Morgunblaðið - 03.02.2001, Page 64
DAGBÓK
64 LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Dell-
ac kemur í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Lómur fer í dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur, Sól-
vallagötu 48, Reykjavík.
Skrifstofan er opin alla
miðvikudaga frá kl. 14–
17. Sími 551-4349. Fata-
úthlutun og fatamóttaka
er opin annan og fjórða
hvern miðvikudag í mán-
uði, frá kl. 14–17 sími
552-5277. Ásgerður Jóna
Flosadóttir, formaður s.
897-1016, fax 544-4660.
e-mail dalros@island-
ia.is.
Stuðningsfundir fyrr-
verandi reykingafólks.
Fólk sem sótt hefur
námskeið gegn reyk-
ingum í Heilsustofnun
NLFÍ, Hveragerði,
fundur í Gerðubergi á
þriðjud. kl. 17.30.
Mannamót
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50. Á
mánudag verður félags-
vist kl. 13:30. Púttæfing í
Bæjarútgerðinni mánu-
dag kl. 10–12, tréút-
skurður í Flensborg kl.
13. Á þriðjudag verður
bridge og saumar. Línu-
dans á miðvikudag kl.
11. Á miðvikudag og
föstudag verður mynd-
mennt.
Félagstarf aldraðra
Garðabæ. Bókmennta-
hópur og leshringu í
bókasafninu 5. feb. kl.
10.30. Spilakvöld, félags-
vist á Álftanesi 8. feb. kl.
19.30. Akstur samkv.
áætlun.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós! Félagsstarfið á
Hlaðhömrum er á
þriðjudögum og fimmtu-
dögum, kl. 13–16.30, spil
og föndur. Leikfimi er í
íþróttasal á Hlaðhömr-
um á þriðjudögum kl. 16.
Sundtímar á Reykja-
lundi kl. 16 á mið-
vikudögum á vegum
Rauðakrossdeildar Mos.
Pútttímar eru í Íþrótta-
húsinu á Varmá kl. 10–
11 á laugardögum. Kór-
æfingar hjá Vorboðum
Kór eldri borgara í Mos.
eru á Hlaðhömrum
á fimmtudögum kl. 17–
19.
Uppl. hjá Svanhildi í s.
586-8014 kl. 13–16.
Tímapöntun í fót- hand-
og andlitssnyrtingu,
hárgreiðslu og fótanudd,
er í s. 566-8060 kl. 8–16.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Félagi eldri
borgara í Reykjavík, Ás-
garði, Glæsibæ. Kaffi-
stofan er opin virka daga
frá kl. 10–13. Matur í há-
deginu. Leikhópurinn
Snúður og Snælda munu
frumsýna sunnudaginn
4. febrúar kl. 17. í
Glæsibæ, „Gamlar perl-
ur“ sem eru þættir vald-
ir úr fimm gömlum
þekktum verkum. Sýn-
ingar eru fyrirhugaðar á
miðvikudögum kl. 14 og
sunnudögum kl. 17.
Mánudagur: Brids kl. 13
ath. sveitakeppni hefst.
Þriðjudagur: Skák kl.
13.30 og alkort spilað kl.
13.30.
Miðvikudagur: Göngu-
Hrólfar fara í létta
göngu frá Ásgarði,
Glæsibæ, kl. 10.
Laugardagur 10. febrú-
ar kl. 13.30. Fyrsti
fræðslufundur „Heilsa
og hamingja“ verður
laugardaginn 10. febrú-
ar kl. 13.30. í Ásgarði
Glæsibæ Ólafur Ólafs-
son, formaður FEB, og
fyrrverandi landlæknir
gerir grein fyrir rann-
sóknum sínum á heilsu-
fari aldraðra. Þorsteinn
Blöndal yfirlæknir
greinir frá helstu sjúk-
dómum í lungum, sem
aldraðrir verða fyrir.
Allir velkomnir.
Aðalfundur FEB verður
haldinn í Ásgarði,
Glæsibæ 24. febrúar kl.
13.30. Tillaga kjör-
nefndar um formann og
aðra stjórnarmenn
félagsins liggur frammi
á skrifstofu F.E.B. Til-
lögur félagsmanna um
einstaka menn til stjórn-
arkjörs skulu berast
skrifstofu F.E.B. eða
kjörnefnd fyrir 9. febrú-
ar nk.
Breyting hefur orðið á
viðtalstíma Silfurlín-
unnar opið verður á
mánudögum og mið-
vikudögum frá kl. 10–12.
Upplýsingar á skrifstofu
FEB í síma 588-2111 kl.
10 til 16.
Gerðuberg, félagsstarf.
Sund og leikfimiæfingar
í Breiðholtslaug á mánu-
dögum kl. 9.25 og
fimmtudögum kl. 9.30.
Umsjón Edda Baldurs-
dóttir íþróttakennari.
Bankaþjónusta mánu-
daginn 5. febrúar kl.
13.30–14.30. Á þriðjudag
kl. 13 boccia og á föstu-
dögum kl. 9.30, umsjón
Óla Stína. Fimmtudag-
inn 22. febrúar er leik-
húsferð í Þjóðleikhúsið
að sjá leikritið „Með
fulla vasa af grjóti“,
skráning hafin.
Allar upplýsingar um
starfsemina á staðnum
og í síma 575-7720.
Kirkjustarf aldraðra
Digraneskirkju. Opið
hús þriðjudag frá kl. 11.
Leikfimi, matur, helgi-
stund og fræðsla. Verið
velkomin.
Kvenfélag Háteigs-
sóknar. Fundur verður
haldinn þriðjudaginn 6.
febrúar kl. 20 í safn-
aðarheimilinu. Kynning
á prjónagarni og upp-
skriftum.
Félag breiðfirskra
kvenna. Aðlafundur
félagsins verður mánu-
daginn 5. febrúar kl. 8.
Mætum allar og eflum
félagið.
Úrvalsfólk. Vorfagn-
aður Úrvalsfólks verður
haldinn á Hótel Sögu,
Súlnasal, föstudaginn
16. febrúar kl. 19. Miða-
og borðapantanir hjá
Rebekku og Valdísi í
síma 585-4000.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Nánari
uppl. á skrifstofu GÍ, s.
530-3600.
Minningarkort
Minningarkort ABC
hjálparstarfs eru af-
greidd á skrifstofu ABC
hjálparstarfs í Sóltúni 3,
Reykjavík í s. 561-6117.
Minningargjafir greið-
ast með gíróseðli eða
greiðslukorti. Allur
ágóði fer til hjálpar
nauðstöddum börnum.
Minningarkort Barna-
heilla til stuðnings mál-
efnum barna fást af-
greidd á skrifstofu
samtakanna á Lauga-
vegi 7 eða í síma 561-
0545. Gíróþjónusta.
Barnaspítali Hringsins.
Upplýsingar um minn-
ingarkort Barnaspítala-
sjóðs Hringsins fást hjá
Kvenfélagi Hringsins í
síma 551-4080. Kortin
fást í flestum apótekum
á höfuðborgarsvæðinu.
Minningarkort barna-
deildar Sjúkrahúss
Reykjavíkur eru af-
greidd í síma 525-1000
gegn heimsendingu
gíróseðils.
Minningarkort Thor-
valdsensfélagsins eru til
sölu á Thorvaldsens-
bazar, Austurstræti 4, s.
551-3509.
Minningarkort Stóra-
Laugardalssóknar,
Tálknafirði til styrktar
kirkjubyggingarsjóði
nýrrar kirkju í Tálkna-
firði eru afgreidd í síma
456-2700.
Minningarspjöld Frí-
kirkjunnar í Hafn-
arfirði fást í Bókabúð
Böðvars, Pennanum í
Hafnarfirði og Blóma-
búðinni Burkna.
Minningarkort Áskirkju
eru seld á eftirtöldum
stöðum: Kirkjushúsinu
Laugavegi 31, þjón-
ustuíbúðum aldraðra við
Dalbraut, Norðurbrún 1,
Apótekinu Glæsibæ og
Áskirkju, Vesturbrún
30, sími 588-8870.
KFUM og KFUK og
Samband íslenskra
kristniboða. Minning-
arkort félaganna eru af-
greidd á skrifstofunni,
Holtavegi 28 í s. 588-
8899 milli kl. 10 og 17
alla virka daga. Gíró- og
kredidkortaþjónusta.
Minningarkort Kven-
félags Langholtssóknar
fást í Langholtskirkju
sími 520-1300 og í
blómabúðinni Holta-
blómið, Langholtsvegi
126. Gíróþjónusta er í
kirkjunni.
Minningarkort Kven-
félags Neskirkju fást
hjá kirkjuverði Nes-
kirkju, í Úlfarsfelli,
Hagamel 67 og í Kirkju-
húsinu v/Kirkjutorg.
Minningarkort Kven-
félagsins Hringsins í
Hafnarfirði fást í blóma-
búðinni Burkna, hjá
Sjöfn s. 555-0104 og hjá
Ernu s. 565-0152 (gíró-
þjónusta).
Í dag er laugardagur 3. febrúar,
34. dagur ársins 2001. Blasíumessa.
Orð dagsins: Látið fætur yðar feta
beinar brautir, til þess að hið fatlaða
vindist ekki úr liði, en verði heilt.
(Hebreabréfið 12, 13.)
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
LÁRÉTT:
1 lögun, 8 litlir munnar, 9
hryggð, 10 held, 11 kaka,
13 nemur, 15 menntaset-
ur, 18 moð, 21 hlemmur,
22 skapvond, 23 yfirhöfn-
in, 24 fágar.
LÓÐRÉTT:
2 málmur, 3 hluta, 4 ein-
kenni, 5 afkvæmi, 6 mjög
góð, 7 þrjóskur, 12 verk-
færi, 14 þjóta, 15 veik, 16
guð, 17 vondur, 18 skips,
19 Sama, 20 duglega.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 hamur, 4 valan, 7 rósin, 8 rifur, 9 gat, 11 Adam,
13 erta, 14 ætlar, 15 glær, 17 rúma, 20 frá, 22 lundi, 23
lifur, 24 norpa, 25 aðrar.
Lóðrétt: 1 harma, 2 moska, 3 röng, 4 vart, 5 lofar, 6
narra, 10 aular, 12 mær, 13 err, 15 gálan, 16 ærnar, 18
úlfur, 19 aurar, 20 fita, 21 álka.
K r o s s g á t a
Í MÖRG ár hefur það verið
siður hjá mér og minni fjöl-
skyldu að rölta Laugaveg-
inn á Þorláksmessu og enda
síðan inni á veitingastað og
borða saman. Við héldum
uppteknum hætti sl. Þor-
láksmessu og enduðum inni
á veitingastaðnum Sjanghæ
en þangað höfðum við oft
komið áður. Fullt var á
staðnum en okkur var boðið
að bíða eftir borði, sem við
þáðum. Sú bið varð ekki
löng og var okkur brátt vís-
að til borðs á efri hæð stað-
arins. Þá fyrst byrjuðu
raunir okkar. Ekki gátum
við merkt áhuga hjá þjón-
ustufólki til að sinna okkur
og taka niður pöntun en við
töldum það eiga sér eðlileg-
ar skýringar í miðri jólaös-
inni. Eftir drykklanga
stund gátum við þó gert
þjónustufólki ljóst að við
vildum panta mat og drykk.
Gekk það eftir og svo hófst
biðin á ný. Eftir drjúga
stund komu drykkirnir en
ekki bólaði á matnum og
enn biðum við. Þegar við
höfðum setið ca. 40 mínútur
við borðið kom loks matur-
inn fyrir yngsta fjölskyldu-
meðliminn en það vantaði
sósuna. Við kvörtuðum og
spurðum einnig um matinn
fyrir hina. Við ætluðum jú
að borða saman. „Ó, ég skal
tala við kokkinn,“ svaraði
þjónustustúlkan með undr-
unarsvip. Tíu mínútum síð-
ar var engin sósa komin og
yngsti fjölskyldumeðlimur-
inn búinn með matinn. Enn
liðu tíu mínútur og þá kom
sósan, en bara of seint. Við
reyndum að brosa og ítrek-
uðum spurninguna um mat
fyrir hina. Málið var í at-
hugun að sögn þjónustu-
stúlkunnar og enn biðum
við. Nú höfðum við setið í
um klukkutíma við borðið
og ekki bólaði á matnum
fyrir hina. Við reyndum af
og til að vekja athygli á
vandræðum okkar en án ár-
angurs. Enn liðu tuttugu
mínútur og ekki var laust
við að farið væri að síga í
mannskapinn. Yngsti fjöl-
skyldu meðlimurinn nöldr-
aði yfir garnagauli, ungling-
urinn 15 ára reifst í
GSM-símann og afboðaði
stefnumótið niðri í bæ og sú
tvítuga íhugaði alvarlega
málsókn á hendur veitinga-
staðnum. Kvöldið var farið
að taka á sig mynd ömur-
leika og gremju. Loks náð-
um við sambandi við þjón-
ustustúlkuna og tjáðum
henni að við værum við það
að gefast upp á biðinni.
Fimm mínútum síðar kom
maturinn, – fyrir þrjá, – en
það vantaði fyrir ungling-
inn. Við kvörtuðum sem
fyrr og ítrekuðum að við
hefðum ætlað að borða sam-
an. Þjónustustúlkan virtist
alltaf jafnhissa og lofaði að
ræða við kokkinn. Við borð-
uðum nú saman, þrjú af
fimm. Maturinn reyndist
kaldur og ólystugur en við
létum okkur hafa það. Tíu
mínútum síðar kom síðasti
skammturinn, fyrir ung-
linginn. Hann reyndist líka
kaldur og ólystugur og sós-
una vantaði sem fyrr. Við
kvörtuðum og báðum um að
afgreiðslu á desert yrði
hraðað. Þjónustustúlkan
lofaði enn einu sinnu að
ræða málið við kokkinn.
Hún kom að vörmu spori
aftur og nú með mat fyrir
yngsta fjölskyldumeðlim-
inn, – aftur. Við vorum nú
hætt að geta brosað að
klúðrinu og bentum stúlk-
unni á að hún hefði komið
með mat fyrir þennan aðila
fyrir um klukkustund síðan.
Ekkert bólaði á sósunni og
við ítrekuðum beiðni okkar
um að hraða desertnum. „Ó,
var desert með, ég skal tala
við kokkinn,“ sagði stúlkan
með sömu undrunina í rödd-
inni. Drjúg stund leið og
höfðum við nú setið við
borðið í um tvær klukku-
stundir. Þá kom desertinn,
en bara tveir af fjórum. „Ó,
áttu að vera fjórir, ég skal
tala við kokkinn,“ svaraði
stúlkan sem fyrr. Þegar hér
var komið sögu höfðum við
endanlega fengið nóg. Við
báðum stúlkuna vinsamleg-
ast að hafa ekki fyrir því að
sækja það sem á vantaði.
Veitingastaðurinn Sjanghæ
mátti eiga það sem eftir var
af matseðlinum. Við stóðum
upp, borguðum og fórum út.
Í leiðinni gat ég ekki látið
hjá líða að lýsa vanþóknum
minni á þjónustu og fram-
komu starfsfólks Sjanghæ
þetta kvöld. Mér fannst
þetta vera til skammar. En
þá tók ekki betra við. „Það
er alveg óþarfi að vera með
hótanir hér,“ sagði einn
starfsmanna. „Við vorum að
gera ykkur greiða með því
að láta ykkur hafa borð,“
sagði ein þjónustustúlkan.
„Það eru allir að reyna að
gera sitt besta,“ sagði önn-
ur. Okkur var öllum lokið.
Ef þetta er það besta,
hvernig er þá það versta?
Við höfum aldrei á ævinni
upplifað aðra eins þjónustu
á nokkrum veitingastað.
Þetta var ömurleg upplifun
og algjör eyðilegging á ann-
ars góðum degi. Við hefðum
betur setið heima. Það er al-
veg ljóst að á veitingastað-
inn Sjanghæ förum við aldr-
ei aftur.
Runólfur Gunnlaugsson,
Langholtsvegi 112, Rvk.
Dýrahald
Skuggi er týndur
SKUGGI er kolsvartur,
ógeltur, tæplega ársgamall
högni. Hann var með hvíta
ól. Hann hvarf frá neðri
hluta Bræðraborgarstígs
þriðjud. 30. jan. sl. Hann var
að flytja sama dag og hann
hvarf í þetta hverfi. Vinsam-
legast hafið samband við
Hrafnhildi í s. 690-1477 eða
Viktoríu í s. 868-3032.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Ömurleg
upplifun
Víkverji skrifar...
FYRIR skömmu komu tværbandarískar konur í heimsókn til
Víkverja. Þetta voru konur á miðjum
aldri sem voru á ferðalagi með ís-
lenskri vinkonu sinni sem búsett er í
Bandaríkjunum.
Konurnar tvær, sem aldrei höfðu
áður komið til landsins, voru yfir sig
hrifnar af landi og þjóð. Þeim fannst
maturinn góður, fólkið vingjarnlegt
og ekki síst fannst þeim spennandi að
fata sig upp hér á landi. Önnur þeirra
hafði keypt sér föt fyrir á annað
hundrað þúsund krónur og hin konan
hafði fatað sig upp fyrir eitthvað að-
eins lægri upphæð. Það sem Víkverja
fannst athyglisvert er að innkaupin
höfðu þær gert að mestu leyti á Skóla-
vörðustíg í þremur verslunum þar.
Þær áttu ekki orð til að lýsa hrifningu
sinni á þessari verslunargötu, þjón-
ustunni sem þær fengu, þeim varn-
ingi sem þar fékkst, fatnaði og einnig
listmunum. Þær keyptu fötin aðallega
á útsölum við Skólavörðustíginn og
konurnar sögðu að fatnaður eins og sá
sem þær höfðu keypt væri allt öðru-
vísi en það sem þeim stæði alla jafna
til boða í Bandaríkjunum. Þó sögðu
þær að finna mætti þar sérverslanir
sem byðu svipuð gæði. Fatnaðurinn
þar væri þá jafnvel dýrari en þessi
sem þær keyptu hér á landi.
x x x
Í HAUST keypti Víkverji handaungri dóttur sinni myndarlegan
bakpoka í Pennanum sem kostaði um
7.000 krónur. Taskan, sem var
skrautleg, var með dýrari bakpokum
sem til voru í versluninni, þ.e.a.s. sem
passaði hennar aldri.
Nú í vikunni, fimm mánuðum síðar,
tók rennilásinn upp á því að bila og
stúlkan dró fram gamla bakpokann
og setti þennan til hliðar.
Víkverji var ekki á því að láta bjóða
sér þessa endingu og lagði leið sína í
verslunina og kvaðst ósáttur við að
taskan dygði bara í nokkra mánuði.
Viðbrögðin voru á þann veg að Vík-
verji mun leggja leið sína í Pennann
aftur. Honum var um leið boðið að
velja sér nýja tösku eða fá innleggs-
nótu. Þar sem dóttir Víkverja var
ákaflega hrifin af töskunni sinni vildi
Víkverji helst svipaða tösku. Þær
voru búnar í búðinni og konan sem af-
greiddi lagði það á sig að hringja í
aðrar verslanir Pennans uns hún
hafði upp á eins tösku. Hún lét síðan
taka töskuna frá fyrir Víkverja og
heimasætuna.
x x x
VÍKVERJI hefur áhuga á ræktunblóma og trjáa og hefur tekið
eftir því að kirsuberjatréð í sólstof-
unni hans er að byrja að bruma og
einnig vínberjaplantan. Þær eru
miklu fyrr á ferðinni en í fyrra og Vík-
verja stóð ekki á sama, þ.s. þetta eru
uppáhaldsplönturnar. Kirsuberjatréð
sá til þess að hann fékk kirsuber í
marga eftirrétti í fyrra og vínberja-
plantan á víst að bera ávöxt í sumar.
Hann fékk hins vegar þær upplýs-
ingar hjá garðyrkjufræðingi að þetta
væri eðlilegt í ljósi þess hve tíðin hef-
ur verið góð undanfarið og bjart síð-
ustu daga. Ráðlegging hans var að
byrja samt hægt að auka vökvun og
áburðargjöf, fylgjast bara með plönt-
unum og íhuga að bæta við áburði og
vökvun þegar laufblöð væru farin að
koma í ljós. Ef frystir á næstunni þá
þarf líklega að passa vel upp á þær.