Morgunblaðið - 15.02.2001, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 15.02.2001, Blaðsíða 56
KIRKJUSTARF 56 FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Áskirkja. Opið hús fyrir alla ald- urshópa kl. 14 í neðri safnaðarsal. Kristján Sigtryggsson organisti leiðbeinir og stýrir hópnum. Allir hjartanlega velkomnir til að syngja eða hlusta. Boðið upp á kaffi á eftir. Mikið spjallað og stundum tekið í spil. Biblíulestur kl. 20. Fjallað verður um bréf Páls postula. Dómkirkjan. Opið hús fyrir alla aldurshópa í safnaðarheimilinu kl. 14-16. Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Orgelleikur, íhugun. Léttur málsverður í safnaðarheimili að stundinni lokinni. Háteigskirkja. Foreldramorgunn, opið hús kl. 10. Stúlknakór kl. 16. Jesúsbæn kl. 20. Taize-messa kl. 21. Þangað sækir maður frið og kyrrð, staldrar við í asa lífsins, tekur andartak frá til þess að eiga stund með Guði. Lifandi ljós og reykelsi bjóða mann velkominn. Tónlistin fallin til að leiða mann í íhugun og bæn. Allir velkomnir. Fræðslufundur Nýrrar dögunar, samtaka um sorg og sorgarvið- brögð, í safnaðarheimilinu, 2. hæð, kl. 20-22. Sr. Ingileif Malmberg, sjúkrahúsprestur, flytur fyrirlest- ur um barnsmissi. Umræður á eft- ir. Aðgangseyrir kr. 500.-. Allir velkomnir. Langholtskirkja. Foreldramorg- unn kl. 10-12. Svala djákni les fyr- ir eldri börnin. Söngstund með Jóni Stefánssyni. Langholtskirkja er opin til hljóðrar bænargjörðar í hádeginu. Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45-7.05. Kyrrðarstund í há- degi kl. 12.00. Tónlist, bæn og létt- ur málsverður. Samvera eldri borgara kl. 14. Fermingardrengir koma í heimsókn og greina frá áhugamálum sínum og áhyggjum. Neskirkja. Unglingaklúbbur Nes- og Dómkirkju kl. 20 í safnaðar- heimili Neskirkju. Seltjarnarneskirkja. Starf fyrir 9- 10 ára börn kl. 17. Árbæjarkirkja. TTT-starf 10-12 ára í Ártúnsskóla kl. 17-18. Breiðholtskirkja. Mömmumorg- unn föstudag kl. 10-12. Kynning á ABC hjálparstarfinu. Digraneskirkja. Leikfimi ÍAK kl. 11. Foreldramorgnar kl. 10-12. Helgistund kl. 11. Kvöldbænir kl. 18. Alfa-námskeið kl. 19. Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 11-12 ára drengi kl. 17-18. Grafarvogskirkja. Foreldra- morgnar kl. 10-12. Fræðandi og skemmtilegar samverustundir, heyrum guðs orð og syngjum með börnunum. Kaffisopi og spjall, allt- af brauð og djús fyrir börnin. Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar. Starf fyrir 7-9 ára kl. 16.30. Kópavogskirkja. Samvera eldri borgara í dag kl. 14.30-17 í safn- aðarheimilinu Borgum. Kyrrðar- og bænastund í dag kl. 17. Fyr- irbænaefnum má koma til sókn- arprests eða kirkjuvarðar. Seljakirkja. Fundir fyrir 9-12 ára stráka kl. 17 í umsjá KFUM. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung börn og foreldra þeirra kl. 10-12 í Vonarhöfn, Strandbergi. Opið hús fyrir 8-9 ára börn í Von- arhöfn, Strandbergi, kl. 17-18.30. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús fyrir 10-12 ára kl. 17-18.30. Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir 9- 12 ára krakka kl. 17-18.30. Vídalínskirkja. Æskulýðsfélag Garðakirkju heldur fundi kl. 19.30- 20.30. Unglingar hvattir til þátt- töku. Umræðu- og leshópur, fræðslustarf fyrir alla í Bræðra- stofu kl. 21-22. Bæna- og kyrrð- arstund í kirkjunni kl. 22. Koma má bænarefnum til presta og starfsfólks safnaðarins. Allir vel- komnir. Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl. 10 foreldramorgunn, notalegt spjall yfir kaffibolla. Kl. 14.30 helgistund á Heilbrigðisstofnun, 3. hæð, heimsóknargestir velkomnir. Kl. 17.30 TTT-starfið, 10-12 ára krakkar í góðri sveiflu. Keflavíkurkirkja. Fermingarund- irbúningur kl. 14.50-16.15 í Kirkju- lundi. Fræðslufundur um sorg og sorgarviðbrögð í Kirkjulundi kl. 20.30. Sr. Sigurður Pálsson, sókn- arprestur í Hallgrímskirkju, flytur erindi sem hann nefnir Líf í sorg, líf í von. Hann skrifaði á sínum tíma bókina Börn og sorg og situr fyrir svörum ásamt konu sinni, Jó- hönnu Möller. Ytri-Njarðvíkurkirkja. Fyrir- bænasamvera í dag kl. 18.30. Fyr- irbænaefnum er hægt að koma áleiðis fyrir hádegi virka daga kl. 10-12 í síma 421-5013. Biblíulestr- ar í kvöld kl. 20 í umsjá Ástríðar Helgu Sigurðardóttur. Spilakvöld aldraðra í kvöld kl. 20. Akraneskirkja. Fyrirbænastund kl. 18.30. Beðið fyrir sjúkum og sorgmæddum. Safnaðarstarf Morgunblaðið/Brynjar Gauti Laugarneskirkja FRÉTTIR UPPLÝSING, Félag bókasafns- og upplýsingafræða, stendur fyrir kynningu á meistaraprófsverkefni Sveins Ólafssonar M.Sc. fimmtudag- inn 15. febrúar kl. 16.15 í fyrirlestr- arsal Þjóðarbókhlöðu. Sveinn lauk M.Sc.-prófi í upplýs- inga- og bókasafnsfræðum í nóvem- ber sl. og kynnir meistaraprófsverk- efni sitt, „Iceland’s National Information Infrastructure“. SÝNINGIN „Milli andspyrnu og píslarvættis – vottar Jehóva í of- sóknum nasista“ verður opnuð í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Sel- fossi föstudaginn 16. febrúar. Um 2.800 manns sáu sýninguna þegar hún var haldin í ráðhúsi Reykja- víkur í janúar sl. Við opnun sýningarinnar á morgun verða flutt tvö stutt er- indi. Kjell Geelnard, fulltrúi sýn- ingarnefndar, ræðir um ofsóknirn- ar eins og þær horfðu við frá Norðurlöndum og Svanberg K. Jakobsson, formaður sýningar- nefndar, fjallar um mikilvægi þess að sagan gleymist ekki, segir í fréttatilkynningu. Síðan verður sýnd heimildar- myndin Staðfesta votta Jehóva í ofsóknum nasista. Þorlákur H. Helgason, fræðslustjóri Árborgar, opnar svo sýninguna. Strengjahóp- ur úr Tónlistarskóla Árnesinga leikur við opnunina og verður boði upp á léttar veitingar á dagskrá lokinni. Sýningin stendur til 25. febrúar 2001 og er opin frá kl. 8 til 17 á virkum dögum og frá kl. 13 til 18 um helgar. Aðgangur er ókeypis. Sýningin „Milli and- spyrnu og píslarvættis“ Kynnir verk- efni í bóka- safnsfræðum ♦ ♦ ♦ ÞRÍR stærstu og virtustu reið- skólar í Svíþjóð héldu árlegan samráðsfund í Reykjavík um helgina. Endaði dagskrá reis- unnar með því að Svíunum var boðið á stutta kynningarsýningu Félags tamningamanna í Reið- höllinni í Víðidal í gærmorgun. Voru þar meðal annars sýndar gangtegundir íslenska hestsins og Sigurbjörn Bárðarson var með sýnikennslu í þjálfun skeiðhests. Margir snjallir reiðmenn voru í hópi Svíanna og þar á meðal fólk sem viðriðið er sænska landsliðið í fimi og hindrunarstökki og var nokkrum þeirra boðið á bak að lokinni sýningu. Upphafsmaður að því að skól- arnir héldu fundinn á Íslandi var Per Anderz Finn, formaður sænska Íslandshestasambandsins, en til stendur að sambandið fái aðstöðu fyrir starfsemi sína á ein- um þessara skóla. Benti formað- urinn þeim á að sniðugt gæti ver- ið að halda fundinn í Reykjavík. Fundur síðasta árs var haldinn í Danmörku. Þá munu einnig hugmyndir uppi um að hið samnorræna menntakerfi fyrir Íslandshest- areiðmennsku sem unnið er að verði tekið til kennslu á ein- hverjum þessara skóla. Íslenski hesturinn féll Svíunum vel í geð og lýstu þeir yfir ánægju sinni með þá reið- mennsku sem þeir sáu og ekki minnkaði hrifningin hjá þeim þegar fimm úr hópnum fengu að koma á bak nokkrum hestanna sem voru sýndir. Að sögn Ey- steins Leifssonar, stjórnarmanns í FT, voru margir Svíanna undr- andi á því hversu góðir hestarnir voru því mynd þeirra af íslenska hestinum var einungis þægir og hægfara leiguhestar fyrir börn og lítið vant fólk. Var því með sýningunni greinilega opnuð ný sýn þessa fólks á íslenska hestinn. Að lokinni sýningu óskuðu Sví- arnir eftir að fá að skoða hest- hús, þeir voru mjög áhugasamir og spurðu margs. Að sjálfsögðu vakti það mikla athygli þeirra að sjá svo stórt hesthúsaþorp sem er, að því er næst verður komist, séríslenskt fyrirbæri. Félag tamningamanna með kynningarsýningu í Reiðhöllinni Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson Svíarnir heilluðust af hestunum sem þeir prófuðu, en flestir þeirra voru að koma á bak slíkum hesti í fyrsta sinn. Þeir eru f.v. Marianne Esseen, Jonas Johnson, K.G. Svenson, Marie Zetterquist og Erik Berggren. Sænskir hesta- menn „uppgötva“ íslenska hestinn Eftir að hafa fengið leiðbeining- ar voru Svíarnir fljótir að ná töltinu. Virðist Hrímnir frá Svertingsstöðum hér fara vel hjá Jonasi Johnson. 1 ( (  "             (  8   :%$**1!$A31 :%$** 5    ' % ,!9*!&'$$! %!: "!,!%+* ,*B. !&'$$! /#,**/-+*!%+*   !(!"! +!"%%+* 1/#,*%&'$$! **!/#,*%&'$$! / "0!%$*%!%&'$$! "!1)!"%!%&'$$! 0  &          ( (     .    .      2 7 522 5!+< "!%$),  -* &      .  6 )  5"*B'!. *"%* !,!:  "!"!%%+* 7'* **!.&!&%%+* *& $ *5C.$+  (!"!!**.&!&%%+* . *-!.&!&%&'$$! 7*% *& + $ 1!*1)!*+"1!*1!*1)!* ,              ..57/  /!% , *9<! !<<    -.7")   /!  !+!$$! !"!#$DE*& ()!"..! *&%&'$$! 8-  ** "%%+* :"&%.! *&%&'$$! !"!#$.! *&%&'$$! +"1!*1)!*
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.