Morgunblaðið - 15.02.2001, Blaðsíða 55
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2001 55
✝ Rafn MagnúsMagnússon
fæddist í Hnífsdal
16. september 1925.
Hann lést á dvalar-
heimilinu Hlíð 6.
febrúar síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Magnús Hálfdánar-
son, f. 10.5. 1885, d.
30.7. 1963, og Hall-
dóra Þorsteinsdóttir,
f. 12.3. 1890, d. 25.3.
1952. Systkin Rafns
eru: Laufey, f. 13.3.
1910, d. 1.3. 1928; El-
inóra, f. 7.12. 1911,
d. 10.5. 1935; Hrefna, f. 11.5.
1913, d. 19.5. 1925; Guðmundur,
f. 13.6. 1916, d. 20.8. 1994; Ás-
mundur Hálfdán, f. 4.8. 1918, d.
2.2. 1996; Laufey Guðrún, f. 9.9.
1929, búsett í Reykjavík.
Rafn kvæntist 1. júní 1947 eft-
irlifandi eiginkonu sinni, Fann-
eyju Jónsdóttur frá Ólafsfirði, f.
30.11. 1925, dóttur hjónanna Jóns
Steindórs Frímannssonar, vél-
smiðs, og Emmu Jónsdóttur.
Rafn og Fanney áttu heimili
lengst af í Kringlumýri 17 á Ak-
ureyri en síðustu árin í Lindasíðu
4 á Akureyri. Börn Rafns og
Fanneyjar eru: 1) Emma Sigur-
jóna, búsett á Ísafirði, f. 24.3.
1948, maki Páll Helgi Sturlaugs-
son, þeirra börn eru: Rafn, maki
Marij Colruyt, þau eiga tvo syni;
Þórunn, maki Hermann Jón Hall-
dórsson, þau eiga tvö börn; Fann-
ey, ógift, hún á eina dóttur; Arn-
ar, unnusta Halla Þorláksdóttir,
og yngst er Birna. 2)
Halldór Magnús, bú-
settur á Akureyri, f.
17.8. 1949, maki Ól-
ína Eybjörg Jóns-
dóttir, þeirra börn
eru: Fanney, d. 7.11.
1995, Ómar, unn-
usta Guðrún Lind
Halldórsdóttir, og
yngstur er Elfar.
Fyrir átti Halldór
Torfa Rafn og Unni,
sambýlismaður Þor-
steinn Þorsteinsson,
þau eiga tvö börn. 3)
Elinóra, búsett á
Akureyri, f. 23.11. 1950, maki
Einar Hjartarson, þau eiga eina
dóttur, Guðrúnu Fanneyju. 4)
Björg, búsett á Akureyri, f. 8.12.
1955, maki Gunnar Karlsson, þau
eiga eina dóttur, Dagnýju.
Rafn fluttist til Akureyrar
1944 og hóf nám í húsasmíði hjá
Guðmundi bróður sínum og starf-
aði sem húsasmíðameistari við
eigið fyrirtæki, Trésmíðavinnu-
stofuna Þór hf., sem hann stofn-
aði 1953 og rak, ásamt Eiríki
Stefánssyni og seinna með Hall-
dóri syni sínum, fram til ársins
1990. Rafn sat nokkur ár í Bygg-
inganefnd Akureyrarbæjar fyrir
Sjálfstæðisflokkinn. Hann sat í
stjórn knattspyrnudeildar ÍBA í
nokkur ár og í aðalstjórn KA í
tvö ár. Hann var virkur félagi í
Oddfellowreglunni.
Útför Rafns fer fram frá Ak-
ureyrarkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Hver minning dýrmæt perla
að liðnum lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni
af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki
var gjöf sem gleymist eigi
og gæfa var það öllum,
er fengu að kynnast þér.
(Ingibj. Sig.)
Rafn tengdafaðir minn lést á
Dvalarheimilinu Hlíð 6. febrúar sl.,
75 ára að aldri. Þar dvaldi hann
vegna heilsubrests síðan í nóvember
1999.
Rafn var lærður húsasmíðameist-
ari og vann við smíðar allan sinn
starfsferil. Hann var vinnusamur og
mjög vandvirkur í öllu sem hann tók
sér fyrir hendur. Það þurfti ekki að
fara langt til þess að sjá það sem
hann lét frá sér fara, heimili hans og
Fanneyjar tengdamóður minnar í
Kringlumýri 17 bar þess merki
hvert sem litið var.
Rafn var mikill fjölskyldumaður,
hann á mjög samheldna fjölskyldu
og ég er afar þakklát fyrir að hafa
fengið að vera eins og ein úr fjöl-
skyldunni alla tíð.
Ég minnist þess þegar ég kom
með Halldóri fyrst inn á þeirra fal-
lega heimili, þá var þar veisla í tilefni
75 ára afmælis Jóns Frímannssonar,
föður Fanneyjar. Ég var svo feimin
og eitthvað svo óskaplega lítil og
hélt mig að mestu leyti í einu her-
bergi hússins, en viti menn, þangað
var stöðugur straumur gesta (mig
minnir þó að flestir hafi verið karl-
kyns), til þess að athuga hvernig hún
liti út, daman sem einkasonurinn á
heimilinu bauð með sér heim. Vel
var tekið á móti mér, það er eitt sem
víst er. Ég held að jafnvel þá hafi ég
eignast vináttu Rafns, sem mér hef-
ur ávallt verið svo kær.
Seinna þegar við Halldór höfðum
stofnað fjölskyldu eignuðust börnin
okkar ekki bara afa, heldur oft og
tíðum leikfélaga og vin, sem fór með
þeim í fótbolta, krikket, badminton
og allskonar íþróttir, oftast innan
um fallegu blómin í garðinum henn-
ar ömmu sem fengu oft og tíðum
slæma útreið.
Rafn var mikill KA-maður og
studdi alltaf við bakið á sínum mönn-
um.
Hann hafði mjög gaman af að
fylgjast með íþróttaiðkun barna
sinna og seinna barnabarna, sem
stunda íþróttir á ýmsum sviðum, og
hann fékk oft tækifæri til þess að
gleðjast yfir góðum sigrum.
Rafn var söngmaður góður og
hafði yndi af söng, enda mikið sung-
ið við allskonar tækifæri þegar fjöl-
skyldan kemur saman. Þessar
stundir eru ógleymanlegar.
Ég kveð Rafn tengdaföður minn
með söknuði og bið góðan Guð að
blessa hann. Hafðu þökk fyrir allt og
allt.
Ég vil fyrir hönd aðstandenda
Rafns þakka af alhug starfsfólkinu á
Dvalarheimilinu Hlíð fyrir alla
umönnun og kærleik í hans garð.
Einnig viljum við þakka starfsfólki
Heimahjúkrunar fyrir störf þess og
hlýhug.
Ég færi elskulegri tengdamóður
minni og allri fjölskyldunni innilegar
samúðarkveðjur og bið góðan Guð
að gefa okkur öllum styrk í sorginni.
Verndi þig englar, elskan mín
þá augun fögru lykjast þín.
Líði þeir kringum hvílu hljótt
á hvítum vængjum um miðja nótt.
(Steingr. Thorsteinsson.)
Guð blessi minningu Rafns Magn-
úsar Magnússonar.
Ólína E. Jónsdóttir.
„Það er vegur eilífðarinnar að
draga sig í hlé, þegar gott verk er
unnið og heiður fenginn.“ (Lao-Tse.)
Nú hefur hann afi lokið verkum
sínum hér á meðal okkar og heldur á
vit nýrra starfa þar sem hans er
þörf. Við munum minnast hans að ei-
lífu.
Afi á sannarlega heiður skilið fyr-
ir lífsstarf sitt, hann var yndislegur
maður, greiðvikinn og með létta
lund. Í dag kveður hann stór hópur
ættingja og vina sem elska hann og
virða.
Ég á því láni að fagna að vera
meðlimur í fjölskyldu þeirra afa
Rafns og ömmu Fanneyjar. Þau
hafa alla tíð tekið okkur systkinun-
um opnum örmum og sýnt okkur
ástúð, áhuga og stuðning. Á
bernsku- og unglingsárum okkar
áttum við oft erindi til Akureyrar til
þess að keppa á skíðum. Afi fór ófáar
ferðir milli flugvallar og Kringlu-
mýrar 17 með okkur systkinin og
jafnvel vini okkar líka. Afi og amma
fylgdust alltaf með því hvernig okk-
ur gekk, hrósuðu eða hugguðu eftir
atvikum.
Auk skíðaferðanna og ferðalaga
fjölskyldunnar til Akureyrar dvaldi
ég í Kringlumýrinni u.þ.b. eina helgi
í mánuði á 1½ árs tímabili þegar ég
var 14–15 ára gömul. Á þessum tíma
kynntist ég afa vel og við urðum
miklir mátar. Ég á frá þessum tíma
mínar dýrmætustu minningar um
hann; ferðir á KA-leiki, hvernig
hann gat æst sig upp úr öllu valdi yf-
ir kappleikjum í sjónvarpinu eða
nánast grátið úr hlátri þegar hann
horfði á teiknimyndir um Tomma og
Jenna. Í þessum heimsóknum fékk
ég tækifæri til þess að taka þátt í
daglegu lífi þeirra ömmu og afa
þrátt fyrir að ég byggi í öðrum
landsfjórðungi en þau.
Í janúar sl. dvaldi ég á Akureyri í
tíu daga vegna verklegs hjúkrunar-
náms á FSA. Ég gat þá heimsótt afa
nánast daglega á Hlíð. Mitt síðasta
verk á Akureyri áður en ég hélt
heim til fjölskyldu minnar í rúmlega
viku frí var að kveðja afa. Ég kvaddi
hann með þeim orðum að ég hlakk-
aði til að sjá hann þegar ég kæmi
aftur úr fríinu og óskaði þess að
hann hefði það gott á meðan. Þessi
kveðja er mér nú mjög hjartfólgin
og ég þakka Guði fyrir þessar stund-
ir sem við áttum saman.
Elsku besta amma mín, við
Hemmi vottum þér okkar innileg-
ustu samúð. Megi góður Guð veita
þér styrk í sorginni.
Ég kveð ástkæran afa með bæn:
Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börnin þín svo blundi rótt.
(Matthías Joch.)
Þórunn.
Vertu sæll, afi minn, og sjáumst
síðar. Með þeim orðum lauk mörg-
um eftirminnilegum heimsóknum til
þín og ömmu. Ég er fyrir löngu bú-
inn að tapa tölunni á öllum þeim
heimsmeistartitlum sem ég tryggði
íslenska landsliðinu í knattspyrnu í
garðinum í Kringlumýri 17. Til liðs
mér voru þá gjarnan kempur á borð
við Pele, Keegan og Banks og í líki
þeirra sótti ég kappsamur að þér
ýmist upp hægri kantinn fram hjá
blómabeðinu hennar ömmu eða fékk
að láni hjólhestaspyrnu hans Jó-
hannesar Eðvalds til að skora fram
hjá þér.
Aldrei þreyttist þú á því að taka
þátt í leik okkar barnanna og alltaf
gafst þú þér tíma til að vera beinn
þátttakandi í ævintýraheimi okkar
og hvetja okkur af hliðarlínunni þeg-
ar síðar meir leikvöllurinn færðist úr
garðinum yfir í löggiltar stærðir.
Ófáar urðu einnig skákirnar sem við
tefldum. Þú varst ekki fyrr búinn að
kenna mér mannganginn þegar ég í
gervi Fischers og Spaskýs færði
riddarann sir Lancelot og páfann í
Róm um reiti skákborðsins með
hugsjón fornra krossfara að frelsa
landið helga undan svörtu trékörl-
unum sem þú stjórnaðir. Þó svo að
sigrarnir af einhverjum ástæðum
lentu iðulega mín megin þá undr-
aðist ég sem barn þína öflugu mót-
stöðu enda mér til trausts gjarnan
goðumlíkar hetjur sem börðust sem
mest þær máttu gegn þér einum.
Fljótlega skyldi ég þó að á því var
engin tilviljun. Kraftur, skynsemi,
umhyggja og jafnaðargeð, sem þér
ávallt fylgdi sem og hversu óhemju
örlátur þú alltaf varst á tíma handa
mér og hinum barnabörnum þínum,
gerði allar heimsins kempur hláleg-
ar í samanburði við þig. Fyrir löngu
kenndir þú mér að mikilvægara var
að vera heill og sanngjarn í gjörðum
sínum og taka á móti sigrum og töp-
um í þessu lífi sjálfstæður í stað þess
að skýla sér á bak við tálsýnir og ráð
misvitra manna.
Þótt þú sért nú kominn á leiðar-
endann og eflaust farinn að takast á
við ný og framandi verkefni þá munu
góðmennska þín og heilindi lifa með
okkur hinum sem fengu þau forrétt-
indi að lifa með þér. Ef ég þekki þig
rétt þá átt þú eflaust eftir að fylgjast
með okkur barnabörnunum og á
glettinn hátt leysa úr flækjum okkar
og beina okkur á réttar brautir.
Vertu sæll, afi minn, og sjáumst
síðar.
Torfi Rafn.
RAFN MAGNÚS
MAGNÚSSON
!
"!#!$$!
!"!#$!%&'$$!
'!()!" %&'$$!
"!'*+! %%+*
'% %&'$$!
*! %%+*
"!,!
$ -*%&'$$!
.*! %%+* !/!**%&'$$!
/ " %&'$$! / &'!!%+*
0!%$* %&'$$! ,*&! !**%%+*
! %%+* '!$
*1)!*%&'$$!
1!*1)!*+"1!*1!*1)!*
%
&
'
"
(
"
% ) ,%**%
-!!! "
2!) " 34
,%$*&*&!
")
/5/ 6
*
+!
" ,
/ &'!%&'$$!
"!'*(!*%+*
/**. / &'!%&'$$! 7'*.
*1)!*%%+*
8- . / &'!%%+* (-! 1!"
**!
/ &'!%%+*
**/ 1)!*%&'$$!
!"!#$ 8- &'$$! /!** ()!*%%+*
0*9$!
/ &'!%%+* : "!,! %&'$$!
+"1!*1)!*
,
7(7
1'*&
5 ;% + $
/+ !<<*" *
!
"
-.. (
/!
"!+!$$!
8- *()!7'*%&'$$!
"!,!7'*%&'$$! 8- (),!: "!%%+*
'!**7'*%&'$$! .*! -!,*&%%+*
,*&!7'*%%+* .! / ),!%&'$$!
,!9*7'*%&'$$! !,!,*&%%+*
(!*&%7'*%&'$$! **!."
!!%%+*
(!*/!7'*%%+* "* ,!0!%$-*%&'$$!
1!*1)!*+" *" 1!*
.
=
.
!%$'!
/ 1!$>?
/ *! !,
0
!
"!#!$$!
1
(
2
3
##4+++$!
7'** "9%$%&'$$!
(!" *&"*!%&'$$! %*&!.&!&%%+*
"9%$'!"*!%%+*
"*!%&'$$!
%$
"!,!&'$$!
'!(@ **
$ -*%&'$$!
1!*1)!*+"%%$*