Morgunblaðið - 15.02.2001, Side 25

Morgunblaðið - 15.02.2001, Side 25
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2001 25 AUKIN virkni sólar kann að vera meginorsök hinna svokölluðu gróð- urhúsaáhrifa, að mati eðlisfræð- ingsins Henrik Svensmark hjá Dönsku geimrannsóknastofnun- inni. Telur Svensmark, að segul- magn sólar hafi aukist á síðustu öld og það hafi haft meiri áhrif á hitastig en uppgufun eiturefna, t.d. koltvísýrings. Þetta kom fram í danska sjónvarpinu fyrir skömmu. Kenning Svensmark stangast al- gerlega á við niðurstöðu nýrrar 1.000 blaðsíðna skýrslu sem kynnt var á ráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna um gróðurhúsaáhrif þar sem koltvísýringur er talinn megin- ástæða þeirra. Kenningin er í stuttu máli sú, að segulmagn sólar hafi aukist á síðustu 100 árum. Það myndi nokkurs konar verndarhjúp fyrir jörðina og dragi úr því magni efniseinda sem berist inn í lofthjúp jarðar annars staðar frá. Slíkt dregur úr skýjamyndun sem aftur verður til þess að hitastig jarðar hækkar. Svensmark viðurkennir að ekki sé hægt að sanna kenninguna, ein- faldlega vegna þess að of lítið sé vitað um það hvernig ský myndist. Þau skipti hins vegar miklu máli þegar lofthiti jarðar sé annars veg- ar. Hyggst Svensmark nú reyna kenningu sína á tilraunastofu. Svensmark hafnar ekki gróður- húsakenningunni sem slíkri, þótt hann segist ekki sannfærður um að koltvísýringi sé einum um að kenna. M.a. spyr hann hvers vegna segulmagn sólar aukist nú, hafi það ekki gert það 850 ár þar á undan. Óhætt er að segja að samlandar Svensmark hafi tekið kenningu hans með varúð. Ekki eru þó allir þeirra reiðubúnir að vísa henni á bug. Peter Laut, prófessor við danska tækniháskólann og ráðgjafi yfirvalda í orkumálum, segir að hafi Svensmark rétt fyrir sér, kippi það fótunum undan nær öll- um fyrri niðurstöðum varðandi gróðurhúsakenninguna og telur hann litlar líkur á því. Hann og aðrir vísindamenn viðurkenna þó að hitastig ráðist af flóknu samspili sólar og atriða á borð við eldgos, magns og samsöfnunar gróður- húsalofttegunda í andrúmslofti o.fl. Segir sólina orsök hærra hitastigs jarðar Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. ESB eða Evrópusambandið getur hugsað sér að leigja úkraínskar herflutningavélar til að tryggja að her þess verði starfhæfur án aðstoðar Banda- ríkjanna. Þetta kemur fram í The Daily Telegraph í gær. Þegar lönd ESB voru spurð að því í fyrra hvað þau gætu lagt til væntanlegs hers ESB kom í ljós að flutningsgeta hersins yrði einn af veikari hliðum hans. „Við erum mjög hrifin af því sem Úkraínumenn hafa að bjóða og erum að skoða málin,“ sagði embættismaður ESB, en nefnd á vegum ESB var stödd í landinu á þriðjudag. Um yrði að ræða not á 76 Íljúshín- og 40 Antonov-flutningavélum. Erfðabreytt matvæli leyfð EVRÓPUÞINGIÐ samþykkti í gær tillögur um að herða tak- markanir á notkun á erfða- breyttum vörum. Reglurnar nýju fela m.a. í sér tillögur að hertu eftirliti og vörumerking- um á erfðabreyttum matvæl- um, fóðri og lyfjum. Tillögurn- ar ryðja veginn fyrir afnámi á þriggja ára banni ESB á leyf- isveitingu fyrir nýjum erfða- breyttum vörum. Skrifstofu SÞ í Kabúl lokað STJÓRN talebana í Afganistan brást í gær við skipun Banda- ríkjastjórnar um lokun skrif- stofu þeirra í New York og fyrirskipaði Sameinuðu þjóð- unum, SÞ, að loka skrifstofu sinni í Kabúl. Kant Samellson, hernaðarráðgjafi SÞ í Kabúl, sagði að verið væri að bíða eftir ráðum um hvernig bregðast ætti við boðunum en hermt er að starfsfólk skrifstofunnar hafi búið sig til brottfarar. SÞ viðurkenna ekki stjórn taleb- ana sem steypti stjórn Rabb- anis forseta af stóli 1998. Talebanar, sem verið hafa með meirihluta Afganistans á sínu valdi, misstu í fyrrinótt lykilborgina Bamiyan, í mið- hluta landsins í hendur andstæðinga sinna og er það mikið áfall fyrir þá en að sama skapi sigur fyrir andstæðinga þeirra, liðsmenn Hezb-e-Wah- ad-flokksins. Norac fyrir rétt? MIRKO Norac, fyrrum hers- höfðingi í króatíska hernum sem eftirlýstur er vegna stríðs- glæpa, segir í viðtali í gær að hann hafi aldrei drepið óbreytta borgara, heldur að- eins verið að verja land sitt. Norac segir í viðtali við dag- blaðið Slobodna Dalmacija að hann sé tilbúinn til að mæta fyrir rétt svo framarlega sem ríkisstjórnin tryggi að hann verði ekki sendur til stríðs- glæpadómsstólsins í Haag. Forsætisráðherrann Ivica Rac- an hafnaði þessum afarkostum. Norac, sem er 33 ára gamall, er sakaður um að hafa myrt serb- neska borgara í borginni Gosp- ic 1991. Hann hefur farið huldu höfði en veitti viðtalið er hann mætti til að taka þátt í fjöl- mennum mótmælum þjóðernis- sinna í Split. STUTT Antonov og Íljúshín í Evrópuher

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.