Morgunblaðið - 03.02.2001, Blaðsíða 58
FRÉTTIR
58 LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÍSLANDSMEISTARINN og al-
þjóðlegi meistarinn Jón Viktor
Gunnarsson varð skákmeistari
Reykjavíkur 2001. Við því mátti bú-
ast þar sem hann var stigahæstur
keppenda, en það kom fremur á
óvart að Hafnfirðingurinn Sigur-
björn Björnsson varð jafn honum
að vinningum. Þeir fengu báðir níu
vinninga af ellefu mögulegum, en
Jón hlaut nafnbótina Skákmeistari
Reykjavíkur þar sem Sigurbjörn er
ekki búsettur í höfuðborginni.
Reyndar er þetta í annað skiptið
sem þeir félagar deila með sér sigr-
inum á Skákþinginu en fyrir tveim
árum hlutu þeir báðir tíu vinninga.
Að þessu sinni fóru þeir rólega af
stað og urðu fyrir skakkaföllum.
Eftir að hafa gert innbyrðis jafnt-
efli knésettu þeir hins vegar hvern
andstæðinginn á fætur öðrum í síð-
ustu fimm umferðunum og stóðu
uppi sem sigurvegarar eftir glæsi-
legan endasprett. Birni Þorfinns-
syni, sem leitt hafði mótið framan
af, tókst að ná þriðja sætinu með
sigri í síðustu umferð. Frammi-
staða Guðna Stefáns Péturssonar
vakti verðskuldaða athygli, en hann
lagði m.a. Sævar Bjarnason að velli
og gerði jafntefli við Björn.
Skákstíll skákmeistara Reykvík-
inga er iðulega beinskeyttur og er
andstæðingum hans það deginum
ljósara að þá á að máta við fyrsta
tækifæri. Dæmi um slíkt er skák
frá tíundu umferð mótsins.
Hvítt: Sigurður P. Steindórsson
Svart: Jón Viktor Gunnarsson
1. c4 e5 2. Rc3 Rc6 3. g3 g6 4.
Bg2 Bg7 5. e3 d6 6. Rge2 Bd7
Óvenjulegur leikur sem er liður í
undirbúningi fyrir sóknartilburði á
kóngsvæng. 7. O-O Rge7 8. Hb1 Til
álita kom að leika 8. h3 til að forð-
ast næsta leik svarts. 8... Dc8 9. b4
Bh3 10. b5 Rd8 11. Rd5 Rxd5 12.
cxd5 h5! Það er grundvallarregla í
strategíu í skák að þegar andstæð-
ingur hefur árás á öðrum hvorum
vængnum sé best að svara henni
með aðgerðum á miðborðinu. Þessu
þarf hvítur að stefna að, en hvern-
ig?
13. Hb4? Seint telst þetta snjall
leikur. Annaðhvort var að leika 13.
f3 eða 13. f4. Eftir fyrrnefnda kost-
inn gæti framhaldið orðið 13...h4
14. g4 Bxg2 15. Kxg2 h3+ 16. Kh1
f5 og hvítur stendur prýðilega að
vígi. 13... h4 14. f4? Nú er of seint í
rassinn gripið. Skárra hefði verið
að leika 14. Hxh4 og eftir 14...Hxh4
15. gxh4 Dg4 16. Rg3 Bxg2 17.
Kxg2 Dxh4 stendur svartur aðeins
betur að vígi. Eftir textaleikinn fer
hvíti kóngurinn á vergang og tyllir
sér aftur á upphafsreitinn en slíkt
er í besta falli óvenjulegt eftir ein-
ungis 18 leiki. 14... Bxg2 15. Kxg2
hxg3 16. hxg3 Dh3+ 17. Kf2 Dh2+
18. Ke1 Skógarferðinni er lokið um
sinn og kóngarnir eru aftur and-
spænis hvor öðrum líkt og við upp-
haf skákarinnar. 18...Dg2! 19. Dc2
Nú voru góð ráð dýr þar sem eftir
19. Hg1 Dxd5 verður hvítur peði
undir bótalaust. Í framhaldinu
lendir hvítur í herkví svörtu mann-
anna. 19... Hh2 20. Dd3 f5! 21.
fxe5?! 21.e4 hefði getað haldið
meiri lífi í hvítu stöðunni þó að út-
litið væri ekki bjart.
21... Rf7! Eftir þetta eru hvítum
allar bjargir bannaðar enda fær
stórskotalið svarts á annarri reita-
röð núna nauðsynlega aðstoð við að
binda endahnútinn á sóknina. 22.
Bb2 22. e6 hefði leitt strax til taps
eftir 22...Re5. 22... Bxe5 23. Hg1
Hh1! 24. Hxh1 Dxh1+ 25. Kf2 Rg5!
26. Rf4 Bxb2 27. Hxb2 Re4+ 28.
Ke2 Rxg3+ 29. Kf2 Dh2+ 30. Kf3
Re4
Lokastaðan segir meira en þús-
und orð. Yfirburðir svarts eru slíkir
að kóngur hans og hrókur á a8
standa enn hreyfingarlausir á upp-
hafsreitum sínum. Samvinna
drottningarinnar og riddarans
nægir til að þvinga fram uppgjöf
hvíts.
Hraðskákmót
Reykjavíkur
Hraðskákmót Reykjavíkur verð-
ur haldið sunnudaginn 4. febrúar
og hefst það klukkan 14. Tefldar
verða 2x9 umferðir eftir Monrad-
kerfi með 5 mínútna umhugsunar-
tíma.
Veitt verða þrenn verðlaun auk
þess sem sigurvegarinn hlýtur
nafnbótina hraðskákmeistari
Reykjavíkur 2001. Þátttökugjald er
kr. 500 fyrir 16 ára og eldri og kr.
300 fyrir 15 ára og yngri.
Að loknu hraðskákmóti fer fram
verðlaunaafhending fyrir Skákþing
Reykjavíkur.
Meistaramót Hellis
hefst á mánudag
Meistaramót Taflfélagsins Hellis
2001 hefst mánudaginn 5. febrúar
klukkan 19:30. Mótið verður sjö
umferða opið kappskákmót. Þetta
er í tíunda sinn sem mótið fer fram,
en núverandi skákmeistari Hellis
er Davíð Kjartansson. Björn Þor-
finnsson hefur hins vegar oftast
orðið meistari félagsins eða þrisvar.
Verðlaun eru fyrir þrjú efstu sætin
auk veglegra aukaverðlauna. Mótið
er öllum opið. Umferðir hefjast allt-
af klukkan 19:30. Hliðrað verður
sérstaklega til fyrir keppendum á
Norðurlandamótinu í skólaskák
sem haldið verður hérlendis 15.–19.
febrúar til að gefa þeim tækifæri til
að taka þátt í mótinu. Hægt er skrá
sig í tölvupósti: hellir@simnet.is.
Einnig er hægt að skrá sig símleið-
is: Vigfús 553 5995, Davíð 698 7682
og Daði 892 6468. Hægt verður að
fylgjast með skráningu á mótið á
vefsíðu mótsins www.simnet.is/hell-
ir/MeisHe01.htm. Aðalverðlaun: 1.
verðlaun: 20.000. 2. verðlaun:
12.000. 3. verðlaun: 8.000. Skák-
meistari Hellis fær nýjustu útgáfu
af Chess Assistant, sem væntanleg
er á markað í febrúar. Þetta er út-
gáfa 6.0, sem býður upp á fjölmarg-
ar nýjungar, inniheldur skákgagna-
grunn með 1,5 milljónum skáka,
sterk skákforrit og gerir notendum
kleift að tefla á þægilegan hátt á
ICC-skákþjóninum. Fyrir bestan
árangur undir 2000 skákstigum er
einnig Chess Assistant í verðlaun.
Stigalægri skákmenn hafa einnig
markmið til að keppa að. Þannig
verðlaunast besti árangur skák-
manns undir 1.800 stigum með kr.
5.000 og það sama gildir fyrir besta
árangur skákmanns undir 1.600
skákstigum. Skákklukka er í verð-
laun fyrir efsta stigalausa skák-
manninn og þrír efstu keppendurn-
ir 15 ára og yngri fá vegleg
bókaverðlaun. Umferðatafla:
1. umf. 5. feb. klukkan 19:30. 2. umf. 7. feb.
klukkan 19:30. 3. umf. 9. feb. klukkan
19:30. 4. umf. 12. feb. klukkan 19:30. 5.
umf. 14. feb. klukkan 19:30. 6. umf. 19. feb.
klukkan 19:30. 7. umf. 21. feb. klukkan
19:30.
Þátttökugjald: Félagsmenn kr.
2.000, aðrir 2.500. Unglingar 15 ára
og yngri: Félagsmenn: 1.500, aðrir
2.000. Tímamörk: 1½ klukkustund
á 36 leiki + ½ klst. til að ljúka
skákinni.
Skákmót
á næstunni
4.2. TR. Hraðskákmót Rvk.
5.2. Hellir. Meistaramót Hellis
9.2. SÍ. Atskákm. Íslands, úrsl.
15.2. SÍ. NM skólaskák
25.2. Hellir. Kvennameistaramót
28.2. Hellir. Atkvöld
Endurtekið efni
Daði Örn Jónsson
Helgi Áss Grétarsson
SKÁK
T a f l f é l a g
R e y k j a v í k u r
SKÁKÞING
REYKJAVÍKUR
13.–28.1. 2001
ÞEIR sem lúra á frímerkjasafni ofan
í skúffu eða gömlum sendibréfum
uppi á háalofti ættu kannski að dusta
rykið af herlegheitunum því hver veit
nema dýrgripur leynist þar á meðal.
Danirnir tveir segja íslensk frímerki
nefnilega afar eftirsótt og það veki
ávallt sterk viðbrögð hjá kaupendum
úti í heimi þegar þau eru meðal upp-
boðsgripa.
„Ég held að það sé af því að þetta
er svo lítið land og þar af leiðandi er
hvert frímerki gefið út í smáu upp-
lagi,“ segir Preben. „Eins skiptir máli
að landið er eyja og að margir staðir
hérna eru mjög afskekktir þannig að
póstflutningur á milli þorpa og bæja
var oft á tíðum mjög erfiður. Þetta
gerir það að verkum að það er mikið
af ólíkum póststimplum frá mismun-
andi stöðum í landinu. Og þar sem
staðirnir eru svo fámennir og fáir
stóðu í bréfaskriftum áður fyrr þá eru
ekki mörg eintök af hverri póstáletr-
un fyrir hverja tegund af frímerki.“
Carl dregur fram nokkur sýnis-
horn af því sem þeim félögum hefur
áskotnast í ferð sinni þessu til árétt-
ingar og Preben heldur áfram: „Það
sem gerir þessi frímerki sérstök er
stimpillinn en þau eru stimpluð með
númeri í stað póststimpils. Það þýðir
að bréfið hefur verið póstlagt á svo fá-
mennum stað að þar hefur ekki verið
póstafgreiðsla og því hefur númerið
verið notað í staðinn. Þegar bréfið
kom svo á stærri stað hefur það verið
stimplað með póststimpli sem til-
greinir staðinn og dagsetningu.
Þannig er hreinlega hægt að rekja
hvaða leið umslagið fór frá uppruna-
staðnum og til áfangastaðarins.“
Carl tekur upp svolítinn blaðsnepil
sem greinilega er kominn til ára
sinna.
„Þetta er líka nokkuð athyglis-
vert,“ segir hann. „Þetta er vöru-
reikningur þar sem frímerkin eru
notuð til að greiða fyrir tolla og að-
flutningsgjöld. Vörurnar hafa verið
fluttar inn frá París og innflytjandinn
hefur þurft að borga tolla við inn-
flutninginn og frímerkin á bakhlið
reikningsins staðfesta að búið sé að
borga.“
140 milljóna króna frímerki
Þeir félagar segja dýrustu frímerk-
in sem þeim hafi áskotnast hingað til
séu ekki mjög verðmæt eða um það
bil 15 þúsund króna virði en árétta að
þeir séu nýkomnir til landsins. Þetta
er ekki í fyrsta sinn sem þeir skoða ís-
lensk frímerki fyrir uppboð – raunar
hafa fulltrúar frá fyrirtækinu komið
hingað að minnsta kosti einu sinni á
ári undanfarin ár og síðast voru þeir
félagar á ferð í september síðastliðn-
um. „Þá áskotnuðust okkur svo mörg
góð frímerki að okkur fannst nauð-
synlegt að koma hingað fljótt aftur,“
segir Preben. „Til dæmis fengum við
eitt bréf frá árinu 1880 eða þar um bil
og við seldum það fyrir 75 þúsund
danskar krónur (u.þ.b. 800 þúsund ís-
lenskar krónur). Svo við vorum mjög
ánægðir með þá ferð.“
En hvað vonast þeir til að finna
núna?
„Það væri stórkostlegt að finna
umslög með fyrsta frímerkinu sem
var gefið út hér á landi, skildinga-
merkinu frá 1873,“ segir Preben og
Carl bætir við: „Það er mjög sjald-
gæft að finna þau á umslögum. Að-
eins er vitað um 16 slík umslög sem
eru öll í einkaeigu og eru gríðarlega
verðmæt. Þau færu líklega ekki undir
tveimur milljónum íslenskra króna.
Þetta er það sem alla frímerkjasafn-
ara dreyma um að eignast.“
Talið berst að öðrum verðmætum
frímerkjum og Preben upplýsir að
langdýrasta frímerkið sem þeir hafi
selt hafi farið á 13 milljónir danskra
króna (tæpl. 140 milljónir íkr.). „En
það er líka langdýrasta frímerkið í
heiminum og kemur frá Svíþjóð. Það
fannst fyrir hundrað árum og er bara
til í einu eintaki.“
Verðmæti í leynum
Það er greinilegt að gömlu frí-
merkin hafa langmesta aðdráttaraflið
fyrir þá félaga og því vaknar sú
spurning hversu miklar líkur séu á
því að frímerkjasafn meðaljónsins
varðveiti einhverja dýrgripi.
„Við viljum alltaf fá að skoða söfnin
þó að það sé ekki mjög líklegt að þau
séu verðmæt,“ segir Preben hrein-
skilinn. „Ekki nema viðkomandi hafi
fengið einhver frímerki frá afa sínum
eða ömmu. Hins vegar þurfa merkin
alls ekki að vera úr frímerkjasafni því
gömul sendibréf geta verið mikils
virði. Til dæmis getur bréfið sem afi
þinn sendi ömmu þinni verið mjög
verðmætt. Við vonumst einmitt til að
finna gömul umslög og gömul póst-
kort með frímerkjum á. Og þegar við
segjum gamalt þá meinum við fyrir
1940 og jafnvel fyrir aldamótin 1800–
1900. Slíkir hlutir gætu reynst mjög
verðmætir.“
Carl sýnir tvö frímerki sem búið er
að handskrifa „Brjánsl“ þvert yfir:
„Eitthvað þessu líkt gæti leynst í
venjulegu safni. Ég hef aldrei áður
séð handskrift í stað stimpils en það
kemur til vegna þess að stimpillinn
hefur líklega verið týndur eða ónýtur
og því hefur póstafgreiðslumaðurinn
handskrifað bæjarheitið Brjánslæk-
ur í stað stimpilsins.“
Preben og Carl segja miklu skipta
hversu vel útlítandi frímerkin eru og
þá fyrst og fremst hversu vel þau eru
varðveitt. Mikilvægt sé að stimpillinn
sé læsilegur, að það sé hægt að lesa
hvar og hvenær bréfið var póstlagt,
að frímerkin séu með öllum tökkun-
um á og að fallega sé skrifað á um-
slagið. „Frímerkið hrapar mjög í
verði þó það vanti bara einn takka eða
eitt horn á það,“ segir Carl. „Þá er
verðmæti þess aðeins 5–10 prósent af
því sem það væri annars.“ Preben
segir hins vegar hönnun þeirra og
fagurfræðilegt útlit skipta litlu máli:
„Þau voru einfaldlega svona útlítandi
í þá daga.“
Í huga fáfróðs blaðamanns er hinn
dæmigerði frímerkjasafnari gamall
karl sem dvelst langtímum við rykugt
skrifborð með stækkunargler í ann-
arri hendi. Preben er fljótur að leið-
rétta þennan misskilning. „Aldurs-
dreifingin er mjög mikil,“ segir hann.
„Frímerkjasöfnun er vinsælasta
áhugamálið í heiminum – það er ekk-
ert annað áhugamál sem jafn margir
stunda. Þannig að það er engin hætta
á að frímerkjasöfnun muni leggjast
af. Hins vegar er þetta hljóðlátt
áhugamál sem ekki krefst mikillar
líkamlegrar orku af þeim sem stund-
ar það og því höfðar það eðlilega mik-
ið til gamals fólks líka.“
Þeir Carl og Preben verða hér á
landinu út daginn í dag og fyrir þá
sem hafa áhuga á að sýna þeim frí-
merki skal þess getið að hægt er að
hitta þá á Hótel Esju í dag milli
klukkan 10 og 12.
Sendibréfið frá afa
gæti verið verðmætt
Morgunblaðið/Kristinn
Preben Jensen og Carl Åge Møller frá Thomas Høiland Auktionar.
Tveir danskir frímerkjasérfræðingar, Carl Åge Møller og Preben
Jensen, frá uppboðsfyrirtækinu Thomas Høiland Auktionar í
Kaupmannahöfn eru staddir hér á landi til að skoða íslensk
frímerki fyrir næsta uppboð fyrirtækisins. Bergþóra Njála
Guðmundsdóttir hitti þá að máli.