Morgunblaðið - 15.02.2001, Qupperneq 32
32 FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Tengipunktur landsins
Flutningur innanlandsflugsins til Keflavíkurflugvallar
vekur hörð mótmæli fulltrúa landsbyggðar,
hagsmunaaðila í flugi og þeirra sem bera
ábyrgð á öryggismálum.
Á morgun, 16. febrúar
sé raunhæfur kostur til að ræða um en nið-
urstaðan hjá mörgum er hins vegar sú að flutn-
ingurinn til Keflavíkur sé erfiður vegna fjar-
lægðarinnar frá höfuðborgarsvæðinu og vegna
þeirra afleiðinga sem búist er við að hann hafi á
innanlandsflugið, ferðaþjónustuna og öryggi
borgaranna.
Flugbrautirnar á Keflavíkurflugvelli myndu
nýtast fyrir innanlandsvélarnar ef ákveðið yrði
að flytja flugið þangað, einnig akbrautir á vell-
inum, tæknibúnaður og slökkvistöð, svo helstu
þættir séu nefndir. Hins vegar þarf að byggja
þar upp flugstöð, flughlöð, flugskýli, aðstöðu
fyrir Landhelgisgæsluna og síðan hefur verið
rætt um að byggja flugvöll fyrir einkaflugið
annars staðar. Heildarkostnaður við uppbygg-
ingu á Keflavíkurflugvelli vegna innanlands-
flugsins yrði 4.220 milljónir kr., samkvæmt
áætlun borgarverkfræðings. Er það ódýrasti
kosturinn fyrir innanlandsflugið, kostnaðurinn
yrði liðlega hálfum milljarði minni en uppbygg-
ing á óbreyttum Reykjavíkurflugvelli og munar
þar rúmum 11%. Niðurstaðan er aðeins á annan
veg með núvirðisreikningi Flugmálastjórnar,
samkvæmt honum er Keflavíkurkosturinn örlít-
ið dýrari en uppbygging á Reykjavíkurflugvelli.
Í þessum núvirðisreikningi er tekið tillit til þess
hvenær framkvæmdirnar koma til og pening-
arnir látnir ávaxta sig þangað til.
Keflavíkurflugvöllur hefur yfir 95% nýting-
arhlutfall fyrir þotur í millilandaflugi. Ekki þarf
að efast um að hann myndi einnig nýtast innan-
landsflugflotanum ágætlega.
Ferðatími lengist um 102 mínútur
Á móti lægri fjárfestingarkostnaði við flutn-
ing innanlandsflugsins til Keflavíkur kemur
óhagræði notenda þess. Stafar það af lengri
ferðatíma á flugvöllinn, lengri flugleið og þar af
leiðandi hærri flugfargjöldum og lengri aksturs
í flugvél vegna stærðar flugvallarins. Leifur
Magnússon hefur látið tímagreina ferð með inn-
anlandsflugi frá Reykjavíkurflugvelli og Kefla-
víkurflugvelli. Kemur í ljós að ferðin frá Kefla-
vík, fram og til baka, tekur einni klukkustund
og fjörutíu og tveimur mínútum lengri tíma en
ferðin frá Reykjavíkurflugvelli. Jón Karl Ólafs-
son, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands, tel-
ur að fargjöldin þurfi að hækka vegna aukins
kostnaðar við að reka flugið frá Keflavíkurflug-
velli, meðal annars vegna lengri flugleiða. Þá
má búast við að flug falli oftar niður þegar
lengri ferðatími á flugvöll fléttast saman við erf-
ið flugskilyrði á suma af áætlunarstöðunum úti
á landi. Á móti kemur að þeir landsbyggðar-
menn sem eru að fara til útlanda gætu haft hag
af því að fljúga beint til Keflavíkur og losna við
aukakostnað við dvöl í Reykjavík og ferð þaðan
á Keflavíkurflugvöll. Þá verður einnig að hafa
þá fyrirvara við tímagreininguna að það fer
nokkuð eftir því hvar á höfuðborgarsvæðinu
notandi innanlandsflugsins býr eða ætlar að
sækja þjónustu hve mikið óhagræði er af flutn-
ingi flugsins til Keflavíkur.
Fjárfestingarkostnaðurinn kemur aðeins til
einu sinni en óhagræði einstaklinganna og flug-
félagsins fellur til á hverju einasta ári. Hag-
fræðistofnun Háskóla Íslands greindi kostnað
og ábata af staðsetningu flugsins á Reykjavík-
urflugvelli í skýrslu 1997 og bar saman við flutn-
ing innanlandsflugsins til Keflavíkurflugvallar.
Talið var að hreinn núvirtur þjóðhagslegur
kostnaður af flutningnum væri á bilinu 1,7 til 4,1
milljarður kr. sem svarar til um 100 til 250 millj-
óna kr. í árlegum hreinum kostnaði.
Slá ekki hendinni
á móti auknum umsvifum
Ljóst er að sveitarfélögin á Suðurnesjum
myndu ekki hafa neitt á móti því að fá innan-
landsflugið til Keflavíkurflugvallar. Það gæti
haft jákvæð áhrif á ferðaþjónustu svæðisins.
Framkvæmdastjóri stærsta sveitarfélagsins,
Ellert Eiríksson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar,
fer þó varlega í yfirlýsingar um flugvallarmálið,
segir að það sé skipulagsmál sem sé til með-
ferðar hjá borgarstjórn Reykjavíkur. Hins veg-
ar lýsir hann þeirri skoðun sinni að ef völlurinn
fari úr Vatnsmýrinni sé engin skynsemi í því að
færa innanlandsflugið annað en á Keflavíkur-
flugvöll og Suðurnesjamenn myndu ekki hafa
neitt á móti því.
Ellert minnir á að samgöngur milli höfuð-
borgarsvæðisins og Keflavíkur munu batna
mjög við tvöföldun Reykjanesbrautarinnar en
sú framkvæmd verður yfirstaðin löngu áður en
til þess kæmi að flugvöllurinn færi úr Vatns-
mýrinni.
Annað slagið hafa komið fram hugmyndir um
að hraðlest milli Reykjavíkur og Keflavíkur-
flugvallar gæti leyst fjarlægðarvandann að
miklu leyti og gert mögulegt að færa innan-
landsflugið á Suðurnesin. Með því móti væri
hægt að stytta ferðatímann í 15–30 mínútur.
Þessar tillögur hafa aldrei komist af hugmynda-
stiginu vegna þess að kostnaður hefur verið tal-
inn of mikill. Reynsla er til frá hinum Norð-
urlöndunum, meðal annars til Gardermoen við
Osló og Arlanda við Stokkhólm. Kostnaður við
uppbyggingu þessara hraðlesta er mikill á ís-
lenskan mælikvarða, eða á bilinu 50 til 100 millj-
arðar kr. Í samráði við finnskan starfsfélaga
sinn hefur Þorgeir Pálsson flugmálastjóri áætl-
að að kostaður við að koma upp hraðlest gæti
verið á bilinu 20–30 milljarðar kr.
Allir hafa kosti og galla
Þeir þrír kostir sem taldir eru helst koma til
greina fyrir innanlandsflugið ef ákveðið verður
að losa Vatnsmýrina til annarra nota hafa allir
sína kosti og galla. Flutningur miðstöðvar inn-
anlandsflugsins til Keflavíkurflugvallar er
ódýrasti kosturinn en hann hefði afdrifaríkar
afleiðingar fyrir innanlandsflugið, ferðaþjón-
ustuna og samgöngur við landsbyggðina, auk
þess sem öryggismálum yrði stefnt í tvísýnu
eins og greint verður frá í næstu grein.
Nýr flugvöllur í landi Hvassahrauns er ódýr-
ari kostur en margir hugðu og kemur best út,
samkvæmt mati Stefáns Ólafssonar. Hins vegar
hafa komið fram efasemdir um notagildi hans til
innanlandsflugs vegna veðurskilyrða og ná-
lægðar við Keflavíkurflugvöll. Samgönguráð-
herra segir reyndar að ekki komi til greina að
byggja nýjan flugvöll. Nýr flugvöllur á Löngu-
skerjum hefði þann kost að vera í nágrenni mið-
borgar Reykjavíkur en hann er langdýrasta
hugmyndin auk þess sem framkvæmdin myndi
valda miklu raski á umhverfinu í Skerjafirði.
Í öllum tilvikum fengi Reykjavíkurborg verð-
mætt byggingarland til ráðstöfunar í Vatns-
mýri.
byggingu nýs innanlandsflugvallar, hvað þá á
þessu svæði.
Flugmálastjórn taldi lengi vel að bygging nýs
flugvallar fyrir innanlandsflugið myndi kosta
tíu milljarða króna eða meira. Það kom því
nokkuð á óvart þegar lausleg kostnaðaráætlun
Línuhönnunar, á grundvelli ráðgjafar ARC,
benti til þess að kostnaðurinn væri ekki nema
um 5 milljarðar. Flugmálastjórn telur þennan
kostnað verða um 6,5 milljarða króna enda gera
starfsmenn hennar ráð fyrir að þörf sé fyrir
stærri flugstöð og fleiri byggingar en þýsku
ráðgjafarnir töldu og breiðari brautir. Einnig
ber talsvert á milli ráðgjafa Flugmálastjórnar
og svæðisskipulagsnefndarinnar um það hvað
kostar að byggja aðstöðu til að færa einkaflugið
ef Reykjavíkurflugvöllur yrði áfram miðstöð
innanlandsflugs og er Flugmálastjórn þar með
mun lægri tölu en ARC. Embættismenn borg-
arverkfræðings reyndu að samræma þessar
kostnaðartölur og niðurstaðan varð áætlun upp
á 6.320 milljónir kr. Kostnaðurinn við þennan
valkost er liðlega hálfum öðrum milljarði kr.
meiri en að byggja upp þjónustumannvirki á
Reykjavíkurflugvelli á núverandi stað ásamt
áætluðum kostnaði við byggingu annars flug-
vallar fyrir einkaflugið og nemur munurinn
tæplega þriðjungi af uppbyggingarkostnaðin-
um. Flugmálastjórn hefur núvirt tölurnar út frá
því hvenær til útgjaldanna kemur og verður
munurinn þá óhagstæðari Hvassahraunsvelli,
hann yrði liðlega 50% dýrari en núverandi
Reykjavíkurflugvöllur. Gert er ráð fyrir að um
130 hektarar af landi Hvassahrauns fari undir
flugvöllinn en það er í einkaeigu. Því hefur verið
haldið fram að í kostnaðaráætluninni sé ekki
gert ráð fyrir neinum kaupum á landi. Það er
ekki alls kostar rétt, samkvæmt upplýsingum
Stefáns Hermannssonar borgarverkfræðings,
þótt talan sé ekki sýnd sérstaklega. Við áætlun
þessa kostnaðarliðar var tekið mið af verði
lands sem Reykjavíkurborg hefur keypt eða
staðið til boða að kaupa í nokkurri fjarlægð frá
byggðinni á höfuðborgarsvæðinu. Þar er aug-
ljóslega um lágar fjárhæðir að ræða, kannski
tvo tugi milljóna, miklu lægri en á landi þar sem
komið er að því að byggja íbúðarhverfi.
Góð aðkoma frá Reykjanesbraut
Mikil aukning yrði á umferð um Reykjanes-
brautina ef innanlandsflugið flyttist til Kefla-
víkurflugvallar. Það munar um 300 þúsund far-
þega í umferðinni. Stefnt er að tvöföldun
Reykjanesbrautar á næstu árum og myndi það
leysa ýmis vandamál. Í því sambandi hefur
komið fram hjá yfirvöldum samgöngumála að
gerð verði mislæg gatnamót á nokkrum stöðum.
Verður því að tengja veginn að Hvassa-
hraunsflugvelli við Reykjanesbraut á slíkum
gatnamótum og ætti aðkoma að vellinum því að
verða góð.
Framkvæmdin mun valda röskun á hrauninu
og verður að láta gera umhverfismat fyrir hana.
Ekki hafa komið fram upplýsingar um neinar
menningarminjar á þessu svæði.
Flutningur til Keflavíkur
ódýrasti kosturinn
Þriðji möguleikinn utan Vatnsmýrar sem
sérstaklega er nefndur sem valkostur er flutn-
ingur miðstöðvar innanlandsflugsins til Kefla-
víkurflugvallar. Flestir eru sammála um að það
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Byggja þyrfti flugstöð fyrir innanlandsflugið, flugskýli og fleiri þjónustumannvirki ef innanlandsflugið yrði fært til Keflavíkurflugvallar. Hins vegar myndu flugbrautirnar nýtast fyrir innanlandsflugvélarnar. Keflavík-
urflugvöllur er mun stærri en Reykjavíkurflugvöllur og tæki mun lengri tíma að aka vélunum að og frá brautunum. Flugstöð Leifs Eiríkssonar er næst á myndinni, til hægri, ásamt athafnasvæði Flugleiða, en efst til
vinstri sést inn á varnarsvæðið.
$
& "
'
'
!+
(*!*&'!! "
' !"# .!
0 ( &' TENGLAR
...........................................................
Greinaflokkurinn birtist einnig á
Morgunblaðsvefnum: www.mbl.is
FRAMTÍÐ FLUGVALLAR
Koma má ábendingum vegna greina-
flokksins til annars höfundarins, Jóhönnu
Ingvarsdóttur: join@mbl.is, og Skapta
Hallgrímssonar: skapti@mbl.is, vegna
fjarveru hins, Helga Bjarnasonar.