Morgunblaðið - 03.02.2001, Page 55

Morgunblaðið - 03.02.2001, Page 55
KRABBAMEINSFÉLAGIÐ 50 ÁRA MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2001 55 NÁMSKEIÐIÐ hófst hér á landi haustið 1999 og hafa Krabba- meinsfélag Reykjavík- ur og Landspítali –há- skólasjúkrahús staðið fyrir skipulagi og fram- kvæmd þess. Nám- skeiðið hefur auk þess verið styrkt af Bristol- Myers Squibb sem er innan Pharmaco og fag- deild hjúkrunarfræð- inga á krabbameins- sviði. Bakgrunnur Námskeiðið byggist á erlendum fyrirmyndum og hefur verið lagað að íslenskum að- stæðum. Upphafið á rætur að rekja til Bandaríkjanna en námskeiðið „I Can Cope“ hófst í Minnesota árið 1979 og var þróað af hjúkrunarfræð- ingnum Dr. Judi Johnson. Niður- stöður úr samanburðarrannsókn, sem voru birtar árið 1982, sýndu að þátttakendur í námskeiðinu upplifðu minni kvíða, meiri lífstilgang og höfðu meiri þekkingu heldur en þeir sem ekki tóku þátt. Þessar niðurstöð- ur studdu framkvæmd þessa nám- skeiðs víða í Bandaríkjunum og nú hefur rúmlega hálf milljón Banda- ríkjamanna sótt námskeiðin. Á árun- um 1988-1992 hófst undirbúningur námskeiðsins í Lundi í Svíþjóð. Það var doktorsverkefni hjúkrunarfræð- ingsins Gertrud Grahn að kanna fræðsluþarfir sjúklinga og aðstand- enda, þróa námskeiðið, lesefni sem því fylgir og meta árangurinn. Hópur sjúklinga með krabbamein og að- standendur þeirra tóku þátt í verkefninu og völdu meðal annars nafnið á námskeiðið, „Lära sig leva med cancer“. Árangurinn af námskeiðinu var mjög jákvæður og nú er það haldið víða í Svíþjóð. Norðmenn hófu nám- skeiðin í samvinnu við norska krabbameins- félagið árið 1994 og ár- ið 1995 var hafist handa við að koma námskeiðinu í gang víðar í Evrópu. Að baki því stóðu Evrópusamtök krabbameins- hjúkrunarfræðinga og Evrópa gegn krabbameini. Fjórir íslenskir hjúkr- unarfræðingar sóttu námskeið til þess að kynna sér framkvæmd þessa námskeiðs og fengu jafnframt leyfi til að aðlaga það íslenskum aðstæð- um. Aðlögunin fólst m.a. í þýðingu á lesefni sem fylgir námskeiðinu og komu þar margar fagstéttir að. Markmið og umfjöllunarefni Meginmarkmiðið með námskeið- inu er að efla þekkingu og skilning þátttakenda á því sem er að gerast eða getur gerst á veikindatímabilinu og auðveldað þeim að takast á við breyttar aðstæður. Efnið byggir á vel þekktri fræðsluþörf fólks með krabbamein og aðstandenda þess. Byrjað er á umfjöllun um líkamlega þætti eins og myndun og greiningu krabbameina, helstu meðferðarleið- ir, aukaverkanir og möguleg úrræði. Eftir því sem vægi líkamlega þátt- arins minnkar eykst vægi fræðslu um sálfélagslega þætti. Fjallað er um áföll, kreppuferlið og úrlausnir eins og tjáskipti, breytta lífshætti, slökun, félagsleg réttindi, listmeðferð og óhefðbundna meðferð. Þetta fer fram með fyrirlestrum og umræðum í umsjá viðkomandi fagaðila. Þannig er námskeiðið þverfaglegt og að því koma meðal annarra læknar, hjúkr- unarfræðingar, næringarráðgjafi, félagsráðgjafi, sjúkraþjálfari og list- meðferðarfræðingur. Skipulag Hvert námskeið varir í átta vikur og hittist hópurinn einu sinni í viku, tvo tíma í senn. Þátttakendur eru aldrei fleiri en tuttugu og mælt er með að hver sjúklingur hafi með sér einn aðstandanda. Námskeiðið fer eftir fyrir fram skipulagðri dagskrá en þátttakendur geta einnig komið með óskir um efni. Námsefni fylgir hverjum tíma og eru þátttakendur beðnir að meta fyrirlestra og náms- efni og er tekið tillit til þess við áframhaldandi skipulag. Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu og hefur hingað til verið haldið í húsi Krabbameins- félagsins við Skógarhlíð í Reykjavík. Næsta námskeið hefst 1. febrúar nk. Að lifa með krabbamein Nú hafa verið haldin þrjú nám- skeið með um 60 þátttakendum og fleiri eru fyrirhuguð. Þeir sem hafa sótt námskeiðin hafa látið í ljós ánægju sína á margan hátt og allir hafa viljað mæla með því við aðra sem eru í svipuðum aðstæðum. Ljóst er að hópfræðsla og hópstuðningur hentar ekki öllum og það er mismun- andi hvenær og hvert fólk vill sækja sér stuðning. Námskeiðið „Að lifa með krabbamein“ getur verið hluti af endurhæfingu og hæfingu þeirra sem eiga þess kost að sækja sér fræðslu á þennan hátt. Námskeiðið „Að lifa með krabbamein“ „Að lifa með krabbamein“ er námskeið fyrir fólk sem greinst hefur með krabba- mein og aðstandendur þess, segir Nanna Friðriksdóttir. Þetta er stuðnings- og fræðslunámskeið þar sem kostur gefst á að læra og dýpka skilning á því sem sjúkdómurinn og meðferðin geta haft í för með sér og hvaða leiðir er hægt að fara til að takast á við breyttar aðstæður. Nanna Friðriksdóttir Krabbameinsfélag Íslands varðveitir mikinn fjölda sjúkraskýrslna. Höfundur er klínískur sérfræðingur í hjúkrun á Landspítala – háskóla- sjúkrahúsi og stjórnarmaður í Krabbameinsfélagi Reykjavíkur. Acidophilus FRÁ Bjóðum upp á 3 tegundir: 2 billj., 4 billj. og 8 billj. APÓTEKIN FRÍHÖFNIN Uppl. í síma 567 3534

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.