Morgunblaðið - 15.02.2001, Page 22
ÚR VERINU
22 FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Brunaslöngur
Eigum á lager 25 og 30 m
á hjóli og í skáp
Ármúla 21,
sími 533 2020
HEILSALA - SMÁSALA
ÁÐUR en Ingunn AK, hið nýja nóta-
og togveiðiskip Haraldar Böðvars-
sonar hf. á Akranesi, hélt á miðin um
helgina var sett stór og mikil sjó-
skilja í skipið en talið er að þetta sé
ein stærsta sjóskilja sinnar tegundar
í heiminum.
Skiljan var smíðuð hjá Vélaverk-
stæðinu Þór í Vestmannaeyjum og
er notuð til að skilja sjó eða vatn frá
fiski. Hún er á braut eftir dekkinu og
er lengdin út fyrir rennurnar um
8,40 metrar en um 5,20 metrar á
breiddina, þ.e. á milli stúta. Sjálfur
skiljuflöturinn er um 24 fermetrar,
en að sögn Garðars Garðarssonar,
framkvæmdastjóra Þórs, er flötur á
venjulegri skilju um 14 fermetrar.
Fyrsta skiljan hjá Þór á braut
Garðar segir að skiljan sé trúlega
sú stærsta á landinu en vill ekkert
fullyrða um samanburð við ámóta
skiljur erlendis. „Við höfum smíðað
sambærilegar skiljur í 14 báta en
þetta er sú fyrsta í braut,“ segir
Garðar og bætir við að skiljan í Þor-
steini EA sé líka á braut en hún sé
smíðuð í Póllandi. Eins segir hann að
Norðmenn séu byrjaðir að smíða
skiljur í braut en honum sé ekki
kunnugt um stærð þeirra stærstu.
Hjá Þór er nú verið að smíða skilju
í Hugin VE sem verið er að ganga
frá hjá ASMAR-skipasmíðastöðinni í
Talcahuano í Chile, en Garðar segir
að hún verði töluvert minni en skilj-
an í Ingunni og auk þess verði hún
ekki í braut heldur föst. Reyndar átti
skiljan í Ingunni ekki að vera svona
stór og hún var tilbúin mun minni en
þegar ákveðið var að lengja skipið sl.
sumar var skiljan stækkuð.
Eftir að látið hafði verið reyna á
búnaðurinn um borð í Ingunni var
haldið á loðnumiðin úti af Vestfjörð-
um en vegna brælu var ekkert að-
hafst. „Við höfum bara tekið eitt
prufukast í Flóanum og allt reyndist
í góðu lagi,“ sagði Marteinn Einars-
son skipstjóri við Morgunblaðið í
gær.
Um 72 þúsund tonn eftir
Milli 10 og 20 bátar voru á loðnu-
miðunum fyrir austan land í gær en
veiði var dræm og veðurútlit næstu
daga ekki gott.
Samkvæmt upplýsingum frá Sam-
tökum fiskvinnslustöðva höfðu bor-
ist um 220 þúsund tonn af loðnu á
land á vetrarvertíðinni til hádegis í
gær en samtals um 345 þúsund tonn
á sumar-, haust- og vetrarvertíð.
Miðað við það eru aðeins um 72 þús-
und tonn eftir af kvótanum en 200
þúsund tonna viðbótarkvóta verður
væntanlega skipt milli báta um
helgina.
Ein stærsta sjóskilja
sinnar tegundar
Sjóskiljan um borð í Ingunni AK er engin smásmíði.
RÚSSNESKUR fiskur veldur
Norðmönnum vandræðum þessar
vikurnar. Í fyrradag krafðist Evr-
ópusambandið (ESB) þess að rann-
sakaðar yrðu staðhæfingar þess
efnis að norsk fyrirtæki hefðu flutt
út rússneskan fisk til ESB-ríkja
með því að segja hann norskan til
að komast hjá því að greiða hærri
tolla. Þá hafa rússnesk yfirvöld lýst
því yfir að rússneskum skipum beri
að landa í heimahöfn, sem þýðir
gríðarlegt tap fyrir norska fiskiðn-
aðinn ef af verður.
Norðmenn njóta tollaívilnana frá
ESB vegna samningsins um Evr-
ópska efnahagssvæðið og greiða um
12% lægri tolla en t.d. Rússar. ESB
hefur rökstuddar grunsemdir um
að Norðmenn hafi selt fisk, einkum
þorsk, úr rússneskum togurum sem
sinn eigin til að komast hjá þessum
greiðslum og hefur fyrirtækjum
sem flytja inn þorsk frá Noregi ver-
ið uppálagt að gera grein fyrir upp-
runa fiskjarins. Verða fyrirtækin að
fara allt aftur til ársins 1998 í bók-
haldinu. Sá fiskur sem ekki er hægt
að sanna að sé norskur, innan tíu
mánaða, verður tollaður í samræmi
vð það, að því er segir í frétt NTB.
Norðmenn vona að ESB geri
ekki alvöru úr kröfum sínum, held-
ur láti nægja stikkprufur. Þetta sé
ekki í fyrsta sinn sem málið komi
upp og ljóst sé að gera verði brag-
arbót á merkingum á útfluttum
fiski.
Fiskur er önnur stærsta útflutn-
ingsgrein Norðmanna og selja þeir
umtalsvert magn af rússneskum
þorski og ýsu.
Efast um að alvara liggi
á bak við hótun
Vera kann þó að ásakanir um
svindl með uppruna þorsksins falli
um sjálfar sig á næstu mánuðum,
þar sem rússnesk yfirvöld sendu
fyrir nokkru frá sér tilskipun um að
rússneskum skipum beri að landa
nær öllum afla sínum í heimahöfn.
Tilskipunin átti að taka gildi í þess-
ari viku en enn sem komið er bendir
fátt til þess að sú verði raunin.
Kveðast norskir fiskframleiðendur
ekki telja að Rússar geri alvöru úr
hótun sinni.
Gerist það hins vegar, myndi það
hafa skelfilegar afleiðingar fyrir
sjávarútveginn í Norður-Noregi. Í
fyrra lönduðu rússneskir togarar
fiski fyrir rétt um 20 milljarða ísl.
kr. í höfnum í Norður-Noregi. Enn
eru þó engin merki um að tilskip-
unin, sem var undirrituð af rúss-
neska forsætisráðherranum og nær
til alls fisks nema þess sem seldur
er á uppboði eða er hluti afla við
vísindaveiðar.
Er nú talið að tilskipunin sé til
marks um fyrstu skref Rússa í átt
að því að ná til sín auðlindum á borð
við þorsk en í New York Times seg-
ir að nær allur fiskur sem rússnesk
skip veiði sé seldur erlendis í stað
þess að landa honum heima, full-
vinna hann og selja.
Rússneskur fiskur veldur vandræðum í Noregi
ESB grunar Norð-
menn um tollasvindl
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.