Morgunblaðið - 15.02.2001, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 15.02.2001, Blaðsíða 51
fræðistofnun notaði. Á hinn bóginn er reiknað með styttri ferðatíma og lægri slysatíðni heldur en áður var vegna fyrirhugaðra endurbóta á Reykjanesbraut. Í kostnaðartölu töflunnar er inni- falinn kostnaður vegna lengri flug- tíma til Keflavíkur. Í þessum reikn- ingum er gert ráð að allir farþegar í innanlandsflugi kysu að fara til Keflavíkur og fljúga þaðan. Þetta vissulega í ósamræmi við það mat ráðgjafa okkar að farþegafjöldi í inn- anlandsflugi myndi minnka um 30%, ef flugvöllurinn verður fluttur til Keflavíkur, en verði óbreyttur ef flugvöllur verður í Hvassahrauni. Upplýsingar um kostnað í flugi og áætlanir um hvaðan þessi 30% kæmu og hvernig þeir myndu ferðast vant- ar til að geta reiknað þetta nákvæm- ar. Á öllum tilvikum er svo miðað við að farþegafjöldinn tvöfaldist á u.þ.b. 16 árum. Þá hefur verið tekið tillit til þess að nú er við það miðað að flug- stöð í Reykjavík verði austan við NS brautina, sem leiðir til styttri vega- lengdar þangað frá þungamiðju höf- uðborgarsvæðisins, en að flugstöð við Löngusker yrði á fyllingunni og því nokkru verr staðsett. Mikið hefur verið skrifað að und- anförnu um framtíð innanlandsflug- vallar fyrir höfuðborgarsvæðið og er það vel. Er rétt að minnast á örfá at- riði sem fram hafa komið. Útivistarsvæðið í Nauthólsvík er nálægt flugbrautarenda í þeirri til- lögu sem nefnd hefur verið R4. Sand- ströndin er þó ekki í beinu framhaldi af flugbrautinni sjálfri. Sé mikil flug- umferð til lendingar inn á brautar- endann myndi það valda hávaða sem gestum þar þætti líklega óviðunandi ef ekkert væri að gert. Því er reiknað með að þegar Nauthólsvíkin er mest notuð á góðviðrisdögum verði flug- umferð til lendingar beint á aðrar brautir, enda auðvelt um vik þegar vindur er hægur. Ekki er talin ástæða til að ætla að öryggi baðgesta sé stefnt í hættu. Stöðugleiki fyllinga í Skerjafirði er ekki talinn vera meira vandamál en annars staðar við fyllingar við ströndina á höfuðborgarsvæðinu, þar sem fyllt er á setlög sem fyrir eru. Það er t.d. gert við hafnargerð inn í Sundahöfn. Fyrst og fremst þarf að gæta þess að fylla ekki hraðar en svo að setlögin sem undir eru fái tíma til að síga saman og halda stöðugleika sínum. Ég dreg mjög í efa að unnt verði að ná meiri þéttleika í Vatnsmýrinni heldur en ráðgjafar svæðisskipulags- ins miðuðu við. Enda orkar það tví- mælis vegna umferðarmála. Ég hef þó í samanburðartöflunni miðað þann þéttleika sem Aflvaki notaði, sem er ívið meiri. Ljóst er að mikið hagræði er að þéttingu byggðarinnar vegna minni vegalengda og annara skipu- lagslegra þátta. Í svo þéttri byggð verða þó flestöll bílastæði að vera í húsi og helst neðanjarðar og má halda því fram að það hefði neikvæð áhrif á markaðsverð lóða. Ég tel það atriði þó ekki vega mjög þungt og hugsanlega er unnt að slaka á bíla- stæðakröfum. Verð á mannvirki á lóð með götum í kring er allt annað en verð á óskipu- lögðu landi. Ef litið er á Reykjavík í heild lætur nærri að lóðir séu 40 % að flatarmáli lands. Frá flatarmáli lands dragast fyrst grænir geirar, strand- svæði og svæði meðfram ám og vötn- um, síðan fer drjúgt undir umferð- aræðar, íþróttasvæði og skólalóðir. Verði 5.000 íbúðir á flugvallarsvæð- inu þarf líklega 5 grunnskóla og spurning er hvort íþróttasvæði Vals dugi fyrir 12.000 íbúa viðbót. Þannig eru aðstæður mjög breytilegar og má sem dæmi nefna að land sem Lands- síminn seldi nýverið í Gufunesi nýtur þess að vera inni í hverfi þar sem allt er til staðar nema aðkomugötur. Land í Norðlingaholti nýtur þess að tveir þjóðvegir liggja upp að landinu og þarf einungis pláss undir gatna- mót og tengibrautir. Ég tel að það hafi haft jákvæð áhrif á þróun og möguleika til endurbygg- ingar í borginni að landverð hefur hækkað að undanförnu. Þeir sem kaupa land ætla hins vegar ekki að bera þann kostnað sjálfir, hann endar í verði íbúðar- og atvinnuhúsnæðis. Það er því Reykvíkingum ekki í hag að þetta verð fari upp úr öllu valdi. Í upphafi minnisblaðs um umferð- arskipulag í Vatnsmýrinni er sagt að umferðarmálin væru erfiðust þegar uppbygging er metin á flugvallar- svæðinu. Án efa munu margir segja að í þeim tölum sem hér eru settar fram sé kostnaður við umferðar- mannvirki ofmetin. Ég viðurkenni að það er erfitt mat, því enginn veit hvort almenningssamgöngum tekst að auka hlutdeild sína svo mikið að um það muni. Það er þó ekki reynslan í nágrannalöndunum að slíkt takist, hlutur þeirra fer minnkandi. Helst binda menn vonir við járnbrautir, en uppbygging þeirra er gífurlega kostnaðarsöm. Almennt eru rekstr- arörðugleikar hjá þeim á norðurlönd- um og Metróinn í Kaupmannahöfn, brautin til Arlanda og brautin til Gardemoen hafa allar reynst mjög kostnaðarsamar. Skoðun mín er því sú, að það verði nokkur bið á að járn- brautir leysi vanda okkar þó vissu- lega sé mikil framþróun á því sviði um þessar mundir. Þess vegna þarf bæði að veita hefðbundnum almenn- ingssamgöngum forgang og tryggja gott aðgengi að miðborginni fyrir bílaumferð til að íbúar og atvinnufyr- irtæki verði þar sátt og ánægð. Höfundur er borgarverkfræðingur. SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2001 51 Ókeypis lögfræðiaðstoð öll fimmtudagskvöld milli kl. 19.30 og 22.00 í síma 551 1012 Orator, félag laganema Til að auglýsa á þessari síðu hafðu samband við okkur í síma 569 1111 eða sendu okkur tölvupóst á augl@mbl.is K O R T E R kemur þér beint að efninu! Dregur úr sykurlöngun og hungurtilfinningu. Hjálpar þér að halda línunum í lagi! Jurtir - Vítamín - Steinefn i Kringlan sími: 568 9970 Origins ráðgjafi verður í Lyf og heilsu, Kringlunni í dag fimmtudag kl. 13-18 og á morgun föstudag kl. 13-18. Origins kynnir „Have a Nice Day“ Fullhlaðið rakakrem Sólvarnarstuðull SPF 15 Ekkert skiptir húð þína máli þegar örvandi kraftur úr musteristré, lakkrís sem endurlífgar ljómann, birkikraftur og nærandi soyabaunir styrkja hana með öllu sem hún þarfnast til að horfast í augu við daginn. Kröftug blanda Origins af UV vörunum, meðal annars náttúrunnar títan dioxíð, berst við geislana. E vítamín verndar gegn umhverfinu. Húðin lítur vel út frá sólarupprás til sólarlags. Lyktaðu einu sinni og ilmurinn af greipávexti lætur þér líða eins og þú getir sigrað heiminn. Góðan dag! FRÁBÆR TILBOÐ: Have a Nice Day dagkrem 50 ml. og Night-A-Mins næturkrem 50 ml. saman í pakka. Tilboðsverð kr. 3.874. Verð áður kr. 6.418. Þú sparar kr. 2.544.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.