Morgunblaðið - 28.02.2001, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 28.02.2001, Blaðsíða 34
MINNINGAR 34 MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Ólafur HaukurÓlafsson fæddist í Reykjavík 27. apríl 1928. Hann lést á líknardeild Landspít- alans í Kópavogi 18. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Ólafur Ágúst Hjart- arson, f. 10. ágúst 1898, og Kristín Benediktsdóttir, f. 22. apríl 1901. Systk- ini Ólafs eru: 1) Hjör- dís, f. í Reykjavík 7. nóvember 1922. 2) Benedikt, f. í Reykja- vík 10. janúar 1925. Ólafur kvæntist 2. desember 1954 Elínu Ingu Karlsdóttur, f. í Reykjavík 28. desember 1928, d. í Reykjavík 6. apríl 1996. Foreldrar Elínar voru Karl A. Jónasson, f. 27.11. 1900, d. í Reykjavík 31.12. 1961, og Ragnhildur Þórarins- dóttir, f. í Vík í Mýrdal 2. desem- ber 1904, d. í Reykjavík 23. nóv- ember 1997. Ólafur Haukur og Elín Inga eignuðust þrjú börn. Þau eru: 1) Ragnhildur, f. í Reykjavík 27. febrúar 1958. Mað- ur hennar er Guð- mundur Ólafur Heiðarsson vélvirki, f. 31. ágúst 1956. Börn Ragnhildar og Guðmundar eru Ás- geir Ingi, f. 2.12. 1979; Guðríður Magndís, f. 29.6. 1982; og Elín Inga, f. 8.11. 1988. 2) Helga Sigríður, f. í Reykja- vík 5. apríl 1960. Maður hennar er Guðmundur Kristján Ásgeirsson, f. 2. júní 1958, húsgagna- smiður. Börn Helgu Sigríðar og Guðmundar eru Ásgeir Haukur, f. 25.11. 1983; og Kristín Helga, f. 13.9. 1989. 3) Karl Ágúst, f. í Reykjavík 6. ágúst 1966. Ólafur Haukur starfaði við prentiðn mestalla ævi, utan nokk- urra ára er hann vann við múr- verk og flísalagnir. Síðustu árin starfaði hann í Svansprenti í Kópavogi. Útför Ólafs Hauks fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Hugrakkur barðist faðir minn við þann sjúkdóm sem lagði hann að velli. Hann sá á eftir eiginkonu sinni og móður minni árið 1996 og var það honum þungur missir. Fjórum árum seinna hafði hann sæst við þann veru- leika sem við honum blasti. Hann tók að líkjast sjálfum sér meira. Taka gleði sína á ný. Hann hafði hugsað sér að lifa lífinu á ný, eftir breyttum að- stæðum. Hann líktist meira þeim pabba sem ég þekkti í uppvexti mín- um, glaðlyndari og kraftmeiri. Þeim mun þyngri varð raunin þeg- ar hann komst að því að hann bar innra með sér sjúkdóm, mein sem hann innst inni vissi að yrði sér skeinuhætt. Hans aðferð var ekki að bera sorgir sínar á torg. Hann deildi þeim að einhverju leyti með mér og systrum mínum, en því mikilvægasta hélt hann fyrir sjálfan sig. Hann var bjartsýnn til hinstu stundar. Líkam- legt þrek hans var sterkt, en enginn má við ofureflinu. Kraftur hans varð til að efla okkur börnunum hans kjark á erfiðum stundum. Systkini hans, Hjördís og Benedikt, missa nú yngsta bróður sinn. Þau og þeirra fjölskyldur hafa hjálpað okkur börn- um hans Ólafs Hauks á erfiðum tím- um. Nú á skilnaðarstundu leitar margt á hugann sem ekki verður sagt frá hér. Fyrir tveimur árum fórum við feðgar til Hafnar í Hornafirði. Þig langaði að komast yfir brúna sem var í smíðum síðast þegar þú varst á þessum slóðum með fjölskyldunni. Við fórum nú yfir brúna og þú keyrð- ir. Núna ertu kominn til Guðs ríkis og ef þarf að fara yfir straumhart fljót býr Meistarinn þér veg yfir regnbog- ann, hvert sem þú vilt fara. Guð geymi þig, faðir minn. Karl Ágúst. Það var fyrir rúmlega tuttugu ár- um eða árið1979 sem ég kynntist Ólafi og Elínu er ég kom fyrst á þeirra heimili á Jörfabakka og þegar maður lítur til baka þá er þetta ekki langur tími en ég átti margar ánægjulegar stundir með þeim og langar mig að nefna að það var sér- staklega gott að koma til þeirra. Í dag kveðjum við Ólaf Hauk en hann var prentari að mennt og starf- aði við þá iðn mestan hluta ævi sinnar og var hann ánægður í sínu starfi enda talaði Ólafur mikið um starfið og þá þróun sem hafði átt sér stað í þeirri iðn frá því að hann byrjaði að læra prentverk. Þegar ég hugsa til baka þá er ekki hægt annað en að geta þess að Ólafur var handlaginn og duglegur en Ólafur vann mikið og þess má geta að hann hætti ekki að vinna fyrr en í haust eft- ir að hann veiktist. Ólafur var sérstaklega laginn við matargerð og var hann mjög góður kokkur og eru ófáar veislurnar sem hann bauð okkur fjölskyldunni í en hann hafði mjög gaman af því að elda góðan mat og hafði hann orð á því nú um áramótin að hann hefði ekki boðið okkur öllum í mat um jólin eins og hann var vanur að gera og það sá ég á honum að það þótti honum miður. Ólafur var mikill íþróttaáhugamað- ur og þeir eru margir leikirnir sem við horfðum á saman en við vorum ekki sammála í íslenskri knattspyrnu eða í þeirri ensku en Ólafur var mikill KR-ingur en hafði auk þess taugar til Blika í seinni tíð. Þegar við Helga komum til hans á líknardeildina í Kópavogi sunnudag- inn 11. febrúar og hann hafði fengið háan hita daginn áður þá sagði hann við okkur að þetta væri bara vegna þess að mitt lið í enska boltanum gerði bara jafntefli þennan dag og honum mundi batna fljótt en Ólafur var bjartsýnn maður og var stutt í hláturinn hjá honum. Innilegar samúðarkveðjur til ykk- ar allra, minning um góðan mann mun lifa með okkur. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Guðmundur Ásgeirsson. Frá fyrstu bernsku áttum ástúð þína, er ávallt lést á brautir okkar skína. Þín gleði var að gleðja barnsins hjarta og gera okkar ævi fagra og bjarta. Þér við hönd þú okkur leiddir og ljós og kærleik yfir sporin breiddir. Öll samleið varð að sólskinsdegi björtum, er sanna blessun færði okkar hjörtum. Þín góðu áhrif geymum við í minni, er gafstu okkur hér af elsku þinni. Við þökkum allt af heitu barnsins hjarta, er hjá þér nutum við um samfylgd bjarta. (I.S.) Elsku afi, við þökkum þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur. Guð geymi þig. Ásgeir Haukur og Kristín Helga. Nú er elsku afi okkar horfinn á braut eftir mikla baráttu við veikindi undanfarna mánuði. Hann fór frá okkur á konudeginum, sem ég tel vera frekar táknrænt fyrir hann afa, því hann fór í opinn faðminn á ömmu Ellu, þar munu þau svo halda áfram að lifa saman eftir fimm ára aðskiln- að. Elsku afi, það er svo margs að minnast um þig. Og helst má nefna hvað þú varst alltaf duglegur að taka okkur barnabörnin í bíltúr. Eitt skipti situr sterkt í minningunni þegar þú bauðst mér, Ásgeiri Inga og Ásgeiri Hauki til Hveragerðis í nýja, flotta bílnum ykkar ömmu. Þegar við vor- um komin hálfa leiðina til Hvera- gerðis varð mér svo flökurt og ekkert ráðrúm til að stoppa svo að ég ældi í nýja bílinn. En hann afi var sko ekki reiður, hann tók þessu með mestu ró- semi. Þú varst alltaf svo mikill krakki í þér og gast aldrei setið kyrr þegar barnabörnin þín voru nálægt, vildir allt fyrir okkur gera. Hér er lítið ljóð sem ég bjó til: Hin hlýja hönd læðist um mína, hann er kominn til að kveðja. Kveðjan berst með fuglunum, alla leið til mín. Hann snertir vanga minn, fram spretta tár. Ekki gráta, heyrist í vindinum. Tárin falla samt, vegna allra góðu stundanna sem nú eru aðeins minningar. Elsku afi, ég bið að heilsa. Guðríður Magndís Guðmundsdóttir. Afi minn, þér þótti svo gaman að ég skyldi vera að læra á hljóðfæri og varst duglegur að koma og hlusta á mig spila. Þakka þér fyrir stuðning- inn. Þú lifir í huga mínum. Elín Inga Guðmundsdóttir. Örskömmu áður en Ólafur Haukur gekk fyrir ætternisstapann lágu fyrir mér skilaboð í þingi um að hann hefði hringt. Nú þykir mér það þyngra en tárum taki að ég skyldi missa af því símtali. Fyrir því sendi ég honum hinztu kveðju og þakklæti fyrir vin- áttu mér og mínum sýnda. Við Ólafur Haukur áttum heima í sama húsi við Granaskjól í Reykjavík um nokkurra ára skeið. Hann bjó þar í kjallaranum í Granaskjóli 26 með Elínu sinni og þremur börnum, en við Greta á 2. hæð með okkar fimm. Á hæðinni á milli okkar bjó öðlingurinn Magnús Ástmarsson með Elínborgu konu sinni og börnum. Þótt árin séu sjálfsagt fleiri en þrjátíu frá því að sambýlinu sleit, rofnaði samband okkar Ólafs Hauks aldrei og var það honum að þakka. Hann sló af og til á þráðinn og rifjaði upp gömul og góð kynni. Hann missti Elínu sína á bezta aldri og var dauði hennar honum afar þungbær, þótt hann bæri ekki sorg sína á torg. Ólafur Haukur var afar hlýr og glaðbeittur í allri umgengni og vika- lipur er taka þurfti til hendi. Hann og hans fólk voru grannar eins og þeir gerast beztir. Við Greta biðjum honum blessunar Guðs og afkomendum hans huggunar harmi gegn. Sverrir Hermannsson. Látinn er eftir stutta sjúkdóms- legu vinnufélagi okkar og vinur, Ólaf- ur Haukur Ólafsson, á 73. aldursári, það er ótrúlegt hvað þetta gerðist fljótt. Það er mikill sjónarsviptir að hafa Óla ekki hjá okkur lengur. Hann var að vinna á fullu um miðjan októ- ber, var að leysa af á pappírslagern- um, hörkuduglegur að skera og skipuleggja lagerinn, hann hafði góða sýn yfir það sem hann var að vinna við og hafði gott auga fyrir því hvern- ig hlutirnir ættu að vera og hvernig best væri að vinna þá, alltaf að finna upp betri aðferðir. Hann var mikill húmoristi og hugsuður og kryddaði lífið hjá okkur hinum með allskonar uppátækjum og uppfinningum. Hann átti það til að koma ósofinn í vinnuna eftir að hafa verið búinn að finna upp einhverja nýja aðferð til að gera vinn- una léttari, skemmtilegri eða bara öðruvísi. Óli stóð fastur á sínu og lét ekki neinn vaða ofan í sig hvort held- ur sem er vinnufélagana eða yfir- menn. Hann átti alltaf síðasta orðið enda fékk hann ýmislegt í gegn sem öðrum hefði aldrei tekist. Óli var réttsýnn maður og tók hann upp hanskann fyrir þá sem minna máttu sín, og áttu menn Hauk í horni þar sem Óli var. Hann var alltaf til í smá glens og átti það til að boxa við vinnufélagana ef þeir héldu sig ekki á mottunni, eða tók létta takta með fót- bolta ef hann var til staðar enda KR- ingur í húð og hár. Óli var félagslynd- ur maður og tók þátt í félagslífinu með vinnufélögunum og var hrókur alls fagnaðar, og ekki lét hann sig vanta í utanlandsferðirnar með okkur . Óli var mikill heimsmaður, víðlesinn og fróður. Hann hafði gaman af að ferðast og var Austurríki í miklu upp- áhaldi hjá honum, hann hreifst af menningu landsins og tónlist. Hafði hann gaman af að segja frá þegar hann og Elín kona hans dvöldu þar hjá kunningjafólki sínu í góðu yfir- læti. Síðasta ferðin með vinnufélögun- um var til London og þá var Karl son- ur Óla með föður sínum og var mjög kært á milli þeirra feðga og þá var lit- ið á annars konar menningu, það er „fótbolta“. Það var farið á völlinn og hafði Óli mikið gaman af. Minnstu munaði að þeir feðgar misstu af rút- unni á leið út á flugvöll, vorum við far- in að íhuga að skilja töskurnar þeirra eftir svo að þeir stæðu ekki klæða- lausir í London, en þeir komu á síð- ustu stundu, höfðu komið við á krá og þar var verið að sýna frá einhverjum fótboltaleik og það er auðvelt að gleyma sér yfir því. Óli henti gaman að þessu öllu og sagði að það hefði verið alveg óþarfi að stressa sig á þessu, hann hefði komið í tæka tíð. Við viljum þakka Óla samfylgdina á þeim árum sem við unnum með honum, við minnumst hans með virð- ingu og hlýhug, við vitum að nú líður honum vel, kominn til Elínar, sinnar elskuðu eiginkonu, sem lést árið 1996 og var sárt saknað. Börnum Óla, þeim Ragnhildi, Helgu og Karli, sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðj- um Guð að styrkja þau í sorg þeirra, en við Óla segjum við: Far vel, kæri vinur, og hafðu þökk fyrir allt. Vinnufélagar í Svansprenti. ÓLAFUR HAUKUR ÓLAFSSON ✝ Ástráður HólmÞórðarson fædd- ist í Reykjavík 13. nóvember 1922. Hann lést á Landspít- alanum 18. febrúar síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Þórður Frímann Björnsson múrari í Reykjavík, f. 3.9. 1892, d. 3.5. 1971, og kona hans Ögn Jónsdóttir, f. 28.10. 1888, d. 1.11. 1972. Systkini Ástráðar eru: Sesselja, f. 9.4. 1918, Sigrún Áslaug, f. 27.12. 1919, Kristrún, f. 10.7. 1921. Í maí 1947 kvæntist Ástráður eftirlifandi eiginkonu sinni, Elsu Kristínu Wiium, f. 29.12. 1923. Foreldrar hennar voru Kristján Nielsson Wiium, bóndi í Fagradal, f. 24.4. 1880, d. 1.6. 1932, og kona hans Oddný Sveinsdóttir, f. 26.5. 1884, d. 2.5. 1976. Börn þeirra Ástráðs og Elsu eru: 1) Agnar Wiium, f. 18.8. 1947, byggingatæknifræð- ingur, bygginga- fulltrúi í Garðabæ. 2) Kristján Wiium, f. 11.7. 1950, múrara- meistari í Reykjavík, starfar á bygginga- deild borgarverk- fræðings, kvæntur Pamela Ingrid Krist- in Thordarson hár- greiðslumeistara, f. 19.9. 1951. Barn þeirra er Kristín Ólöf, hársnyrtir, f. 24.10. 1970, sambýlismaður hennar er Óskar Þór Óskarsson trésmiður, f. 19.9. 1964. Börn þeirra: Þórir Baldvin, f. 16.6. 1988, og Óttar Máni, f. 10.4. 1994. Útför Ástráðs fer fram frá Ás- kirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. (V. Briem.) Með örfáum orðum og þakklæti viljum við minnast vinar okkar og föð- ur mágs míns, Ástráðs Þórðarsonar. Ástráður var léttur í lund og barngóð- ur maður sem gerði návist hans ein- staka. Við minnumst margra góðra ferða í sumarbústað þeirra hjóna í Öndverðarnesi jafnt sem notalegra samverustunda á heimili Kristjáns sonar hans og Pamelu systur minar. Ástráður hafði mikinn áhuga á íþrótt- um og sást oft til hans og Kristjáns fylgjast með Ingvari syni mínum keppa í fótbolta þegar hann var barn, er Ingvar eltist og fór að spila með meistaraflokki bættist Þórir Baldvin langafabarn Ástráðs í hópinn. Golf- íþróttin átti hug Ástráðs og Kristjáns allan og fannst Ingvari forréttindi að fá að spila með þeim feðgum. Stórt skarð hefur myndast í vina- hópi Kristjáns sem erfitt verður að fylla þar sem samband þeirra feðga var með eindæmum gott. Kæra Elsa, Agnar, Kristján og fjöl- skyldur, megi algóður Guð gefa ykk- ur styrk á erfiðum tíma. Farinn er góður maður en eftir lifa góðar minn- ingar. Anna (Patsy) Thordarson og fjölskylda. Í dag, 28. febrúar, verður til hinstu hvílu lagður Ástráður Þórðarson, múrarameistari og byggingaeftirlits- maður hjá byggingadeild borgar- verkfræðings. Með Ástráði Þórðarsyni er kvadd- ur góður maður úr múrarastétt og byggingaeftirliti. Ástráði þótti gaman að vera til. Hann var útivistarmaður og golf- íþróttamaður af lífi og sál. Hann naut þess að blanda geði við menn. Mann- þekking hans gerði hann næman á það sem sérkennilegt var í fari fólks. Best naut hann sín með sínu fólki. Hann fékk einstaklega góðrar konu sem var honum ætíð stoð og styrkur. Þau eignuðust vel gerða syni, þá Agn- ar og Kristján. Sólfagran laugardag að sumarlagi fyrir um það bil tveimur áratugum gengum við Ástráður eftir þeirri ní- undu gömlu á golfvellinum í Öndverð- arnesi. Sá dagur hefur vakað í hug mínum síðan. Hann sagði mér frá kostum íþróttarinnar og slegið var fyrsta höggið sem heppnaðist. Ekki er nokkur leið að rita minn- ingarorð um Ástráð Þórðarson án þess að geta dugnaðar og áhuga hans við múraraiðnina og byggingaeftirlit- ið seinni misserin. Var við brugðið út- sjónarsemi hans og ráðsnilld, það vita þeir best sem til þekkja og nutu krafta hans. Þeir sömu vita líka að aldrei var gefist upp, heldur fundin leið til þess að leysa vandann við flísa- lögnina og/eða hvernig best væri að vinna við steininguna. Ástráður var sannur Íslendingur og hann er af þeirri kynslóð sem við, sem í dag er- um á miðjum aldri, eigum svo mikið að þakka. Nú þegar komið er að leið- arlokum, kæri Ástráður, drúpum við hjónin höfði og þökkum þér allar góðu stundirnar sem við áttum sam- an. Guð geymi þig, kæri vinur, og blessi minningu þína.Við vottum eig- inkonu, sonum og aðstandendum okkar innilegustu samúð og blessun. Guðmundur Pálmi og Ragnheiður. Elsku afi. Þín minning lifir í okkar hjarta. „Þó ég sé látinn, harmið mig ekki með tárum. Hugsið ekki um dauðann með harmi og ótta. Ég er svo nærri, að hvert eitt ykkar tár snertir mig og kvelur. En þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug lyftist sál mín upp í mót til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur og ég tek þátt í gleði ykkar yfir lífinu.“ Þín Kristín. ÁSTRÁÐUR HÓLM ÞÓRÐARSON

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.