Morgunblaðið - 15.02.2001, Blaðsíða 67
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2001 67
HANN ER hetja, frelsariog fyrirmynd en MelGibson er fyrst ogfremst kvikmynda-
stjarna sem heimurinn þekkir sem
hörkutól. Gibson bregður þó vel út
af venjunni og skoðar sínar kven-
legu hliðar í kvikmyndinni What
Women Want.
Myndin segir frá Nick Marshall
(Gibson), yfirmanni hjá stóru aug-
lýsingafyrirtæki í Chicago, sem hef-
ur það eitt í huga að eignast aur og
leggja sem flestar konur þar til
hann verður fyrir klaufalegu raf-
stuði kvöldstund eina í íbúð sinni
sem breytir tilveru hans til mikilla
muna. Nick heyrir nú leyndustu
hugsanir allra kvenna sem á vegi
hans verða, hvort sem honum líkar
betur eða verr. Í fyrsta sinn sér
hann að hann er ekki beinlínis
draumur allra kvenna, heldur mar-
tröð. Hann er í fyrstu hræddur við
þennan sjaldgæfa eiginleika og ósk-
ar einskis heitar en að álögin verði
frá honum numin. En þegar hann
svo missir langþráða stöðuhækkun í
hendur á Darcy McGuire (Helen
Hunt), lærir hann hægt og rólega að
nýta þessa nýfundnu hæfileika sér í
hag, bæði persónulega og atvinnu-
lega.
Lengi langað að
leika í gamanmynd
Klæddur rauðri köflóttri skyrtu,
gallabuxum og stuttermabol minnir
Gibson greinarhöfund óneitanlega
mikið á Martin Riggs, persónuna úr
Leathal Weapon-myndunum. Hann
var iðandi, órólegur, og augljóslega
þreyttur þegar hann settist niður í
spjall.
Lærðir þú eitthvað nýtt um kon-
ur?
„Nei. Ég veit jafnlítið um konur
og áður. Skil í mesta lagi 50% af því
sem konur segja og gera, ef ég ætti
að nefna tölu.“
Gibson berst fjöldi handrita en
aðeins örlítið brot verður fyrir val-
inu. Hvað heillaði hann við þetta
hlutverk?
„Fullnæging ráðgátunnar held ég,
eða heldur fantasíunnar. Hvaða per-
sóna þarf ekki að eiga við kynferð-
isleg öfl gagnstæða kynsins á einn
eða annan hátt á hverjum degi?
Hvort sem það er þá maki, yfirmað-
ur eða einfaldlega einhver sem á
vegi manns verður úti á götu. Að
geta lesið hugsanir kvenna hlýtur að
heilla, eða vekja forvitni allra karl-
manna á jarðarkringlunni, og ég er
þar á meðal.“
Munum við einhvern tíma skilja
gagnstæða kynið fullkomlega?
„Nei, og það er gott mál. Óvissan
er algjört lykilatriði í hrifningu okk-
ar hvort til annars. Guð skapaði okk-
ur þannig af ásettu ráði. Ef við viss-
um öll svörin væri engin spenna. Við
værum öll löngu búin að hengja okk-
ur úr leiðindum.“ Hann segist lengi
hafa langað að taka að sér gaman-
hlutverk en fram til þessa hafi hon-
um ekki borist rétta handritið. En
þegar handritið að What Women
Want hafnaði á borðinu hjá honum
kviknaði áhuginn samstundis.
„Þetta handrit sló á réttu taugarnar.
Það er ekki oft sem maður fær tæki-
færi á að takast á við hlutverk af
þessum toga. Við lestur handritsins
skellihló ég margoft og varð meira
að segja stundum að leggja það frá
mér. Þegar það gerist veistu að á
ferðinni er girnilegur biti, eitthvað
sem hittir þig beint í mark.“
Ef enginn hlær
ertu í tómum skít
Gibson segir hlutverk sitt sem
Nick Marshall hafi verið skemmti-
leg áskorun fyrir margar sakir.
„Í hefðbundinni leiklist fær leikari
meira frelsi en ég hafði í þessari
mynd hvað tímasetningu varðar, þar
sem hugsanir mótleikaranna voru
lesnar upphátt og ég varð að bregð-
ast við innan ákveðins tímaramma.
Mér leið oft eins og að áhorfend-
urnir væru viðstaddir upptökur á
setti því viðbragð mitt varð að hald-
ast í hendur við hugsanir mótleikara
sem áhorfendurnir heyrðu á sama
tíma og ég. Og sömuleiðis varð ég að
bregðast við með áhorfendunum um
hluti sem mótleikararnir máttu ekki
vita. Það var flókið ferli að halda öll-
um þessum hlutum á lofti í senn. Svo
ég vitni í Nancy Meyers (leikstjóra
myndarinnar): Dauðinn er auðveld-
ur, gamanleikur er erfiður. Því ef þú
nærð ekki til áhorfandans, og eng-
inn hlær, þá ertu í tómum skít.“
Stríð kynjanna hefur varað í rúm-
ar 20 aldir. Varpar þessi kvikmynd
ljósi á einhver ný sjónarmið?
„Frekar en að varpa nýju ljósi á
gamalt umræðuefni þá færir myndin
rökræðuna inn í 21. öldina. Á sama
tíma viðheldur hún gömlum klass-
ískum sjarma 3. og 4. áratugarins
sem minnist mynda Billy Wilder,
Frank Capra eða Ernst Lubitsch.
Hún leggur áheyrslu á mismun
kynjanna, og það er kjarni allra
góðra rómantískra gamanmynda.“
Sjaldan voru misjafnir hættir
kynjanna dregnir eins skýrt fram
eins og þegar Nick er falin sú
heimavinna í myndinni að prufa
kvenmannsvörur, allt frá naglalakki
að sokkabuxum. Að rífa vaxið af á
löppunum segir Mel ekki hafa verið
sárt, það hafi svipað til þess að rífa
plástur af handleggnum.
„En konur svara mér yfirleitt á
þennan máta, „nú jæja, ef þér þótti
það ekki sárt þá prófaðu bikinivax,
þaaað er sko sárt.“ En ég hef engan
áhuga á að prófa það, ég yrði
hræddur við að rífa óvart eitthvað
með.“
Vax og vesen
Við gerð myndarinnar komst Mel
í persónulega snertingu við þarfir
kvenlegs útlits, og segist vera
ánægður með kyn sitt.
„Ekki vantar útbúnaðinn og fyr-
irhöfnina við kvenleikann. Varalitur,
kinnalitur, augnlitur, hárlitur, vax
og vesen. Ég er dauðfeginn að ég
þurfi ekki að leggja allt þetta á mig.
Reyndar finnst mér konur oft gera
of mikið við sjálfa sig, mér þætti
notalegt að sjá fleiri konur gera
minna. En ég kvarta ekki.“
En að hverju myndu konur kom-
ast sem lesið gætu hugsanir Mel
Gibsons?
„Þær yrðu sennilega að skola af
sér í sturtu, svo skítugar eru hugs-
anir mínar. Sagt er að karlmenn
hugsi um kynlíf að meðaltali á 37
sekúndna fresti. Ég er ekki frá því
að það stemmi.“
Framleiðslufyrirtæki Gibsons,
Icon Pictures, sem framleitt hefur
myndir s.s. Hamlet, Immortal Be-
loved, Braveheart og Payback, er
meðframleiðandi myndarinnar
What Women Want. Gibson segist
þó ekki hafa viljað skipta sér mikið
af gerð myndarinnar þrátt fyrir að-
ild fyrirtækis síns, jafnvel þegar
leikstjórinn valdi mótleikkonuna
Helen Hunt.
„Maður hefur jú alltaf eitthvað til
málanna að leggja, enda spyr fólk
yfirleitt um álit. En ég reyni að
blanda mér sem minnst í mál sem
mér kemur ekki beint við. Allavega
reyni ég að þvinga aldrei skoðunum
mínum á framfæri því sannleikurinn
er sá að það veit enginn hvað virkar
á áhorfendur og hvað virkar ekki.
Svipað og þegar maður kaupir sér
bíl, maður veit aldrei hversu lengi
hann mun endast eða hversu vel
hann mun reynast heldur verður
maður að dæma út frá tilfinningunni
einni. Ég var feginn að heyra að
Helen vildi taka að sér hlutverkið.
Hún er ótrúlega gjafmild leikkona.“
Við hvað dundar
Gibson sér?
Gibson skaust upp á stjörnuhim-
ininn með leik sínum í kvikmyndinni
Mad Max sem kom út árið 1980.
Hann hélt áfram að heilla áhorfend-
ur um allan heim og hefur lengi set-
ið í sæti eftirsóttasta leikara Holly-
wood. Hvernig finnur hann jafnvægi
einkalífs og heimsfrægðar?
„Ég reyni að vinna lítið og halda
mig sem mest frá sviðsljósinu. Helst
reyni ég að gera ekki fleiri en eina
mynd á ári, mest tvær. Þannig get
ég varið eigin tíma í eigin hluti og
látið lítið fara fyrir mér á meðan.“
Hvað gerir þú þegar þú ert ekki
að leika í eða leikstýra kvikmynd?
„Það fer ægilegur tími í að búa til
bíómynd og mér finnst ég aldrei
hafa tíma til neins þegar ég er að
vinna. Þá bý ég til langan lista yfir
alla þá hluti sem mig langar að kom-
ast yfir í næsta fríi. Þennan lista hef
ég svo uppi við á öllum stundum og
reyni að uppfylla hann allan fram að
næsta verkefni. Nú á ég ágætis frí
framundan og er með lestur nokk-
urra góðra bóka, spila golf, og að
skoða listaverk í Flórens ofarlega á
listanum.“
„Ég veit jafnlítið
um konur og áður“
„Helen er ótrúlega gjafmild leikkona,“ segir Gibson m.a. um mótleikkonu sína í viðtalinu.
Gibson finnst ekkert vont að vaxa á sér fæturna. Mel Gibson í himnaríki?
Gamanmyndin What Women Want verður frumsýnd hérlendis á morgun
Í nýjustu mynd sinni,
What Women Want,
leikur Mel Gibson
mann sem öðlast þann
hæfileika að geta lesið
hugsanir kvenfólksins
í lífi sínu. Hálfdan
Pedersen hitti áströlsku
stjörnuna í kaffi á Four
Seasons-hótelinu í
Los Angeles og ræddi
við hann um myndina,
kvenfólk og frægðina.