Morgunblaðið - 28.02.2001, Page 20

Morgunblaðið - 28.02.2001, Page 20
ERLENT 20 MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ indamál. Ræddi hún sérstaklega þá venju kín- verskra stjórnvalda að senda samvizkufanga til nauðungarvinnu úti í sveit. Á síðustu misserum hafa fylgismenn Falun Gong-hreyfingarinnar einkum verið beittir þessu „endurmenntunar- tæki“ eins og Kínastjórn kýs að kalla slíkt. Fékk hún þau svör að þetta tæki væri gagnlegt og ekk- ert við það að athuga. Ísraelar neita ásökunum um óhóflega valdbeitingu Ísraelsstjórn varðist einnig gagnrýni þeirri sem fram kemur í skýrslu Bandaríkjastjórnar, þar sem því er haldið fram að ísraelsk yfirvöld hafi á tíðum beitt óhóflega miklu ofbeldi í við- ureign sinni við palestínska óeirðaseggi á síðustu mánuðum. „Ísrael hefur brugðizt við kerfisbundnum, við- varandi árásum palestínskra skæruliða og með- limum palestínskra heimastjórnaryfirvalda með viðeigandi, hófsömum og ábyrgum hætti,“ segir í yfirlýsingu ísraelska utanríkisráðuneytisins í gær. Í bandarísku skýrslunni er einnig að finna hvassa gagnrýni á rússnesk yfirvöld vegna ástandsins í Tsjetsjníu. Öryggissveitir Rússa eru sagðar hafa sýnt í verki á vettvangi í Tstetsjníu mjög litla virðingu fyrir grundvallarmannréttind- um. Hvað snertir gagnrýni á ástandið í öðrum lönd- um en þeim sem hér hafa verið nefnd skar Kól- umbía sig nokkuð úr í gær. Forseti landsins, And- res Pastrana, lýsti því yfir að skýrsla bandaríska utanríkisráðuneytisins væri því miður „sanngjörn úttekt á þeim raunveruleika sem við lifum við.“ Í skýrslunni er meðal annars kólumbíski herinn og hægrisinnaðir skæruliðar í landinu sakaðir um gróf mannréttindabrot. BANDARÍSKA utanríkisráðuneytið birti á mánudag árlega skýrslu sína um ástand mann- réttindamála í hinum ýmsu ríkjum heims. Í skýrslunni eru meðal annars ísraelsk stjórnvöld gagnrýnd fyrir meðferð þeirra á Palestínumönn- um á síðustu mánuðum, stjórnvöld í Rússlandi fyrir „alvarleg brot“ á mannréttindum í Tsjetsj- níu og Kína fyrir slæmt ástand í þessum málum almennt. Kínastjórn brást í gær harkalega við þessari gagnrýni. Zhang Qiyue, talsmaður kínverska ut- anríkisráðuneytisins, sakaði Bandaríkjastjórn um tvöfalt siðgæði. „Bandaríska ríkisstjórnin víkur engu orði að ástandi mannréttindamála í eigin landi en leyfir sér að básúna út afbakaðar lýs- ingar á stöðu mannréttindamála í öðrum lönd- um,“ hefur AP eftir Qiyue. Upplýsingaskrifstofa kínverskra stjórnvalda brást enn fremur við með því að birta skýrslu um „versnandi ástand mann- réttindamála í Bandaríkjunum“. „Við krefjumst þess að Bandaríkin hlíti grund- vallarreglum alþjóðasamskipta, leiðrétti mis- gjörðir sínar og hætti að beita svokölluðum mann- réttindamálum til að blanda sér í innanríkismál Kína,“ segir í yfirlýsingu kínverska utanríkis- ráðuneytisins. Er í kínversku skýrslunni bandarískt lýðræði kallað „leikur ríka fólksins“ og lítil kjörsókn í kosningum þar í landi kölluð sönnun fyrir því að lýðræði í Bandaríkjunum væri háðung ein. Philip T. Reeker, talsmaður bandaríska utan- ríkisráðuneytisins, sagði er skýrsla ráðuneytisins var kynnt, að einkum væru það aðgerðir kín- verskra stjórnvalda gegn íhugunarhreyfingunni Falun Gong og andófi í Tíbet sem ástæða væri til að hafa áhyggjur af. Hann tilkynnti að Banda- ríkjastjórn hygðist á ársfundi Mannréttinda- nefndar Sameinuðu þjóðanna styðja ályktun þar sem Kínastjórn er gagnrýnd. Mary Robinson, talsmaður Sameinuðu þjóð- anna í mannréttindamálum, var í gær stödd í fimmtu heimsókn sinni í Peking þar sem hún átti viðræður við kínverska ráðamenn um mannrétt- Kínversk stjórnvöld bregðast hart við Peking. AP, AFP. Reuters Mary Robinson, talsmaður Sameinuðu þjóð- anna í mannréttindamálum, á blaðamanna- fundi í Peking í gær, þar sem hún átti við- ræður við kínverska ráðamenn um mannréttindamál í landinu. Árleg skýrsla bandaríska utanríkisráðuneytisins um mannréttindamál ÞÚSUNDÞJALASMIÐURINN Gyula Forintos, sem býr í bænum Dunakeszi, skammt fyrir norðan Búdapest í Ung- verjalandi, er um þessar mundir að ljúka smíði 22 tonna og 20 metra langs kaf- báts. Hefur hann unnið að honum í sex ár. Í honum er pláss fyrir allt að fimm manns. Verður báturinn fluttur til sjávar í maí og þá hyggst For- intos leggja upp í kafsiglingu í kringum hnöttinn. Er báturinn, sem heitir Pol- aris, sá þriðji sem Forintos hefur smíðað en hinir tveir virkuðu ekki almennilega. AP Í kafi kringum hnöttinn NÝJAR rannsóknir á loftsteini, sem rakinn er til Mars, benda til, að líf hafi þrifist á rauðu plánetunni einhvern tíma í fyrndinni. Segir frá því í grein, sem birtist í gær í tímariti bandarísku vísindaakadem- íunnar. Vísindamenn hafa fundið í steininum seguljárnskristalla, sem mynda eins konar keðju og geta að þeirra sögn aðeins orðið til í lifandi veru. Loftsteinninn, sem vegur að- eins 1,8 kíló, er talinn hafa orðið til við árekstur milli Mars og stórs loftsteins fyrir 3,9 millj- örðum ára. Hafi hann síðan borist út í geiminn vegna ann- ars áreksturs fyrir 13.000 árum og síðan fallið til jarðar á suð- urheimskautinu. Líf á Mars? Washington. AFP. NOKKRIR danskir stjórn- málamenn hafa varpað fram þeirri hugmynd, að fólk verði skyldað til að ákveða hvort það vilji gefa líffæri í þeim til- vikum að það hafi verið lýst heiladautt. Ástæðan er mikill skortur á líffærum til líffæra- flutninga. Þrír af hverjum fjórum Dönum kveðast reiðu- búnir að gefa líffæri en það hefur þó aðeins skilað sér í því að um 5% þjóðarinnar eru skráð sem hugsanlegir líf- færagjafar. Gallup gerði könnun fyrir Berlingske Tidende þar sem spurt var um afstöðu manna til líffæragjafar og reyndust 74% fús til þess. Það er tals- verð breyting frá árinu 1989 er um 61% lýsti því sama yfir. Helsta ástæða þess að menn taka ekki af skarið og láta skrá sig virðist vera fram- taksleysi, ef marka má viðtöl við almenning, en sumir nefndu einnig óvissu um hvernig nánustu aðstandend- ur myndu bregðast við. Þegar Danir fá sjúkrasamlagsskír- teini fylgir eyðublað sem fólki er frjálst að fylla út. Þar lýsir fólk því yfir hvort það er reiðubúið að gefa líffæri, fari svo að það verði lýst heila- dautt vegna slyss. Víðtækur stuðningur Nú hefur Lone Møller, tals- maður jafnaðarmanna í heil- brigðismálum, lagt til að fólk verði skyldað til að taka af- stöðu til þessa þegar það fær sjúkrasamlagsskírteini. Verð- ur tillagan rædd á næsta fundi heilbrigðisnefndar danska þingsins. Virðist hún njóta stuðnings stjórnarflokk- anna, jafnaðarmanna og Radi- kale venstre, svo og íhalds- manna, Danska þjóðarflokks- ins og Kristilega þjóðar- flokksins. Hins vegar hafa mið-demókratar og Venstre í nefndinni lýst andstöðu við hana. Arne Rolighed heil- brigðisráðherra hefur ekki tekið afstöðu til þessa en seg- ist mótfallinn því að beita fólk þvingunum. Hins vegar sé ljóst að átaks sé þörf til að upplýsa almenning um líf- færagjöf. Verði gert skylt að ákveða sig Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. Meirihluti Dana vill gefa líffæri en aðeins 5% á skrá VÍSINDAMÖNNUM tókst að koma í veg fyrir að magakrabbameinsæxli myndaðist í músum með því að gefa þeim genalyf. Þetta kemur fram í rannsókn sem fjallað var um í tímarit- inu Proceedings of the National Academy of Science. Það voru vísindamenn við Thomas Jefferson-háskólann í Fíladelfíu sem stóðu að rannsókninni. Í henni gena- breyttu þeir músum með því að fjar- lægja úr frumum þeirra gen sem kemur við sögu í mörgum tegundum krabbameins. Síðan voru dýrin látin komast í tæri við krabbameinsvald- andi efni. Músunum sem notaðar voru í rannsókninni var skipt í fjóra hópa. Einum hópnum var ekki gefið genalyf en hinum þremur var gefið lyfið með mismunandi hætti. Innan við helm- ingur þeirra sem tók lyfið fékk æxli. „Það kom okkur verulega á óvart að árangurinn skyldi vera svo góður,“ sagði örverufræðingurinn Kay Hueb- er sem stýrði rannsókninni ásamt ör- verufræðingnum Carlo Croce og taugalíffræðingnum Matthew Durin. „Við vissum að við gætum eytt krabbameinsfrumum á tilraunastof- unni en við vissum ekki hvort maga- sýrur myndu eyða veirunum. Við bjuggumst við mun, en ekki svo mikl- um.“ Vísindamennirnir voru mjög bjart- sýnir á að þessi forrannsókn myndi ryðja veginn fyrir genameðferð til að koma í veg fyrir og e.t.v. lækna krabbamein. Sömu aðferð mætti beita á vísi að krabbameini í lungum, vélinda, höfði, þvagblöðru og leghálsi, segja vísindamennirnir sem benda reyndar á að mikilvægasta viðfangs- efnið nú felist í því að tryggja að gena- lyfið berist til sérhverrar krabba- meinsfrumu, ekki einvörðungu þeirra sem valda magakrabba. „Þetta er fyrsta rannsóknin sem sýnir fram á forvarnaráhrif gena- flutninga,“ segir Matthew During. „Hún kemur á hæla nýlegra tilkynn- inga um að búið sé að kortleggja genamengi mannsins og ... er skref í áttina að þeim möguleika að lækna einstaklinga sem eru í mikilli hættu [á því að fá krabbamein] og að draga úr líkum á krabbameini.“ Bandarískir vísindamenn beittu genameðferð á mýs í rannsókn Komu í veg fyrir krabbamein Washington. AFP, The Daily Telegraph.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.