Morgunblaðið - 03.02.2001, Side 56

Morgunblaðið - 03.02.2001, Side 56
KIRKJUSTARF 56 LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGINN 4. febrúar verður mikið um að vera í Hafnarfjarðar- kirkju. Dagurinn hefst með fjöl- skylduguðsþjónustu kl. 11. Koma þá saman í kirkjunni krakkar úr sunnu- dagaskólum kirkjunnar sem haldnir eru alla sunnudaga í Hvaleyrarskóla og safnaðarheimilinu, en strætis- vagnar munu flytja börn og foreldra þeirra á milli staða. Þá mun barna- kór kirkjunnar syngja og farið verð- ur í leiki en guðspjallið verður sett upp í „spuna“ á staðnum. Eftir fjöl- skylduguðsþjónustuna er boðið upp á nammi handa öllum í safnaðar- heimilinu Strandbergi. Prestar eru sr. Þórhildur Ólafs og sr. Þórhallur Heimisson. Klukkan 20 verður síðan haldin þjóðlagamessa. Þjóðlagahljómsveit leikur fyrir söng undir stjórn Arnars Arnarssonar og annast helgihaldið ásamt sr. Þórhalli Heimissyni sem hefur þýtt messuna úr sænsku. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir predikar, en hún starfar í nefnd sem annast undirbúning undir kirkjudaga sum- arsins sem haldnir verða á vegum ís- lensku þjóðkirkjunnar í Hallgríms- kirkju. Sr. Gunnþór Ingason annast helgileik með fermingarbörnum og eftir messuna er boðið upp á kaffi og spjall í safnaðarheimilinu. Prestar Hafnarfjarðarkirkju. Kvöldmessa við kertaljós í Hallgrímskirkju Í kvöld, sunnudaginn 4. febr., verður kvöldmessa í Hallgríms- kirkju kl. 20. Schola cantorum syngur nokkur verk undir stjórn Harðar Áskelsson- ar kantors, sem einnig leikur á org- elið. Sr. Jón D. Hróbjartsson flytur hugvekju og þjónar fyrir altari, en ungt fólk úr Hallgrímskirkju aðstoð- ar. Kvöldmessur eru að jafnaði einu sinni í mánuði, fyrsta sunnudag hversmánaðar. Í kvöldmessunum er notað mjög einfalt messuform, gef- inn góður tími til íhugunar og til- beiðslu. Kirkjurýmið er notað út í æsar, þ.e. að söfnuðurinn fær tæki- færi til að ganga að altari kirkjunar til að biðjast fyrir, ganga að hlið- arölturum, skrifa sínar bænir niður á bænaseðla, tendra bænaljós eða sitja og hlusta á fallega tónlist. Kvöldstund sem þessi er góð til að njóta kyrrðar og samfélags á helgum stað, gefa sér tíma til að biðja fyrir sér og sínum, biðja fyrir systrum og bræðrum úti í heimi, sem þjást og líða vegna náttúruhamfara, hungurs eða annarra erfiðleika. Í þessari messu verður t.d. sérstaklega beðið fyrir fórnarlömbum jarðskjálftanna á Indlandi. Fræðslukvöld og hópstarf um sorg og sorgarviðbrögð Eins og undanfarin ár eru fyrir- lestrar, námskeið og hópstarf í Langholtskirkju um missi og úr- vinnslu sorgar. Á vormisseri verður starfið tengt missi vegna dauðsfalla. Þriðjudagskvöldið 6. febrúar kl. 20 mun sr. Gunnar Rúnar Matthíasson sjúkrahúsprestur vera með erindi um sorg og sorgarviðbrögð á fræðslukvöldi í litla salnum í safn- aðarheimili Langholtskirkju. Þriðju- daginn 13. febrúar hefst síðan starf sorgarhóps/nærhóps í framhaldi af fræðslukvöldinu. Nærhópar eru litlir hópar einstaklinga sem mynda trún- aðarsamband, helst ekki fleiri en 8– 10 manns. Hópurinn kemur saman einu sinni í viku í 10 skipti. Hópstarfinu lýkur með erindi sr. Gunnars þar sem horft er fram á veginn án ástvinarins sem er látinn. Sóknarprestur og djákni hafa um- sjón með starfinu. Hafið samband við Svölu Sigríði Thomsen djákna í síma 520 1314 og 862 9162 eða Jón Helga Þórarinsson sóknarprest í síma 553 5370. Einnig er hægt að skrá sig hjá kirkjuverði í síma 520 1300. Tónleikar í Neskirkju Næstu tónleikar í tónleikaröð Neskirkju verða sunnudaginn 4. febrúar kl. 17. Organisti kirkjunnar, Reynir Jón- asson, og fiðluleikarinn Hjörleifur Valsson leika þrjú sönglög eftir Jón Leifs, Fantasíu fyrir orgel, sem Jón Ásgeirsson samdi í tilefni vígslu nýja orgelsins í Neskirkju, Tragoydia op. 11 fyrir einleiksfiðlu eftir gríska tón- skáldið Omiris Vangelis og Sónötu nr. 1 úr sónöturöðinni Rosenkrantz- sónötur eftir H. I. F. von Biber. Reyni Jónasson þarf ekki að kynna fyrir tónlistarunnendum, hann hefur starfað lengi sem organisti og er ekki síður þekktur fyrir leik sinn og kynningu á harmóníkunni. Eftir margra ára nám hérlendis sem er- lendis hefur Hjörleifur sest að heima en hefur ekki látið mikið í sér heyra á tónleikum og gefst tónleikagestum nú tækifæri til að hlýða á þennann frábæra listamann. Hann leikur á fiðlu sem Hans Jóhannsson hefur smíðað. Hjörleifur er aðstoðarskóla- stjóri Tónlistarskóla Garðabæjar. Trúarleg stef í kvikmyndum Næstkomandi sunnudag, 4. febrú- ar, kl. 10 hefjast að nýju fræðslu- morgnar í Hallgrímskirkju. Þá mun Þorkell Á. Óttarsson stud. theol flytja fyrra erindi sitt um efnið Trúarleg stef í kvikmyndum og sýna myndbrot tengd efninu. Síðara er- indið verður flutt að viku liðinni, 11. febrúar. Undanfarin ár hefur hópur guð- fræðinga og guðfræðinema að frum- kvæði dr. Gunnlaugs A. Jónssonar prófessors stundað rannsóknir og greiningu á þessu sviði og er rit- gerðasafn um efnið væntanlegt á þessu vori. Fyrirlesarinn, Þorkell Á. Óttarsson, hefur tekið virkan þátt í þessum hópi. Hann hef- ur þegar gefið út rit um trúarleg stef í stríðsmyndum og er nú að vinna að meistaraprófsritgerð um parad ar- stefið (Edensstefið) í kvikmyndum. Allir eru velkomnir að hlýða á erind- ið. Að erindinu loknu hefst guðsþjón- usta í kirkjunni. Prestur er séra Sig- urður Pálsson. Tónleikar í Fríkirkj- unni í Reykjavík Laugardaginn 3. febrúar kl. 20 mun Kór Fríkirkjunnar í Reykjavík halda tónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík. Á efnisskránni eru dæg- urlög úr ýmsum áttum meðal annars lög eftir Bítlana, Billy Joel, Burt Bacharach, Gershwin, Hreiðar Inga Þorsteinsson og fleiri. Einsöngvari á þessum tónleikum er Anna Sigríður Helgadóttir. Undirleikari er Aðal- heiður Þorsteinsdóttir píanóleikari. Einnig koma fram Hólmfríður Jó- hannesdóttir messósópran og Hreið- ar Ingi Þorsteinsson. Stjórnandi Kári Þormar. Fjölskyldu- guðsþjónusta Sunnudaginn 4. febrúar kl. 13 verður fjölskylduguðþjónusta í Dómkirkjunni. Þessar guðþjónustur hafa mælst vel fyrir og börnin hafa sannarlega notið þeirra í faðmi fjöl- skyldunnar. Fjölskylduguðþjónust- an á sunnudaginn kemur er sú fyrsta á nýju ári og við förum að sjálfsögðu hressilega af stað með miklum söng, sögum og öðrum uppákomum. Bolli Pétur ætlar að segja loðmyndasögu og fuglinn Konni mun líta við og spyrja spurninga, því hann er svo óskaplega forvitinn. Rúsínan í pylsu- endanum verður kirkjutrúður, sem er örugglega jafnforvitinn og Konni og ábyggilega spennandi að sjá hvað hann ætlar sér að gera í kirkjunni á sunnudaginn. Bolli Pétur Bollason hefur umsjón með þessum guðþjón- ustum. Komum saman og upplifum uppbyggilegan boðskap og góða skemmtun með börnunum okkar. Neskirkja: Kirkjustarf eldri borgara í dag kl. 14. Kirkjur og kirkjubygg- ingar. Myndasýning. Umsjón Hall- dór Reynisson og Baldur Sveinsson. Kaffiveitingar og tónlist. Munið kirkjubílinn. Allir velkomnir. Grafarvogskirkja. AA-hópur hittist kl. 11. Fríkirkjan Vegurinn: Fjölskyldu- samkoma kl. 11. Brauðsbrotning. Samkoma kl. 20. Brauðsbrotning. Högni Valsson prédikar. Allir hjart- anlega velkomnir. KEFAS: Laugardagurinn 3. feb. Al- menn samkoma kl 14. Ræðumaður: Björg Pálsdóttir. Mikil lofgjörð og fyrirbæn. Kaffi og spjall að lokinni samkomu. Allir hjartanlega vel- komnir! Háteigskirkja. Spjallstund mánudag kl. 10–12 í Setrinu á neðri hæð safn- aðarheimilis fyrir eldri borgara með Þórdísi þjónustufulltrúa. Eldri borg- arar grípa í spil mánudag kl. 13.30– 16 í Setrinu á neðri hæð safnaðar- heimilisins. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Klukkan 11 er æfing Lítilla læri- sveina í Tónlistaskólanum, yngri og eldri börn. Klukkan 12.30 er foreldrafundur í Tónlistarskólanum með foreldrum Litlu lærisveinanna. Hvammstangakirkja. Sunnudaga- skóli kl. 11. Akraneskirkja. Kirkjuskóli kl. 11. TTT-starf (10–12 ára) kl. 13. Um- sjón: Hreiðar Örn Stefánsson. Hjálpræðisherinn. Klukkan 13 er laugardagsskóli. Útskálakirkja. Kirkjuskóli klukkan 14 í safnaðarheimilinu Sæborg. Hvalsneskirkja. Kirkjuskóli klukkan 11 í safnaðarheimilinu í Sandgerði. Fjölskylduguðs- þjónusta og þjóðlagamessa í Hafnarfjarðarkirkju Safnaðarstarf Hafnarfjarðarkirkja MESSUR Á MORGUN ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Kaffi eftir messu. Árni Bergur Sigurbjörnsson. BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl. 11. Foreldrar, ömmur og afar eru hvött til þátttöku með börnunum. Ungmennahljómsveit undir stjórn Pálma J. Sigurhjartarsonar. Guðs- þjónusta kl. 14. Pálmi Matthíasson. DÓMKIRKJAN: Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson pró- fastur setur sr. Hjálmar Jónsson í embætti Dómkirkjuprests. Sr. Jakob Ág. Hjálmarsson þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur. Organisti Mar- teinn H. Friðriksson. Anna Sigríður Helgadóttir syngur einsöng. Fjöl- skyldumessa kl. 13 í umsjá Bolla P. Bollasonar. Trúður kemur í heim- sókn ásamt fleiri furðufuglum. GRENSÁSKIRKJA: Barnastarf kl. 11. Messa kl. 11. Altarisganga. Kirkjukór Grensáskirkju syngur. Org- anisti Árni Arinbjarnarson. Ólafur Jó- hannsson. GRUND, DVALAR- OG HJÚKRUNAR- HEIMILI: Guðsþjónusta kl. 10.15. Prestur sr. Hreinn S. Hákonarson. Organisti Kjartan Ólafsson. HALLGRÍMSKIRKJA: Fræðslumorg- unn kl. 10. Trúarleg stef í kvikmynd- um: Þorkell Á. Óttarsson stud. the- ol. Messa og barnastarf kl. 11. Umsjón barnastarfs Magnea Sverr- isdóttir. Félagar úr Mótettukór syngja. Organisti Hörður Áskelsson. Sr. Sigurður Pálsson. Kvöldmessa kl. 20. Schola cantorum syngur und- ir stjórn Harðar Áskelssonar organ- ista. Ungt fólk úr Hallgrímskirkju að- stoðar. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson. LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.30. Sr. Bragi Skúlason. HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðsþjón- usta kl. 11. Sr. Carlos A. Ferrer, Pét- ur Björgvin Þorsteinsson fræðslu- fulltúi, Sólveig Halla Kristjánsdóttir guðfræðinemi og Guðrún Helga Harðardóttir djáknanemi. Messa kl. 14. Organisti Douglas A. Brotchie. Sr. Tómas Sveinsson. Molasopi eftir messu. LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð- brands biskups. Fjölskylduguðsþjón- usta kl. 11. Stund fyrir börn og full- orðna. Kór Kórskólans syngur undir stjórn Bryndísar Baldvinsdóttur. Ólöf Kolbrún Harðardóttir syngur ein- söng. Stundina annast sr. Jón Helgi Þórarinsson, Jón Stefánsson organ- isti og Lena Rós Matthíasdóttir. Kaffisopi á eftir. LAUGARNESKIRKJA: Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. María Ágústsdóttir héraðsprestur þjónar. Kór Laugarneskirkju syngur undir stjórn Gunnars Gunnarssonar. Hrund Þórarinsdóttir stýrir sunnu- dagaskólanum ásamt sínu fólki. Messukaffi. Messa kl. 13 í dagvist- arsalnum Hátúni 12. Þorvaldur Hall- dórsson syngur, Guðrún K. Þórsdótt- ir og sr. María Ágústsdóttir þjóna ásamt hópi sjálfboðaliða. NESKIRKJA: Messa kl. 11. Prestur sr. Frank M. Halldórsson. Organisti Reynir Jónasson. Sunnudagaskólinn kl. 11 og 8–9 ára starfið á sama tíma. Kirkjubíllinn ekur um hverfið á undan og eftir eins og venjulega. Safnaðarheimilið er opið frá kl. 10. Kaffisopi eftir guðsþjónustu. Tón- leikar kl. 17. Reynir Jónasson org- anisti og Hjörleifur Valsson fiðluleik- ari leika. SELTJARNARNESKIRKJA: Guðs- þjónusta kl. 11. Organisti Viera Manasek. Prestur sr. Sigurður Grét- ar Helgason. Sunnudagaskólinn á sama tíma. Bjóðum börnin sérstak- lega velkomin til skemmtilegrar samveru. ÍSLENSKA KIRKJAN ERLENDIS: GAUTABORG: Messa í norsku sjó- mannakirkjunni sunnudag 4. febr. kl. 14. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Við hljóðfærið Tuula Jóhannesson. Kirkjukaffi. Aðalfundur safnaðarins eftir messu. FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Barna- og fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Allir velkomnir. Að venju förum við niður að tjörn að lokinni messu og gefum öndunum. Fræðsla fermingarbarna eftir messu. Ferð æskulýðsstarfsins í keilu hefst að lokinni fræðslu ferm- ingarbarna. Organisti Kári Þormar. ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Prestur: Sr. Sigurjón Árni Eyj- ólfsson. Organisti: Violeta Smid. Sunnudagaskólinn kl. 13. Nýtt efni. Allir velkomnir, ungir sem aldnir. Mikill söngur, biblíusögur og leikir. Léttmessa kl. 20. Guðni Már Harð- arson æskulýðsleiðtogi flytur hug- vekju. Páll Rósinkrans syngur. Sókn- arprestur. BREIÐHOLTSKIRKJA: Fjölskyldu- guðsþjónusta kl. 11. „Fimm ára há- tíðin“ Öllum börnum sem verða 5 ára á þessu ári er sérstaklega boðið og fá afhenta bókina: Kata og Óli fara í kirkju. Organisti: Sigrún Þór- steinsdóttir. Léttar veitingar í safn- aðarheimilinu eftir guðsþjónustuna. Gísli Jónasson. DIGRANESKIRKJA: Fjölskyldu- messa kl. 11 með þátttöku sunnu- dagaskóla. Prestur sr. Gunnar Sig- urjónsson. Organisti: Kjartan Sigurjónsson. Kór Digraneskirkju A- hópur. Óskirnar tíu. Eggert Kaaber leikari flytur. Léttur málsverður í safnaðarsal að lokinni messu og sunnudagaskóla. FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Altarisganga. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Taize- sálmar verða sungnir. Organisti: Lenka Mátéová. Barnaguðsþjónusta á sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjón Margrétar Ó. Magnúsdóttur. Prestarnir. GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Prestur: Sr. Vigfús Þór Árnason prédikar og þjónar fyrir alt- ari. Kór Grafarvogskirkju syngur. Organisti: Hörður Bragason. Barna- guðsþjónusta kl. 11 í Grafarvogs- kirkju. Prestur sr. Anna Sigríður Pálsdóttir. Umsjón: Sigrún, Þor- steinn Haukur og Hlín. Undirleikari: Guðlaugur Viktorsson. Krakkakór Grafarvogskirkju syngur. Stjórnandi Oddný Þorsteinsdóttir. Barnaguðs- þjónusta kl. 13 í Engjaskóla. Prestur sr. Anna Sigríður Pálsdóttir. Umsjón: Sigrún og Þorsteinn Haukur. Undir- leikari: Guðlaugur Viktorsson. Prest- arnir. HJALLAKIRKJA: Lofgjörðarguðs- þjónusta kl. 11. Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson þjónar. Kór Snælands- skóla syngur og leiðir safnaðarsöng. Stjórnandi Heiðrún Hákonardóttir. Undirleikari Lóa Björk Jóelsdóttir. Barnaguðsþjónusta í Lindaskóla kl. 11 og í kirkjunni kl. 13. Við minnum á bæna- og kyrrðarstund á þriðjudag kl. 18. Prestarnir. KÓPAVOGSKIRKJA: Fjölskylduguðs- þjónusta kl. 11. Börn úr barnastarfi kirkjunnar syngja ásamt Barnakór Kársnesskóla sem syngur undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur kór- stjóra. Börn úr æskulýðsstarfi ann- ast bænaflutning og fermingarbörn lesa ritningarlestra. Tónlist annast María og Þóra Marteinsdætur. Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson. SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Mikill söngur, framhaldssaga og nýr límmiði. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Ágúst Einarsson prédikar. Alt- arisganga. Organisti er Gróa Hreins- dóttir. ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Fjöl- skylduguðþjónusta kl. 11. Fræðsla, söngur og leikþáttur barna. Sam- koma kl. 20. Mikil lofgjörð og fyr- irbænir. Olaf Engsbraten predikar. Bæna- og föstuvika kirkjunnar stendur yfir 3. til 10. febrúar. Bæna- stundir verða mánudag til föstudags kl. 19–20. Allir velkomnir. KLETTURINN: Samkoma kl. 11. Pre- dikun orðsins og mikil lofgjörð og til- beiðsla. Allir velkomnir. FÍLADELFÍA: Brauðsbrotning kl. 11, ræðumaður Shein Walter. Almenn samkoma kl. 16.30, lofgjörðarhópur Fíladelfíu leiðir söng. Ræðumaður Vörður L. Traustason. Barnakirkja fyrir eins til níu ára meðan á sam- komu stendur. Allir velkomnir. KAÞÓLSKA KIRKJAN: Reykjavík – Dómkirkja Krists Kon- ungs: Sunnudag: Hámessa kl. 10.30. Messa kl. 14. Messa kl. 18 (á ensku). Mánudag og þriðjudag: messa kl. 8 og kl. 18. Miðvikudag og fimmtudag: messa kl. 18. Föstu- dag: messa kl. 8 og 18. Laugardag: barnamessa kl. 14. Messa kl. 18. Reykjavík – Maríukirkja við Rauf- arsel: Sunnudag: messa kl. 11. Guðspjall dagsins: Er þér biðjist fyrir (Matt. 6.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.