Morgunblaðið - 15.02.2001, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
sem mestu máli skiptir varðandi staðsetningu
flugvallar, veðurskilyrði til flugs til og frá vell-
inum og flugöryggi. Umhverfismálin geta einn-
ig sett strik í reikninginn. Þannig virðast til-
komnar hugmyndir Samtaka um betri byggð
um flugvelli á Álfsnesi, í Geldinganesi, Akurey
og Engey en Júlíus Vífill Ingvarsson borgar-
fulltrúi kom fram með síðastnefndu tillöguna á
árinu 1999. Talsvert hefur verið fjallað um þess-
ar hugmyndir en þær hafa þótt óraunhæfar
vegna ofangreindra þátta og kostnaðar.
Á vegum borgarinnar er þremur kostum enn
haldið á lofti sem möguleikum fyrir innanlands-
F
RÁ ÞVÍ fljótlega eftir að Reykja-
víkurvöllur var afhentur Íslend-
ingum til eignar og fullra umráða
var farið að huga að mögulegum
flutningi vallarins. Fulltrúi al-
þjóðaflugmálastofnunarinnar,
Bertil M. Hellman, gerði úttekt á
málinu á árinu 1963 út frá kostn-
aði, uppbyggingu og flugtæknilegum atriðum.
Var þá einnig verið að huga að millilandaflugi.
Mælti hann með gerð flugvallar á Álftanesi en
taldi vallarstæði í Gálgahrauni og Kapellu-
hrauni í nágrenni álversins síðri kosti og
Reykjavíkurflugvöll raunar þann sísta. Aftur á
móti taldi Hellman rétt að flytja millilandaflug-
ið til Keflavíkur. Ekki varð af framkvæmdum,
nema hvað millilandaflugið var flutt, meðal ann-
ars vegna gagnrýni á mikil umhverfisáhrif vall-
argerðar á Álftanesi. Nú kemur enginn þeirra
valkosta sem Hellman nefndi til sögunnar til
greina vegna þróunar íbúðarbyggðar eða fyr-
irhugaðrar byggðar.
Á undanförnum árum hafa ýmsir fleiri staðir
verið nefndir. Byggjast hugmyndirnar flestar á
því að menn sjá fyrir sér ónotað land eða mögu-
leika til uppfyllingar en þá er eftir að kanna það
flugið. Eins og fyrr segir eru það nýr völlur á
miðjum Skerjafirði, nýr völlur í landi Hvassa-
hrauns sunnan Hafnarfjarðar og flutningur
miðstöðvar innanlandsflugsins til Keflavíkur-
flugvallar. Bent er á þessa kosti í umræðunni
um hvar flugvöllur gæti verið annars staðar en í
Vatnsmýri. Ræða má um það hvort umræddir
þrír kostir eru raunhæfir. Það er síðan auðvitað
ekki borgaryfirvalda heldur yfirvalda flugmála
og samgöngumála að ákveða hvar völlurinni eigi
að vera, ef Reykvíkingar hafna honum. Ef litið
er til hagsmuna Reykvíkinga einna hefur það
marga kosti að flytja flugvöllinn úr Vatnsmýr-
Almenna verkfræðistofan hefur kannað lauslega fyrir Reykjavíkurborg hugmynd Trausta Valssonar að flugvelli á uppfyllingum úti á Skerjafirði. Teiknistofa Halldórs Guðmundssonar hefur útfært hana myndrænt á
þeim grunni fyrir Morgunblaðið. Á flugvellinum er gert ráð fyrir flugstöð, flugskýlum og þjónustumannvirkjum á uppfyllingunni sem tengdust við Suðurgötu á granda. Flugvöllurinn er rétt utan við byggðina í Skerja-
firði og Ægissíðu. Mikið land losnar á flugvallarsvæðinu ef flugvöllurinn fer annað. Það er sýnt innan gulu línunnar en byggingarnar eru settar þar niður af handahófi.
VALKOSTIR UTAN
VATNSMÝRAR
Margir staðir hafa verið nefndir
komi til þess að Reykjavíkur-
flugvöllur verði fluttur úr Vatns-
mýrinni eftir 2016. Sumar
hugmyndirnar hafa ekki staðist nánari skoðun og á vegum
Reykjavíkurborgar og svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins
er þremur kostum einkum haldið fram. Helgi Bjarnason segir
hér frá þeim; nýjum flugvelli á Lönguskerjum í Skerjafirði eða
í landi Hvassahrauns í Vatnsleysustrandarhreppi sunnan
Hafnarfjarðar og flutningi flugsins til Keflavíkur.
"#!
)
$
/
!"# %#
&
'()*+*