Morgunblaðið - 15.02.2001, Síða 44
UMRÆÐAN
44 FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Konur eru helming-
ur mannkyns, vinna tvo
þriðju allrar vinnu, en
uppskera 10% tekna og
1% veraldlegra eigna.
Konur eru aðalfyrir-
vinna þriðju hverrar
fjölskyldu og lifa leng-
ur en karlar. Í hinum
vestræna heimi nota
konur heilsugæslu- og
heilbrigðisþjónustu og
lyf meira en karlar.
Karlar fá frekar alvar-
lega og/eða banvæna
sjúkdóma. Sjúkdómar
sem hrjá konur eru
kannski ekki þeir sem
draga til dauða en hafa
þess alvarlegri áhrif á daglegt líf
þeirra. Konur kvarta á annan hátt en
karlar og sjúkdómseinkenni þeirra
passa oft ekki inn í það kerfi sem
hannað hefur verið og þær því oft
sendar til frekari rannsókna. Ein-
kenni þeirra eru oft óljós, s.s. óþæg-
indi í hálsi, vöðvabólgur, þyngsli í
höfði, þreyta og lítil orka. Fleiri kon-
ur eiga við geðræn vandamál að
stríða og eru þunglyndar. Það virðist
sem karlmenn eigi auðveldara með
að tjá einkenni sem hitta á ákveðna
sjúkdómsgreiningu, enda sjúkdóms-
greiningakerfið hannað af karlmönn-
um og miðast því út frá þeirra þörf-
um. Skilningur á sjúkdómi ræðst af
skilgreiningu hans. Faglíkan lækn-
isfræðinnar hefur ákveðin einkenni
sem verða að vera fyrir hendi til þess
að staðfesta sjúkdóm. Manneskjan
sjálf og það hvernig
hún upplifir líðan sína
er önnur leið til að skil-
greina sjúkdóma, en
tryggingakerfið bygg-
ist ekki á upplifun ein-
staklinga. Karlmenn
eru frekar teknir alvar-
lega og önnur viðhorf
eru til þeirra en kvenna
innan heilsugeirans.
Niðurstaða úr rann-
sókn um hjartaveika
sýndi að konur fá iðu-
lega aðra meðhöndlun
en karlar, tilvísanir til
sérfræðinga eru fátíð-
ari og þær eru síður
lagðar inn á sérdeildir.
Það hefur líka komið í ljós að dán-
artíðni er hærri meðal kvenna með
hjartakvilla, og fylgikvillar eru al-
varlegri og draga verulega úr lífs-
gæðum þeirra kvenna sem lifa af
hjartaáfall. Gæti verið að heilbrigð-
iskerfið nái ekki að sinna þörfum
kvenna? Heilbrigðiskerfið var hann-
að af karlmönnum og út frá þeirra
forsendum sem þeir einir skildu.
Karlar hafa haft undirtökin í heim-
inum og þó að konur komist í valda-
stöður og menntist í hefðbundnar
karlastéttir mun það ekki skila sér í
jafnræði fyrr en konur stjórna út frá
eigin forsendum á sama hátt og karl-
ar. Vísindagrunnur læknisfræðinnar
grundvallast á hlutlægu mati. Þess
vegna er talið að hægt sé að yfirfæra
niðurstöður á mismunandi fólk og
menningu. Konur hafa lítið verið
rannsakaðar og meðalkarlmaðurinn
notaður sem útgangspunktur fyrir
flest það sem rannsakað hefur verið.
Niðurstöður rannsókna þar sem
karlmenn hafa verið viðfang hafa
verið lagðar til grunns og yfirfærðar
beint yfir á kvenfólk. Thalidomide,
lyf sem á 7. áratugnum var gefið
barnshafandi konum við ógleði, er
dæmi um afleiðingar sem slíkt getur
haft í för með sér. Þegar fjallað er
um áhættuþætti hjartasjúkdóma er
gengið út frá meðalkarlmanninum.
Áhættuþættir kvenna þurfa ekki að
vera þeir sömu. Hvers vegna eru
konur, líf þeirra og heilsa, svona lítið
eftirsóknarverðar í rannsóknum? Er
þeirra líf ekki áhugavert? Eða teng-
ist þetta virðingu og völdum? Í Sví-
þjóð gerðu tvær konur athugun á því
hvers konar verkefni fengju helst
fjármagn til rannsókna. Niðurstaðan
varð sú að það væru karlar úr mið-
og yfirstétt sem fengju mest fé, og að
rannsóknirnar byggðust á fyrri
rannsóknum – alltaf er sem sagt ver-
ið að skoða sömu hlutina. Framan af
voru læknar einungis karlmenn úr
millistétt. Konur sem þeir meðhöndl-
uðu, og e.t.v. tilheyrðu lægri þrepum
þjóðfélagsstigans, voru víðs fjarri
raunveruleika þeirra og gildismati,
svo þessir hópar áttu mjög erfitt með
að skilja hvor annan. Stéttir sem
hafa komist til valda hafa oft alið af
sér aðrar starfsgreinar til að útfæra
ákveðna verkþætti sem þykja taka of
langan tíma eða ekki hæfa „uppruna-
stéttinni“. Þessar aðstoðarstéttir eru
oftast kvennastéttir sem haldið er í
skefjum – ósjálfráða. Sjálfræði
hjúkrunarstéttarinnar, pólitísk
virkni hennar og ásókn í stjórnunar-
störf er dæmi um stétt sem nær að
ógna valdakerfinu, enda eflaust
þyrnir í augum þeirra lækna sem
vilja halda í heiðri þá aldagömlu hefð
að þeim beri að drottna og deila og
það frekar vegna starfsheitis en
hæfileika. Enn er þó langt í land þótt
bara sé miðað við heilbrigðisstéttirn-
ar og sem dæmi má nefna tilvísana-
kerfi lækna; hvaða starfsstéttir hef-
ur Tryggingastofnun gert samninga
við og greiðir hæstu greiðslur til?
Hverjir eru yfir stjórn menntunar og
hafa mannaforráð? Og síðast en ekki
síst, hverjir hafa hin pólitísku völd?
Til að jafna hlut kvenna þarf að
sækja á öllum vígstöðum og varðandi
heilsu þeirra þarf að rannsaka sér-
staklega líf þeirra og áhrifavalda á
heilbrigði og sjúkdóma. Raunveru-
leiki íslenskra kvenna og heilsufar
þeirra og lífsgæði er verðugt verk-
efni til rannsókna. Með því ykist
skilningur á hvernig hægt sé að jafna
atvinnutækifærin, gera heilbrigðis-
kerfið skilvirkara og uppræta launa-
misrétti.
Konur og karlar –
mismunandi kyn –
mismunandi heilsa?
Elín Ebba
Ásmundsdóttir
Sjúkdómar
TIL að jafna hlut
kvenna þarf að sækja á
öllum vígstöðum, segir
Elín Ebba Ásmunds-
dóttir, og varðandi
heilsu þeirra þarf að
rannsaka sérstaklega líf
þeirra og áhrifavalda á
heilbrigði og sjúkdóma.
Höfundur er forstöðum. geðd. iðju-
þjálfunar, Lsp. háskólaskjúkrahúss,
og lektor við HA.
Símar 557 2000 og 557 7100
Skemmuvegi 36 Bleik gata
Kópavogi
Þakrennur
og rör
úr Plastisol-
vörðu stáli.
Heildarlausn á
þakrennuvörnum
í mörgum litum.
Stretchbuxur kr. 2.900
Konubuxur frá kr. 1.690
Dragtir, kjólar,
blússur og pils.
Ódýr náttfatnaður.
Brandtex fatnaður
Nýbýlavegi 12, sími 5544433
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR Aðalfundur
Domus Medica hf.
Fimmtudaginn 1. mars 2001 verður aðalfundur
Domus Medica hf. haldinn í kaffiteríu í anddyri
Domus Medica. Fundurinn hefst kl. 18.30.
Dagskrá verður samkvæmt grein 4.4. í
samþykktum félagsins.
Dagskrá skv. samþykktum félagsins:
1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess
sl. starfsár.
2. Rekstrar- og efnahagsreikningar ársins 2000
ásamt athugasemdum endurskoðanda
lagðir fram til staðfestingar.
3. Tillögur til lagabreytingar, sem löglega eru
fram bornar.
4. Kosning stjórnar, sbr. grein 5.1.
5. Kosning endurskoðanda, sbr. grein 7.2.
6. Tekin ákvörðun um þóknun til stjórnar-
manna.
7. Tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með
hagnað eða tap félagsins á reikningsárinu.
8. Tekin ákvörðun um greiðslu arðs og framlög
í varasjóð.
9. Önnur mál.
Stjórnin.
Aðalfundur
Frumherja hf. 2001
Aðalfundur Frumherja hf., vegna starfsársins
2000, verður haldinn í húsakynnum félagsins
á Hesthálsi 6—8, Reykjavík, fimmtudaginn 22.
febrúar 2001 kl. 16:00.
Dagskrá fundarins er þessi:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt
12. grein samþykkta félagsins.
2. Tillaga um heimild til handa félagsstjórn
til kaupa á eigin hlutabréfum sbr. 55 gr.
hlutafjárlaga nr. 2/1995.
3. Tillaga um afskráningu félagsins af vaxta-
lista Verðbréfaþings Íslands hf.
4. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur
mál sem löglega hafa verið upp borin.
Ársreikningur félagsins ásamt tillögum mun
liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum
til sýnis sjö dögum fyrir aðalfund.
Tilkynning um framboðs-
frest til stjórnarkjörs
Samkvæmt 32. gr. laga Félags rafeindavirkja
skal fara fram allsherjaratkvæðagreiðsla um
kjör stjórnar, varastjórnar, trúnaðarráðs
og varamanna í trúnaðarráð.
Með hliðsjón af framansögðu tilkynnist hér
með að framboðsfrestur hefur verið ákveðinn
til kl. 16.00 föstudaginn 23. mars 2001 og ber
að skila tillögum fyrir þann tíma á skrifstofu
félagsins.
Hverjum lista skal fylgja skrifleg staðfesting
þeirra sem á listanum eru.
Reykjavík, 13. febrúar 2001.
Stjórn Félags rafeindavirkja.
S M Á A U G L Ý S I N G A RI
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 5 1812158 br.
Landsst. 6001021519 VII
I.O.O.F. 11 1812158½ 9.II*
Í kvöld kl. 20.00 Lofgjörðar-
samkoma í umsjón Hilmars Sím-
onarsonar og Pálínar Imsland.
Allir hjartanlega velkomnir.
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, í kvöld kl. 20.00.
Vitnisburðir. Ræðumaður:
Kristinn Birgisson.
Fjölbreyttur söngur. Kaffi að
lokinni samkomu. Allir velkomnir.
www.samhjalp.is .
Aðaldeild KFUM
Holtavegi 28
Fundur í kvöld kl. 20.00.
Kristinn læknir á bráðavakt.
Efni: Jón Baldursson
Stjórnun: Haraldur Jóhannsson.
Upphafsorð: Ársæll Aðalbergs-
son. Hugleiðing: Sigfinnur Þor-
leifsson.
Allir karlmenn velkomnir.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R