Morgunblaðið - 28.02.2001, Page 10
FRÉTTIR
10 MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
LÚÐVÍK Bergvinsson, Samfylking-
unni, var málshefjandi í umræðunni,
en auk hans og Sólveigar Péturs-
dóttur, dóms- og kirkjumálaráð-
herra, tóku fjölmargir þingmenn til
máls í umræðunum. Höfðu flestir
talsvert til málanna að leggja, svo
mjög að forseti, Ísólfur Gylfi Pálma-
son, þurfti óspart að beita bjöllunni
og minna á tímamörkin. Tókst eng-
um þingmanni í umræðunni að ljúka
máli sínu innan tímamarkanna.
Lúðvík sagði í ræðu sinni að tilefni
umræðunnar væri umfjöllun fjöl-
miðla undanfarna daga um yfir-
vinnubann hjá ávana- og fíkniefna-
deild Lögreglunnar í Reykjavík. Í
þeirri umfjöllun hefði komið fram að
vegna bannsins hafi mál farið for-
görðum, auk þess sem ekki hafi
reynst mögulegt að sinna beiðnum
lögregluembætta utan af landi um
aðstoð vegna innflutnings fíkniefna.
Vísað til yfirvinnubanns
í bréfi Landssambands
lögreglumanna
Vísaði Lúðvík til þess að Lands-
samband lögreglumanna hafi af
þessum sökum ritað Sigurði Líndal
lagaprófessor bréf 19. október sl., og
farið þess á leit að hann svaraði því
hver væri réttarstaða lögreglu-
manna, sem hafa vitneskju um
brotastarfsemi, en sinna ekki rann-
sókn máls þar sem fyrir liggi að þeir
muni ekki fá greitt sérstaklega fyrir
þá vinnu sem þeir leggja í slíkar
rannsóknir utan dagvinnutíma. Í
umræddu bréfi Landssambands lög-
reglumanna komi fram að spurning-
in væri borin fram sökum þess að
undanfarnar vikur hafi ríkt algert
bann við aukavinnu í ávana- og fíkni-
efnadeild.
Sagði Lúðvík að fullyrðingar um
yfirvinnubann hafi einnig komið
fram í fjölmiðlum, auk þess sem ein-
staka lögreglumenn hafi haldið
þessu fram, bæði munnlega og skrif-
lega. Hins vegar hafi komið oftar en
einu sinni fram í máli Sólveigar Pét-
ursdóttur dómsmálaráðherra að
ekkert yfirvinnubann væri í gildi hjá
fíkniefnalögreglunni. Það hafi hún
gert bæði í umræðum á Alþingi og í
fjölmiðlum.
„Þessar fullyrðingar vekja því upp
spurningar um
hvort Alþingi hafi
verið í stakk búið
til að fjalla um
þessi mál, við af-
greiðslu fjárlaga
fyrir árið 2001, í
ljósi þeirra upp-
lýsinga sem
dómsmálaráð-
herra hafði veitt,“
sagði Lúðvík og
benti á að þar
hefði allt verið sagt vera í himnalagi.
„Eftir stendur því spurningin hvort
allir aðrir en ráðherrann hafi farið
með rangt mál,“ sagði hann enn-
fremur.
Ráðherra hefur
óskað eftir rannsókn
Dómsmálaráðherra sagði að til-
efni umræðunnar þætti sér afar sér-
stakt, svo ekki væri meira sagt.
Sagðist hún að sjálfsögðu standa við
allar fyrri yfirlýsingar sínar í þessu
efni, enda hafi það væntanlega ekki
farið framhjá málshefjanda hvaða
árangri lögreglan hefur náð.
Ráðherra sagðist engar ábending-
ar hafa fengið þess efnis að ekki hafi
verið unnt að veita löggæslu utan
höfuðborgarsvæðisins lögbundna
aðstoð í fíkniefnamálum, sem rakin
verði til meints fjárskorts lögreglu-
stjóraembættis-
ins í Reykjavík.
Hún vissi heldur
engin dæmi þess
að sakargögn
hafi spillst eða
farið forgörðum
af sömu ástæð-
um.
„Ég er orðin
langþreytt á um-
ræðum um yfir-
vinnubann fíkni-
efnadeildarinnar í Reykjavík. Það
hefur aldrei verið sett yfirvinnubann
á deildina og þeir sem halda öðru
fram vita einfaldlega ekki um hvað
þeir eru að tala,“ sagði hún og vísaði
til þess að lítill hópur manna innan
fíkniefnadeildarinnar hafi unnið á
milli 200 og 300 yfirvinnutíma á mán-
uði í nokkra mánuði vegna viðvar-
andi eftirlits með grunuðum mönn-
um á síðasta ári. Því hafi verið gripið
til takmarkana á yfirvinnu í deildinni
þegar yfirstjórn hafi þótt það óhætt,
en algjörlega sé fráleitt að sett hafi
verið á yfirvinnubann, eins og þó hafi
verið tönglast á.
„Ég hef margoft reynt að leiðrétta
þessa síbylju en hef orðið vör við að
menn vilji ekki hlusta á það,“ sagði
Sólveig. Hún sagðist ennfremur hafa
óskað eftir sérstakri rannsókn rík-
islögreglustjóra á máli því sem upp
kom í Vestmannaeyjum, enda vilji
hún fá það upp á borðið ef samskipti
lögregluliðanna hafi ekki verið jafn
ljós og skilvirk og best verði á kosið.
Orðanotkun þingmanna
sögð hastarleg
Fjölmargir þingmenn tóku einnig
til máls. Þingmenn stjórnarandstöðu
vísuðu oft til þess að hér væri einnig
verið að ræða um fjárhagsvanda lög-
reglu og að nauðsynlegt væri að taka
á þeim vanda. Ögmundur Jónasson,
vinstri grænum, sagði málflutning
dómsmálaráðherra mótsagnakennd-
an og fór fram á að þau skjöl sem
gengið hafi á milli ráðherra og yf-
irstjórnar lögreglunnar verði gerð
kunn á Alþingi.
Drífa Hjartardóttir, Sjálfstæðis-
flokki, lýsti yfir undrun sinni á um-
ræðunni í ljósi svara dómsmálaráð-
herra sem eytt hefðu öllum
misskilningi og Jón Kristjánsson,
Framsóknarflokki, tók undir það og
sagði orðanotkun sumra þingmanna
„hastarlega“. Sagði hann að svo virt-
ist sem þingmenn hlustuðu ekki á út-
skýringar þegar þær væru fram
bornar. Vísaði hann einnig til þess að
við afgreiðslu fjárlaga hafi 100 millj-
ónum króna verið bætt við áður
ákveðið fjármagn í þennan mála-
flokk og m.a. lagt í sjóð til að mæta
yfirvinnu í erfiðum málum. Sagði
hann að ekki hafi verið veitt meira
fjármagn til nokkurs málaflokks á
síðari árum eins og þessa og ekki
veiti af.
„Annar hvor aðilinn
segir ósatt“
Guðmundur Árni Stefánsson,
Samfylkingunni, sagði hins vegar að
viðbrögð stjórnarliða væru ótrúleg.
Ráðist væri að sendiboðanum í stað
þess að horfast í augu við vandann.
Sagði hann að lögreglumenn hafi
borið um fjárskort og Landssam-
band lögreglumanna hafi svo tekið af
öll tvímæli um yfirvinnubann.
„Annar hvor aðilinn segir ósatt,
dómsmálaráðherra ellegar lögreglu-
menn hér í landinu. Ég trúi hinum
síðarnefndu. Ef hæstvirtur ráðherra
vill ekki taka til hendinni í þessum
málaflokki verða aðrir hæfari að
gera það,“ sagði hann.
Aðrir sem tóku þátt í umræðunni
voru Jónína Bjartmarz, Þuríður
Backman, Sverrir Hermannsson,
Guðrún Ögmundsdóttir og Ásta
Möller.
Umræða utan dagskrár um stöðu fíkniefnalögreglunnar með tilliti til fjárveitinga
Ráðherra held-
ur fast við fyrri
yfirlýsingar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra var til andsvara í umræðunni.
Þingmenn spöruðu síst stóru orðin þegar
fjárveitingar til fíkniefnalögreglunnar
voru til umræðu á Alþingi í gær. Hart var
þar deilt um hvort yfirvinnubann væri
í gildi eða ekki, en dómsmálaráðherra
sagði ekkert slíkt bann hafa verið í gildi.
78. fundur. Miðvikudaginn 28.
febrúar 2001, kl. 13.30.
1. Framkvæmd Rómarsamþykktar
um Alþjóðlega sakamáladóm-
stólinn. Atkv.gr.
2. Hjúskaparlög. Atkvgr.
3. Framsal sakamanna. Atkvgr.
4. Rannsóknir í þágu atvinnuveg-
anna. Atkvgr.
5. Stjórnarskipunarlög. Atkvgr.
6. Þingsköp Alþingis. Atkvgr.
7. Hlutafélög. Atkvgr.
8. Kristnihátíðarsjóður.
79. fundur hefst strax að loknum 78.
fundi.
Fyrirspurnir til forsætisráðherra:
1. Setning reglna um kosningar
skv. 26. gr. stjórnarskrár, fsp.
frá SJS, 427. mál, þskj. 688.
2. Skipan stjórnarskrárnefndar,
fsp. frá SJS, 428. mál, þskj. 689.
3. Sveigjanleg starfslok, fsp. frá
ÁRJ, 435. mál, þskj. 698.
Fyrirspurnir til heilbrigð-
isráðherra:
4. Örorkubætur, fsp. frá ÁRJ, 354.
mál, þskj. 521.
5. Málefni heyrnarskertra, fsp. frá
ÁMöl, 364. mál, þskj. 567.
6. Biðlistar hjá Heyrnar- og tal-
meinastöð Íslands, fsp. frá
SvanJ, 388. mál, þskj. 638.
7. Sálfræði- og geðlæknisþjónusta
við fólk í sjálfsvígshugleið-
ingum, fsp. frá ÁRJ, 434. mál,
þskj. 697.
8. Lífeyristryggingar örorku- og
ellilífeyrisþega, fsp. frá ÁRJ,
436. mál, þskj. 699.
9. Forvarnastarf gegn sjálfsvígum,
fsp. frá ÁRJ, 437. mál, þskj. 700.
10. Umönnunargreiðslur vegna
hjartveikra barna, fsp. frá ÁRJ,
473. mál, þskj. 755.
11. Fjárstuðningur við fjölskyldur
langveikra barna, fsp. frá ÁRJ,
474. mál, þskj. 756.
Fyrirspurn til landbúnaðarráð-
herra:
12. Innflutningur hvalaafurða, fsp.
frá SvanJ, 421. mál, þskj. 682.
Fyrirspurnir til samgönguráð-
herra:
13. Úthlutun sjónvarpsrása á höf-
uðborgarsvæðinu, fsp. frá KPál,
440. mál, þskj. 703.
14. Fjöldi íslenskra kaupskipa, fsp.
frá GHall, 451. mál, þskj. 719.
Fyrirspurn til iðnaðarráðherra:
15. Flutningur verkefna eða stofn-
ana til landsbyggðarinnar, fsp.
frá KLM, 463. mál, þskj. 742.
Fyrirspurnir til umhverfisráðherra:
16. Lög um vernd og nýtingu erfða-
auðlinda, fsp. frá MF, 464. mál,
þskj. 743.
17. PCB-mengun í Reykjavík, fsp.
frá KF, 469. mál, þskj. 748.
ÁRNI M. Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra segir að sjómenn og út-
gerðarmenn verði að axla ábyrgð
sína varðandi þá kjaradeilu sem nú
er uppi og leiðir til verkfalls fiski-
skipaflotans 15 mars nk. semjist ekki
fyrir þann tíma.
Ráðherra svaraði þessu til við fyr-
irspurn Steingríms J. Sigfússonar,
vinstri grænum. Sagði Steingrímur
að þunglega horfði með deiluna og
spurðist fyrir um afskipti sjávarút-
vegsráðherra af málinu.
Árni svaraði því til, að hann hefði
átt ótal fundi með deiluaðilum á und-
anförnum mánuðum, en deiluefnið
væri enn hið sama og verið hefði
undanfarin ár. Deilan væri nú í
höndum ríkissáttasemjara og þaðan
hefði hann upplýsingar nú. Árni taldi
ekki skynsamlegt að Alþingi hefði af-
skipti af málinu á þessu stigi og sagði
að ef vilji deiluaðila stæði til þess
hefðu þeir sínar boðleiðir.
Deila sjómanna
og útgerðar
Deilu-
aðilar axli
ábyrgð
TVEIR fulltrúar Samfylkingarinn-
ar, þau Sigríður Jóhannesdóttir og
Einar Már Sigurðarson, hafa sent
forseta Alþingis svohljóðandi bréf:
„Forseti Alþingis, Halldór Blön-
dal. Á fundi menntamálanefndar í
dag fóru undirritaðir fulltrúar Sam-
fylkingarinnar í nefndinni fram á
eftirfarandi:
1. Að fulltrúi úr menntamálaráðu-
neytinu kæmi á fund nefndarinnar
til að færa rök fyrir þeirri túlkun
menntamálaráðherra á 53. grein
grunnskólalaga, að sveitarfélögum
væri heimilt að bjóða út kennslu-
þátt í grunnskólum, sem fram kom
hjá ráðherranum í utandagskrár-
umræðum um málefni Áslandsskóla
á Alþingi mánudaginn 12. febrúar
2001.
2. Að nefndin fjallaði um túlkun
53. greinar grunnskólalaga á grund-
velli 26. greinar þingskaparlaga.
3. Að óskað yrði eftir minnisblaði
frá menntamálaráðuneytinu vegna
túlkunar á 53. grein grunnskóla-
laga.
Öllum þessum beiðnum var hafn-
að með atkvæðum þriggja fulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í nefndinni
gegn tveimur atkvæðum fulltrúa
Samfylkingarinnar. Undirritaðir
fulltrúar í menntamálanefnd fara
þess á leit við forseta Alþingis að
hann beiti áhrifum sínum til að und-
irritaðir geti sinnt þingsskyldum
sínum samkvæmt 26. grein þing-
skaparlaga. Væntum við þess að nú
þegar geri forseti formanni nefnd-
arinnar og meirihluta hennar þetta
ljóst. Þannig að strax á morgun
verði efnt til aukafundar í nefndinni
þar sem fjallað verði um ofangreint
mál.
Einar Már Sigurðarson. Sigríður
Jóhannesdóttir.“
Fulltrúar Samfylkingar
í menntamálanefnd senda bréf
Forseti beðinn
að beita sér