Morgunblaðið - 15.02.2001, Qupperneq 63

Morgunblaðið - 15.02.2001, Qupperneq 63
BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2001 63 FRAMTÍÐ Reykjavíkurflugvallar er nú mjög til umræðu og þar á meðal hugmyndir um að taka flug- vallarstæðið undir framlengingu Miðbæjarins, en tillaga í þá átt kom fyrst fram í grein í Mbl. 23. febrúar 1957. „Samtök um betri byggð“ hafa að undanförnu barist fyrir þeirri hugmynd og eiga drjúgan þátt í að flugvallarmálið er jafnmikið á dag- skrá og raun ber vitni. Í þeirri um- ræðu hefur mest farið fyrir tillögum um að færa flugvöllinn út á Löngu- sker í Skerjafirði eða allt innan- landsflug til Keflavíkur. Hvorugt er þó líklegt til að ná fram að ganga. Austur-vestur-brautin hefur verið meira en endurbyggð, hún er ný frá grunni, og ýmsir bíða í ofvæni eftir að endurtaka leikinn á norður-suð- ur-brautinni enda liggur fyrir leyfi borgaryfirvalda til verksins. Hins vegar eru uppi hugmyndir um að draga úr ónæðinu og hættunni af vellinum með því að beina öllum einkaþotum til Keflavíkur. Fólki úr þessum vélum ætti að verða vor- kunnarlaust að aka á tvöfaldri Reykjanesbrautinni til Reykjavíkur ef öldurhúsin í Miðbænum heilla. Jafnframt mun ætlunin að taka fyrir allt kennslu- og æfingaflug í Reykja- vík, en við því getur alþjóðaflugvöll- urinn í Keflavík ekki tekið. Það gæti aftur á móti lítill völlur í Hvassa- hrauni. Flugráð segir reyndar að flugvöllur í Hvassahrauni yrði oftar lokaður en völlurinn í Reykjavík af flugtæknilegum ástæðum. Á móti kæmi að á örlagastundu yrði engin byggð í hættu í hrauninu, en við Reykjavíkurflugvöll er byggð nán- ast í öllum áttum og fjölmenni í Mið- bænum. En öryggi á jörðu niðri fell- ur kannski ekki undir „flugtækni“. Í Hvassahrauni ætti að leggja stuttar brautir þannig, að þær mætti lengja síðar til þess að þjóna innanlands- fluginu. Ekki þyrfti að hafa áhyggj- ur af ímynduðum þörfum Hafnar- fjarðar fyrir landrými, þar á bæ er búið að byggja meira en nóg á hraunbreiðum. Þar sem ekki hefur enn verið lögð ný norður-suður- braut, þá er sjálfsagt að reyna að koma þar fram mikilvægum breyt- ingum. Ef þeirri braut yrði hnikað til í stefnu utan við Kársnesið og næði frá um það bil miðju núverandi vallar (sjá kort í Mbl. 11. nóv. sl., með 1600 m norður-suður-braut) og út í Skerjafjörð litlu lengra en olíu- bryggjan gerði, þá næðist 1200 metra braut sem ætti að duga, enda er hér verið að tala um innanlands- flugið eingöngu. Hin brautin, sú ný- lagða (1450 m), yrði þá meira notuð og við það batnaði staða Miðborg- arinnar og Kársnessins. Jafnframt yrði lagt fé í enduropnun þriðju flugbrautar Keflavíkurflugvallar. Þetta hefði ýmsa kosti í för með sér. Flugvöllurinn sem nánast hefur ver- ið eins og svöðusár í borgarlandinu hyrfi sjónum manna að hálfu og bæði Landspítalinn og Háskólinn fengju aukið rými auk þess sem pláss skapaðist fyrir hátæknifyrir- tæki. Því miður yrði að fresta áformum um frekari útvíkkun Mið- borgarinnar, en hvort málið yrði tekið upp aftur eftir 16 ár eða 60 verður reynslan að skera úr um. Boðaðar kosningar breyta litlu um hvað verður ofan á í þessu máli. Aukið lýðræði? Margir hafa undrast að nú skuli eiga að fara að kjósa um framtíð flugvallarins þegar nýbúið er að festa hann í skipulaginu til nær tveggja áratuga og fram- kvæmdir komnar áleiðis sem greini- lega er ætlað að duga hálfa öldina ef ekki öldina alla. Aðrir fagna kosn- ingunum og telja þær merki um lýð- ræðisþróun sem brátt muni blómstra með nútímatækni. Ekki er þó víst að réttlæti aukist þótt lands- lýður eigi þess bráðum kost að sitja við gagnvirkt sjónvarp og stýra landsmálunum í ríkum mæli. Oft er gaman að hafa áhrif og geta stjórn- að, en það getur líka verið erfitt að þurfa að taka afstöðu og því getur fylgt mörg armæðan að setja sig inn í flókin mál. Hætt er því við að nokkrir áhrifamiklir ritstjórar og vinsælir sjónvarpsfréttamenn kæmu í mörgum tilfellum til með að leiða almenningsálitið, en það er engin trygging fyrir því að sanngirni, rétt- læti eða hagsmunir þjóðarinnar verði alltaf ofan á. Hins vegar er hugsanlegt að skipta um stjórn- málamenn á fjögurra ára fresti telji fólk þá hafa misstigið sig að ráði. Sagt hefur verið að þeir séu speg- ilmynd þjóðfélagsins með öllum sín- um kostum og göllum, en þó líklega síst þegar þeir sýna sínar verstu hliðar með því að skipta um skoðun eftir því hvorum megin borðs setið er. En ranghverfan snýr líka oft út. Fjas og þykjustulæti út á við en vel unnið á bak við tjöldin gildir senni- lega um þá flesta. Stjórnmálamenn- irnir eiga því að vinna verkin sín, svo sem að ná niðurstöðu í flugvall- armálinu, en ekki láta kjósa eftir á, það dugir ekki fremur en við trygg- ingarnar. Affarasælast sýnist því að halda stjórnkerfinu lítið breyttu en taka jafnframt nokkurt mið af vönd- uðum skoðanakönnunum, og svo getur fólk haldið áfram að hneyksl- ast á pólitíkusunum. VALDIMAR KRISTINSSON, Reynimel 65, Reykjavík. Flugvöllurinn og lýðræðið Frá Valdimar Kristinssyni: VERSLUNIN Laugavegi 52, s. 562 4244. Brúðhjón A l l u r b o r ð b ú n a ð u r - G l æ s i l e g g j a f a v a r a - B r ú ð h j ó n a l i s t a r
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.