Morgunblaðið - 03.02.2001, Side 68
FÓLK Í FRÉTTUM
68 LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Það rignir allt í kring,
já, rignir allt í kring,
af einskærri kæti ég dansa og syng.
Ég skríki og hlæ
að skýjum er sjást
með sól í hjarta og sumar og ást...
Það er kunnuglegt lagið sem óm-
aði í æfingasal Þjóðleikhússins
þegar blaðamaður læddist inn í
áheyrnarpróf fyrir söngleikinn
Syngjandi í rigningunni sem Þjóð-
leikhúsið er að hefja æfingar á, og
frumsýnir í byrjun apríl.
Salurinn er fullur af einbeittum
og sveittum leikurum að reyna að
ná flóknum steppsporunum sem
leikstjórinn Kenn Oldfield hefur
fyrir þeim, og ekkert virðist auð-
veldara þar sem Kenn flýgur um
gólfin. En þótt sporin flækist fyrir
sumum verður sýningin sjálfsagt
glæsilegt, eða eins og eins leikkon-
an segir: „Kenn er snillingur í að
láta líta út fyrir að maður geti
dansað þegar maður kann það alls
ekki.“
Að hlaupa upp veggi
Þeir sem hafa séð kvikmyndina
Singin’ in the Rain frá árinu 1952,
muna að aðalhlutverkin í söng-
leiknum eru fjögur. Gene Kelly
leikur kvikmyndastjörnuna Don,
Donald O’Connor leikur hinn óvið-
jafnanlega félaga hans, Cosmo,
Debbie Reynolds leikur Kathy,
sem Don fellur fyrir, og Jean Hag-
en leikur hina skrækróma Linu La-
mont. Búið var að ráða í karlhlut-
verkin þegar blaðamann bar að
garði og það er Rúnar Freyr Gísla-
son sem leikur Don og Stefán Karl
Stefánsson sem leikur Cosmo, og
líst honum bara vel á hlutverkið.
„Í myndinni hleypur Donald
O’Connor upp veggi og fleira. Ætli
ég reyni ekki fyrst að ná tökum á
steppinu svo ég komist skamm-
laust frá því,“ segir Stefán Karl og
glottir. „Þetta atriði í bíómyndinni
Make’em Laugh með Donald er al-
veg rosalegt og ég hlakka til að
takast á við það. Það er samt áreið-
anlega svo erfitt að þegar ég horfi
á það, langar mig helst til að fá
þriggja mánaða flensu og þurfa
ekki að gera þetta. Enda með flott-
ari dansatriðum sem maður hefur
séð. En markmiðið er náttúrlega
ekki að vera eins og Donald heldur
gæða karakterinn svipuðum per-
sónueinkennum. Og þegar ég verð
kominn inn í þessa persónu kemur
vonandi eitthvað skemmtilegt út.“
– Og það verður gaman að sjá
sýninguna, skemmtilegra en mynd-
ina?
„Allar þessar gömlu dansmyndir
eru svo mikið svið og stúdíó. Það er
miklu skemmtilegra að sjá þessi
verk á sviði. Svo hellirignir í þessu
leikriti og allir eru í regnkápum.
Hvernig ætla þeir að láta rigna á
sviðið í Þjóðleikhúsinu?“ spyr Stef-
án Karl sig. „Það verður gaman að
sjá.“
Gott að lyfta sér upp
Rúnar Freyr Gíslason leikur
Don og það er óneitanlega forvitni-
legt að vita hvernig honum líst á að
feta í dansspor sjálfs Gene Kelly.
„Ég er dálítið hræddur við það,“
viðurkennir leikarinn og hlær.
„Kelly er meistari steppsins en ég
kann eiginlega ekki að steppa. Ég
hafði ekki einu sinni prófað það þar
til fyrir rúmum mánuði, þegar við
leikararnir fórum á stutt námskeið.
Það er samt ótrúlega gaman, eins
og að dansa og syngja yfirleitt. Og
það verður að segjast að þegar
maður er búinn að vera í nokkrum
dramatískum verkum í röð þá er
gaman að lyfta sér upp með þessu.“
– En er hlutverkið skemmtilegt?
„Já, ég held það, annars var ég
bara að lesa handritið í nótt. Það er
svolítið svipað myndinni, sem ég sá
aftur í gær. Ég fékk „sjokk“, Gene
Kelly er svo ótrúlega góður. Mynd-
in er reyndar algjört Gene Kelly
„show“. Í leikritinu eru mun fleiri
persónur og það mæðir því minna á
mér.“
Skemmtilegar rullur
Í áheyrnarprófinu var enn óráð-
ið í kvenhlutverkin tvö, og sagði
Inga María Valdimarsdóttir leik-
kona að það ríkti ekki jafnmikil
spenna í kringum það, eins og
vænta mætti.
„Báðar rullurnar eru mjög
skemmtilegar og vissulega væri
gaman að hljóta aðra þeirra,“ segir
Inga María. „En svo eru miklu
fleiri hlutverk í söngleiknum en í
bíómyndinni, svo það er bara að
bíða og sjá.“ Líkt og aðrir leikarar
í sýningunni, kvíðir Inga María
steppdansatriðunum. „Það er alltaf
hægt að krafla sig fram úr ein-
hverjum dansi, en steppið er bara
allt annað og meira.“
Og þá er eins gott að æfa sig vel
með Kenn sem líkir þessu við að
æfa einleik, svo mikið sé álagið.
Enda töluðu leikararnir um að það
þyrfti helst tvöfaldan æfingatíma í
svona söngleik. Best væri að mæta
á æfingu með allan textann og kar-
akterinn unninn, vinna dansatriðin
og sönginn í leikhúsinu, og sjóða
allt saman þegar nær drægi frum-
sýningu. Jafnvel eins og að vinna
tvö leikrit á einu æfingatímabili.
En öll voru þau sammála um að
þetta væri krefjandi en skemmti-
legt, um leið og þau skelltu sér aft-
ur í dansinn: „ball change, hop,
step“.
Gaman að leika á móti mann-
inum mínum
Fyrsti samlestur var í fyrradag
og þá kom í ljós að Selma Björns-
dóttir fékk hlutverk Kathy og Þór-
unn Lárusdóttir mun túlka Linu
Lamont.
Þessa dagana er Selma að semja
dansana í Litlu hryllingsbúðina
sem er verið að setja upp í Ósló, og
var hún kölluð heim á æfingu. Hún
er mjög ánægð með að hafa fengið
hlutverkið og hefur góða ástæðu
fyrir því. „Þetta er það þrennt sem
mér finnst skemmtilegast að gera:
syngja, dansa og leika, og nú fæ ég
að gera það allt í senn.“
Selma segir að það sé mjög gam-
an á æfingum en svolítið erfitt.
„Það er mikill sviti en mjög
spennandi að fá að steppa, ég hef
ekki gert mikið af því,“ segir hún.
„Ég steppaði einhvern tímann sem
krakki, og kann örlítið fyrir mér,
en við erum á hörðum steppnám-
skeiðum sem er mjög gaman. Svo
er ekkert leiðinlegt að fá að leika á
móti manninum mínum,“ segir
Selma greinilega mjög ánægð með
það enda hafa hún og Rúnar Freyr
ekki leikið saman síðan í Grease.
„Það er gaman að endurtaka
það, þótt það sé á öðrum grundvelli
núna.“
– Er ekki flókið að vinna bæði á
Íslandi og í Noregi í einu?
„Jú, ég þarf bráðum að rjúka út
aftur til að fylgja frumsýningunni í
land, en hún verður 15. febrúar í
Ósló. Þetta er svolítið púsluspil, en
sem betur fer held ég að það nái
saman,“ sagði Selma og rauk aftur
inn á æfingu.
Hvernig
rignir í Þjóð-
leikhúsinu?
Leikararnir í Þjóðleikhúsinu voru syngjandi,
steppandi, sveittir og auðvitað brosandi þegar
Hildur Loftsdóttir sá seinast til þeirra.
Rúnar Freyr ætlar að feta í
dansspor Gene Kelly.
Inga María segir að það séu
mörg skemmtileg hlutverk í
Syngjandi í rigningunni.
Stefán Baldursson Þjóðleikhússtjóri og Jóhann G. Jóhannsson tónlistar-
stjóri fylgjast með í áheyrnarprófinu.
Stefáni Karli líst vel á hlutverk
Cosmos, þótt í því felist mikil
áskorun.
Bjarni Haukur Þórsson, Valur Freyr Einarsson og fleiri leikarar reyna
fyrir sér í steppdansinum.
Morgunblaðið/Ásdís
Kelly og Reynolds í sömu rullum og Rúnar Freyr og Selma koma til með að fara með á fjölum Þjóðleikhússins.
Æfingar hafnar á Syngjandi í rigningu