Morgunblaðið - 15.02.2001, Síða 2

Morgunblaðið - 15.02.2001, Síða 2
FRÉTTIR 2 FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.isÞórir Jónsson ósáttur við vantraustið frá UMSK/B3 Grindavík kaupir Grétar Hjartarson af Lilleström/B1 4 SÍÐUR Viðskiptablað Morgunblaðsins Sérblað um viðskipti/atvinnulíf 16 SÍÐUR Sérblöð í dag RAFORKUVINNSLA á landinu á nýliðnu ári nam samtals 7.679 gígavattstundum (GWh) og jókst um 6,9% frá fyrra ári. Aukning raforku- vinnslu síðustu fjögur árin jafngildir allri al- mennri notkun árið 1996. Meginástæða aukn- ingarinnar er að notkun járnblendiverk- smiðjunnar á Grundartanga hefur aukist auk þess sem uppgangur í atvinnulífinu kallar á aukna raforkunotkun. Ótryggð orka var einnig afhent að fullu á árinu. Stórnotkun nam 4.682 GWh á árinu 2000 og hafði aukist um 9,3% frá árinu á undan en al- menn notkun jókst um 4,5% og nam 2.776 GWh. Tap við flutning orkunnar frá virkjunum til al- menningsveitna og stórnotenda var 221 GWh og minnkaði um 9,8% á milli ára. Í fréttatilkynningu orkuspárnefndar segir að veðurfar hafi nokkur áhrif á raforkunotkun, að- allega vegna rafhitunar húsnæðis. Til að fá eðli- legan samanburð milli ára hvað varðar þróun al- mennrar raforkunotkunar er hún því oft leiðrétt út frá lofthita. Síðasta ár var svipað og meðalár en þó heldur hlýrra en árið 1999 þegar með- alhiti ársins var nánast eins og í meðalári. Hita- stigsleiðrétting hefur því lítil áhrif árið 2000. Notkun stóriðju aukist um 90% síðustu fjögur ár Árið 1997 hófst nýtt uppbyggingarskeið stór- iðju hér á landi en þá kom í rekstur stækkun ál- verksmiðjunnar í Straumsvík og ári seinna hóf Norðurál framleiðslu. Árið 1999 hófst síðan framleiðsla í þriðja ofni járnblendiverksmiðj- unnar á Grundartanga og nú standa yfir fram- kvæmdir við stækkun Norðuráls. Þetta hefur kallað á mikla aukningu í raforku- vinnslu enda hefur notkun stóriðju aukist um 90% síðustu fjögur ár. Þegar þetta uppbygging- arskeið hófst höfðu litlar breytingar orðið á stórnotkuninni í tæpa tvo áratugi eða síðan verksmiðja Íslenska járnblendifélagsins hóf rekstur árið 1979. Almenn raforkunotkun jókst um 4,5% árið 2000 sem er svipuð aukning og árið á undan. Raforkunotkun vex mest á höfuðborgarsvæðinu, um 4,4% að meðaltali á ári, en aukningin á landsvísu er 3%. Er þetta rakið til fólksfjölg- unar á höfuðborgarsvæðinu en þrátt fyrir það hefur orðið aukning raforkunotkunar í flestum landshlutum. Einungis á Vestfjörðum hefur notkunin minnkað síðan 1996. Raforkunotkun á íbúa er mikil hér á landi, að- allega vegna hlutfallslega mikillar notkunar stóriðjufyrirtækja, og bendir að mati Orkuspár- nefndar flest til þess að Íslendingar verði með mestu raforkunotkun á íbúa á heimsvísu árið 2001. Íslendingar að verða mestu raforkunotendur heims MENN á Blönduósi ráku heldur betur upp stór augu í gærmorgun þegar grágæs einsömul sást á túninu neðan við sumarhúsabyggð- ina Glaðheima í Brautarhvammi. Gæsin sem greinilega er merkt með hólk um hálsinn er óvenju snemma á ferðinni. Ber mönnum saman um að þetta sé einsdæmi því fyrstu gæsir vorsins koma venjulega norð- ur í byrjun apríl. En ekki ber mönnum saman um ástæðu þess að gæsin sé svona snemma á ferðinni norður yfir heið- ar. Sumir nefna óvenju hagfellt tíð- arfar undanfarið og einstaka hefur nefnt að snarpar umræður um framtíð Vatnsmýrarinnar hafi ýtt við gæsinni því ólíkt má telja að grágæsin sé komin alla leið frá Bretlandi. Fuglafriðunarmenn vona að gæsin hafi vit á því að halda sig innan bæjarmarka Blönduóss að minnsta kosti fram að 1. apríl því eftir það er hún friðuð til 20. ágúst. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Menn muna ekki eftir að grágæs hafi komið til sumarheimkynna sinna á Blönduósi í þorralok. Grágæsin snemma á ferðinni Blönduósi. Morgunblaðið. SVANAKÓRINN hlífir sér hvergi á söngæfingum heldur leggur mikinn kraft og alúð í að sem flestir fái að njóta tónanna. Ísilögð Tjörnin ku vera besti tónleikasalurinn og mik- ið notuð til slíkrar tónlistariðkunar. Fátt var þó um áheyrendur þennan dag sem svanasöngurinn var hvað fegurstur og engu líkara en þessum eina hafi ekki líkað dagskráin. Svana- kórinn á æfingu PÁLMI Jónsson, formaður banka- ráðs Búnaðarbanka Íslands, kveðst, allt frá síðasta aðalfundi bankans, ekki hafa búist við að halda áfram sem formaður bankaráðsins. Næsti aðalfundur verður haldinn 10. mars næstkomandi. „Þótt einhver dæmi séu um annað þá er ekki algengt að menn á mínum aldri séu áfram í svona störfum,“ segir Pálmi sem er 71 árs. Hann hef- ur verið formaður bankaráðsins síð- an 1994. „Ef ráðherra telur að ég sé ómiss- andi þá held ég áfram,“ segir Pálmi. Pálmi Jónsson, formaður bankaráðs Búnaðarbankans Býst ekki við að halda áfram EINN var með allar tölurnar sex réttar í Víkingalottói í gærkvöldi og gekk fyrsti vinningur, 102.131.050 kr., óskiptur til vinningshafans. Mið- inn var seldur í Noregi. Heildarupphæð vinninga var 108.755.200 kr. og heildarupphæð vinninga á Íslandi var 6.624.150 kr. Rúmar 100 milljónir til Noregs ♦ ♦ ♦ HVALVEIÐAR verða ekki hafnar hér á landi í bráð, þrátt fyrir að Norðmenn hafi tekið ákvörðun um að hefja útflutning á hvalkjöti að nýju. Þetta kom fram í svari sjáv- arútvegsráðherra, Árna M. Math- iesen, á Alþingi í gær við fyr- irspurn Svanfríðar Jónasdóttur og Jóhanns Ársælssonar, þingmanna Samfylkingarinnar. Svanfríður sagði að fyrirspurnin væri tilkomin vegna ummæla Ein- ars K. Guðfinnssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins og formanns sjávarútvegsnefndar Alþingis, í út- varpi á dögunum, en þar hefði þingmaðurinn sagt að nú væri ekkert því til fyrirstöðu að hefja hvalveiðar hér við land. Taldi hún nauðsynlegt að fá viðbrögð ráð- herra við þeim, enda mætti efast um hvort málið væri jafn einfalt og þingmaðurinn hefði viljað vera láta og með svo ábyrgðarlausu tali væri formaður sjávarútvegsnefnd- ar í raun að kasta ryki í augu al- mennings og hagsmunaaðila. Sjávarútvegsráðherra kvaðst raunar óvanur því að svara fyr- irspurnum sem settar væru sér- staklega fram til þess að berja á öðrum þingmönnum, en lýsti því svo yfir að því miður stæðu mál ekki svo að ekkert væri því til fyr- irstöðu að Íslendingar hæfu hval- veiðar að nýju. Benti hann á að ekki væri nægilegt að einhverjir ákvæðu að hefja útflutning, ein- hverjir sem skiptu máli yrðu líka að heimila innflutning og í þessu tilfelli væri það Japan. Benti ráðherra á að Japanir gerðu kröfu um hvalkjöt úr lögleg- um veiðum, að fyrir lægju DNA- upplýsingar um stofna viðkomandi afurða og staðan væri sú að við Ís- lendingar myndum ekki geta upp- fyllt skilyrði Japana, m.a. þar sem Ísland væri ekki aðili að Alþjóða hvalveiðiráðinu. Árni sagði að ekki lægi fyrir hvenær veiðar gætu hafist á hvöl- um hér við land. Unnið væri að kynningu á málinu og sjónarmið- um Íslands meðal helstu viðskipta- þjóða í samræmi við ákvörðun Al- þingis. Í stuttri athugasemd Einars K. Guðfinnssonar lýsti hann undrun yfir viðbrögðum við ummælum sín- um, enda teldist vart til tíðinda að hann vildi hefja hvalveiðar að nýju, svo mjög sem hann hefði barist fyrir því. Sagði Einar að með ákvörðun Norðmanna væri mikilvægum hindrunum rutt úr vegi og hvatti hann til þess að veiðar yrðu hafnar sem allra fyrst. Hvalveiðar ekki hafnar í bráð ♦ ♦ ♦ Morgunblaðið/Ómar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.