Morgunblaðið - 15.02.2001, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 15.02.2001, Blaðsíða 15
AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2001 15 RÚMLEGA tvítugur maður hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmdur til að greiða 100 þúsund króna sekt í ríkissjóð, hann var sviptur ökurétti í 16 mánuði auk þess sem honum var gert að greiða málskostnað. Maðurinn var ákærður fyrir um- ferðarlagabrot með því að hafa í lok júlí á síðasta ári ekið bifreið suður Hringveg við Svalbarðs- strönd allt of hratt og óvarlega fram úr bifreiðum sem ekið var í sömu átt, uns hann, skammt norð- an við bæinn Sigluvík, ók fram úr bifreið á blindhæð og í beygju með þeim afleiðingum að hann ók fram- an á bíl sem kom úr gagnstæðri átt. Við áreksturinn slasaðist öku- maður bílsins og farþegi hans nokkuð. Neitaði of hröðum akstri Nokkur vitni gáfu sig fram við lögreglu og báru um ofsahraða umræddrar bifreiðar mannsins. Hann neitaði fyrir dómi að hafa ekið of hratt og óvarlega fram úr bifreiðum sem voru á sömu leið og einnig kvaðst hann ekki hafa tekið fram úr bílnum á blindhæðinni, hann hafi verið kominn yfir hæð- ina þegar hann reyndi framúrakst- ur. Maðurinn taldi ökumann bíls- ins sem hann ók fram úr hafa ekið of hægt og átt þannig sinn þátt í árekstrinum, þá hafi bremsur í bíl hans ekki virkað og líknarbelgur blásið út og birgt honum sýn. Dómurinn vísar til greinargóðs framburðar vitna og telur að akst- ur mannsins hafi verið vítaverður auk þess að hafa í för með sér hættu fyrir vegfarendur. Umrædd- ur vegarkafli sé hæðóttur og því rík ástæða til að gæta varúðar við akstur en talsverð umferð var þeg- ar slysið átti sér stað. Sviptur ökurétti í 16 mánuði og gert að greiða sekt í ríkissjóð Umferðarslys á Svalbarðs- strönd eftir ofsaakstur Píanó- nemar með tónleika PÍANÓNEMAR við Tónlistar- skóla Eyjafjarðar koma fram á tónleikum sem haldnir verða í Laugaborg í Eyjafjarðarsveit á laugardag, 17. febrúar, en þeir hefjast kl. 13.30. Þar koma fram lengra komn- ir píanónemendur af öllu starfssvæði tónlistarskólans og flytja þeir fjölbreytta efnis- skrá. Aðgangur er ókeypis og fólk hvatt til að fjölmenna. Tónlistarskóli Eyjafjarðar OLÍUFÉLAGIÐ Esso hefur gert nýjan samstarfssamning við Ung- lingaráð knattspyrnudeildar KA vegna Esso-móts KA í knattspyrnu og þá hefur félagið einnig gert samstarfssamning við fram- kvæmdanefnd Andrésar Andar- leikanna á skíðum. Skrifað var undir báða þessa samninga í veit- ingaskálanum Strýtu í Hlíðarfjalli fyrir skömmu. Esso-mót KA er haldið fyrstu helgina í júlí ár hvert, en um er að ræða knattspyrnumót fyrir 5. flokk drengja, 11–12 ára. Þetta er 15. árið í röð sem félögin tvö sam- einast um að halda þetta mót og hefur það skipað sér fastan sess í hugum margra, en um eitt þúsund drengir af öll landinu koma þar saman og leika knattspyrnu í þrjá daga. Samningurinn sem skrifað var undir nú er til fimm ára. Samstarf Esso við fram- kvæmdanefnd Andrésar Andar- leikanna hófst á síðasta ári, en nú í ár verða leikarnir haldnir í 26. sinn. Leikarnir eru fyrir börn á aldrinum 6 til 12 ára og nú síðustu ár hafa keppendur verið um 800 talsins. Samningurinn felst m.a. í því að Esso kaupir alla verðlauna- gripi sem afhentir eru á leikunum. Olíufélagið hefur á síðustu árum verið í samstarfi við helstu skíða- félög landsins og m.a. hefur félag- ið sett upp vefmyndavélar á skíða- svæðunum og má á heimasíðu félagsins, esso.is sjá færð og veður á tilteknum skíðasvæðum. Mikil lyftistöng Jóhann Jóhannsson, markaðs- stjóri Esso, sagði það félaginu mikla ánægju að styðja þessa íþróttaviðburði, en þeir væru báð- ir með stærstu íþróttamótum sem haldin eru fyrir börn hér á landi. Þeir Gunnar Gunnarsson fram- kvæmdastjóri knattspyrnudeildar KA og Gísli Kristinn Lórenzson formaður framkvæmdanefndar Andrésar Andar-leikanna voru báðir afar ánægðir með samstarfið við Esso og nefndu báðir að þessi íþróttamót væru fjölsótt og því mikil lyftistöng fyrir bæjarlífið. Morgunblaðið/Kristján Skrifað undir samninga í Hlíðarfjalli. F.v. Gísli Kristinn Lórenzson, formaður framkvæmdanefndar Andrésar Andar-leikanna, Sigurður Bjarnason, svæðisstjóri Esso á Norðurlandi, Jóhann Jóhannsson, markaðsstjóri Esso, Gunnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar KA og Magnús Sigurólason, formaður unglinga- ráðs knattspyrnudeildar KA. Bak við þau standa Nanna Gunnarsdóttir og Siguróli Sigurðsson. Esso veitir stuðning Esso-mót KA og Andrésar Andar-leikarnir á skíðum KARLMAÐUR hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið sýknaður af ákæru um kynferðisbrot, en hon- um var gefið að sök að hafa í lok júlí á síðasta ári haft samfarir við stúlku og við það notfært sér að hún gat ekki spornað við verknaðinum sökum ölv- unar og svefndrunga. Stúlkan krafði manninn um skaðabætur að upphæð rúmlega 1 milljón króna auk drátt- arvaxta. Atvik málsins eru þau að stúlkan þáði boð vinar síns um næturgistingu á heimili hans, en nokkru eftir að hún var gengin til náða kom þar umrædd- ur karlmaður í heimsókn. Húsráð- andi og félagi hans voru staddir í íbúðinni. Fór maðurinn upp í her- bergi stúlkunnar og hafði við hana kynmök, sem hann segir að hafi verið með hennar vitund og vilja. Stúlkan kvað aftur á móti að hún hefði vaknað við það að maðurinn var að hafa við hana kynmök og hún beðið hann að hætta, en ekki haft nægilega rænu til að átta sig á hvað var að gerast, né getað barist gegn því. Fólkið sem um ræðir þekktist ekkert fyrir. Bæði voru undir áhrifum áfengis. Fram kemur í áliti dómsins að framburður stúlkunnar hafi í megin- atriðum verið trúverðugur. Dómnum þykir varhugavert að telja sannað að ölvun og þreyta geti skýrt að svefndrungi hennar hafi verið með þeim hætti að hún hafi ekki getað spornað gegn atlotum mannsins eða skilið þýðingu þeirra. Þó sé ekki úti- lokað að vegna ástands síns hafi hún brugðist við atlotunum án þess að muna það. Því þykir dómnum ekki unnt að hafna framburði mannsins um að stúlkan hafi brugðist við atlot- um hans. Verði því að líta svo á að maðurinn hafi mátt ætla að stúlkan væri meðvituð og ekki mótfallin gjörðum hans. Skilaði sératkvæði Dóminn kváðu upp Ólafur Ólafs- son héraðsdómari sem dómsformað- ur, Freyr Ófeigsson, dómstjóri og Hjördís Hákonardóttir héraðsdóm- ari. Hún skilaði sératkvæði þar sem fram kemur að framburður mannsins sé ekki eins trúverðugur og stúlk- unnar. Einkum eigi það við um fjöl- breytilegar lýsingar á samfara- stellingum í ljósi þess að minni hans hafi að öðru leyti verið takmarkað. Maðurinn hafi farið inn í herbergi stúlkunnar, sem var honum algerlega ókunnug vitandi það að hún var geng- in til náða. Hann hafi enga ástæðu haft til að ætla að hún vildi þýðast hann. Sannað væri að stúlkan var sof- andi og jafnframt að maðurinn hafði við hana samfarir í því ástandi og því þykir brot það sem maðurinn var ákærður fyrir vera fullframið. Karlmaður sýkn- aður af ákæru um kynferðisbrot Héraðsdómur Norðurlands eystra ÞÓR Valtýsson og Gylfi Þórhallsson urðu efstir og jafnir á Skákþingi Ak- ureyrar og þurfa því að tefla fjög- urra skáka einvígi um titilinn Skák- meistari Akureyrar 2001. Sjöunda og síðasta umferðin í A-flokki var telfd í vikunni og þar héldu Þór og Gylfi sigurgöngu sinni áfram, eftir að hafa gert jafntefli í innbyrðisvið- ureign sinni í 1. umferð. Báðir hlutu þeir félagar 6,5 vinninga á mótinu. Jón Björgvinsson hafnaði í þriðja sæti með 4,5 vinninga en jafnir í fjórða til fimmta sæti urðu þeir Halldór Brynjar Halldórsson og Stefán Bergsson með 3,5 vinninga. Keppni í B-flokki var einnig jöfn og spennandi en svo fór að lokum að Eymundur Eymundsson stóð uppi sem sigurvegari, hlaut 6 vinninga af 7 mögulegum. Ágúst Bragi Björnsson, ungur og efnilegur skákmaður, hafnaði í öðru sæti í B-flokki með 5,5 vinninga en hinn síungi Sveinbjörn Sigurðsson hafnaði í þriðja sæti með 5 vinninga. Haukur Jónsson, aldursforseti mótsins, rúmlega sjötugur að aldri, hafnaði í fjórða sæti með 4,5 vinn- inga, eftir að hafa leitt mótið framan af. Keppni í yngri flokkum lauk á laugardag, Guðrún Svana Hilmars- dóttir sigraði í stúlknaflokki, Ólafur Ólafsson í barnaflokki og Ágúst Bragi Björnsson í drengjaflokki. Í unglingaflokki urðu efstir og jafnir Jón Birkir Jónsson og Ragnar Heið- ar Sigtryggsson og þurfa þeir að tefla fjögurra skáka einvígi um efsta sætið. Skákfélag Akureyrar hefur eign- ast tvo Íslandsmeistara á nýbyrjuðu ári, Jóhann Hjartarson varð Ís- landsmeistari í atskák um síðustu helgi og Jón Heiðar Sigurðsson bar sigur úr býtum í barnaflokki í síð- asta mánuði. Norðurlandamótið í skólaskák fer fram á Laugum í Dalasýslu um næstu helgi, þar sem keppt verður í fimm aldursflokkum. Þrír keppend- ur frá Akureyri eru á meðal fjölda keppenda á mótinu, Halldór Brynj- ar Halldórsson, Ágúst Bragi Björnsson og Jón Heiðar Sigurðs- son. Stefán Bergsson sigraði á tíu mín- útna mótinu hjá Skákfélagi Akur- eyrar um síðustu helgi en næsta mót félasins er 15 mínútna mót sem fram fer á morgun, föstudag, og hefst kl. 20. Þór og Gylfi efstir og jafnir á Skákþingi Akureyrar Tefla fjögurra skáka einvígi um titilinn NEMENDUR og kennarar Tónlist-arskólans á Akureyri verða meðkynningu á starfsemi sinni í næstu viku, dagana 19.– 24. febrúar. Þessa daga verður öll kennsla lögð til hlið- ar en þess í stað farið um bæinn og tónleikar haldnir í fyrirtækjum og stofnunum. Ráðgert er að halda um 40 tón- leika þar sem allflestir nemendur skólans taka þátt. Heimsóttir verða leikskólar bæjarins, Fjórðungs- sjúkrahúsið, Kristnesspítali, Hlíð, Kjarnalundur, félagsmiðstöðin í Víðilundi, auk verslana og þjónustu- fyrirtækja í bænum. Einnig verða tónleikar í framhaldsskólunum, á þriðjudag kl. 11.30 í VMA og á fimmtudagskvöldinu kl. 20 í MA. Sinfóníuhljómsveit Norðurlands verður á ferðinni þessa sömu daga í grunnskólum bæjarins og flytur tón- verkið „Pétur og úlfurinn“ eftir S. Prokofiev. Sunnudaginn 25. febrúar verður blásaradeild Tónlistarskól- ans með sína árlegu bolludagstón- leika í Gryfjunni í Verkmenntaskól- anum. Á tónleikunum koma m.a. fram Blásarasveit Tónlistarskólans á Akureyri og Lúðrasveit Akureyr- ar. Tónleikarnir hefjast kl. 15. Dagana 19.– 24. febrúar verða nemendur skólans á ferðinni á eft- irtöldum stöðum en bæjarbúar eru hvattir til að gefa sér tíma og staldra við á einhverjum þessara staða og hlýða á dagskrána. Mánudagur 19. febrúar kl. 15 Sparisjóður Norðlendinga, þriðju- dagur 20. febrúar kl. 14 Akureyrar- bær upplýsingaanddyri, þriðjudagur 20. febrúar kl. 15 Búnaðarbankinn, miðvikudagur 21. febrúar kl. 14.30 Íslandsbanki, fimmtudagur 22. febrúar kl. 14:30 Landsbanki Íslands Strandgötu, fimmtudagur 22. febr- úar kl. 16 Sunnuhlíð, föstudagur 23. febrúar kl. 16.30, Bláa kannan og laugardagur 24. febrúar kl. 15 Gler- ártorg. Leikið fyrir bæjarbúa Nemendur og kennarar Tónlistarskólans á ferð í næstu viku
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.