Morgunblaðið - 28.02.2001, Blaðsíða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2001 11
REGLUGERÐ um höfundarréttar-
gjald á geisladiska er ákaft mótmælt
og eykst fjöldi þeirra sem hefur
skráð sig á mótmælalista gegn reglu-
gerðinni á Netinu hratt. Að morgni
mánudags höfðu um 900 manns
skráð sig, um klukkan 18 var talan
komin upp í 6.500 en sólarhring síðar
höfðu 10.166 skráð sig. Reglugerðin
hefur í för með sér 60% hækkun á al-
gengum óáteknum geisladiskum en á
þá hefur verið sett fast 35 króna
gjald. Algengt verð á geisladiski sem
þessum í tölvuverslunum var 59
krónur en nú kostar slíkur diskur 99
krónur.
Samkvæmt nýju reglugerðinni
hækka brennarar sem notaðir eru við
að brenna efni á geisladiska einnig
umtalsvert í verði. Stefán Ingi Guð-
mundsson, aðstoðarverslunarstjóri
hjá BT í Skeifunni, segir að einn
brennari eða skrifari sem verslunin
selur hafi hækkað úr um 30 þúsund
krónum í 37.000 krónur vegna breyt-
inganna eða um 23%. Samkvæmt
reglugerðinni skal endurgjaldið 4%
af innflutningsverði skrifara en Stef-
án segir að samhliða þessum breyt-
ingum hafi skrifarar verið settir í
annan vöruflokk. „Álagið í þeim vöru-
flokki er 25% hærra en áður,“ segir
Stefán og bendir á að auka 7% álag
bætist við á skrifara frá ákveðnum
löndum.
Hann segir að umræða um þessa
nýju reglugerð, sem tók gildi þann
29. janúar, hafi aukist mjög eftir að
fréttir tóku að berast af breytingun-
um frá fjölmiðlum. „Margir við-
skiptavinir hafa verið að kvarta við
mig vegna þessa í dag. Einn við-
skiptavinur benti á að miðað við
þessa álagningu gætu bókaútgefend-
ur allt eins krafist 35 króna gjalds á
hvert blað sem ljósritað er í landinu
vegna þess að hugsanlegt sé að blaðið
sé notað til að ljósrita upp úr bók,“
sagði Stefán.
Hugbúnaðarhöfundar
óánægðir
Hugbúnaðarhöfundar telja sinn
hlut skarðan með nýju reglugerðinni
og hvetja Samtök íslenskra hugbún-
aðarframleiðenda, SÍF, menntamála-
ráðuneytið til að endurskoða hana og
fella strax úr gildi í núverandi mynd.
Samtökin segja gjaldtöku vegna
reglugerðarinnar geta numið tugum
milljóna árlega sem hugbúnaðarfyr-
irtæki þurfi að bera allan kostnað af.
Gjaldlagningin sé því „ekkert annað
en árás á þessa ungu og vaxandi at-
vinnugrein og er með ólíkindum að
stjórnvöld skuli láta slíka reglugerð
frá sér fara án samráðs við SÍH“,
eins og segir í fréttatilkynningu frá
félaginu. Einn hugbúnaðarhönnuður,
Friðrik Skúlason, hefur skrifað
menntamálaráðherra opið bréf þar
sem hann lýsir efasemdum um reglu-
gerð ráðuneytisins þar sem hann tel-
ur hana fela í sér mismunun gagnvart
höfundarrétthöfum sem sé háð hug-
verkum þeirra. Friðrik segir greiðsl-
unum aðeins ráðstafað til höfunda
tónlistar, kvikmynda og texta sem sé
fluttur opinberlega, höfundar hug-
búnaðar sitji hjá en þeir verði engu
síður fyrir tjóni vegna afritunar
verka sinna og ættu því að fá réttláta
hlutdeild í innheimtum gjöldum.
„Það ætti að vera sameiginlegt hags-
munamál allra höfundarrétthafa að
berjast gegn óleyfilegri fjölföldun á
þeirra hugverkum, óháð því hvort um
er að ræða tónlist, kvikmyndir eða
forrit,“ eins og segir í bréfi Friðriks.
Áform eru uppi meðal þeirra sem
hvað mest eru mótfallnir reglugerð-
inni að safnast saman við mennta-
málaráðuneytið á föstudag og af-
henda Birni Bjarnasyni ráðherra
útprentun á undirskriftalistanum.
Í samræmi við reglur EES
Í maí 2000 voru samþykkt á Al-
þingi lög um breytingu á höfundar-
lögunum þar sem m.a. kom fram að
greiða skuli endurgjald af tækjum
sem einkum séu ætluð til upptöku
hljóðrita og myndrita hvort heldur
sem um ræðir með hliðrænum eða
stafrænum hætti. Lögin sem eru
undirstaða reglugerðarinnar voru
samþykkt samhljóða sl. vor en með
aðild Íslands að samningnum um
Evrópska efnahagssvæðið (EES-
samningnum) skuldbatt Ísland sig til
þess að aðlaga löggjöf landsins hinu
almenna verndarstigi hugverka í
Evrópusambandslöndunum.
Í frumvarpinu kom einnig fram að
endurskoðunarnefnd höfundarlaga
hafi fylgst með þróun alþjóðlegrar
höfundarréttarverndar, þar á meðal
vegna aukinna möguleika á nýtingu
hugverka og listflutnings með staf-
rænni tækni. „Er hér einkum átt við
samninga Alþjóðahugverkastofnun-
arinnar frá árinu 1996, höfundarrétt-
arsamning WIPO og grannréttinda-
samning WIPO.“
Áköf mótmæli gegn nýju höfundarréttargjaldi á geisladiska
60% verðhækkun í kjöl-
far nýrrar reglugerðar
NIÐURSTAÐA forvals Ríkiskaupa
vegna einkaframkvæmdar á rann-
sóknar- og nýsköpunarhúsi við Há-
skólann á Akureyri var kunngjörð í
gær. Tveir aðilar sóttu um að fá að
taka þátt í útboði á verkinu. Íslensk-
ir aðalverktakar hf. í samvinnu við
ISS Ísland ehf. annars vegar og
Nýsir hf. í samstarfi við Ístak hf.
hins vegar.
Ef í ljós kemur að þessir þátttak-
endur uppfylla gerðar kröfur um t.d.
fjárhagslegan styrk, tæknilega og/
eða stjórnunarlega getu og um
reynslu, verður þeim heimilað að
taka þátt í væntanlegu útboði. Páll
Grétarsson, verkefnastjóri forvals-
ins, telur líklegt að útboðið verði um
mánaðamótin mars-apríl.
Í verklýsingu í forvalsgögnum
stendur m.a.: „Leitað er að aðila til
að eiga, fjármagna, hanna, byggja,
viðhalda, og reka rannsókna- og ný-
sköpunarhús á lóð Háskólans á Ak-
ureyri á Sólborg.“ Rannsóknarhúsið
má vera 6.000 m2 og mun ef til vill
kostar 1,2 milljarða.
Arkitektastofan Gláma/Kím lagði
fram lögbannsbeiðni vegna þessa
forvals að útboði eins og skýrt var
frá í Morgunblaðinu í gær en sýslu-
maðurinn í Reykjavík hafnaði henni.
Garðar Briem, lögmaður stofunnar,
stefnir að því að koma kæru um mál-
ið til héraðsdóms fyrir helgina. Nið-
urstaða gæti fengist þar innan
tveggja mánaða.
Á arkitektastofunni hefur heildar-
mynd háskólasvæðins verið gerð og
lokið er við tvo byggingaráfanga. Í
lögbannsbeiðni stofunnar er því
haldið fram að lögvarinn höfundar-
réttur ná til heildarmyndar svæðis-
ins samkvæmt tillögu hennar frá
1996 sem valin var til útfærslu svæð-
isins. Útboð á hönnun rannsóknar-
hússins mun, að þeirra áliti, valda
tjóni á lögvörðum hagsmunum.
Í flutningi málsins hjá sýslumanni
var þessu svarað af hálfu ríkisins
m.a. með því að enginn samningur
væri í gildi um hönnun rannsóknar-
húss á Akureyri við Glámu/Kím, ekki
væri hægt að sýna fram á að ríkið
væri skuldbundið til að semja við
Glámu/Kím þótt samið hefði verið
við stofuna um I og II áfanga, ekki
væri hægt að beita höfundarréttin-
um á þennan hátt og þess getið að
ríkið hefði ekki í hyggju að nota í
heimildarleysi hugverk gerðarbeið-
anda.
Morgunblaðið/Golli
Efnt verður til lokaðs útboðs vegna Rannsóknahúss á Akureyri eftir að
þátttakendur hafa verið samþykktir hjá Ríkiskaupum.
Forval vegna Rannsóknahúss HA
Tveir þátttak-
endur í útboði
VERULEGA dró úr yfirvinnu
hjá fíkniefnadeild lögreglunnar í
Reykjavík milli september og
október á síðasta ári, að því er
kemur fram í yfirliti sem Böðvar
Bragason lögreglustjóri hefur
sent frá sér. Þar kemur fram að
yfirvinna deildarinnar var 3.118
stundir frá miðjum júlí fram í
miðjan ágúst, 2.248,5 stundir frá
miðjum ágúst til miðs septem-
ber og 405 stundir frá miðjum
september til miðs október.
Í tilkynningu lögreglustjóra
segir að vegna umfjöllunar um
málefni fíkniefnalögreglunnar í
Reykjavík að undanförnu telji
embættið rétt að upplýsa um
fjölda yfirvinnustunda á vegum
deildarinnar árið 2000. Yfirvinn-
an er gerð upp mánaðarlega
miðað við 10. hvers mánaðar:
Tímabil Yfirvinnustundir
07.12.99-10.01.2000 1.473,1
11.01.00-10.02.00 909,9
11.03.00-10.04.00 943,1
11.04.00-10.05.00 1.106,8
11.05.00-10.06.00 1.130,8
11.06.00-10.07.00 905,6
11.07.00-10.08.00 3.118
11.08.00-10.09.00 2.248,5
11.09.00-10.10.00 405,5
11.10.00-10.11.00 986,4
11.11.00-10.12.00 873.
Mjög dró úr
yfirvinnu
fíkniefna-
deildar
ÚTVARPSRÁÐ samþykkti á fundi
sínum í gær tilllögu Marðar Árna-
sonar um að Einar Bárðarson, höf-
undur sigurlagsins í forkeppni
Evrovision, ráði því sjálfur á hvaða
tungumáli lag hans, Birta, verður
sungið í aðalkeppninni í Kaup-
mannahöfn í vor.
Ráðið samþykkti á sínum tíma
tillögu Marðar um að lagið yrði
sungið á íslensku en hann sneri við
blaðinu eftir að Bandalag íslenskra
listamanna taldi að vegið væri að
tjáningarfrelsi lagahöfundarins.
Kristín Halldórsdóttir greiddi
atkvæði gegn því að breyta skil-
málum keppninnar á nýjan leik og
taldi það hringavitleysu að gera
það í miðju kafi. Gunnlaugur
Sævar Gunnlaugsson sat hjá.
Útvarpsráð leyf-
ir söng á ensku HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt 25 ára karlmann í
tveggja mánaða fangelsi. Hann hafði
stolið myndbandstæki að verðmæti
18.895 krónur úr verslun í Reykja-
vík. Við ákvörðun refsingar var tekið
mið af því að maðurinn á langan af-
brotaferil að baki.
Frá árinu 1993 hefur maðurinn
hlotið fimm refsidóma, einkum fyrir
þjófnað en einnig fyrir ölvun við
akstur og eignaspjöll.
Tveggja mán-
aða fangelsi
fyrir þjófnað