Morgunblaðið - 03.02.2001, Page 67
TRÍÓ þeirra Björns Thorodd-sen, Jóns Rafnssonar ogGunnars Þórðarssonar; Gu-
itar Islancio, hefur haft í nógu að
snúast síðan fyrsta geislaplatan,
samnefnd sveitinni, kom út síðla
árs 1999. Sambræðsla þeirra á
djassi og þjóðlagaarfleifð hitti í
mark, innanlands sem utan, og
virðast þeir félagar sannarlega hafa
dottið niður á töfrum slegið reikni-
líkan. Í dag kl. 16 mun sveitin leika
í Norræna húsinu, húsi sem þeim
félögum er hlýtt til, að sögn Björns.
„Við höfum spilað þar tvisvar eða
þrisvar áður. Okkur finnst við vera
á heimavelli þarna.“ Hann bætir því
svo við að eitt af fyrstu verkefnum
tríósins hafi einmitt verið hljóm-
leikaferðalag um Skandinavíu.
Það hefur mikið og margt verið á
seyði að undanförnu hjá sveitinni
og ýmislegt er í bígerð einnig.
„Önnur plata okkar, Guitar Islancio
II, kom út fyrir síðustu jól og í kjöl-
farið höfum við verið að spila á
ýmsum stöðum, tókum til dæmis
rúnt um elliheimilin og höfum líka
verið að spila hjá ýmsum tónlistar-
félögum víða um land,“ segir Björn.
Guitar Nippon?!
Heimsókn til Kanada, hvar farið
var á Íslendingaslóðir, varð og far-
sæl. „Þar var okkur tekið ofboðs-
lega vel. Vestur-Íslendingarnir
vildu eiga hvert bein í okkur,“ segir
Björn og hlær við. Og framundan
eru frekari ævintýr. „Það er Jap-
ansferð í haust,“ segir Björn snjöll-
um rómi. „Við förum svo til Evrópu
í vor, m.a. til Þýskalands og Dan-
merkur. Svo verður að öllum lík-
indum önnur Kanadaferð en það er
lagt hart að okkur að fara í aðra
slíka ferð.
Þess má til gamans geta hér að
lokum að í Japan munum við spila
með þarlendum gítarleikara, Cas-
umi Vatanabe að nafni, en hann er
víst mikil stjarna þar í landi.“
Íslenskt?
– Já, takk!
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Guitar Islancio í sveiflu, Gunnar, Jón og Björn.
Guitar Islancio í Norræna húsinu
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2001 67
Næg bílastæði
Hljómsveitin
Spútnik
leikur frá miðnætti
Vesturgötu 2, sími 551 8900
Ath! Tónleikar með Bubba Morthens nk. sunnudagskvöld kl. 21
gítar: bjarni halldór kristjánsson
trommur: ingólfur sigurðsson
bassi: kristinn gallagher
söngur: kristján gíslason
hljómborð: þórir úlfarsson
GUÐRÚN Bjarnadóttir, nemi í
Kvennaskólanum, er orðin kunnug-
legt kvikmyndaandlit þrátt fyrir ung-
an aldur. Einhverju sinni var hún að
baksa við afgreiðslustörf í söluturni
í Þingholtunum er Baltasar Kor-
mákur, leikari, vindur sér inn og
býður henni hlutverk í mynd sinni,
101 Reykjavík. Guðrún þáði með
þökkum og í kjölfarið bauðst henni
hlutverk í myndinni Villiljós – mynd
sem byggist á fimm ólíkum sögum
– en hún lék eitt aðalhlutverkanna í
einni þeirra. Það er því í hæsta
máta einkennilegt að hún hafi hafn-
að boði um hlutverk í Notting Hill-
myndinni...
Hvernig hefur þú það í dag?
Allsæmilegt, þakka þér fyrir.
Hvað ertu með í
vösunum í augnablikinu?
Fjögurra blaða smára og atóm-
minningar.
Hvert er draumastarfið
í framtíðinni?
Að vera innblástur kærasta míns
og leikkona.
Bítlarnir eða Rolling Stones?
Stones eru snillingar…en af hverju
ekki Police – þeir voru bestir.
Hverjir voru fyrstu tónleikarnir
sem þú fórst á (manst eftir að
hafa farið á)?
Einhverjir pönktónleikar
úti í Hollandi.
Hvaða ,,hlut“ myndir þú fyrst
bjarga úr eldsvoða?
Kærastanum mínum…
svo sjálfri mér.
Hver er þinn helsti veikleiki?
Óákveðni.
Hefurðu tárast í bíói
(hvenær síðast)?
Á Dancer in the Dark.
Finndu fimm orð sem lýsa
persónuleika þínum vel.
Ef ég myndi hitta sjálfa mig gæti ég
svarað þessu…
Hvaða lag kveikir blossann?
Eitthvað með Bob
Marley eða Sade.
Hvert er þitt mesta
prakkarastrik?
Ég lék tvíbura þegar ég kynntist
kærasta mínum.
Hver er furðulegasti matur sem þú
hefur bragðað? (hvar og hver eld-
aði?)
Brauð með sultu, smjöri,
gulum baunum og
kanel…sem kærastinn gerði.
Hvaða plötu keyptirðu síðast?
Tónlistina úr kvikmyndinni Gattaca
… yndisleg tónlist.
Hvaða leikari fer mest í taugarnar
á þér (erlendur sem innlendur og
af hverju)?
Kannski bara Sean Penn því hann
er svo skuggalega góður…annars
heldur kærastinn minn að hann sé
sjálfur besti leikari í heimi, sem er
nett pirrandi.
Hverju sérðu mest eftir í lífinu?
Að hafa hafnað hlutverkinu í Nott-
ing Hill.
Trúir þú á líf eftir
dauðann? (af hverju?)
Já, kannski er lífið dauði og dauð-
inn líf eins og Grikkinn sagði...
„Police – þeir voru bestir“
SOS
SPURT & SVARAÐ
Guðrún
Bjarnadóttir
MARSHALL nokkur Mathers, bet-
ur þekktur sem rapparinn Em-
inem hélt tónleika í Ósló á
fimmtudagskvöldið.
Tónleikarnir voru
haldnir í Ósló Spek-
trum og voru tæp-
lega 10 þúsund æstir
aðdáendur goðsins
þar saman komnir.
Eminem, sem hef-
ur verið gagnrýndur
fyrir fordóma af
ýmsu tagi í textum
sínum, sýndi það og
sannaði á tónleik-
unum að hann er
samúðarfullur ung-
ur maður. Er tón-
leikarnir voru langt
á veg komnir bað
hann áhorfendur að
minnast í þögn hins fimmtán ára
gamla Benjamins Hermansen sem
myrtur var af nýnasistum í Ósló
fyrir viku. „Ég vil biðja um nokk-
urra sekúndna þögn sem virðing-
arvott við vin okkar Benjamin
sem gat ekki verið hér á tónleik-
unum í kvöld,“ sagði Eminem. Þá
fordæmdi hann morðið og sagði
nasista best geymda á ákveðnum
stað sem ekki er viðeigandi að
nefna hér. Fyrr um daginn höfðu
40 þúsund Óslóarbúar gengið um
götur borgarinnar með kyndla til
að mótmæla auknu ofbeldi og
uppgangi nasisma
og kynþátta-
fordómum í landinu.
Það var ekki að
spyrja að því, Em-
inem hafði eftir hina
stuttu kyrrðarstund
áhorfendur gjör-
samlega í hendi sér.
Eminem mætti
með vélsög inn á
sviðið í upphafi tón-
leikanna syngjandi
lagið „My Name Is“.
Tónleikarnir voru
frá upphafi til enda
stórkostleg skemmt-
un, leikriti líkust,
sagði m.a. í umfjöll-
un um þá í norskum fjölmiðlum.
„Ég verð að vera hreinskilinn.
Þið eruð bestu áhorfendur sem ég
hef nokkru sinni haft,“ sagði Em-
inem við lok tónleikanna. „Mig
langar ekki að fara héðan.“
Sennilega segir hann þetta á
hverjum stað, en hvað sem því líð-
ur þá á hann orðið sterkan áhorf-
endahóp í Noregi sem bíður
spenntur eftir næstu heimsókn
hans.
Eminem minntist
Benjamins
Þrándheimi. Morgunblaðið.
Þótt Eminem hafi verið
við sama skuggalega
heygarðshornið í Ósló
sýndi hann á sér áður
óþekkta mannlega hlið.
Reuters
Morgunblaðið/Þorkell