Morgunblaðið - 28.02.2001, Blaðsíða 31
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2001 31
UNDIRRITAÐRI
brá illa laugardags-
morguninn 24. febrúar
sl. er hún horfðist í
augu við sjálfa sig bros-
andi á síðu Morgun-
blaðsins hvetjandi
vaska sveit áhugahnefa-
leikara á leið til Banda-
ríkjanna. Það er virð-
ingarvert að konur
skuli styðja sína menn.
Ég þekki hins vegar
enga sem leggja stund
á hnefaleik, en marga
er fást við hljóðfæra-
leik. Þá styð ég og hvet
til dáða. Í hljóðfæra-
leiknum fá þeir útrás fyrir tilfinn-
ingar og líðan, efla hreyfifærni,
auka snerpu og úthald, og svona
mætti lengi telja. Þetta eru menn og
konur á öllum aldri sem þrátt fyrir
erfiðleika, þroskahamlanir og fatl-
anir af ýmsu tagi eiga það sameig-
inlegt að njóta sín og
eflast í tónlistariðkun,
trommuleik, píanó-
leik, tónbjölluleik og
öðrum hljómrænum
leik. Ég hef oft haft
þörf fyrir að skrifa
blaðagrein fyrir
þeirra hönd og nota
því þetta tækifæri
sem myndbrenglin í
grein nöfnu minnar
færa mér. Þeir menn
og konur sem ég styð
eiga það sameiginlegt
að njóta þjálfunar og
stunda nám í Tón-
stofu Valgerðar. Þetta
eru einstaklingar með
sérþarfir sem ekki hafa greiðan að-
gang að öðrum tónlistarskólum og
þarfnast sérstakra kennsluúrræða
og einstaklingsbundinnar námskrár.
Þeir ásamt vaskri sveit foreldra
berjast fyrir því að Tónstofan verði
viðurkennd sem sjálfstæður tónlist-
arskóli er njóti sömu fyrirgreiðslu
og aðrir tónlistarskólar í landinu.
Þeir berjast fyrir jafnrétti til náms
líkt og bundið er í lögum og orðað
er í aðalnámskrá tónlistarskóla.
Nemendur Tónstofunnar eru þakk-
látir og gleðjast nú yfir veittum
styrk frá fræðsluráði Reykjavíkur
sem gerir þeim kleift að stunda nám
sitt nú í ár. Styrkveitingin, sem er
mikilvægt skref í jafnréttisátt, gefur
von um að innan tíðar verði hægt að
koma til móts við alla þá sem óska
eftir og þarfnast tónlistarsér-
kennslu.
Styð
hljóðfæraleik
Valgerður
Jónsdóttir
Höfundur er skólastjóri Tónstofu
Valgerðar.
Myndabrengl
Ég hef oft haft þörf
fyrir að skrifa blaða-
grein fyrir þeirra hönd,
segir Valgerður Jóns-
dóttir, og nota því þetta
tækifæri sem mynd-
brenglin í grein nöfnu
minnar færa mér.
Í DAG, miðvikudaginn 28. febrúar,
öskudag, verður föstumessa í Ás-
kirkju kl. 20 og síðan hvert mið-
vikudagskvöld föstunnar á sama
tíma.
Í föstumessunum eru passíusálm-
ar Hallgríms Péturssonar sungnir,
en sönginn leiðir Kirkjukór Ás-
kirkju undir stjórn Kristjáns Sig-
tryggssonar. Píslarsaga guðspjall-
anna lesin og sóknarprestur flytur
hugleiðingu. Loks sameinast kirkju-
gestir í bæn fyrir þjáðum nær og
fjær.
Þessar kyrrlátu stundir andaktar
og bænagjörðar í Áskirkju á föst-
unni hafa undanfarin ár reynst
mörgum dýrmætar, bæði það að
hugleiða píslarsöguna í ljósi pass-
íusálma Hallgríms og lífið sitt í ljósi
sálmanna hans og frásagnar guð-
spjallanna, sem og það að kyrra
hugann í bæn fyrir sér og öðrum.
Hvítasunnumenn
þinga
Í BYRJUN mars munu Hvíta-
sunnumenn halda sína árlegu trú-
boða og aðalfundi. Vel mætti kalla
þá þing þar sem helstu mál er
snerta safnaðarstarf, uppbyggingu
safnaða og áhersluatriði gagnvart
samtíma verða rædd. Alls verða 50
manns á þessu þingi allsstaðar að af
landinu.
Okkur Hvítasunnumönnum er
heiður að fá að efna til ráðstefnu um
kristin trúargildi í einum besta ráð-
stefnusal Eyjanna. Þeir sem áður
hafa notið aðtöðunnar hafa horfið
glaðir á braut. Finnst okkur þetta
einnig jákvætt framlag til farsæls
mannlífs í Caprí Norðursins.
Stærstu mál þessarar ráðstefnu
verða: innganga trúfélagsins Kletts-
ins í Hvítasunnusöfnuðinn, sam-
starfsamningur við Assembly of
God í Ameríku, Alfa-námskeiðin og
barnastarf svo eitthvað sé nefnt
Gestaprédikari mun vera með
okkur, Hollendingurinn Robert
Maasbach. Hann mun vera aðal-
ræðumaður á samkomum á mið-
vikud. 28.febr. og fimmtud. 1. mars
kl 20.
Samkomurnar með Robert Maas-
bach eru öllum opnar meðan hús-
rúm leyfir.
Samvera eldri
borgara í Laug-
arneskirkju
Í DAG kl. 14 verður áhugaverð dag-
skrá á samveru eldri borgara í
Laugarneskirkju. Að lokinni helgi-
stund, þar sem Gunnar Gunnarsson
leikur á píanó og sr. Bjarni fer með
Guðs orð og bæn, munu félagar úr
Halaleikhópnum sýna brot úr verk-
inu Nakinn maður og annar í kjól-
fötum eftri Dario Fo. Að sýnungu
lokinni verður stuttur málfundur
um innihald verksins, og m.a. rætt
um fátækt á Íslandi. Fundarstjóri
verður Sigurbjörn Þorkelsson. Þá
verður boðið upp á kaffi og meðlæti.
Það er Þjónustuhópur Laugarnes-
kirkju sem hefur veg og vanda að
samverum eldri borgara ásamt
kirkjuverði og sóknarpresti.
Dómkirkjan: Hádegisbænir kl.
12:10. Léttur málsverður á eftir.
Grensáskirkja: Foreldramorgunn
kl. 10–12. Sigrún Sigurðardóttir
hjúkrunarfræðingur ræðir um mál-
þroska barna. Allar mæður vel-
komnar með lítil börn sín. Samveru-
stund eldri borgara kl. 14.
Biblíulestur, bænastund, kaffiveit-
ingar og samræður. TTT (10–12 ára
starf) kl. 16:30.
Hallgrímskirkja: Opið hús fyrir for-
eldra ungra barna kl. 10–12.
Fræðsla: Örvun málþroska. Hall-
veig Finnbogadóttir hjúkrunarfræð-
ingur.
Háteigskirkja: Samverustund eldri
borgara kl. 11–16 í Setrinu í umsjón
Þórdísar Ásgeirsdóttur þjónustu-
fulltrúa. Við minnum á heimsókn-
arþjónustu Háteigskirkju, upplýs-
ingar hjá Þórdísi í síma 551 2407.
Kórskóli fyrir 5–6 ára börn kl. 16.
Barnakór 7–9 ára kl. 17. Kvöldbæn-
ir og fyrirbænir í dag kl. 18.
Laugarneskirkja: Morgunbænir kl.
6:45–7:05. Öskudagur. Kirkjan, for-
eldrafélag Laugarnesskóla, Þrótt-
heimar og Blómaval bjóða upp á
dagskrá fyrir börnin í hverfinu.
Nánar auglýst í skólanum. Ferm-
ingarfræðsla kl. 19:15. Verðlaun
veitt fyrir besta öskudagsbúning-
inn? Öskudagsball fyrir unglinga kl.
20:30 haldið í Blómavali á vegum
Laugarneskirkju, Þróttheima og
Blómavals. Gospel-samvera kl. 20 í
Hátúni 10 í samvinnu kirkjunnar og
ÖBÍ.
Neskirkja:Orgelandakt kl. 12. Jónas
Þórir leikur. Ritningarorð og bæn.
Starf fyrir 7 ára börn kl. 14–15. Op-
ið hús kl. 16. Myndasýning frá Vest-
fjörðum. Kyrrðarstund kl. 20. Sr.
Halldór Reynisson. Kyrrðarstund á
föstu kl. 20. Tónlist, íhugun, ritning-
arlestur, bæn. Tónlistarmenn: Haf-
dís Bjarnadóttir gítarleikari, Grím-
ur Helgason klarínettuleikari.
Prestur: sr. Halldór Reynisson.
Seltjarnarneskirkja: Kyrrðar- og
bænastund kl. 12. Léttur málsverð-
ur á eftir í safnaðarheimilinu. Starf
fyrir 11–12 ára börn kl. 17.
Árbæjarkirkja: Félagsstarf aldr-
aðra. Opið hús í dag kl. 13–16.
Handmennt, spjall og spil. Fyrir-
bænaguðsþjónusta kl. 16. Bænar-
efnum er hægt að koma til presta
safnaðarins. „Kirkjuprakkarar“, 7–9
ára, kl. 16–17. TTT,starf fyrir 10–12
ára, kl. 17–18.
Breiðholtskirkja: Kyrrðarstund í
dag kl. 12.10. Tónlist, altarisganga,
fyrirbænir. Léttur málsverður í
safnaðarheimilinu eftir stundina.
„Kirkjuprakkarar“, starf fyrir 7–9
ára börn kl. 16. TTT, starf fyrir 10–
12 ára, kl. 17.15.
Digraneskirkja: Æskulýðsstarf
KFUM og Digraneskirkju fyrir 10–
12 ára drengi kl. 17:30. Unglinga-
starf KFUM&KFUK og Digranes-
kirkju kl. 20.
Fella- og Hólakirkja: Kyrrðar- og
bænastund kl. 12. Léttur hádegis-
verður í safnaðarheimilinu eftir
stundina. Opið hús fyrir fullorðna til
kl. 14. Bæna- og þakkarefnum má
koma til Lilju djákna í s. 557 3280.
Látið einnig vita í sama síma ef ósk-
að er eftir keyrslu til og frá kirkju.
Starf fyrir 9–10 ára stúlkur kl. 15–
16. Helgistund í Gerðubergi á
fimmtudögum kl. 10.30.
Grafarvogskirkja: Kyrrðarstund í
hádegi kl. 12 með altarisgöngu og
fyrirbænum. Boðið er upp á léttan
hádegisverð á vægu verði. Allir vel-
komnir. KFUM fyrir drengi á aldr-
inum 9–12 ára kl. 16:30–17:30.
„Kirkjukrakkar“ í Engjaskóla kl.
18–19. KFUK, fyrir stúlkur 12 ára
og eldri, annan hvern miðvikudag
kl. 20:30–21:30.
Hjallakirkja: Fjölskyldumorgnar kl.
10–12. Starf fyrir 10–12 ára kl. 17.
Kópavogskirkja: Samvera 8–9 ára
barna í dag kl. 16:45–17:45 í safn-
aðarheimilinu Borgum. TTT. Sam-
vera 10–12 ára barna í dag kl.
17:45–18:45 í safnaðarheimilinu
Borgum.
Seljakirkja: Kyrrðar- og bænastund
í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum. All-
ir hjartanlega velkomnir. Léttur
kvöldverður að stund lokinni. Tekið
á móti fyrirbænaefnun í kirkjunni í
síma 567 0110.
Vídalínskirkja: Foreldramorgnar,
starf fyrir foreldra ungra barna kl.
10–12 í safnaðarheimilinu.
Víðistaðakirkja: Opið hús fyrir eldri
borgara kl. 14–16.30. Helgistund,
spil og kaffi.
Hafnarfjarðarkirkja: Kyrrðarstund
í hádegi kl.12, altarisganga og fyr-
irbænir. Léttur hádegisverður frá
kl. 12:30–13.
Kletturinn, kristið samfélag:
Bænastund kl. 20. Allir velkomnir.
Keflavíkurkirkja: Miðvikud. 27.
feb.: Kirkjan opnuð kl. 12. Kyrrðar-
og fyrirbænastund í kirkjunni kl.
12:10. Samverustund í Kirkjulundi
kl. 12:25 súpa, salat og brauð á
vægu verði, allir aldurshópar. Um-
sjón: Ásta Sigurðardóttir, cand. the-
ol. Alfa-námskeið í Kirkjulundi kl.
19 og lýkur í
kirkjunni um kl. 22.
Ytri–Njarðvíkurkirkja: STN-starf í
dag kl. 16.30 í umsjá Vilborgar
Jónsdóttur og er ætlað börnum 6–9
ára.
Landakirkja, Vestmannaeyjum:
Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12–
12.30. Fermingarfræðsla kl. 14.40–
17.15. Opið hús í KFUM&K-húsinu
kl. 20.
Fíladelfía: Súpa og brauð kl. 18.
Kennsla kl. 19, krakkaklúbbur, ung-
lingafræðsla, kennsla fyrir ensku-
mælandi og biblíulestur. Allir hjart-
anlega velkomnir.
Boðunarkirkjan: Námskeið dr.
Steinþórs Þórðarsonar, „Lærum að
merkja biblíuna“, í kvöld kl. 20.
Mörg spennandi efni verða tekin
fyrir og biblían verður aðgengilegri.
Allir velkomnir.
Kapella Sjúkrahúss Hvammstanga:
Bænastund í dag kl. 17. Allir vel-
komnir.
KFUM, KFUK og SÍK:
Samkoma hjá SÍK á Háaleitisbraut
58 kl. 20:30. Beyene Gailassie og
Friðrik Hilmarsson tala. Allir hjart-
anlega velkomnir.
Selfosskirkja: Krakkaklúbbur kl.
14–14.50.
Föstu-
messur í
Áskirkju
Safnaðarstarf
Áskirkja.
KIRKJUSTARF
MIKIÐ hefur verið
rætt og ritað að und-
anförnu um þá ákvörð-
un Útvarpsráðs að
skylda flytjanda ís-
lenska Júró-
vision-lagsins til að
syngja á íslensku í að-
alkeppninni. Ég undir-
ritaður var einn af sjö
lagahöfundum sem
þátt tóku í undan-
keppninni, og tel að
þessi ákvörðun Út-
varpsráðs sé einfald-
lega út í hött og fái
ekki staðist ef grannt
er skoðað. Fyrir því
eru tvær ástæður sem
mönnum virðist hafa yfirsést, en ég
tel rétt að benda á:
1. Þegar keppnin var fyrst auglýst
(í Morgunblaðinu í október 2000)
var skýrt tekið fram að textinn
skyldi vera á íslensku og ensku.
Auglýsing þessi hefur mér vitanlega
aldrei verið dregin til baka af Rík-
isútvarpinu, og hlýtur efni hennar
því að hafa fullt gildi
sem útgangspunktur
fyrir þátttakendur í
Júróvision-keppninni.
2. Þótt Útvarpsráð
hafi fyrir sitt leyti
ákveðið að vinningslag-
ið skyldi flutt á ís-
lensku í aðalkeppninni
í Kaupmannahöfn var
samt engin tilkynning
þess efnis send höfund-
um laganna átta sem
komust í úrslit, hvorki
skriflega né munnlega.
Það hlýtur að teljast
lágmarkskrafa að
ákvarðanir opinberra
aðila séu tilkynntar
þeim sem málið varðar með ein-
hverjum lögformlegum hætti, en
slíku var ekki til að dreifa í þessu til-
felli.
Ég fæ ekki betur séð en að þessar
tvær staðreyndir slái öll vopn úr
höndum Útvarpsráðs, því ekki ein-
ungis var upphaflega boðið til
keppninnar á forsendum bæði ís-
lensku og ensku, heldur láðist Út-
varpsráði síðan í þokkabót að til-
kynna höfundum laganna 8 sem í
úrslit komust breyttar forsendur í
kjölfar ákvörðunar sinnar. Það eru
því engin efni til þess að neyða sig-
urvegara keppninnar til þess að
flytja lag sitt á íslensku, kjósi hann
að lagið verði sungið á ensku. Til
þess hefur hann fullan rétt.
Útvarpsráði stendur nær að snúa
sér að því að auka veg íslenskrar
tónlistar á íslensku í íslensku út-
varpi. Það er málverndarstefna sem
skilar árangri. Áfram Ísland!
Ráðríkis-
útvarpið?
Ingi Gunnar
Jóhannsson
Höfundur er meðlimur í Félagi
tónskálda og textahöfunda (FTT) og
var einn þátttakenda í undankeppni
Júróvision hér á landi.
Söngvakeppnin
Þótt Útvarpsráð hafi
ákveðið að vinningslagið
skyldi flutt á íslensku í
aðalkeppninni, segir
Ingi Gunnar Jóhanns-
son, var engin tilkynn-
ing þess efnis send höf-
undum laganna sem
komust í úrslit.