viðræðum hrepps- nefndanna. Hann tók skörulega á. Hann samdi þær vinnureglur, sem dugðu til framboðs að einni hrepps- nefnd, þar sem sæti áttu fulltrúar allra gömlu hreppanna. Hann átti frumkvæði að því að hreppurinn nýi hlyti það nafn sem varð. Reykhólahreppur. Þarna urðu átök. M.a. var ég mjög ósammála Grími um þetta efni. Lyktir bera málafylgni hans vitni. Málefnalegi árgreiningurinn var reyndar sá hvort hreppar ættu að bera nafn af einhverju höfuðbóli eða hvort nafnið ætti að spanna svæðið. Jafnframt heyrist mér síðan, að þessi ágrein- ingur hafi verið við lýði víðar þegar sameinaðir eru hreppar. „Sitt sýnist hverjum“ á Fróni. Við Guðlaug þekkjumst frá upp- vaxtarárum. Nóbelsskáldið kallaði það að alast upp „samtýnis“. Æðru- leysi þitt, Gulla mín, þolinmæði og bjartsýni hafa alla tíð verið aðals- merki þín. Dugi þér þau nú, ég veit að tómleikinn verður áleitinn. Guð styrki þig og blessi fjölskyld- una alla. Jóhannes Geir Gíslason. Í dag, 3. febrúar, verður til moldar borinn í Reykhólasveit heiðursborg- ari Reykhólahrepps og fyrrum odd- viti Geiradalshrepps, Grímur Arn- órsson frá Tindum. Hann lést snögglega h. 23. janúar s.l. og hafði ekki kennt sér neins meins áður. Þó að Grímur væri kominn yfir áttrætt bar hann aldurinn vel og hélt góðri starfsorku. Alltaf var hann með á prjónunum ný verkefni til að takast á við. Fyrir nokkrum vikum ræddi hann við mig um að taka að sér að fara yfir bókasafn Flateyjar og flokka það. Hann var sívinnandi, las mikið og fylgdist með sveitarstjórnarmálum og þjóðmálum af alhug. Hann var því víðlesinn maður og vel heima í flestu því sem á góma bar í máli manna. Hann var einnig góður heim að sækja og gott að leita til hans um hvaðeina sem viðkom félags- og sveitarstjórnarmálum frá fyrri tím- um. Hann var hagleiksmaður mikill og einkum á efri árum stundaði hann tréútskurð og skilur hann eftir sig marga fagra gripi útskorna í tré. Ekki var það til að afla fjár með sölu, heldur til að gefa vinum og vanda- mönnum. Grímur hafði yndi af ferða- lögum og að blanda geði við fólk. Þegar ég flutti hingað í Reykhóla- hrepp árið 1996 rifjuðu þeir upp gömul kynni maðurinn minn og Grímur, en þeir höfðu oft verið sam- verkamenn á fundum um sveitar- stjórnarmál á Vestfjörðum. Þar var Grímur oftast fulltrúi síns sveitar- félags eða sýslunnar. Það sópaði að Grími þar sem hann flutti mál, hann var málafylgjumaður og fylgdi þeim málum fast eftir sem honum voru fal- in. Hann var félagshyggjumaður í besta skilningi þess orðs. Ég minnist þess líka að áður á ár- um þegar við hjónin ókum um Reyk- hólasveit og leið okkar lá fram hjá Tindum þá sagði Guðmundur venju- lega til skýringar þeim sem með voru í bílnum: Hér býr vinur minn Grímur á Tindum, oddviti og mikill sveitar- höfðingi. Ekki er hægt að minnast Gríms nema að nefna einnig eftirlifandi eig- inkonu hans, Guðlaugu Guðmunds- dóttur frá Skáleyjum, sem er mik- ilhæf og gáfuð kona. Þrátt fyrir fötlun sína sinnti hún öllum húsmóð- urstörfum af mikilli kostgæfni og reisn á gestkvæmu heimili. Gestrisni var í hávegum höfð á þeirra heimili og þau voru góð heim að sækja. Heimilishald allt var með menning- arbrag eins og það gerist best á ís- lensku sveitaheimili. Grímur sat í sveitarstjórn Geira- dalshrepps í 30 ár og var á þeim tíma oddviti sveitarstjórnar í 17 ár. Jafn- framt var hann sýslunefndarmaður í fjölda ára. Hann tók mikinn og virkan þátt í félags- og hagsmunabaráttu bænda- samtakanna. Hann var fulltrúi á að- alfundum Stéttarsambands bænda í 20 ár og fulltrúi á Búnaðarþingum í 10 ár. Auk þessara starfa var hann afkastamikill starfsmaður bæði í Ræktunarsambandi og húsgerðar- sambandi A-Barðastrandarsýslu meðan þau voru rekin. Það sýnir að aðrir bændur hafa treyst Grími vel fyrir sínum málum og talið sig eiga góðan og ötulan talsmann sinna mála þar sem hann var. Þetta kom líka fram í öðrum málum eins og stjórn- arstörfum fyrir Kaupfélag Króks- fjarðar þar sem hann sat í stjórn í um tvo áratugi og lengst af sem formað- ur stjórnar. Í sveitarstjórnarmálum var hann virkur leiðtogi í 30 ár. Þetta gilti bæði innan sveitar sem í ýmsum trúnaðarstörfum fyrir byggðarlag sitt út á við. Þar má nefna Fjórð- ungssamband Vestfirðinga, Orkubú Vestfjarða og mörg sérverkefni á vegum samtaka sveitarfélaga í Vest- fjarðakjördæmi. Hreppsnefnd Reykhólahrepps til- nefndi Grím Arnórsson heiðursborg- ara Reykhólahrepps á fundi sínum 15. apríl 1999 og afhenti honum skjal af því tilefni í áttræðisafmæli hans 26. apríl 1999. Það er sjónarsviptir að slíkum manni sem var sannur sveitarhöfð- ingi eins og þeir gerast bestir. Við þökkum Grími Arnórssyni fyr- ir störf hans í þágu sveitarinnar og samfélagsins alls. Skarð hans verður vandfyllt, og margir sakna vinar í stað. Ég votta eiginkonu Gríms Arnórs- sonar og öllum afkomendum hans einlæga samúð fyrir hönd Hrepps- nefndar Reykhólahrepps. Einnig vil ég þakka okkar persónulegu kynni og þann vinarhug sem þau hjón bæði sýndu mér og fjölskyldu minni. Blessuð sé minning Gríms Arnórs- sonar. Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, sveitarstjóri Reykhólahrepps. GRÍMUR ARNÓRSSON

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.