Morgunblaðið - 03.02.2001, Side 70
ÞAÐ ER sama í hvaða horn er litið vestan
hafs þessa dagana, alls staðar er hún Jennifer
Lopez blessunin. Og hún er sannarlega heitari
en allt heitt.
Ekki nóg með að hún sitji stolt á toppi bíó-
aðsóknarlistans þar sem hún leikur á móti
Matthew McConaughey í rómantísku gaman-
myndinni The Wedding Planner, heldur hefur
henni ennfremur tekist að hrinda sjálfum Bítl-
unum bresku úr toppsæti breiðskífulistans
með nýju hljómplötunni sinni J.Lo. Gripurinn
seldist líka eins og heitar lummur, fór í 272
þúsund eintökum á einni viku sem er býsna
gott.
Hún þarf hinsvegar að hafa sig alla við að
skáka við Bítlunum sem hafa selt 6 millj-
ónir eintaka vestra af safnplötu sinni 1 á
einungis átta vikum.
Þrátt fyrir alla þessa velgengni hjá Lop-
ez má búast við því að hún eigi æði erfitt
með að festa svefn þessa dagana því nú
standa yfir réttarhöld yfir kærasta henn-
ar Sean „Puffy“ Combs þar sem hann er
ákærður fyrir meðferð ólöglegra skot-
vopna og tilraun til mútna. Parið
keppist reyndar við það þessa dagana
að bera til baka stórlega ýktar sögusagnir
um að þau séu hætt saman. Lopez er nú meiri refurinn.
70 LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Vígvöllurinn Jörðin
(Battlefield Earth)
V í s i n d a s k á l d s a g a
½
Leikstjóri: Roger Christian. Hand-
rit: Corey Mandell og JR Shapiro.
Aðalhlutverk: John Travolta, Barry
Pepper, Forest Whitaker, Kim
Coates. (117 mín.) Bandaríkin.
Myndform, 2000. Myndin er
bönnuð innan 16 ára.
ÞAÐ bjuggust fáir við því að
draumaverkefni leikarans John
Travolta yrði eitthvað merkilegt,
bæði var hann
harður stuðnings-
maður vísinda-
kirkjunnar sem
höfundur bókar-
innar, L. Ron
Hubbard, stofnaði
og einnig hafði bók-
in aldrei fengið
neitt sérstaklega
góða dóma.
En hvílíkri hörmung sem kom
fram á hvíta tjaldinu óraði engan fyr-
ir. Hugmyndin er að jörðin hefur
verið hertekin af hinum tæknivæddu
og herskáu Psyclonum (með Trav-
olta og Forrest Whitaker í broddi
fylkingar) og jarðarbúar eru aðeins
nýttir sem vinnuafl og litið á þá sem
langtum óæðri verur. Einn þeirra,
Johnny Goodboy Tyler (Barry Pepp-
er), vill ekki láta geimverurnar
stjórna sér og undirbýr eins konar
„Braveheart“-byltingu til þess að
berja á yfirboðurum sínum. Hræði-
legur leikur, kjánalegir búningar og
ömurlegar tæknibrellur eru það
besta sem áhorfendur geta fengið úr
þessari mynd en sjálfur Ed Wood
hefði örugglega ekki orðið ánægður
með niðurstöðuna.
Það er sárt að sjá Travolta gera
sig að fífli á tjaldinu en þetta er alfar-
ið hans sýn svo að það er best að
hann leiki í draumaverkefnum ein-
hverra annarra.
Ottó Geir Borg
MYNDBÖND
Travolta
tapar sér
FÓLK Í FRÉTTUM
Bandaríkin
Lopez út um allt
Stretchbuxur kr. 2.900
Konubuxur frá kr. 1.690
Dragtir, kjólar,
blússur og pils.
Ódýr náttfatnaður.
Brandtex fatnaður
Nýbýlavegi 12, sími 5544433